Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SÝNINGIN Bókalíf stendur yfir í Reykjavíkurakademíunni í JL-húsinu. Þar eru bókverk eftir Unni Guðrúnu Óttars- dóttur, unnin úr ýmsum efn- um, s.s. plexígleri, lopa, end- urgerðum bókum, pappír, girni og tvinna og fjalla þau m.a. um sambönd, mismunandi sjónarhorn, lagskiptingu og tilfinningar. Heimilt er að lesa og handfjatla bækurnar. Einnig er mögulegt að klæðast bókinni Tilfinningarnar í brjósti mér sem fjallar um þann sem klæðist bókinni. Á mánudag verður Unnur á staðnum og segir frá bókverkum sínum. Opið er frá 9 til 17. Myndlist Hægt er að klæðast bók um sjálfan sig Unnur Óttarsdóttir HLJÓÐLISTAMAÐURINN Rúnar Magnússon flytur í Bessastaðakirkju annað kvöld kl. 20 „surround“-verk sem hann samdi fyrir myndlist- arsýninguna Hraunland í Gam- mel Strand-sýningarsalnum í Kaupmannahöfn á dögunum. Á sýningunni voru verk eftir Ólaf Elíasson og Kjarval og sýndi nálgun þeirra á íslenskri nátt- úru. Í takt við þemað vann Rúnar með hljóð- upptökur úr íslenskri náttúru og líka hljóð tekin upp í sýningarsalnum sjálfum og það sama mun Rúnar gera í Bessastaðakirkju fyrir tónleikana annað kvöld. Hljóðlist Hljóðverk fyrir Kjarval og Ólaf Rúnar Magnússon YFIRLITSSÝNING á jarðlistaverkefni Andrews Rogers, Lífstaktinum, verður opnuð í Listasafni Ak- ureyrar á morgun kl. 15. Ástralski skúlptúr- istinn Andrew Rogers er á góðri leið með að stimpla sig inn í listasöguna með risastórum grjótgörðum sem koma til með að mynda keðju umhverfis heimskringluna. Af þeim tólf umhverfisverkum sem hann afréð að skapa eru sjö orðin að veruleika, þar af eitt á Akureyri. Þegar verkefninu lýkur munu yfir 5.000 manns í sex heimsálfum hafa lagt hönd á plóginn við að reisa steingarðana. Myndlist Lífstaktur í Lista- safni Akureyrar ENGINN hreppti fyrstu verðlaun í Gustav Mahler- keppninni fyrir hljómsveit- arstjóra, en hún var haldin í ann- að sinn í Bam- berg í Þýska- landi nú um mánaðamótin. Niðurstaða dóm- nefndar var einróma þegar skorið var úr um það að á þeim vikutíma sem keppnin stóð hefði enginn hljómsveitarstjóranna sýnt þá stjórnunarhæfileika sem dygðu til fyrstu verðlauna. Stefnt er að því að halda Mahler- keppnina á þriggja ára fresti og við hana hafa frá upphafi verið bundnar miklar vonir. Það er ein besta hljómsveit Þýskalands, Bamberg- sinfóníuhljómsveitin, sem leikur í keppninni. Þegar keppnin var haldin í fyrsta sinn fyrir þremur árum var markið sett hátt og miklar kröfur gerðar. Það var þá sem Gustavo Dudamel sigraði og frami hans hefur verið mikill síðan. Hann komst strax á samning hjá Deutsche Grammop- hon og hefur verið ráðinn aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Gautaborg frá og með hausti komanda auk þess sem hann hefur verið ráðinn listrænn stjórn- andi Fílharmóníusveitarinnar í Los Angeles frá árinu 2009. Best en ekki nógu góð Úrslit keppninnar í ár hljóta að hafa verið vonbrigði fyrir Shi-Yeon Sung sem fékk önnur verðlaun. Hún þykir talsverður töffari á stjórn- andapallinum; öguð og vinnusöm og þótt hún sé aðeins þrjátíu og eins árs hefur hún þegar borið sigur úr býtum í Solti-hljómsveitarstjóra- keppninni í Frankfurt. Sung hefur líka þegar verið ráðin aðstoð- arhljómsveitarstjóri eins kunnasta stjórnanda Bandaríkjanna; James Levine, sem stjórnar Sinfón- íuhljómsveitinni í Boston, við Met- ropolitan-óperuna og víðar. Sung fór þó heim með tíu þúsund evrur í vasanum, andvirði rösklega 860 þúsund króna, auk þess að stjórna á sigurvegaratónleikunum í lok keppninnar. Þar stjórnaði hún meðal annars fyrstu sinfóníu Ma- hlers. Í þriðja sæti í keppninni varð 27 ára Ameríkumaður, Benjamin Shwartz, en stíll hans þótti mjög í anda landa hans Leonards Bern- steins. Fjórðu verðlaun hlaut Ewa Strusinska frá Póllandi en flutn- ingur hennar á Urlicht eftir Mahler í undankeppninni þótti hápunktur tónlistarflutnings í keppninni. Dótturdóttirin í dómnefnd Í dómnefndinni sátu meðal ann- arra Marina Mahler, barnabarn Mahlers og Ölmu konu hans; Her- bert Blomstedt, Jonathan Nott og Mark-Anthony Turnage. Mahler-keppnin er öllum opin og engin aldursmörk. Reynt er að styrkja þá til þátttöku sem ella gætu ekki verið með en hafa hæfi- leika til að jafna tækifæri fólks. Skást Shi-Yeon Sung stjórnar. Ekkert gull í Mahler- keppni Kóresk afburðakona, Shi Sung, í öðru sæti Mahler Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „NÓGU stór til að villast þar. Nógu lítil til að finna mig. Þannig má nota þessa eyju. Ég kem hingað til að finna mér stað í heiminum.“ Þetta segir myndlistarkonan Roni Horn í kynningarbæklingi verkefnisins Vatnasafn/Library of Water sem kynnt var í bókasafnsbyggingunni í Stykkishólmi í gær. Í Vatnasafni er skúlptúrinnsetning eftir Horn, fé- lagsmiðstöð fyrir bæjarbúa, íbúð fyr- ir gestarithöfund og athvarf fyrir ungar og efnilegar skákkonur. Ljóst er að verkefnið er afar viða- mikið og sannkallaður hvalreki fyrir Stykkishólm. Breska listastofnunin Artangel hefur séð um framkvæmd verksins en fjölmörg samtök, fyr- irtæki, stofnanir og listamenn studdu það. Má þar nefna mennta- mála- og samgönguráðuneytin, fjár- laganefnd Alþingis, FL Group, Lo- uise Bourgoise, Pulitzer-stofnunina, Ferðamálastofu, Straum-Burðarás og síðast en ekki síst Stykk- ishólmsbæ. Roni Horn er heimsþekktur myndlistarmaður og mun verkefnið því án efa vekja mikla athygli utan landsteinanna. Vinnustofa undir berum himni Roni Horn er sannkallaður Ís- landsvinur og segir sér það eðlislægt að fara norður. Seinustu 30 ár hafa verk hennar tengst meira eða minna náttúru Íslands og menningu og seg- ir hún sjálf að á Íslandi hafi hún dval- ið margar lykilstundir lífs síns. Landið hafi hún nýtt sér sem vinnu- stofu undir berum himni. Vatnasafnið er í bókasafnsbygg- ingunni á Stykkishólmi, en Horn tók fyrst eftir byggingunni árið 1990. Byggingin stendur uppi á hæð og er áberandi hluti af bæjarmyndinni. Horn fékk þá hugmynd fyrir þremur árum að setja þar upp skúlptúr- innsetningu og félagsmiðstöð, rými til hljóðlátra hugleiðinga sem og sal fyrir fundi og samkomur. Í kynningarbæklingi Vatnasafns segir að mörg listræn viðfangsefni Horn birtist í verkinu, vatn og veður, íhugun og uppljómun ásamt hverfulu eðli sjálfsmyndarinnar og samband- inu milli innri og ytri heims. Stórir gluggar safnsins varpa birtu inn í aðalsal byggingarinnar þar sem 24 glersúlur standa á víð og dreif. Þær eru fylltar með vatni sem sótt var úr jafnmörgum jöklum á landinu, upphaflega ís eins og gefur að skilja. Ljós brotnar í glersúlum og endurkastast á gólfið sem er úr hertu gúmmíi. Í gólfið hafa verið greypt lýsingarorð á íslensku og ensku (t.d. ill, cruel, slæmt, bad, stillt, tranquil) sem bíða þess að festa sig við hugarástand eða tilfinningu, eins og það er orðað í kynning- arbæklingi um safnið. Þetta orðasvið á gólfinu ber nafnið Þú ert veðrið (Ís- land), en glerskúlptúrinn heitið Vatn, úrval. Verkið verður því sí- breytilegt eftir veðri og birtu. Annar hluti af Vatnasafninu er framhaldsverkefni Horn sem felst í því að safna frásögnum Íslendinga af veðrinu á Íslandi. Oddný Eir og Uggi Ævarsbörn tóku, ásamt föður sínum Ævari Kjartanssyni, viðtöl við ýmsa íbúa Stykkishólms í fyrra og hitteð- fyrra, og var fólki boðið að tala um veðrið. Úrval þeirra frásagna hefur Roni tekið saman í bókinni Veðrið vitnar um þig, 75 viðtöl alls. Þá geta Íslendingar bætt í safnið með því að setja inn veðurfrásagnir á www.li- braryofwater.is. Mikil vinna að baki „Þetta er mjög fallegt,“ sagði James Lingwood, framkvæmdastjóri Artangel, sem staddur var í Vatna- safninu í gær. Hann segist hafa kom- ið u.þ.b. tíu sinnum til Stykkishólms vegna verkefnisins sem unnið hefur verið að í þrjú til fjögur ár. „Við ákváðum með Roni Horn fyrir nokkrum árum að það væri frábært að vinna með henni að skúlptúrverk- efni sem myndi gagnast íslensku samfélagi,“ segir Lingwood. „Það er mikil vinna á bak við það sem sést hér. Til dæmis þurfti að safna ýmsu saman, hópar fóru og sóttu ís í 24 jökla víðs vegar um land- ið,“ segir Lingwood og nefnir einnig mikla vinnu við að taka saman veð- urfrásagnir. Hann telur verkefni á við Vatnasafn geta vakið athygli á ís- lenskri myndlist og hvatt myndlist- armenn til dáða. Verkefnið muni fá mikla athygli en tíminn einn muni leiða í ljós hver áhrifin af því verða. Í Vatnasafni verða haldnir bók- menntaupplestrar á vegum gestarit- höfunda, en á neðri hæð bygging- arinnar munu íslenskir og erlendir rithöfundar búa og starfa. Í Vatnasafni verður einnig athvarf fyrir efnilegar íslenskar skákkonur, sem veita á þeim skjól og hvatningu í íslenskum skákheimi þar sem karlar eru meira áberandi en konur. Hópur stúlkna verður styrktur til að sækja æfingar nokkrum sinnum á ári hjá forseta Skáksambands Íslands, Guð- fríði Lilju Grétarsdóttur. Vatnasafn myndlistarkonunnar Roni Horn forsýnt í Stykkishólmi „Eðlislægt að fara norður“ Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Mikil vinna „Til dæmis þurfti að safna ýmsu saman, hópar fóru og sóttu ís í 24 jökla víðs vegar um landið.“ Ánægð James Lingwood, Roni Horn og Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri. Vatn úr 24 jöklum í glersúlum Í HNOTSKURN » Artangel hrindir í fram-kvæmd óvenjulegum mynd- listarverkefnum en meðal verk- efna hópsins eru stórir skúlptúrar á opinberum stöðum. » Roni Horn vann mynd-skreyttan greinaflokk, Sér- kenni Íslands, fyrir Lesbók Morgunblaðsins en í honum hvatti hún landsmenn til að ferðast meira um landið. » Vatnasafn/Library of waterer fyrsta langtímaverkefni Artangel og til 25 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.