Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 17 SAGA Capital fjárfestingarbanki tekur til starfa í dag. „Okkur þótti við hæfi að byrja á föstudegi til fjár,“ sagði Þorvaldur Lúðvík Sig- urjónsson, forstjóri bankans, á blaðamannafundi í gær. Lokuðu hlutafjárútboði, sem fé- lagið efndi til í ársbyrjun, er lokið og er eigið fé Saga Capital nú 10 milljarðar króna – félagið er um það bil tvöfalt stærra en bæði MP fjár- festingarbanki og VBS. Saga Capital fékk aðild að Nordic Exchange á Íslandi frá og með 30. apríl sl. og varð þar með fyrst til að hefja viðskipti á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði Nordic Exc- hange á Íslandi eftir sameininguna við OMX 2. apríl. Bankinn hlaut í liðinni viku fullt fjárfestingarbankaleyfi Fjármála- eftirlitsins en í dag eru nákvæmlega sjö mánuðir síðan tilkynnt var um stofnun bankans. Saga Capital er alþjóðlegur fjár- festingarbanki sem sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf, útlánum og verð- bréfamiðlun. Bankinn stýrir að auki eigin fjárfestingum með virkri þátt- töku á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum. Höfuðstöðvar Saga Capital eru á Akureyri, skrifstofa er í Reykjavík og ætlunin að opna skrifstofu í Eystrasaltslöndunum fljótlega. Fé- lagið var stofnað í október 2006 af nokkrum fyrrverandi starfsmönn- um íslensku viðskiptabankanna og völdum fagfjárfestum, en lykil- stjórnendur bankans störfuðu allir áður hjá íslensku viðskiptabönkun- um. Fyrrum starfsmenn Kaupþings eru Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri, dr. Hersir Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar, Geir Gíslason, framkvæmdastjóri útlánasviðs, og Rúnar Friðriksson, framkvæmdastjóri eigin viðskipta. Fyrrum starfsmaður Glitnis er Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyr- irtækjaráðgjafar, frá Straumi-Burð- arási kom Helga Hlín Hákonardótt- ir hdl., framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, og frá MP Fjárfest- ingarbanka kom Ómar Sigtryggs- son, framkvæmdastjóri markaðsvið- skipta. Þorvaldur Lúðvík sagði í gær að Saga Capital hefði fengið frábærar viðtökur á fjármálamarkaðinum „sem endurspeglast m.a. í því hversu hratt og vel hlutafjárútboðið okkar gekk“. Stærstu hluthafarnir eiga á bilinu 8–12%. Þorvaldur er stærsti hluthafinn með 12%, Stand- hóll og Sundagarðar 11% hvort fé- lag, Hildingur, dótturfélag KEA, 10%, Sparisjóður Mýrasýslu 6% og Sparisjóður Norðlendinga 5%. Byrja á föstudegi til fjár Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Saga Framkvæmdastjórnin, f.v.: Ómar Sigtryggsson, Geir Gíslason, Hers- ir Sigurgeirsson, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, Rúnar Friðriksson og Helga Hlín Hákonardóttir. Örn Gunnarsson var ekki á staðnum. Fjárfestingarbankinn Saga Capital tekur til starfa með 10 milljarða kr. eigið fé TENGLAR .............................................. www.sagacapital.is STJÓRN Actav- is hefur ákveðið að ljúka viðræð- um vegna hugs- anlegra kaupa félagsins á sam- heitalyfjasviði lyfjafyrirtækis- ins Merck. Upp úr viðræðum slitnaði á mið- vikudag en Actavis hafði þá lagt inn formlegt tilboð, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu, að lokinni ítarlegri áreiðanleikakönn- un. Stjórn Actavis telur að verðið fyrir Merck sé orðið mun hærra en svo að það þjóni hagsmunum hlut- hafa félagsins að halda viðræðum áfram. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun Merck hafa krafist nærri fimm milljarða evra, eða hátt í 440 milljarða króna fyrir félagið. Var það mun hærra verð en stjórn- endur Actavis töldu rétt að fara miðað við sína skoðun á fyrirtæk- inu. Munu líklega tveir aðrir bjóð- endur vera eftir í ferlinu. Róbert Wessman, forstjóri Acta- vis, segir að samruni Actavis og lyfjahluta Merck hefði getað orðið áhugaverður. Actavis hafi hins veg- ar skýra stefnu um að greiða ekki of hátt verð fyrir þau félög sem það fjárfestir í. Því hafi viðræðum verið slitið. Þess má geta að á síðasta ári bakkaði Actavis út úr tilboðsferlinu á króatíska samheitalyfjafyrirtæk- inu Pliva af sömu ástæðu og félagið hefur gefið út að þessu sinni, þ.e. verðið var of hátt. Í Morgunkorni Greiningar Glitn- is segir að ekki megi útiloka að yfirtökutilboð berist í Actavis á þessu ári miðað við þá samþjöppun sem eigi sér stað í lyfjageiranum um þessar mundir. Gera megi ráð fyrir tilboðsverði á allt að 95 krón- ur á hlut, en markaðsgengi Actavis nú er um 80 krónur. Greiningardeild Landsbankans segir í Vegvísi sínum að þrátt fyrir að það verði að teljast ákveðin von- brigði að Actavis skuli ekki hafa tekist að kaupa samheitalyfjahluta Merck þá sé það jákvætt að Actavis skuli á nýjan leik sýna að félagið sé reiðubúið að hætta við. Viðræðuslit við Merck Róbert Wessmann ● HAGNAÐUR Føroya Banka á fyrsta fjórðungi þessa árs nam 54 milljónum danskra króna fyrir skatta, eða um 629 milljónum ís- lenskra króna. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 30 milljónir danskra króna. Hagnaður eftir skatta var 44 milljónir danskra króna í ár, eða um 513 milljónir ís- lenskra króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að afkoman á fyrsta fjórðungi þessa árs sé viðunandi og að allt útlit sé fyrir að áætlanir bankans fyrir árið í heild muni ganga eftir. Aukinn hagnaður Føroya Banka ● HAGNAÐUR Nordea, stærsta banka Norðurlanda, nam um 700 milljónum evra, á fyrsta fjórðungi þessa árs, eða um um 61 milljarði íslenskra króna. Árið áður var hagnaðurinn 663 milljónir evra. Haft er eftir Christian Clausen, forstjóra Nordea, í danska við- skitpablaðinu Børsen að hann sé ánægður með afkomuna. Greining- araðilar eru ekki hafn ánægðir og segja að rekstrarkostnaður bank- ans sé of hár. Gengi hlutabréfa Nordea lækkuðu um rúmt 1% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í gær. Nordea hagnast www.icelandexpress.is/stokkholmur Franska rívíeran? Ónei. Stokkhólmur! fia› er alltaf gott a› koma til Stokkhólms. Borgin er alveg hæfilega stór og stemningin afslöppu›. Sumartíminn í Stokkhólmi er frábær og nálæg›in vi› hafi› tryggir flægilegt loftslag. Svo eru Svíarnir alltaf svo skrambi huggulegir og gestrisnir. Skerjagar›urinn er á næsta leiti flar sem dásamlegt er a› dvelja í sumarhúsi me› fjölskyldunni og ef flú vilt rannsaka undur Svífljó›ar, flá er leikur einn a› ver›a sér úti um ód‡ran bílaleigubíl. Stokkhólmur A Taste of Stockholm, Kunsträdgården 1.–6. júní Stokkhólmsmarafloni› 9. júní Rod Stewart á Stadion 20. júlí Stockholm Pride 30. júlí–5. ágúst Hva› er í gangi? Bóka›u ód‡rt fargjald til Stokkhólms á www.icelandexpress.is LANDSBANKINN hagnaðist um 13,8 milljarða króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi þessa árs samanbor- ið við 14,3 milljarða á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár jókst nokk- uð á milli ára og var 45,2% á fyrsta ársfjórðungi 2007 samanborið við 36,3% á öllu árinu 2006. Tekjur af erlendri starfsemi sam- stæðu Landsbankans voru um 42% af heildartekjunum á fyrsta ársfjórð- ungi 2007. Grunntekjur samstæðu bankans, þ.e. vaxtamunur og þjón- ustutekjur, námu samtals 20,6 millj- örðum og jukust um 31% samanbor- ið við sama tímabil á fyrra ári. Hreinar vaxtatekjur námu 10,9 milljörðum og hreinar þjónustu- tekjur um 9,7 milljörðum. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segir í tilkynn- ingu að hækkað lánshæfismat mats- fyrirtækisins Moody’s, sem greint var frá í síðasta mánuði, mikill vöxt- ur erlendra innlána hjá Landsbank- anum og sterk lausafjárstaða bank- ans, samhliða áframhaldandi vexti hreinna vaxtatekna og þóknunar- tekna, væri það sem stæði upp úr fyrsta ársfjórðungi 2007. Þá er haft eftir Sigurjóni Þ. Árna- son, bankasjóra Landsbankans, í til- kynningunni að tekjumyndun bank- ans sé byggð á traustum og breiðum grunni, sem endurspeglist í góðum vexti grunntekna samstæðunnar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gott uppgjör hjá Landsbankanum gretar@mbl.is Uppgjör Landsbanki Íslands hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.