Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Páll Hall-dórsson fædd- ist í Hvammi í Eyjafirði 19. nóv- ember 1927. Hann lést á Fjórungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 14. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin frá Hvammi, Guðný Pálsdóttir, f. 1892, d. 1965, og Halldór Guðlaugsson, f. 1889, d. 1969. Systkini Páls eru Baldur, f. 1916, d. 1982, Snorri, f. 1919, Páll, f. 1921, d. 1927, Guð- laugur, f. 1923, d. 2001, Krist- björg, f. 1930, Aðalsteinn, f. 1931, d. 1995, og Guðný, f. 1933. Árið 1954 kvæntist Páll, f.v. eiginkonu sinni Ólöfu Ásthildi Þórhallsdóttur, f. 1926. Börn þeirra eru: 1) Þórhallur, f. 1955. 2) Guðný Þuríður, f. 1959, gift Guðjóni Sigurðssyni, f. 1958, börn þeirra eru a) Ólöf Edda, f. 1986, unnusti Daníel Sigrún- arson Hjörvar, f. 1985, dóttir þeirra er Aþena Sif, f. 2006 og b) Einar Orri, f. 1992. 3) Halldóra, f. 1965, gift Kristgeiri Friðgeirssyni, f. 1963, dóttir þeirra er er Elísa Þór- hildur, f. 2003. Sonur Halldóru og Bjarna Há- konarsonar, f. 1961, f.v. sam- býlismanns henn- ar, er Birgir Páll, f. 1987. Sambýliskona Páls er Ragnheið- ur Kristjánsdóttir, f. 1931. Sonur hennar og Nobu Ogata, f. 1924, fv. eiginmanns henn- ar, er Snorri Alan, f. 1962, kvæntur Melissu Ogata, f. 1965, börn þeirra eru Tyler Milne, f. 1991, Ryan, f. 1995 og Kathryn 1996. Eftir nám við Menntaskólann á Akureyri hóf Páll störf sem skrifstofumaður hjá KEA. Síðar starfaði hann hjá Bæjarfóg- etanum á Akureyri, fyrst sem gjaldkeri og síðan yfirbókari. Hann var umboðsmaður Trygg- ingamiðstöðvarinnar um árabil og starfaði einnig um tíma sem fasteignasölumaður á Akureyri. Páll var mikill áhugamaður um golfíþróttina og gegndi m.a. formennsku í Golfklúbbi Ak- ureyrar um tíma. Hann var fé- lagi í Oddfellowstúkunni á Ak- ureyri frá 1957. Útför Páls verður gerð frá Akureyr- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar við minnumst föður okkar koma margar minningar fram. Hann hafði ánægju af lestri góðra bók- mennta, vísindum og listum sem vakti með okkur áhuga. Pabba var umhugað um að við vönduðum mál okkar, því höfum við reynt að fylgja eftir við okkar börn. Þetta ómetan- lega veganesti skilar sér því vonandi áfram til næstu kynslóða. Pabbi lagði áherslu á að við systk- inin stunduðum nám okkar af kost- gæfni. Við fengum tækifæri til að finna okkar eigin farveg í námi og starfi með stuðningi hans. Hann gladdist við hvern áfanga í lífi okkar systkinanna og barnabarnanna. Pabbi kenndi okkur hvað það er mik- ilvægt að hafa áhugamál svo sem golf og stunda það sér til skemmt- unar og hreyfingar. Fyrir um það bil 13 árum missti hann annan fótinn en stigarnir í Skipagötunni reyndust honum frekar áskorun en hindrun. Sama má segja um golfið, hann fékk sér sérstakan golffót og hélt sínu striki. Barnabörnin nutu þess líka að fá að fara með afa sínum í golfbíln- um. Dugnaður pabba var mikill, hann var umhyggjusamur, jákvæður og alltaf tilbúinn að hvetja okkur áfram. Þannig var hann okkur góð fyrir- mynd. Minningin um föður okkar mun lifa áfram. Við vottum Ragnheiði innilega samúð okkar. Þórhallur, Guðný og Halldóra. Í dag kveð ég tengdaföður minn Pál Halldórsson sem lést 14. apríl sl. eftir stutta legu á Fjórðungssjúkra- húsi Akureyrar. Mín fyrsta minning af Páli er þeg- ar ég sem ungur maður, fyrir liðlega 30 árum, heimsótti núverandi konu mína á Akureyri. Páll heilsaði mér með þéttu handtaki og glettnislegu brosi og spurði mig hverra manna ég væri, hvort ég væri í skóla eða við hvað ég starfaði. Ég reyndi eftir bestu getu að svara spurningum hans enda fann ég að hann hafði einlægan áhuga á að kynnast þessum pilti sem hér var kominn sunnan úr Reykjavík til að hitta dóttur hans. Páll var fæddur og uppalinn í Eyja- firði og bjó mestan hluta ævinnar á Akureyri. Hann var mjög stoltur af heimabæ sínum Akureyri og gat hvergi annars staðar hugsað sér að búa. Fljótlega eftir fyrstu kynni okkar Páls þá flytjum við, dóttir hans og ég, til Reykjavíkur og hefjum þar bæði nám í framhaldsskóla. Það var ekki nóg með að piltur að sunnan hefði komið og tekið upp samband við dótt- ur hans heldur nam hann hana á brott með sér til Reykjavíkur. Aldrei fann ég þó að Páll væri ósáttur við þetta enda hann tók mér strax sem jafningja og lét mig ævinlega finna að ég gæti ávallt leitað til hans með góð ráð ef á þyrfti að halda. Ég kynntist því snemma að Páll var mikill áhugamaður um golf og stundaði hann þá íþrótt reglulega sér til heilsubótar og skemmtunar. Hann tók einnig þátt í golfmótum og stóð sig oft vel í þeim enda fannst mér æv- inlega vera stutt í keppnisskapið hjá honum. Oftar en ekki þegar við kom- um í heimsókn til Akureyrar var Páll tilbúinn að fara með okkur út á golf- völl til slá nokkur högg. Hann var ið- inn við að benda á hvað mætti betur fara í sveiflunni hjá okkur enda á hann að miklu leyti heiðurinn af framförum okkar í golfi. Páll hafði bæði hlýja og góða nær- veru og var ávallt nærgætinn í sam- skiptum sínum við aðra. Mér þótti því strax vænt um tengdaföður minn sem alltaf reyndist mér og minni fjöl- skyldu vel. Það er því með söknuði sem ég kveð Pál í dag um leið og ég votta Ragnheiði sambýliskonu hans mína dýpstu samúð. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Guðjón Sigurðsson. Ástarstjörnu yfir Hraundranga skýla næturský. Hló hún á himni, hryggur þráir sveinn í djúpum dali. Fjær er nú fagurri fylgd þinni sveinn í djúpum dali. Ástarstjarna yfir Hraundranga skín á bak við ský. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgrímsson) Blessuð sé minning þín, Ragnheiður Kristjánsdóttir. Hinn 14. apríl sl. var á brott kall- aður einn af traustustu liðsmönnum golfklúbbs okkar, Páll Halldórsson fv. aðalbókari. Hann var fæddur 19. nóv. 1927, sonur hjónanna Guðnýjar Pálsdóttur og Halldórs Guðlaugsson- ar hreppstjóra að Hvammi í Eyja- firði. Skömmu eftir gagnfræðapróf frá MA 1947 réðst hann til skrifstofu- starfa hjá KEA og síðan á sýsluskrif- stofuna og hin síðari árin hjá bók- halds- og fasteignafyrirtækjum hér í bæ. Hann þótti traustur og reyndur bókfærslumaður og hafði listræna rithönd. Páll var glaðvær og félagslyndur og hvarvetna munaði um liðsinni hans. Hann starfaði um áratuga skeið í Oddfellowreglunni og um hríð tók hann þátt í leiksýningum LA. En golfíþróttin varð snemma hans helsta hugðarefni og lék hann golf um hálfr- ar aldar skeið. Hann var gæddur and- legu þreki svo eftirtekt vakti því þrátt fyrir slaka heilsu og fótarmissi fyrir allmörgum árum rækti hann daglega vinnu sína og lét hvergi bugast á golf- vellinum en þar vann hann oft til verðlauna í flokki hinna eldri. Páll var kjörinn formaður GA árið 1966, ritari 1967 og gjaldkeri 1968 og er hann eini maður í sögu GA sem hefur gegnt öll- um þessum ábyrgðarstörfum og sýn- ir það vel hversu félagarnir mátu golfáhuga hans og ritfærni. En það var einmitt í formannstíð Páls, hinn 17. sept. 1966 er Helgi Skúlason tók fyrstu skóflustunguna að hinum fyr- irhugaða golfvelli á Jaðri. Næsti for- maður, Frímann Gunnlaugsson dreif síðan áfram alla undirbúningsvinnu sem var undir stjórn Magnúsar Guð- mundssonar og Sigtryggs Júlíusson- ar. Sólnesfeðgar studdu málið svo um munaði og Ólafur Stefánsson var gjaldkeri GA þessi spennandi um- brotaár 1966 og 1967. Nú er leiðir skilja um sinn minn- umst við Páls með þakklæti og virð- ingu og vottum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúð. F.h. Stjórnar Golfklúbbs Akureyr- ar Halldór M. Rafnsson formaður. Páll Halldórsson ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR STEFÁNSSON, áður til heimilis í Hrafnagilsstræti 29, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð föstudaginn 20. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Hlíðar. Þökkum auðsýnda samúð. Guð blessi ykkur öll. Sigfríð Erla Ragnarsdóttir, Jón Þorsteins Ragnarsson, Dionisia Cacayuran Bautista, Úlfar Ragnarsson, Stefanía Gústafsdóttir, Anna Ragnarsdóttir, Ólafur Björnsson, Ragna Ósk Ragnarsdóttir, Jóhann Gunnar Jóhannsson, Sigríður Ragnarsdóttir, Frosti Frostason, Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Jón Ingi Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR frá Gröf, Gránufélagsgötu 7, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 24. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Regína Ragnarsdóttir, Tryggvi Ragnarsson, Erling Ragnarsson, Dagbjört Sigrún Torfadóttir, Örn Ragnarsson, Svanhvít Ingjaldsdóttir, Úlfar Ragnarsson, Stefán Ragnarsson, Fríður Jónsdóttir, Svanberg Gunnlaugsson, Börkur Ragnarsson, Jóhannes Stefánsson, Anna Ragnarsdóttir, Þröstur Ragnarsson, Anna Tryggvadóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, VALDIMAR LÁRUSSON fv. aðstoðarvarðstjóri, Kópavogsbraut 1b, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga að morgni þriðjudagsins 1. maí. Kristrún Jónsdóttir, Sigrún Valdimarsdóttir, Víglundur Gunnþórsson, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Haraldur B. Þorkelsson, Vilmar Þór Víglundsson, Anna Nordberg, Kristinn Rúnar Víglundsson. ✝ JÓN SIGURÐSSON hljómlistarmaður frá Söndum í Dýrafirði, Jón bassi, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn 30. apríl, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn 7. maí kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á félagið Einstök börn. Jóhanna G. Erlingson, Sigurður Rúnar Jónsson, Ásgerður Ólafsdóttir, Margrét Rannveig Jónsdóttir, Birgir Már Ragnarsson, Silja Hrund Júlíusdóttir, Hildur Jónsdóttir, Hjörtur O. Aðalsteinsson, Guðrún Ólöf Jónsdóttir, Michael Valdimarsson, Sigrún Hjartardóttir, Björn Geir Leifsson, Jón Hörður Jónsson, Sigríður Anna E. Nikulásdóttir, Jóhanna Kristín Jónsdóttir, Jón Benediktsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR HJÁLMTÝSSON, Arahólum 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 2. maí. Útförin auglýst síðar. Bragi Baldursson, Kristina Bergqvist, Jóna Kristín Baldursdóttir, Sigþór Ágústsson, Hjálmtýr Baldursson, Friðrik Baldursson, Njála Laufdal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur okkar og bróðir, MAGNÚS ÓLI GUÐBJARGARSON, lést miðvikudaginn 2. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Guðbjörg Magnúsdóttir, Kristján Már Hauksson, Birta Ósk Kristjánsdóttir, Sigrún Lilja Kristjánsdóttir, Haukur Jarl Kristjánsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.