Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 25
SUÐURNES
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Salmon oil
Laxalýsi fyrir æðakerfið
og stirð liðamót.
Reykjanesbær | Tveir ungir menn
eru með sýningu í kjallara 88
hússins, menningarmiðstöðvar
ungs fólks í Reykjanesbæ. Mikið
var um að vera við opnun sýning-
arinnar sl. fimmtudag.
Félagarnir Davíð Eldur Bald-
ursson og Þorbjörn Einar Guð-
mundsson sýna undir heitinu
„Dream Catcher“. Þetta er önnur
sýning þeirra með þessu heiti og
mun standa þarna um tíma. Sýn-
ingin er sölusýning. Davíð Eldur
sýnir ljósmyndir en Þorbjörn Ein-
ar sýnir málverk og vegglistaverk.
Þá sýna þeir og selja fatnað sem
þeir hafa hannað og látið prenta
á.
Við opnun sýningarinnar voru
tónleikar og haldin „graffiti“-
keppni í Svartholinu, sú fyrsta
sem haldin hefur verið hér á landi
í nokkur ár. Þá sýndi Davíð Ósk-
arsson, leikari og tónlistamaður,
myndir á gangi 88 hússins.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Sýna verk
í 88 húsinu
List Davíð Eldur Baldursson og
Þorbjörn Einar Guðmundsson.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavík | Bæjarráð Reykjanes-
bæjar hefur ákveðið einróma að
ráða Jóhann Geirdal sem skóla-
stjóra Holtaskóla í Keflavík. Jó-
hann hefur verið aðstoðarskóla-
stjóri við skólann í fjögur ár.
Jóhann hefur verið viðloðandi
Holtaskóla frá unglingsárum. Hann
tók gagnfræðapróf frá Gagnfræða-
skóla Keflavíkur og fór ungur að
kenna. Hann nam uppeldisfræði og
félagsfræði í Háskóla Íslands, síðar
rekstrar- og viðskiptafræði og
stundar nú framhaldsnám við KHÍ.
Jóhann byrjaði að kenna á árinu
1975 en tók sér nokkurra ára hlé til
að vinna sem verslunarstjóri og for-
maður Verslunarmannafélags Suð-
urnesja en hóf aftur kennslu við
Holtaskóla fyrir tæpum tólf árum.
Hann starfaði einnig lengi í stjórn-
málum, í bæjarstjórn og sem vara-
formaður Alþýðubandalagsins.
Skólinn er draumurinn
„Ég hef lengi haldið því fram að
upp úr fimmtugu verði menn að
gera það upp við sig hvað þeir ætli
að gera þegar þeir verða stórir. Á
þessum tímamótum ákvað ég að
snúa mér alfarið að skólamálun-
um,“ segir Jóhann. Hann hætti í
bæjarstjórninni í fyrra og helgaði
skólanum alla sína krafta.
„Skólinn er draumurinn, ekki
endilega skólastjórastarfið. En ég
hef lengi unnið við stjórnun og er
vissulega tilbúinn að takast á við
þetta verkefni,“ segir Jóhann þegar
hann er spurður að því hvort sá
draumur hafi lengið blundað með
honum að verða skólastjóri.
Jóhann hefur starfað sem skóla-
stjóri þetta og síðasta skólaár, í
leyfi Jónínu Guðmundsdóttur
skólastjóra. Þegar starfið var aug-
lýst á dögunum sótti hann um og
var ráðinn. Hann sagði í fyrstu að
breytingarnar yrðu ekki miklar við
það að fá titilinn en fékk svo bak-
þanka. „Jú, það verður dálítil breyt-
ing. Ég er ekki
lengur að leysa
af. Get horft
meira fram í tím-
ann og sett mín
fingraför á skóla-
starfið. Nú veit
ég að ég get
sjálfur fylgt eftir
verkefnum sem
ég set af stað,“
segir Jóhann.
Ekki vill Jóhann viðurkenna að
hann hafi átt í innri togstreitu um
það hvort hann ætti að einbeita sér
að skólanum eða halda áfram í
stjórnmálunum. „Þessi störf eru af
sama meiði, þótt nálgunin sé mis-
munandi, snúast um að hlúa að upp-
vexti og þroska ungs fólks. Sam-
félagið í skólanum og skólinn í
samfélaginu eru tveir fletir á sama
hlutnum,“ segir Jóhann.
Get sjálfur fylgt eftir
nýjum verkefnum
Áhugi Börn úr Holtaskóla eru áhugasöm við námið. Myndin var tekin þeg-
ar hópur barna myndaði námsklúbb fyrir samræmdu prófin á sínum tíma.
Í HNOTSKURN
»Gagnfræðaskóli Keflavík-ur tók til starfa á árinu
1952 og er því rúmlega fimm-
tíu ára gamall.
»Skólinn varð almennurgrunnskóli á árinu 1997,
með fyrsta til tíunda bekk og
heitir síðan Holtaskóli. Jóhann Geirdal
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Vogar | Ákveðið hefur verið að
ráða Svein Alfreðsson, deildarstjóra
fjölgreinanáms í Lækjarskóla í
Hafnarfirði, sem skólastjóra Stóru-
Vogaskóla í Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Staðan var auglýst eftir að
Snæbjörn Reynisson skólastjóri í
ellefu ár sagði henni lausri en Snæ-
björn lætur af störfum í sumar.
Tólf sóttu um stöðuna þegar hún
var auglýst en bæjarráð ákvað að
ráða Svein Alfreðsson.
Í rökstuðningi fyrir ráðningu
Sveins kemur meðal annars fram
að hann hafi víðtæka menntun,
meðal annars framhaldsmenntun í
stjórnun og sérkennslufræði,
reynslu af þróunarstarfi og fjöl-
breytta reynslu af kennslu og
stjórnun.
Ráðinn yfir
Stóru-
Vogaskóla
AUSTURLAND
Fáskrúðsfjörður | Nú er unnið við
byggingu átta raðhúsa í þorpinu á
Fáskrúðsfirði. Fyrirtækið sem bygg-
ir húsin er úr Kópavogi og heitir
BKR. Íbúðirnar eru leigu- og sölu-
íbúðir. Þær eru á tveimur hæðum;
160 og 180 fermetrar, en á neðri
hæð er 24 fermetra bílageymsla. Er
bygging raðhúsanna átta fyrsti
áfangi stærra verks en alls verða 16
íbúðir í tveimur lengjum, sín hvor-
um megin við Hlíðargötu. Gert er
ráð fyrir að verklok verði síðar á
árinu. Auk þessa er BKR með lóðir
fyrir einbýlishús og parhús á Fá-
skrúðsfirði. Stjórnandi fyrirtækisins
á staðnum er Birgir Reynisson.
Þrjú tilboð bárust í 2. áfanga
skólamiðstöðvar á Fáskrúðsfirði, öll
langt yfir kostnaðaráætlun hönn-
uða, upp á 306,5 milljónir.
Byggja rað-
hús á Fá-
skrúðsfirði
Morgunblaðið/Albert Kemp
Í smíðum Unnið er við átta raðhús á Fáskrúðsfirði og verða klár í árslok.
Reyðarfjörður | Fulltrúar Alcoa
Fjarðaáls og Fjarðabyggðar stað-
festu í gær samstarfssamning um
rekstur fyrsta atvinnuslökkviliðsins
á Austurlandi. Guðmundur H. Sig-
fússon er slökkviliðsstjóri.
Slökkvilið Fjarðabyggðar verður
12 manna atvinnulið á Reyðarfirði,
auk 45 slökkviliðsmanna í hluta-
starfi í Neskaupsstað, Fáskrúðs-
firði og á Stöðvarfirði. Þá verða 50
starfsmenn Alcoa Fjarðaáls þjálf-
aðir og tiltækir sem slökkviliðs-
menn þegar þörf krefur innan og
utan álversins. Þjálfun liðsmanna
verður í samræmi við kröfur
Brunamálastofnunar, Sjúkraflutn-
ingaskólans og Alcoa. Auk slökkvi-
starfa mun liðið sinna eldvarnaeft-
irliti, sjúkraflutningum og
neyðarþjónustu, t.d. vegna meng-
unarslysa. Auk 110 liðsmanna
slökkviliðsins verða áfram starfandi
sjúkraflutningamenn á Norðfirði og
Fáskrúðsfirði.
Guðmundur Helgi Sigfússon, ný-
ráðinn slökkviliðsstjóri í Fjarða-
byggð, segir að sjúkraflutninga-
menn verði allir vel þjálfaðir og
með tilskylda menntun og að ör-
yggismiðstöðin á Hrauni yfirtaki
alla sjúkraflutninga í Fjarðabyggð
1. júlí n.k. Hann segir viðbragðs-
tíma ekki muni lengjast þrátt fyrir
tilfærslu búnaðar að Hrauni, því
þar verði menn á vakt allan sólar-
hringinn og geti brugðist mjög
hratt við. Þjónusta við íbúa Fjarða-
byggðar eigi að minnsta kosti eftir
að verða jafngóð ef ekki betri en í
dag, og þjálfun og reynsla mun
meiri. Aðsetur slökkviliðs Fjarða-
byggðar verður í nýrri rúmlega eitt
þúsund fermetra öryggismiðstöð
sem verið er að reisa að Hrauni,
steinsnar frá lóð Alcoa Fjarðaáls og
verður afhent fullbúin í september.
Um leið og nýja húsnæðið verður
tekið í notkun verða núverandi
slökkvistöðvar á Reyðarfirði og
Eskifirði lagðar niður og fer bún-
aður þeirra til hinnar nýju öryggis-
miðstöðvar.
Erna Indriðadóttir, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir að
með aðild fyrirtækisins að slökkvi-
liðinu myndist jákvæð samlegðar-
áhrif sem komi öllu samfélaginu til
góða en það vegi þungt í stefnu fyr-
irtækisins. Samkvæmt samningi um
rekstur greiðir Alcoa sem svarar
launum fyrir þrjú stöðugildi og
leggur til rekstrar og uppbyggingar
öryggismiðstöðvarinnar það fé sem
annars hefði verið lagt til sambæri-
legra verkefna innan fyrirtækisins,
alls 41 milljón á ári. Fyrirtækið
mun jafnframt leggja til 50 manna
útkallslið, þar sem átta manns
verða ávallt til taks á hverri vakt.
Ein öryggismiðstöð
fyrir alla Fjarðabyggð
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Slökkvilið stofnað F.v. Steinn Jónasson, Sölvi K. Jónsson, Erna Indr-
iðadóttir, Guðmundur H. Sigfússon, Þorbergur Hauksson og Gísli Briem.
Fjarðaál stendur að
rekstri slökkviliðs
Í HNOTSKURN
»Nýtt atvinnuslökkvilið hef-ur verið stofnað af Fjarða-
byggð í samvinnu við Alcoa
Fjarðaál.
»Auk slökkvistarfa mun lið-ið sinna sjúkraflutningum,
eldvarnaeftirliti og neyð-
arþjónustu.
»12 menn verða í fastaliði,45 í hlutastarfi úr sveitar-
félaginu og 50 varaliðsmenn
frá Alcoa.
Grindavík | Textar í sjómannalögum
verða til umfjöllunar í Saltfisksetri
Íslands í Grindavík næstkomandi
miðvikudagskvöld, 9. maí, kl. 20.
Ásgeir Tómasson frétta- og dag-
skrárgerðarmaður og Úlfhildur
Dagsdóttir bókmenntafræðingur
fjalla um textana. Hljómsveitin Með-
byr sem staðið hefur fyrir söng-
skemmtuninni „Óskalög sjómanna“
mun flytja tóndæmi á milli og skapa
vertíðarstemmninguna.
Ásgeir nefnir fyrirlestur sinn
„Fley og fagrar árar“ en Úlfhildur
kallar erindi sitt „Og nýja í næstu
höfn...“
Textar sjó-
mannalaga
♦♦♦