Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Kraftaverki líkust.“
Observer
„Framúrskarandi.“
Mail on Sunday
„Sláandi.“
The Times
„Stórsigur.“
Guardian
„Sjálfsævisaga sem grípur lesandann sterkum tökum svo
hann stendur á öndinni.“
Kulturnytt
Nafn Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.
Starf Forseti Skáksambands Ís-
lands.
Fjölskylduhagir Í sambúð með
Steinunni H. Blöndal.
Kjördæmi Suðvestur, 2. sæti fyrir
Vinstri hreyfinguna – grænt fram-
boð.
Helstu áhugamál?
Skák, útivist, lestur góðra bóka,
kvikmyndir og mannlífið yfirleitt.
Hvers vegna pólitík?
Vegna þess að ég er metnaðarfull
fyrir Íslands hönd og mig langar til
að hjálpa til við að gera samfélagið
betra.
Er Alþingi áhugaverður vinnu-
staður?
Já, ég hef unnið í fjögur ár á al-
þjóðasviði Alþingis og séð með eigin
augum að þetta er áhugaverður
vinnustaður. Þar er gott fólk í öllum
flokkum sem vill gera vel. Ég held
samt að það sé enn áhugaverðara að
vera þar sem þingmaður og geta
haft veruleg áhrif til góðs.
Fyrsta mál sem þú vilt koma á
dagskrá?
Þau eru svo mörg að ég veit varla
hvar ég á að byrja! Aðbúnaður aldr-
aðra, öryrkja og barna er ofarlega á
blaði. Svo verndun íslenskrar nátt-
úru, afnám launaleyndar og jafnrétti
kynjanna í víðu samhengi og að
táknmál sé viðurkennt sem fyrsta
mál.
Þarf breytingar?
Já, það þarf róttækar breytingar á
mörgum vígstöðvum. Kosturinn er
að það býr mikill kraftur og styrkur
í okkar samfélagi. Nú þurfum við að
hlúa vel að grundvallarstoðunum
þannig að allir geti haft það gott,
ekki bara sumir.
Nýir frambjóðendur
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Metnaðarfull
fyrir Íslands hönd
Morgunblaðið/Árni Torfason
Betra samfélag Guðfríður Lilja
vill bæta aðbúnað aldraðra, öryrkja
og barna og berjast fyrir jafnrétti.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MANNEKLA og fjármögnun á
starfsemi Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss (LSH) voru ofarlega á
baugi á vinnustaðafundi þriggja
frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
með starfsmönnum LSH við Hring-
braut í gær.
Þau Ásta Möller, Illugi Gunnars-
son og Grazyna María Okuniewska-
,frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins, kynntu starfsfólki á LSH
kosningastefnu sjálfstæðismanna,
einkum í heilbrigðismálum, dreifðu
kosningabæklingi og svöruðu fyrir-
spurnum starfsfólks í matsal spítal-
ans í hádeginu í gær. Bæði Ásta og
Illugi lögðu áherslu á að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi sækjast eftir
heilbrigðisráðuneytinu verði flokk-
urinn í næstu ríkisstjórn.
Byrjað á byggingu þjóð-
arsjúkrahússins á árinu 2009
Ásta Möller sagði að aðbúnaður
sjúklinga og starfsfólks skipti miklu
og að starfsgleði ríkti meðal starfs-
fólks á sjúkrahúsinu. „Það hefur ver-
ið mikil umræða um byggingu nýs
þjóðarsjúkrahúss og það var Sjálf-
stæðisflokkurinn sem tók af skarið
með að það er hafinn undirbúningur
að slíku þjóðarsjúkrahúsi. Það verð-
ur byrjað á næsta ári við undirbún-
ing og á árinu 2009 verður byrjað á
byggingu sjúkrahússins. Ég held að
fólki sé ekki almennt kunnugt um að
á árabilinu 2009 til 2014 verður
byggð ný bygging undir bráðastarf-
semi spítalans og á árinu 2014 verð-
ur starfsemi á Borgarspítalanum
flutt hingað niður eftir. Frá 2014
verður því bráðastarfsemin öll hér á
Landspítalalóðinni og þar með verð-
ur búið að byggja nýja skurðstofu,
nýjar legudeildir og nýja slysamót-
töku.“
Ásta sagði manneklu á LSH ekki
nýtt vandamál en stjórnvöld hafi
brugðist við þeim vanda. Benti hún
m.a. á að hjúkrunarfræðingum færi
fjölgandi „Það voru 97 hjúkrunar-
fræðinemar í námi á 2002 en núna
eru þeir um 160. Á árunum 1996 til
2004 útskrifuðust 1.000 hjúkrunar-
fræðingar og á næstu tíu árum munu
1.400 hjúkrunarfræðingar útskrifast
frá Háskóla Íslands og Háskólanum
á Akureyri. Þetta er töluverð fjölg-
un, og meiri en ég hafði gert mér
grein fyrir,“ sagði Ásta.
Spurningar sem starfsfólk lagði
fyrir frambjóðendurna snerust allar
um hvernig tryggja ætti mönnun og
fjárveitingar til spítalans. Illugi
sagði það stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins að fjármögnun á þjónustu spít-
alans ætti að vera í samræmi við
þarfir, umfang og eðli þjónustunnar.
Hann sagðist telja að stjórnmála-
menn hefðu forðast að ræða af fullri
alvöru þá erfiðu spurningu hvernig
eigi að forgangsraða verkefnum í
heilbrigðisþjónustunni. Illugi minnti
einnig á að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði ekki haft heilbrigðisráðuneytið
með höndum í mjög langan tíma.
„Það er liðinn langur tími síðan
Sjálfstæðisflokkurinn bar ábyrgð á
þessum málaflokki. Ég tel að ef
Sjálfstæðisflokkurinn kemst í ríkis-
stjórn eftir þessar kosningar, þá beri
honum skylda til þess að reyna að fá
þetta ráðuneyti. Það gengur ekki að
langstærsti flokkur þjóðarinnar beri
ekki ábyrgð á þeim málaflokki sem
tekur stærstan hluta af ríkisútgjöld-
unum í svona langan tíma.“ sagði Ill-
ugi.
Hann sagði það einnig sína skoðun
að stjórnmálamenn þyrftu að breyta
hugsunarhætti sínum um heilbrigð-
ismál. „Okkur er tamt að tala um
heilbrigðismál þannig að við lítum á
þau sem útgjaldaflokk. Við tölum
reglulega um útgjöld til heilbrigðis-
mála. Ég held að við þurfum aðeins
að hugsa þetta upp á nýtt. Við erum
búin að læra þetta í menntamálunum
þar sem við tölum um fjárfestingu í
menntun. Ég tel að við þurfum að
fara að horfa á þennan málaflokk út
frá því sjónarmiði að við séum að
fjárfesta í heilbrigði,“ sagði hann.
Illugi beindi einnig máli sínu til við-
staddra lækna og hjúkrunarfólks og
sagði ástæðu til að ætla að eitthvað
væri að í samfélaginu þegar fyrir
lægi að fjöldi öryrkja hafi nær tvö-
faldast frá 1995. „Það er stór spurn-
ing til ykkar sem vinnið hér og til
okkar sem erum í stjórnmálunum að
svara því hvernig á þessu stendur og
í öðru lagi hvað hægt er að gera í
þessu. Ég held því fram að ef við
leysum ekki þennan vanda, þá mun
hann vaxa ekki bara fyrir þá einstak-
linga sem lenda í þessum hremm-
ingum, heldur fyrir samfélagið allt.“
Fram kom í máli Ástu að sjálf-
stæðismenn hefðu áhuga á að fara úr
föstum fjárlögum til spítalareksturs-
ins yfir í bæði föst og breytileg fjár-
lög, þar sem m.a. væri tekið mið af
afköstum. „Með því móti erum við
líka með betri tæki í höndunum til
þess að semja við aðra aðila, önnur
sjúkrahús, sjálfstæða aðila um að
taka að sér tiltekin verkefni og get-
um metið kostnaðinn við það,“ sagði
Ásta. Með því móti yrði fjármögn-
unin faglegri.
Þurfum að temja okkur nýja
hugsun í heilbrigðismálum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ræða málin. Ásta Möller, Illugi Gunnarsson og Grazyna María Okuniewska kynntu stefnumál Sjálfstæðisflokks-
ins í alþingiskosningunum fyrir starfsfólki Landspítala-háskólasjúkrahúss við Hringbraut í matsal spítalans.
Sjálfstæðismenn
munu sækjast
eftir ráðuneyti
heilbrigðismála
VÆNTA má að
sýslumanninum
í Reykjavík
muni berast
10.000 til 12.000
utankjörfund-
aratkvæði í
Laugardagshöll-
inni fyrir al-
þingiskosning-
arnar annan
laugardag, þar af nokkur hundr-
uð frá útlöndum. Þetta segir Þór-
ir Hallgrímsson, kjörstjóri hjá
sýslumanninum í Reykjavík.
Hann segir aðspurður að nú hafi
200 fleiri greitt atkvæði en fyrir
fjórum árum, eða um 2.300 miðað
við 2.100 þá.
Þórir segir utankjörfundarstað-
inn fyrst og fremst hugsaðan fyr-
ir umdæmi sýslumannsins í
Reykjavík, þótt fólk hvaðanæva
af landinu getið kosið þar. Það
sama eigi við um aðra utankjör-
fundarstaði á landinu sem séu
jafn margir og sýslumenn á land-
inu eða 26. Þeir séu opnaðir sam-
kvæmt lögum átta vikum fyrir
kosningar og lokað daginn fyrir
kjördag. Áfram verður hins veg-
ar hægt að skila atkvæði, að því
gefnu að kjósendur séu ekki í
eigin kjördeild, þangað sem þeir
eigi að fara á kjördag.
Þúsundir skila
utankjörfund-
aratkvæði
OPNAÐ hefur verið fyrir rafræn-
an aðgang að kjörskrá í Reykja-
víkurkjördæmunum vegna alþing-
iskosninga 2007. Í kjörskránni er
hægt að slá inn kennitölu eða
nafn og heimilisfangikjósanda og
fá þannig upplýsingar um hvoru
kjördæmi kjósandi tilheyrir, á
hvaða kjörstað hann á að kjósa
og í hvaða kjördeild.
Viðmótið er einfalt og aðgengi-
legt en farið er inn í grunninn af
forsíðu vefs Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is. Um að ræða
einfalda leið fyrir borgarbúa til
að nálgast upplýsingar um hvar
þeir eigi að kjósa og í hvaða kjör-
deild.
Rafræn kjör-
skrá á netinu