Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Þórhalli
Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóss:
„Jónína Bjartmarz umhverfisráð-
herra sendir frá sér yfirlýsingu þar
sem hún segist hafa setið undir ásök-
unum Kastljóss. Hún spyr hvort
Kastljósið láti misnota sig með því að
koma höggi á hana og Framsóknar-
flokkinn í aðdraganda kosninga.
Því er fyrst til að svara að Kastljós
er ekki misnotað af neinum.
Í Kastljósi var bent á að ung
stúlka frá Gvatemala sem er búsett á
heimili ráðherrans fékk ríkisborg-
ararétt á aðeins 10 dögum þegar
venjan er að slík afgreiðsla taki fimm
til tólf mánuði.
Í þættinum kom fram að stúlkan
taldi að íslenskur ríkisborgararéttur
gæti auðveldað henni að stunda nám
erlendis því það skapaði henni
vandamál að þurfa að sækja um
dvalarleyfi í hvert skipti sem hún
kæmi hingað til lands í skólafríum.
Í Kastljósi var sýnt fram á það að
stúlkan hefði dvalið í landinu í 15
mánuði þegar hún fékk íslenskt rík-
isfang.
Einnig kom fram að fólki með
veigameiri ástæður var hafnað á
sama tíma.
Aldrei var sagt að Jónína hefði
beitt sér í málinu heldur vakin at-
hygli á óvenjulegri afgreiðslu máls-
ins. Þegar við bætist að stúlkan býr á
heimili umhverfisráðherra er full
ástæða fyrir fjölmiðla að spyrja
spurninga.
Rétt er hjá Jónínu að stúlkan fékk
ríkisborgararéttinn á grundvelli
„skerts ferðafrelsis“ og er þar í hópi
22 annarra einstaklinga sem fengu
íslenskt ríkisfang á sömu forsendum
á þessu kjörtímabili. Hún gleymir
hinsvegar að geta þess að 20 þeirra
höfðu dvalið lengur en tvö ár í land-
inu þegar þeir öðluðust sinn ríkis-
borgararétt.
Jónína bætir svo við að 30 einstak-
lingar hafi fengið íslenskt ríkisfang á
þessu kjörtímabili eftir að hafa dval-
ið hér skemur en 1 ár. Hún getur
þess hinsvegar ekki að enginn þeirra
fékk íslenskan ríkisborgararétt
vegna skerts ferðafrelsis.
Jónína hallar réttu máli þegar hún
segir að Kastljós hafi látið að því
liggja að aðallega börn fengju rík-
isborgararétt með lögum frá alþingi.
Kastljós benti hinsvegar á að oft
væri um börn að ræða, afreksmenn í
íþróttum og fólk sem sótti um af
mannúðarástæðum. Jónína kýs hins-
vegar að sleppa því að nefna tvö af
þessum atriðum sem Kastljós tiltók.
Þess má geta að umrædd stúlka frá
Gvatemala fékk ekki íslenskan rík-
isborgararétt af þeim ástæðum sem
eru tilgreindar hér að ofan.
Jónína telur að Kastljós hefði átt
að láta svör Bjarna Benediktssonar,
Guðrúnar Ögmundsdóttur og Guð-
jóns Ólafs Jónssonar nægja en kýs
að horfa fram hjá því að þau af-
greiddu þessa umdeildu umsókn.
Jónína hefur ekki útskýrt hvers
vegna hún veifaði gögnum um mann-
réttindabrot í Gvatemala í viðtali í
Kastljósi þegar ljóst er samkvæmt
umsókninni að stúlkan þurfti ekki að
þola mannréttindabrot í sínu heima-
landi.
Jónína Bjartmarz spyr í lokin
„hvar er trúverðugleikinn“? Því er til
að svara að Kastljós stendur við sína
umfjöllun um málið.“
Yfirlýsing vegna ummæla
Jónínu Bjartmarz
Fréttir á SMS
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu:
„Vegna umræðna um afgreiðslu
alþingis á umsókn ungrar stúlku frá
Guatemala um ríkisborgararétt vill
dóms- og kirkjumálaráðuneytið taka
fram:
Aðalreglan er, að alþingi veitir ís-
lenskan ríkisborgararétt með lög-
um. Þegar umsækjandi óskar eftir,
að umsókn fari fyrir alþingi, fer hún
um hendur dóms- og kirkjumála-
ráðuneytis, sem leitar umsagnar
lögreglu og útlendingastofnunar.
Ráðuneytið óskar eftir afgreiðslu
þessara stofnana innan þeirra tíma-
marka, sem afgreiðsla alþingis set-
ur. Í því tilviki, sem hér um ræðir,
hefur verið gefið til kynna, að af-
greiðslan hafi verið á annan veg en
almennt gerist. Fullyrðingar um það
efni eru ekki réttar miðað við starfs-
venjur ráðuneytisins, þegar umsókn
er lögð fyrir alþingi. Upplýsingar
frá lögreglu og útlendingastofnun
eru þess eðlis, að almennt er unnt að
veita þær samdægurs, ef svo ber
undir.
Tímafrestir, sem getið er um á
vefsíðu dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins, gilda, þegar ráðuneytið
sjálft veitir ríkisborgararétt, en ekki
þegar umsókn er lögð fyrir alþingi.“
Hefðbundin vinnubrögð
við afgreiðslu
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Sportlegir jakkar,
pils, kvartbuxur
og síðbuxur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
Ný sending frá
Helgartilboð
í Flash
20% afsláttur
af kjólum við buxur
Stærðir 36-46
Laugavegi 54
sími 552 5201
žàátÄt
Útsala
žàátÄt
ÚtsalažàátÄt
žàátÄt
Útsal
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 3533.
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16.
Hörfatnaður
Gæði og glæsileiki