Morgunblaðið - 04.05.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta er nú meiri brandarinn Margrét mín, það er ekki að undra þó dallurinn leki, það er
bara ekkert verið að kjósa um umhverfismál.
VEÐUR
Til eru þeir sérfróðu menn um ís-lenzk stjórnmál, sem eru ekki al-
veg jafn
hrifnir og
Morg-
unblaðið
af þeirri
löggjöf,
sem sett
hefur ver-
ið um fjármál íslenzkra stjórn-
málaflokka og takmarkar mögu-
leika fyrirtækja og fjársterkra aðila
til að veita einstökum flokkum
stuðning í kosningum eins og nú
standa yfir.
Þessir aðilar telja, að alltaf verðihægt að fara fram hjá slíkum
lagaákvæðum með einum eða öðrum
hætti.
Og þegar spurt er hvernig það sé
hægt er svarið:
Sjáið t.d. forsetabókina og er þá
átt við bókina, sem Guðjón Frið-
riksson er að skrifa um núverandi
forseta Íslands.
Hver getur bannað fjársterkumaðilum að standa undir kostnaði
við útgáfu slíkrar bókar til stuðn-
ings frambjóðanda í prófkjöri eða
forystumanni stjórnmálaflokks?
Hér er bók Guðjóns um forsetannaugljóslega tekin sem dæmi um
hvað gæti gerzt eða hvað hægt er að
gera.
Þetta er auðvitað umhugsunarefniog nauðsynlegt að fylgjast með
því, að ekki sé farið í kringum lög-
gjöfina um fjármál flokkanna. Það
er t.d. hægt með því að setja í lög
ákvæði um ákveðið gagnsæi í öllum
þeim aðgerðum, sem flokkast geta
undir einhvers konar stuðning við
frambjóðanda, hvort sem er í for-
setakjöri, þingkosningum, sveit-
arstjórnarkosningum eða próf-
kjörum.
Þetta er óneitanlega verðugt um-hugsunarefni og sjálfsagt að
bæta löggjöfina eins og kostur er.
STAKSTEINAR
Fram hjá lögum?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! "
"
#
:
*$;<
!"# $
% &' (( & ( ) *
+# *!
$$; *!
$!%
& '
% '
(
' )*
=2
=! =2
=! =2
$('&
+
# , -./
>
;
0.
! ' '
## ! 0.1 . 2
# 3
/
%
" 4 / "
*
0.
! ' '
## ! 0.1 . 2
# 3
/
%
" 4 / "
/
0.
1 .
', &
.
# " 5!
! 0.1 . 2
# 3
##
# 3 6
%
# " 4 3
' #
%
"
7 ! 88 ' )! 9 .) +
#
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
3
3
3
" "
" "
" " " " " "
"
" 3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3 3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Sóley Tómasdóttir | 2. maí 2007
Til fjölmiðla
Væri því ekki eðlilegt
að eins og hálfum þætti
yrði varið í að ræða
jafnrétti kynjanna?
Kynbundinn launa-
munur, klámvæðing,
kynbundið ofbeldi, at-
vinnutækifæri kynjanna, menntun
og staðalmyndir væru tilvalið um-
ræðuefni hvert um sig, þó vel væri
hægt að sameina þetta allt undir yf-
irskriftinni kynjajafnrétti. Konur
(og margir karlar) hafa áhuga á að
vita hvað stjórnmálaflokkarnir
hyggjast fyrir í þessum málum.
Meira: soley.blog.is
Óli Björn Kárason | 3. maí 2007
Ólafur Ragnar og
Björgólfur
Fyrir sagnaritarann
verður auðvitað nauð-
synlegt að líta til for-
sögu Ólafs Ragnars og
kortleggja viðhorf
hans til viðskiptalífs-
ins.
Þar verður auðvitað sagt frá því
þegar Ólafur Ragnar, sem fjár-
málaráðherra, lét ráðast inn í Hag-
virki en ekki verður síður dregið
fram með hvaða hætti forsetinn kom
fram í Hafskipsmálinu.
Meira: businessreport.blog.is
Ólína Þorvarðardóttir | 3. maí 2007
Klíkufundir
– taktleysi!
Fyrsta opinbera kynn-
ingin sem fram fer á
inntaki skýrslunnar fer
ekki fram á opnum
borgarafundi – ekki á
sameiginlegum fundi
allra stjórnmálaflokka.
Ónei. Fyrsta formlega kynningin
þar sem aðstandendur skýrslunnar
gefa kost á fyrirspurnum og svörum
– hún fer fram á lokuðum fundi
Sjálfstæðismanna á Ísafirði. Er
hægt að hugsa sér neyðarlegra takt-
leysi?
Meira: olinathorv.blog.is
Bjarni Harðarson | 3. maí 2007
Fréttastofa
í kviksyndi
Vinur minn Helgi Selj-
an hefur varla séð fyrir
það kviksyndi sem
hann var að koma sér
og sinni stóru stofnun
út í með Bjartmarz-
málinu. En áður en
lýkur á þetta mál eftir að verða Rík-
isútvarpinu dýrkeyptara en nokkru
sinni okkur Framsóknarmönnum og
það er greinilegt af athugasemdum
Þórhalls Gunnarssonar í dag að
hann gerir sér grein fyrir þessari
grafalvarlegu stöðu. Nú ætla ég
ekki að gera Helga það upp að hafa
sett fréttina fram í pólitískum til-
gangi en vitaskuld hefði verið heppi-
legra fyrir RÚV að setja varkárari
fréttamann í málið í byrjun og helst
fréttamann sem ekki var alinn upp á
DV og á ekki að bakgrunni að hafa
verið starfsmaður Samfylking-
arinnar.
„Fréttin“ um meinta spillingu við
veitingu ríkisfangs Gvatemalastúlk-
unnar byggir frá fyrstu tíð á getgát-
um og það sér hver vanur frétta-
maður að í hana vantar alveg allan
trúverðugleika og heimildir. Það
hefur einfaldlega enginn, hvorki
Kolbrún Halldórsdóttir, Sigurjón
Þórðarson né nokkur annar sýnt
fram á hið óeðlilega. Ef við skoðum
þetta útfrá hefðbundnum glæpa-
fræðum þá vantar bæði sannanir og
ástæðu fyrir glæp. Það segir sig al-
gerlega sjálft í þessu máli að hags-
munir Jónínu Bjartmarz af því að
tilvonandi tengdadóttir hennar fengi
ríkisfang á Íslandi eru ekki svo ríkir
að líklegt sé að hún hafi þar hætt
pólitískum frama sínum og beitt
bellibrögðum. Fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins og Samfylkingarinnar
hafa vitnað um það að afgreiðsla á
erindinu var algerlega eðlileg og það
er ekkert handfast til þess að draga
yfirlýsingar þeirra í efa enda hefðu
þau haft meiri pólitískan hag af öðru
svari eða hreinlega því að þegja.
Ásakanir Kolbrúnar og Sigurjóns
eru aftur á móti ótrúverðugar og
lykta af því að kosningar eru í nánd.
Það alvarlegasta í fréttaflutningi
RÚV er svo hvernig allar venjulegar
reglur um mikilvægi mála og for-
gangsröð hafa verið brotnar á und-
anförnum dögum með því að marg-
endurtaka þessa frétt án þess að
nokkuð nýtt hafi komið fram.
Meira: bjarnihardar.blog.is
BLOG.IS
PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23
SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
ClickBoard
BYLTINGARKENNDAR
VEGG- OG LOFTPLÖTUR
Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og
loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador
HDF plöturnar frá Parador
hafa nær engin sýnileg
samskeyti og eru einstaklega
auðveldar í uppsetningu.
KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR
Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra
höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna
losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu
stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð
Komdu við í verslun okkar og kynntu þér
þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér
ka
ld
al
jó
s
20
06