Morgunblaðið - 04.05.2007, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs var í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær dæmdur í fangelsi í 3 mánuði
fyrir skjalafals. Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi forstjóri var dæmdur í 9
mánaða fangelsi. Fullnustu refsinga
er frestað og falla þær niður að liðn-
um 2 árum frá birtingu dómsins haldi
þeir almennt skilorð. Ákæru á hend-
ur Jóni Gerald Sullenberger var vís-
að frá. Tíu ákæruliðum var vísað frá.
Jón Ásgeir var sýknaður af sjö
ákæruliðum en sakfelldur af einum
lið, að hafa látið gefa út tilefnislausan
reikning frá fyrirtækinu Nordica.
Tryggvi var sýknaður af fjórum
ákæruliðum og sakfelldur í fjórum
ákæruliðum, en þeir vörðuðu reikn-
inga frá Nordica og SMS í Færeyjum
og bókhaldsbrot við sölu hlutabréfa.
Dómurinn í gær er annar héraðs-
dómurinn sem fellur í máli gegn
stjórnendum Baugs. Upphaflega var
gefin út ákæra í 40 liðum. 32 þessara
liða var vísað frá og staðfesti Hæsti-
réttur þann dóm. Dómur gekk í þeim
8 ákæruliðum sem eftir stóðu og var
sýknað í þeim öllum. Eftir að nýr sak-
sóknari var settur til að fara yfir mál-
ið gaf hann út nýjar ákærur í 19 lið-
um. Héraðsdómur vísaði fyrsta lið
ákærunnar frá og var sú niðurstaða
staðfest í Hæstarétti.
Vísað frá vegna
óskýrra refsiheimilda
Fyrstu níu liðir ákærunnar varða
ólögmætar lánveitingar Baugs hf. til
Fjárfestingarfélagsins Gaums ehf.,
Fjárfars ehf. og Kristínar Jóhannes-
dóttur. Það er Jón Ásgeir sem er
ákærður fyrir brot á hlutabréfalög-
um í þessum liðum.
Í dómnum kemur fram að verkn-
aðarlýsing lúti ekki að athöfnum ein-
staklinga heldur hlutafélags. Bent er
á að í 69. gr. stjórnarskrárinnar segi
að engum verði gert að sæta refsingu
nema hann hafi gerst sekur um hátt-
semi, sem var refsiverð samkvæmt
lögum á þeim tíma þegar hún átti sér
stað. „Þetta ákvæði hefur í fram-
kvæmd verið talið gera ákveðnar
kröfur til skýrleika refsiheimilda,
meðal annars með hliðsjón af túlk-
unum á 6. og 7. gr. mannréttindasátt-
mála Evrópu,“ segir í dómnum og er
þar vísað til nýlegs dóms í svokölluðu
olíusamráðsmáli, en þar var máli for-
stjóra þriggja olíufélaga vísað frá
dómi vegna skorts á skýrleika refsi-
heimilda. Dómararnir komast að
sömu niðurstöðu varðandi þennan
hluta ákærunnar og vísa honum frá.
Galli talinn vera á ákæru
Í 10. lið ákærunnar var Jóni Ás-
geiri gefið að sök meiri háttar bók-
haldsbrot með því að hafa látið færa í
bókhaldi Baugs sölu félagsins í Baug-
i.net ehf. á óeðlilegu verði.
Í dómnum segir að til að ákæra
geti uppfyllt skilyrði laga „verður
verknaðarlýsing hennar að vera
þannig úr garði gerð að hvorki
ákærði né dómari þurfi að vera í vafa
um hvaða refsiverð háttsemi ákærða
er gefin að sök. Verður að vera hægt
að ráða þetta af ákærunni einni sam-
an og skiptir engu hvaða ályktanir
megi draga af rannsóknargögnum
eða hvað ákærða kann að vera ljóst
vegna rannsóknar málsins. Með
ákærunni á þannig að leggja full-
nægjandi grundvöll að málinu svo
hægt sé að fella dóm í því samkvæmt
því sem í ákærunni er tilgreint. Í
þessum ákærulið er ætluðu broti
ákærða ekki lýst og er ákæruliðurinn
því ekki í samræmi við nefnt laga-
ákvæði og óhjákvæmilegt að vísa
honum frá dómi. Breytir engu um
þessa niðurstöðu að í ákæruliðnum er
talað um að tilkynningar Baugs hf. til
Verðbréfaþings Íslands hafi byggst á
„framangreindri rangfærslu“, enda
rangfærslunni í engu lýst,“ segir í
dómnum.
Ekki stórfellt gáleysi
Í 11. lið ákærunnar er Jóni Ásgeiri
og Tryggva gefið að sök meiri háttar
bókhaldsbrot með því að hafa látið
rangfæra bókhald Baugs og búa til
gögn sem ekki áttu sér stoð í viðskipt-
um. Jafnframt er Jón Ásgeir sakaður
um að hafa látið senda Verðbréfa-
þingi tilkynningu sem hann hafi vitað
að innihélt rangar upplýsingar. Málið
varðar tiltekið fylgiskjal, sem dóm-
urinn telur sannað að sé efnislega
rangt. Tryggvi taldi að misskilningur
hefði átt sér stað við gerð fylgiskjals-
ins og telur dómurinn að sá fram-
burður hafi fengið stuðning af fram-
burði fjármálastjóra Baugs, sem taldi
ekki útilokað að slíkt hefði átt sér
stað.
„Samkvæmt þessu er ósannað að
ákærði, Tryggvi, hafi af ásetningi eða
af stórfelldu gáleysi látið búa til fylgi-
skjalið með hinu ranga efni og verður
hann því sýknaður af þessum ákæru-
lið. Þá er ósannað að ákærði, Jón Ás-
geir, hafi vitað um þau gögn sem til
urðu í samskiptum þeirra ákærða,
Tryggva, og fjármálastjórans og
færslu þeirra. Það er einnig ósannað
að ákærði hafi vitað annað en tilkynn-
ingar, sem sendar voru Verðbréfa-
þingi Íslands, hafi verið réttar.
Ákærði, Jón Ásgeir, er því einnig
sýknaður af því sem á hann er borið í
þessum ákærulið.“
Í 12. lið ákærunnar er Jóni Ásgeiri
og Tryggva gefið að sök meiri háttar
bókhaldsbrot með því að hafa látið
rangfæra bókhald Baugs hf. og hagað
því með þeim hætti að það gæfi ranga
mynd af viðskiptum og notkun fjár-
muna. Málið varðar samskipti Baugs
og Kaupþings vegna sölu á hlutabréf-
um í Baugi og þóknun vegna sölunn-
ar.
„Með framburði ákærðu og vitna,
sem rakinn var, er sannað að ákærðu
töldu sig eiga kröfu á Kaupþing hf.
vegna þóknunar fyrir sölu hluta-
bréfa. Þótt ekkert skjal hafi verið
gert um kröfuna, og ekkert formlegt
samkomulag, er sannað, með fram-
burði framangreindra vitna, að hún
var til og var gerð upp í viðskiptum
Baugs hf. og Kaupþings hf. síðar og í
framhaldinu bakfærð, eins og lýst er í
ákærunni. Af þessu leiðir að ósannað
er að ásetningur ákærðu hafi staðið
til þess að rangfæra bókhald Baugs
hf. eins og þeim er gefið að sök. Það
var hins vegar gáleysi af þeirra hálfu
að afla ekki gagna, sbr. 8. gr. bók-
haldslaga, áður en þeir létu færa
kröfuna. Krafan átti sér hins vegar
stoð í viðskiptum og þess vegna met-
ur dómurinn gáleysi ákærðu ekki
stórfellt. Samkvæmt þessu verða þeir
sýknaðir af þessum ákærulið. Með
sömu rökum er ákærði, Jón Ásgeir,
sýknaður af ákæru um rangfærslu
skjala og brot gegn hlutafélagalög-
um.“
Í 13. lið ákærunnar er Jóni Ásgeiri
og Tryggva gefið að sök meiri háttar
bókhaldsbrot með því að hafa látið
rangfæra bókhald Baugs hf. vegna
viðskipta sem tengdust kaupum
Baugs á 10-11 verslunarkeðjunni.
Ákærðu neituðu sök og telur dómur-
inn að skýringar þeirra séu studdar
framburði vitna. „Það er niðurstaða
dómsins að ósannað sé að viðskipti
þau sem þessi ákæruliður fjallar um
hafi ekki átt sér stað og því hafi færsl-
urnar sem byggðust á þeim verið
réttmætar. Af þessu leiðir að ákærðu
verða sýknaðir af þessum lið ákær-
unnar. Með sömu rökum er ákærði,
Jón Ásgeir, sýknaður af ákæru um
rangfærslu skjala og brot gegn hluta-
félagalögum.“
Tryggvi dæmdur vegna við-
skipta með bréf í Arcadia
Í 14. lið ákærunnar er Jóni Ásgeiri
og Tryggva gefið að sök meiri háttar
bókhaldsbrot með því að láta færa í
bókhaldi Baugs hf. þrjár rangar
færslur sem tengjast viðskiptum með
hlutabréf í Arcadia.
Ákæruliður þessi, sem í þremur
hlutum, varðar færslur sem ákæru-
valdið telur rangar, en þær tengjast
allar innbyrðis. Fyrsti hluti ákærulið-
arins varðar það að færsla á sölu
hlutabréfa í Arcadia með færsludegi
31. desember 2000 hafi verið röng.
Salan hafi ekki átt sér stað. Í dómn-
um er tekið undir þetta. Hlutaféð hafi
með samningnum verið afhent Kaup-
thing Lux til vörslu, en ekki selt og
hafi færslan því verið röng.
Annar hlutinn varðar færslu 2.
febrúar 2001, þar sem látið er líta út
fyrir að innborgun á bankareikning
Baugs hf. á Íslandi sé greiðsla frá
Kaupþingi hf. á kaupverði hlutabréf-
anna í Arcadia. Dómurinn telur
sömuleiðis sannað að um ranga
færslu hafi verið að ræða og að
Fengu dóm fyrir tilhæfu-
lausan kreditreikning
Jón Ásgeir Jóhannesson
var dæmdur fyrir einn lið
af 16 sem hann var
ákærður fyrir. Tryggvi
Jónsson var dæmdur
fyrir fjóra ákæruliði. Átta
ákæruliðum var vísað frá
vegna óskýrleika refsi-
heimilda og tveimur
var vísað frá vegna
galla á ákæru.
Morgunblaðið/RAX
Verjendur Gestur Jónsson, Jakob Möller og Brynjar Níelsson, verjendur sakborninga, virtust rólegir þegar þeir biðu eftir því að dómur yrði kveðinn upp.
Í HNOTSKURN
»Rannsókn Baugsmálsinshófst 25. ágúst 2002 þegar
Jón Gerald Sullenberger lagði
fram kæru á hendur Jóni Ás-
geiri og Tryggva.
»Á grundvelli framburðarJóns Geralds var heimiluð
húsleit hjá Baugi og Aðföng-
um en hún átti sér stað 28.
ágúst sama ár.
»Ákærur voru gefnar út ímálinu í 40 liðum 1. júlí
2005 en 32 þeirra var vísað frá
og sýknað var í 8 liðum.
»Nýjar ákærur í 19 liðumvoru gefnar út 30. júní í
fyrra.
!
()
#*
#+
,
-
.
*
+
,
' / 0 /" 1 /) 2/
1 /) 2/ 3$2 4
1 /) 2/ 567%
867 %0 /8 /
867 %0 /8 /
867 %0 /8 /# 7 0 94
867 %0 /8 /# 2#
867 %0 / 2'
%
:7)4 / & %
:7)4 / !;!3) <$ 867 %0 7 0 94
3$2 % 2 /:7" 3$2 % 2 / 6 / =/$ %
56(/
56(/
56(/
56(/
56(/
56(/ /: <// 56(/ /: <// 56(/ /: <// 56(/ /: <// 56(/ >: <// /56 %
56(/ /: <// 56(/ /: <// 56(/ /: <// : <// ()
*
%"%' +#
,
*
%-"
' . "
" !"
*
%-"
' . "
" !"
*
%-"
' . "
" !"
*
%-"
#
.
%
.
%
.
%
/' 0" .
%1- "
/' 0" 1- "
#" /' 2"
-*
%
/' 0" .
%1- "
/' 0" .
%1- "
.
%
*
%-"
#
&