Morgunblaðið - 04.05.2007, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista kaup-
hallarinnar, OMX á Íslandi, hækkaði
um 0,4% í gær og er lokagildi vísitöl-
unnar 7.817 stig.
Mest hækkun varð í gær á hluta-
bréfum Atlantic Petroleum, en þau
hækkuðu um 4,0%. Þá hækkuðu
bréf Teymis um 2,2% og bréf Lands-
bankans um 1,6%.
Mest lækkun varð hins vegar í gær
á hlutabréfum Össurar, en þau lækk-
uðu um 2,1%. Næstmest lækkun
varð á hlutabréfum Mosaic Fas-
hions, eða um 1,2%.
Hækkun í kauphöllinni
● BJÖRGÓLFUR
Thor Björgólfsson
sagði við Morgun-
blaðið að Novator
hefði farið út úr
rekstri búlgarska
símafélagsins
BTC á hárréttum
tíma, fyrirtækið
væri komið á gott
ról og tekist hefði
að ná fram mikl-
um breytingum á skömmum tíma.
„Við erum ekki að yfirgefa símamark-
aðinn í Austur-Evrópu og erum ennþá
inni með hluti í nokkrum símafyrir-
tækjum. Fjárfestingar okkar eru ekk-
ert bundnar við þetta svæði, við er-
um opnir fyrir tækifærum annars
staðar. Nú erum við komnir með dá-
góðan sjóð til að fjárfesta, ætlum að-
eins að slaka á og sjá hvaða færi
gefast,“ sagði Björgólfur Thor.
Novator opið fyrir
öðrum tækifærum
Björgólfur Thor
Björgólfsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
HAFI yfirtökunefnd ekki mátt til
þess að sinna sínu hlutverki verða
stjórnvöld að taka á málinu að sögn
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra. Forstjóri kauphallarinnar
segir það vel koma til álita að veita
nefndinni lagaheimildir til þess að
efla hana.
Eins og fram hefur komið á síðum
Morgunblaðsins undanfarna daga
hefur yfirtökunefnd gengið treglega
að safna upplýsingum um eignarhald
á Glitni banka og varð nefndin að vísa
málinu til Fjármálaeftirlitsins
(FME). Eðlilegt er að velta fyrir sér
hvort ekki sé tilefni til þess að veita
nefndinni lagaheimildir svo hún geti
framfylgt hlutverki sínu af meiri
festu, einkum þegar haft er að í huga
að bresku yfirtökunefndinni, sem er
fyrirmynd þeirrar íslensku, hafa ver-
ið veittar slíkar heimildir.
Yfirtökunefnd var tilraun
Viðskiptaráðuneytið var einn
stofnaðila nefndarinnar og segir Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra að
yfirtökunefnd sé tilraun til þess að
markaðsaðilar veiti hver öðrum að-
hald og markaðurinn sjálfur og
markaðsaðilar í frjálsum samtökum
hafi áhrif á starfshætti og ákvarðan-
ir. „Ef það kemur í ljós að það dugir
engan veginn þá munu yfirvöld alveg
áreiðanlega bregðast við því á viðeig-
andi hátt,“ segir Jón. Hann segir
málið ekki komið á það stig enn, en
komi í ljós að nefndin hafi ekki mátt
til þess að sinna sínu hlutverki verði
stjórnvöld að taka á málinu.
Getur torveldað fjármögnun
Breska yfirtökunefndin var stofn-
uð árið 1968 og hafði í upphafi ekki
stoð í lögum en það hefur nú breyst.
Nefndin hefur lagaheimildir til þess
að kalla eftir upplýsingum og sé því
kalli ekki svarað sem skyldi, er um
lögbrot að ræða. Sé slíkt brot framið
hefur yfirtökunefndin breska heimild
til þess að refsa gerandanum, annað
hvort með opinberum eða óopinber-
um ávítum, eða að draga til baka for-
réttindi, sem nefndin getur veitt,
tímabundið eða endanlega. Jafn-
framt getur nefndin tilkynnt fjár-
málaeftirliti um brotið eða sent frá
sér opinbera yfirlýsingu þess efnis að
gerandi sé ekki líklegur til þess að
hlíta reglugerðinni. Eftir því sem
blaðamaður kemst næst hefur sjald-
an reynt á þessar heimildir þar sem
almennt er brugðist mjög hratt og
vel við tilmælum nefndarinnar.
Í Svíþjóð hefur Aktiemarknads-
nämnden (AMN) svipuðu hlutverki
að gegna og yfirtökunefnd en þar
gildir það sama og hér að aðilum á
markaði er í sjálfsvald sett hvort þeir
skila inn upplýsingum eða ekki.
AMN hefur ekki frumkvæði að því að
yfirfara mál, þeim er vísað þangað.
Berist henni ekki þær upplýsingar
sem óskað er eftir, getur hún vísað
málinu til fjármálaeftirlitsins
sænska, Finansinspektionen. Jafn-
framt getur nefndin gripið til þess
ráðs að opinbera hverjir veita ekki
upplýsingar og getur það reynst skil-
virkt verkfæri, sérstaklega ef við-
komandi er annt um orðspor sitt.
Þeir sem komast á tossalista AMN
geta átt von á því að slíkt torveldi
fjármögnun sem og að dragi úr selj-
anleika hlutabréfa þeirra, þegar það
á við.
Nauðsynlegt að yfirfara
Þórður Friðjónsson, forstjóri
OMX á Íslandi, segir það vel geta
komið til álita að veita yfirtökunefnd
lagaheimildir. „Í það minnsta er
nauðsynlegt að yfirfara verkefni og
skipulag yfirtökunefndar. Hugmynd-
in var ljóslega sú í upphafi að nefndin
hefði ekki stoð í lögum heldur að hún
hefði skýrt hlutverk í krafti þekking-
ar og gagnsemi fyrir markaðinn svip-
að og í Bretlandi þar sem yfirtöku-
nefnd hafði ekki lagastoð fyrr en
nýlega. Það getur vel verið að við eig-
um að halda áfram að fylgja þeirri
fyrirmynd og íhuga einhvers konar
lagastoð fyrir yfirtökunefndina í ljósi
þeirrar atburðarrásar sem nú hefur
átt sér stað,“ segir Þórður.
Lagasetning möguleg
Markaðurinn Yfirtökunefnd gekk treglega að fá upplýsingar vegna við-
skipta með hlutabréf Glitnis. Það gæti kallað á lagabreytingu.
Morgunblaðið/Kristinn
2 6 )! 7 ! !6 #
389$
%+
"#$ %$ -* 74
'
74
' 4
74
'
? ?@3
' 74
8 74
3A 74
074
B4C49 /D %
E/074
A%0D %74
; 74
;
37 74
! #8 23$2 4074
F 74
&
'#! %
CG74
3 / 74
H
% B %/74
H
%
74
&I7 $74
J;K'8
:<74
: <///74
" 74
('
! 2 49 /! %4
" %) %!*
B8 %74
B$74
+
,% )
) )
)
B % #
%/ : 0 %/ !
#
+. , ,
+
+.*
,
+ **,
,*+ ++
-,*-
,- +
., +
-.*
.
.,,,,
,*.,*
*-.*
+ -+
+
-,*+,-
+-*
#
.
-*
... ,
#
#
->..
,>-
.>+
* >
>
*>
,>
*>,
-.>
+>
- >
.>,
*>-
>
.>
->
> -
*>,
*>*
>.
.>*
->,
>-
>
->.+
,>*
.>+-
>
>
*>-
,>
>
-.>-
+>
- >-
>-
*>
>*
*>
->
> *
>
*>
>*
.>*,
.>
>*
>
>
" 6 ':BM'7 / 3$ %
#
+
+
-
.
.
,
*
,.
+
*
.-
#
-
.
#
#
N/
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-.
-
-
-
-
*.
-.
J;K J;K )
3 4 4
J;K 08K
3
5 5
N O5
&%P
3 3
5 5
3:!C
N'K
3 3 5 5
J;K1
J;K).
3 3 5 4
Four Seasons glerbyggingar
eru frábær lausn sem hefur
ver ið mikið notuð á Ís landi .
Gler ið er háeinangrandi ,
með mjög góðri sólarvörn
og öryggisgler sem er
skylda að nota í þök.
Gler ið ger i r húsin að 100%
hei lsárshúsum.
Tré-ál eða ál útfærsla.
Sem dæmi um notkun hér á landi er:
Fyrir einkaheimili: Stofur, sólstofur, borðstofur,
eldhús, svalalokanir, sumarbústaðir og margt fleira.
Fyrir atvinnuhúsnæði: Veitingahús, hótel, verslunar-
hús, söluskálar, barnaheimili og margt fleira.
Verkhönnun
Kirkjulundi 13, 210 Garðabæ
Sími 565 6900
Netfang verkhonnun@simnet.is
SÓLSTOFUR - SVALALOKANIR
Viðhaldsfríar í húsið eða sumarbústaðinn
FARI hlutur eins hluthafa í Glitni
yfir 33,3% af heildarhlutafé bank-
ans geta aðrir hluthafar krafist inn-
lausnar á eign sinni samkvæmt
samþykktum bankans. Þetta felur
ekki í sér yfirtökuskyldu heldur
einungis að þeir sem það kjósa,
geta krafið þann hluthafa sem á
meira en 33,3% hlut um innlausn.
Þorsteinn M. Jónsson, stjórnar-
formaður bankans, segir í samtali
við Morgunblaðið að þetta ákvæði
sé enn virkt og óbreytt en bendir
jafnframt á að enginn einn aðili
hafi eignast svo stóran hlut. „Yfir-
taka á bankanum er ekki á döf-
inni,“ segir Þorsteinn, sem er
fulltrúi stærsta hluthafans, FL
Group, í stjórn bankans.
FL Group og tengd félög eiga
31,97% hlut í Glitni samkvæmt nýj-
ustu flöggun.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Innlausnarákvæðið virkt