Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Vogahverfi | „Þetta breytir öllu, að
fá sérhannaða aðstöðu fyrir okkar
starfsemi. Húsnæðið verður hið
glæsilegasta og búið nýjustu tækni
og tækjum,“ segir Ágústa Johnson,
framkvæmdastjóri Hreyfingar. Lík-
amsræktarstöðin mun undir lok árs-
ins flytja í nýbyggingu sem er að rísa
við Glæsibæ auk þess sem Blue
Lagoon spa verður hluti af nýju stöð-
inni.
Hreyfing varð til á árinu 1998 með
samruna tveggja stöðva og er nú
dótturfyrirtæki Bláa Lónsins hf.
Tvöfalt stærra húsnæði
Nýja húsnæðið er á þremur
neðstu hæðum byggingar sem Ís-
lenskir aðalverktakar reisa við
Glæsibæ. Það er 3.600 fermetrar að
stærð, nærri því tvöfalt stærra en
núverandi húsnæði fyrirtækisins við
Faxafen.
Hreyfing flytur með sér þá starf-
semi sem nú er í Faxafeni, í sérstak-
lega hannað og bjart húsnæði á nýja
staðnum. Nýja stöðin er hönnuð af
Sigríði Sigþórsdóttur hjá VA Arki-
tektum sem hefur hannað öll mann-
virki Bláa Lónsins hf.
Auk rúmgóðs tækjasalar með nýj-
um tækjum verða fjórir þolfimistaðir
ásamt aðstöðu fyrir barnagæslu.
„Við störfum á þeim grunni sem við
höfum byggt upp. Ég hef til dæmis
starfað við þetta í tuttugu ár,“ segir
Ágústa.
Spa frá Bláa Lóninu hf.
Heilsulindin er þó helsta nýjungin.
Blue Lagoon spa í Hreyfingu verður
hið fyrsta sinnar tegundar, að sögu
Ágústu, en fyrirhugað er að opna
slíka aðstöðu í fleiri löndum. Í boði
verða sérstaklega þróaðar meðferðir
sem byggjast á virkum hráefnum
Bláa lónsins og Blue Lagoon-húð-
vörum. Þá verða útisvæði með heit-
um pottum og gufuböðum. Við hönn-
un spa-svæðisins er lögð áhersla á að
skapa tengingu við náttúrulegt um-
hverfi Bláa lónsins. „Gestirnir kom-
ast ekki í Bláa lónið en nær því verð-
ur varla komist. Þetta er afar
spennandi,“ segir Ágústa um spa-að-
stöðuna.
„Við uppfyllum heildarhugmynd
um lífsstíl. Fólk getur komið í nudd
og fengið meðferð eftir óskum og
stundað líkamsrækt og þjálfum á
sama staðnum,“ segir Ágústa John-
son.
Hún segir að aðstaða skapist til að
fjölga gestum í nýju stöðinni en hug-
myndin sé fyrst og fremst að koma
öllu betur fyrir þannig að betur fari
um gesti og starfsfólk.
Heilsulind frá Bláa lón-
inu í húsnæði Hreyfingar
Útisvæði Heitir pottar og gufuböð verða á útisvæði Hreyfingar við Glæsi-
bæ. Er umhverfi Bláa lónsins fyrirmyndin eins og sést á þessari teikningu.
Stöðin flytur í nýtt
húsnæði við
Glæsibæ í árslok
Hafnarfjörður | Hafin er bygging
annars áfanga námsmannaíbúða á
sérhönnuðu svæði fyrir námsmenn
við Bjarkarvelli í Hafnarfirði.
Fyrsta skóflustungan að bygging-
unni var tekin í gær. Samtals verða
á svæðinu nærri 200 íbúðir.
Við skipulagningu þriðja áfanga
Vallahverfis var gert ráð fyrir
þremur lóðum fyrir námsmanna-
íbúðir, í þriggja og fjögurra hæða
húsum. Byggingafélag námsmanna
er að byggja þarna hátt í eitt
hundrað íbúðir og hófust fram-
kvæmdir á síðasta ári.
Í gær var tekin fyrsta skóflu-
stunga að byggingu sem Valhús
námsmannaíbúðir byggja. Í húsum
þeirra verða 100 íbúðir fyrir ein-
staklinga, hjón og barnafjöl-
skyldur, í þremur húsum.
Námsmannaíbúðirnar standa all-
ar við Bjarkarvelli og verður inn-
gangur þeirra allra frá sameig-
inlegu garðrými. Á milli
þyrpinganna er fyrirhugað að
koma upp aðstöðu fyrir leik- og
smábarnaskóla. Unnið er að und-
irbúningi þess í samvinnu Hafn-
arfjarðarbæjar og Hjallastefn-
unnar.
Svæðið við Bjarkarvelli liggur
vel við þjónustu, segir í frétta-
tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ
um skóflustunguna. Stutt er í
íþróttamiðstöð Hauka og nýju
sundlaugarmiðstöðina. Þá er stutt í
alla verslunarþjónustu þar sem fyr-
irtæki á Valla- og Selhraunssvæð-
inu eru að koma sér fyrir.
Stofnleið Strætó, S1, stoppar
skammt hjá og ekur beina leið til
Reykjavíkur þar sem vagnarnir
stoppa meðal annars í nágrenni Há-
skóla Íslands og Háskólans í
Reykjavík.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Framkvæmdir Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði,
tekur fyrstu skóflustunguna að námsmannaíbúðum við Bjarkarvelli
Sérhannað svæði fyrir
námsmannaíbúðir
AKUREYRI
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
YFIRGNÆFANDI stuðningur er
við það meðal íbúa Eyjafjarðar og
Suður-Þingeyjarsýslu að grafin
verði jarðgöng undir Vaðlaheiði.
Alls telja 92% svarenda í 2000
manna úrtaki mikilvægt að af
framkvæmdinni verði skv. könn-
un sem Capacent hefur gert fyrir
Greiða leið ehf. Stjórn Greiðrar
leiðar segir hins vegar að ekki
verði ráðist í framkvæmdir að
óbreyttri samgönguáætlun.
Fátítt
Í könnunni svöruðu 73% því að
það væri „mjög mikilvægt“ og
15,4 „frekar mikilvægt“ að göngin
yrðu grafin og „verður að telja af-
ar fátítt að svo viðamikið verkefni
í samgöngumálum njóti svo víð-
tæks stuðnings almennings,“ seg-
ir í tilkynningu frá Greiðri leið í
gær. Stefnt hefur verið að því
lengi að framkvæmdir hæfust í ár
og göngin yrðu tilbúin 2010 en
stjórn Greiðrar leiðar varð fyrir
mjög miklum vonbrigðum með
nýsamþykkta samgönguáætlun
og segir að ekki verði ráðist í
framkvæmdir, þar með talda fjár-
mögnun og lokahönnun, fyrr en
aðild ríkisins hefur verið tryggð.
„Það liggur ljóst fyrir, og hefur
raunar legið fyrir lengi, að aðild
ríkisins þarf að vera umtalsvert
meiri en sem nemur þeim 300
milljónum króna sem gert er ráð
fyrir í nýlega samþykktri sam-
gönguáætlun. Ef sú áætlun stend-
ur óbreytt á næsta kjörtímabili er
óhætt að fullyrða að afar litlar
líkur eru á því að af verkefninu
verði í bráð,“ segja forráðamenn
Greiðrar leiðar í tilkynningu sem
afhent var blaðamönnum á fundi í
gær.
Vonbrigði
Stjórn Greiðrar leiðar segir að
allar götur frá árinu 2005, á fund-
um með samgönguyfirvöldum og
þingmönnum, hafi félagið lagt
fram hugmyndir sínar um þátt
ríkisins að framkvæmdinni, sem
forsendur þess að í gerð gang-
anna yrði ráðist og nefna eftirfar-
andi:
Að virðisaukaskattur verði
felldur niður af framkvæmda-
kostnaði líkt og gert var í Hval-
fjarðargöngum, enda gert ráð
fyrir innheimtu veggjalda með
vsk.
Að ríkið veiti ábyrgð á lán-
um Greiðrar leiðar að hluta eða
öllu leyti.
Að ríkið taki þátt í fram-
kvæmdakostnaði með stofnfram-
lagi.
Að Greið leið ehf. fái heim-
ild til reksturs ganganna og um
leið gjaldtöku í 25 ár, með heimild
til framlengingar ef þörf krefur.
Að þeim tíma liðnum fái ríkið
göngin afhent endurgjaldslaust á
grundvelli þess að ríkið aðstoði
við gerð þeirra.
Að ríkið kosti gerð vega ut-
an gangamunna. Vegagerðin hef-
ur þegar látið hanna vegina.
Í samgönguáætlun sem sam-
þykkt var á nýliðnu þingi eru
Vaðlaheiðargöng meðal þeirra
framkvæmda sem gert er ráð fyr-
ir að fjármagnaðar verði með svo-
kallaðri sérstakri fjármögnun. Í
áætluninni er ekki tekin afstaða
til þess hvernig fjár verði aflað,
en áætlaðar 300 milljónir króna
til Vaðlaheiðarganga sem deilist á
árin 2008 – 2010.
Gríðarlegur stuðningur við göng meðal íbúa Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu
Engin Vaðlaheiðargöng að
óbreyttri samgönguáætlun
Í HNOTSKURN
»Félagið Greið leið ehf. varstofnað 2003 og er í eigu
allra sveitarfélaga í Eyþingi
(Eyjafirði og Þingeyjarsýslu),
auk 10 fyrirtækja.
»Tilgangur félagsins er aðvinna að gerð jarðganga
undir Vaðlaheiði. Í því felst
m.a. að annast áætlanagerð,
rannsóknir og samninga við
ríki og fjárfesta auk þess að
standa fyrir framkvæmdum og
rekstri ganganna.
»Hluthafar í Greiðri leiðhafa lagt fram 65 milljónir
kr. í formi hlutafjár til að und-
irbúa gerð ganganna.
2
%
+$
B )/ )/4E9 4< C<$4$ ) /
Q/<$ I / // % " 7R
/ 4< 74
D= 2 % # 2
67 -#
"
-#
+- ,
"
* -#
67 * -#
3456
7859
65:
;5<
;58
"2)
// VORHREINSUNARVIKA hefst á mánu-
daginn og stendur til föstudagsins 11. maí á
vegum Akureyrarbæjar. Eigendur og um-
ráðamenn lóða eru hvattir til að hreinsa af
lóðum sínum allt sem er til óþrifnaðar og
óprýði. Setja má ruslið að götukanti þessa
daga og munu starfsmenn bæjarins fjar-
lægja það samkvæmt eftirfarandi áætlun:
Mánudagur: Innbær og Suðurbrekka sunn-
an Þingvallastrætis og austan Mýrarvegar.
Þriðjudagur: Teigahverfi og Naustahverfi.
Miðvikudagur: Lundahverfi og Gerða-
hverfi.
Fimmtudagur: Miðbær, Oddeyri og ytri
brekka norðan Þingvallastrætis og austan
Mýrarvegar.
Föstudagur: Holtahverfi, Hlíðahverfi, Síðu-
hverfi og Giljahverfi.
Gert er ráð fyrir að trjábolir og sverar
greinar fari í kurlun og má því ekki blanda
því saman við annan garðaúrgang. Flokka
þarf rusl eins og hægt er samkvæmt við-
teknum venjum.
Vorhreingerningin
hefst eftir helgi
LÖGN sem flytur kalt vatn í Glerárhverfi
fór í sundur á gatnamótum Skarðshlíðar
og Smárahlíðar snemma í gærmorgun.
Töluverðar skemmdir urðu í Skarðshlíð-
inni eftir að mikið vatn flæddi upp í gegn-
um malbikið en að auki þurfti að grafa í
gegnum malbikið í leit að biluninni. Kalt
vatn var ekki að hafa í hluta Glerárhverfis
fram eftir degi; t.d. í Glerárskóla, íþrótta-
húsi skólans og sundlauginni og voru nem-
endur skólans þess vegna sendir heim um
hádegisbil. Þá var vatnslaust í Hamri fé-
lagsheimili Þórs, stúdentaíbúðunum við
Skarðshlíð og í húsum við Litluhlíð, Selja-
hlíð og Steinahlíð.
Skemmdir vegna
vatnslagnar sem
fór í sundur