Morgunblaðið - 04.05.2007, Qupperneq 26
|föstudagur|4. 5. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Meistarakokkarnir Bjarni Gunn-
ar Kristinsson og Ragnar Óm-
arsson bjóða upp á ýmsa kart-
öflurétti. »29
matur
Sælkeraferðalag um Frakkland
er nýútkomin bók um franska
matargerð með sérvöldum upp-
skriftum. »30
frakkland
Dómarnir um 2006-árganginn í
Bordeaux streyma inn og nú
hefur víngagnrýnandinn Robert
Parker fellt úrskurð. »28
vín
Ég nýt meiri útivistar enaðra daga,“ segir FreyjaÖnundardóttir myndlist-armaður um athafnir sín-
ar um helgar. „Ég er reyndar mikið
úti alla daga, en meira um helgar,“
hnykkir hún á. „Mér finnst alveg
yndislegt að vakna snemma, áður en
lífið og borgin vakna, og fara þá út
að ganga eða hjóla. Það er algjör
snilld sko, og sannarlega er næring í
því,“ segir hún létt.
Freyja á hund, blending af labra-
dor og golden retriever. „Tíkin mín,
hún Birta, fer með mér og kann ald-
eilis að njóta þessa með mér. Þeir
kunna þetta nefnilega hundarnir; að
sýna þessi gleðiviðbrögð við að vera
úti í náttúrunni og það er svo smit-
andi. Hún er yndislegur vinur,“ seg-
ir Freyja. Hún býr í Fossvogi og
þess vegna er stutt fyrir hana að
komast á göngusvæði þó að hún búi
svo að segja í borgarmiðjunni. „Þeg-
ar við förum svona snemma á
morgnana förum við Birta bara
tvær, svo förum við gjarnan aftur
seinnipartinn og þá með einhverjum
góðum göngufélögum.“ Freyja hjól-
ar líka mjög mikið, en þar sem Birta
er orðin níu ára gömul er minna um
að hún fari með Freyju í hjólreiða-
túrana. „En þó, hún hjólar aðeins
með mér, bara ekki lengri vega-
lengdir,“ segir Freyja.
Líka menning
Hún segist líka nota helgarnar í
að fara á sýningar, hvort sem er
myndlistar- eða leiksýningar. „Eitt-
hvað menningartengt,“ segir hún.
Núna um helgina verður þó annað
upp á teningnum hjá henni því sjálf
opnar hún sýningu í Mosfellsbæ á
morgun, laugardag. „Um það snýst
náttúrlega þessi helgi hjá mér, að
taka á móti gestum, vinum og list-
unnendum. Í flestum tilfellum eru
listsýningar skemmtilegar uppá-
komur og á þær kemur mjög
skemmtilegt fólk,“ segir Freyja.
Á sýningunni hjá henni núna verð-
ur afrakstur nokkurra ára vinnu og
hún viðurkennir að það sé talsvert
verk að koma heim og saman svona
sýningu. „Þetta þarf svo líka auðvit-
að allt að ganga upp í rýminu,“ segir
hún, „en þetta er skemmtilegt,“ bæt-
ir hún við ákveðin.
Freyja bjóst við að vera klár með
sýninguna í dag [föstudag] og var
búin að skipuleggja nokkurn veginn
hvernig hún ætlaði að búa sig undir
helgina. „Mér finnst yndislegt að
kíkja aðeins í bæinn, þá gjarnan með
góðum vinum, og fer þá gjarnan á
sýningar hjá öðrum og kannski á
Kaffitár í einn soja-latté. Þá er það
auðvitað félagsskapurinn sem gerir
gæfumuninn,“ segir hún.
Gaman að vera í kór
Freyja er í kórnum Léttsveitinni
og segir að sér finnist ofboðslega
gaman að syngja. „Eins og alla aðra
daga er mjög skemmtilegt að syngja
um helgar. Og þá helst með þessum
120 konum í Léttsveitinni … eða
allavega einhverjum þeirra,“ bætir
hún við kímin. „Í næstu viku eru
tvennir tónleikar þannig að það er
mikið æft nú um stundir. Við höfum
líka talsvert komið fram að und-
anförnu. Léttsveitin er þannig stór
þáttur af félagslífinu hjá myndlist-
armanninum sem eðli málsins sam-
kvæmt vinnur mikið einn,“ segir hún
glettin.
Freyja er fjölskyludumanneskja,
börnin hennar tvö eru þó brottflutt.
„Um helgar er yndislegt að fá þau
heim og gera vel við sig í mat. Elda
eitthvað hollt og gott, þá er lyk-
ilatriðið að hafa ferskt hráefni,“
klykkir Freyja út með.
Sálin nærist í göngu
áður en borgin og lífið vakna
Morgunblaðið/Ásdís
Hvernig finnst þér þessi? Freyja leggur á ráðin með tíkinni Birtu við uppsetningu sýningarinnar. Birta er
vinnufélagi Freyju og hennar besti vinur. Þær ganga saman daglega og hjóla líka styttri vegalengdir.
Njóta útivistar: Fara út að
ganga eða hjóla.
Syngja: Helst með 120 kon-
um í Léttsveitinni, ef ekki,
bara syngja!
Njóta menningarinnar: Fara
á leik- eða myndlistarsýn-
ingar, það er mjög gefandi.
Hitta jákvætt og skemmti-
legt fólk: Það er lykilatriði í
lífinu.
Dekra við sig: Gera vel við
sig í mat og drykk, ferskur
fiskur er t.d. alveg frábær.
Freyja mælir með
Ekki er lengur um það deilt að 3–5
bollar af kaffi yfir daginn eru góð-
ir fyrir kroppinn. Kaffisían slær þó
espressóvélina út hvað heilsu-
samlegu áhrifin snertir. Frá þessu
er sagt á vefnum forskning.no.
Í flestum niðurstöðum rann-
sókna sem gerðar hafa verið er
sýnt fram á að 3–5 bollar af kaffi
yfir daginn minnki áhættu á þó
nokkrum sjúkdómum. Það á m.a.
við um sykursýki, Parkinsons, Alz-
heimers, nýrnasteina, gallsteina,
krabbamein í ristli og endaþarmi
og lifrarkrabba.
Á síðasta ári var gerð opinber
rannsókn norskra vísindamanna
en niðurstöður hennar sýndu að 60
prósent andoxunarefna sem Norð-
menn fá í sig almennt eru fengin
úr kaffi. Það er þó ekki endilega
vegna þess hversu mikið af andox-
unarefnum er í kaffi heldur hversu
mikið kaffi er drukkið í Noregi.
Kaffi getur þó líka innihaldið
efni sem eru vond fyrir heilsuna.
Það á t.d. við um fituefnin cafestol
og kahwol. Þetta tvennt getur
aukið kólesterólmyndun og hættu
á hjarta- og æðasjúkdómum.
Og þá er komið að kaffisíunni
og espressó. Ofannefnd fituefni
verða nefnilega eftir í kaffisíunni
og eru þar með að hluta til fjar-
lægð úr kaffinu. Lena Frost And-
ersen sem stýrði norsku rannsókn-
inni sem nefnd er hér að ofan
tekur sérstaklega fram að koffein
geti verið skaðlegt. „Fituefnin eru
einn hlutinn,“ segir hún. „Koffein-
ið er annað. Til dæmis sýna rann-
sóknir að mikil inntaka koffeins
geti aukið hættu á skyndilegu fóst-
urláti hjá ófrískum konum.“ Frost
Andersen er ekki tilbúin til að
mæla sérstaklega með kaffi-
drykkju vegna þess hversu margir
óvissuþættirnir um kaffidrykkju
eru enn sem komið er. Hún segir
jafnframt mikilvægt að horfa til
þess að hin jákvæðu áhrif kaffi-
drykkju séu fyrir bí ef drukknir
eru fleiri en fimm kaffibollar á
dag.
Uppáhellt kaffi
hollara en espresso
Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Þorkell
Úrsmíðafyrirtækið Vacheron
Constantin hefur opnað
vinnustofu til að sterkefnaðir
viðskiptavinir geti komið og
hannað sín eigin úr sem kosta
þá frá 700.000 krónum og upp
úr.
Vacheron Constantin er 252
ára gamalt fyrirtæki og þar
með elsta úrsmíðafyrirtæki
heims..
Sterkefnaðir
hanna sín eigin úr