Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 31
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 31
www.leikhusid.is sími 551 1200
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
LEG
SKOPPA
OG SKRÍTLA
Allra síðasta sýning 13. maí kl. 20.00!
SITJI GUÐS ENGLAR
Sýning fyrir alla aldurshópa!
HÁLSFESTI HELENU
„Yndislega geggjaður og "morbid" húmor“.
Lísa Páls, Rás 2
„Tónlistin sem Flís sá um var æðisleg...
ég hlakka sjúklega til að komast yfir diskinn“.
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Leg er skemmti-legasta leikrit sem ég hef séð“.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Fréttablaðið
„Leg er eiginlega skylduáhorf... drepfyndin og góð sýning“.
Ingimar B, Blaðið
Kristrún Heiða, Fréttablaðið
CYMBELINE
HJÓNABANDSGLÆPIR
Shakespeare í meðförum eins af bestu
leikhópum heims, "Cheek by jowl".
Sýningar 15/5, 16/5, 17/5 og 18/5.
Aukasýningar í maí að seljast upp!
„Leikararnir stóðu sig fantavel...“
„...áhrifarík upplifun og fróðleg innsýn í heim
sem okkur Vesturlandabúum er að mestu hulinn...“
Blaðið, Ingimar Björn Davíðsson
„Það hefur tekist vel að vinna úr efniviðnum hér
og verkið er heillandi...“
„Þessi sýning situr í mér.“
Víðsjá, Rás 1, Þorgerður Sigurðardóttir
„Leikurinn er því þörf áminning um svívirðu
sem allir vita af.“
Fréttablaðið, Páll Baldvin Baldvinsson
eru komnar aftur til að kæta
hjörtu allra barna!
KRINGLUNNI
Karl af Laugaveginum yrkir:
Í Bónus verslar byggðin öll
og biður þar um kálpoka,
en vinstri grænir ganga á fjöll
og grösin tína í álpoka.
Og hann bætir við um skoð-
anakannanir:
Með föla kinn og framlágt enni,
framsókn gamla lætur á sjá.
Mig langar til að hlúa að henni
og hefi keypt mér góða smásjá.
Ingólfur Ómar Ármannsson tek-
ur í sama streng:
Ekkert líkt sem áður var,
ærið bágt að vonum.
Dvínar fylgi framsóknar,
fækkar atkvæðonum.
Hallmundur Kristinsson orti á
baráttudegi verkalýðsins:
Vinnustaðir veðurblíðu skarta
vegna þess að það er fyrsti maí.
Það er líka þjóðráð gott að kvarta
á þessum degi. Æ æ æ æ æ!
Fram-
sókn og
atkvæðin
pebl@mbl.is
Á Moggablogginuheldur Babel, fé-
lag þýðinga-
fræðinema, úti
skemmtilegu bloggi.
Þar er nú spurt: „Á
maður að segja
Björgvin fyrir Berg-
en? Kaupmannahöfn
já, hvað með Árósa
fyrir Århus, Óðinsvé
fyrir Odense og Hró-
arskeldu fyrir Rosk-
ilde? Hafa þau heiti
skapað sér hefð?
Málmey, Málm-
haugar eða bara
Malmö?
Kænugarður, Stóð-
garður, Drusluþorp?“
Víkverja finnst að sum borg-
anöfn hafi áunnið sér hefð í ís-
lenzkri þýðingu. Það fer ekki á
milli mála með Kaupmannahöfn,
Stokkhólm og Björgvin, svo dæmi
sé tekið. En aðrar þýðingar, t.d.
Amsturdammur og Öxnafurða,
hljóma ankannalega og orka tví-
mælis.
Annars notar Víkverji yfirleitt
þá aðferð á fylgismenn skrýtinna
þýðinga á borgaheitum að biðja
þá vinsamlegast um að þýða nöfn
þýzku borganna Darmstadt og
Cuxhaven. Þá setur þýðing-
arsinnana alla jafna hljóða.
MarkaðsherferðNóa-Síríuss í
þágu Tópass hefur
farið fyrir brjóstið á
einhverjum. Fólk á
vegum fyrirtækisins
tók þátt í kröfugöng-
unni á 1. maí og bar
„kröfuspjöld“ þar
sem farið var fram á
frjálst Tópasland,
Tópasbyltingu og
fleira slíkt.
Á Moggablogginu
ná sumir varla and-
anum af hneykslan
yfir uppátækinu; Jó-
hann Björnsson,
frambjóðandi Vinstri-
grænna, talar um „einstaklega
fíflaleg kröfuspjöld“ og að Nói-
Síríus hafi hæðzt að verkafólki og
kjarabaráttu þess.
Víkverji spyr nú bara: Eru þessi
kröfuspjöld eitthvað fíflalegri en
mörg, sem borin hafa verið á 1.
maí undanfarin ár? Kemur mál-
staður t.d. andstæðinga varnarliðs-
ins og NATO baráttu launþega
fyrir bættum kjörum eitthvað
meira við en kröfur um nógan Tóp-
as? Geta einhverjir af þeim, sem
hafa verið með fíflaleg kröfuspjöld
í 1. maí-göngum undanfarinna ára,
ekki bara sjálfum sér um kennt að
fleiri vilji bætast í hópinn?
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Börn fá oftar höfuðverk en for-
eldrar þeirra telja að því er fram
kemur á forskning.no.
Norskir vísindamenn báðu 2126
skólabörn í Osló á aldrinum 7 til
12 ára að fylla út svokallaða höf-
uðverkjadagbók. Samhliða voru
foreldrarnir beðnir að fylla út sér-
stakt yfirlit yfir höfuðverk barna
sinna.
Niðurstöðurnar sýndu að 57,6
prósent barnanna greindu frá
a.m.k. einu höfuðverkjartilfelli á 30
daga tímabili. 56,6 prósent foreldr-
anna greindu hins vegar aðeins frá
einu tilfelli á sex mánaða tímabili.
Eins töldu aðeins 6,7 prósent
foreldranna að barn sitt fengi
reglulega höfuðverk en 14,7 pró-
sent barnanna sögðust fá reglulega
höfuðverk.
Feður vanmeta meira
Af þeim börnum sem fengu höf-
uðverk reglulega sögðu 10,4 pró-
sent það gerast 7 – 14 daga á 30
daga tímabili. 4,3 prósent sögðust
hafa höfuðverk 15 daga í mánuði
eða fleiri.
Í ljós kom að feður vanmátu höf-
uðverk barna sinna meira en mæð-
urnar. Munurinn á frásögn
barnanna og foreldranna reyndist
enn fremur vera meiri ef barnið
var stúlka. Engu að síður tóku for-
eldrar frekar eftir höfuðverk hjá
stelpum en strákum.
Halda dagbækur
Taugasérfræðingurinn Christo-
fer Lundqvist telur dagbækur
prýðilegt tæki til að fá betri upp-
lýsingar frá börnunum um höf-
uðverk þeirra. „Þegar barn greinir
frá því að það sé með höfuðverk 15
daga í mánuði er ástandið mjög al-
varlegt og krónískt. Við þurfum að
vera duglegri að hlusta þegar
börnin eru að segja okkur frá líðan
sinni,“ segir hann.
Morgunblaðið/Golli
Verkir Þegar barn greinir frá því að það sé með höfuðverk 15 daga í mánuði er ástandið alvarlegt og krónískt.
Foreldrar vanmeta höfuðverk barna