Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðrún Guð-mundsdóttir
fæddist á Egils-
stöðum, Ölf-
ushreppi, Árnes-
sýslu, 24.
desember 1935.
Hún lést á Líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
28. apríl síðastlið-
inn.
Foreldrar henn-
ar voru Guð-
mundur Stein-
dórsson, f. 18.
apríl 1906, d. 2. febrúar 1965,
og Markúsína Jónsdóttir, f. 19.
mars 1900, d. 8. desember 1994.
Systkini Guðrúnar voru Jónína,
f. 1929, María f. 1931, d. 1974,
og Steindór, f. 1933.
Guðrún giftist 26. desember
1958 Ástþóri Runólfssyni húsa-
smíðameistara, f. 16. október
1936, frá Vestmannaeyjum. For-
eldrar hans voru Runólfur Run-
ólfsson f. 1899, d. 1983, og Unn-
ur Þorsteinsdóttir, f. 1904, d.
1947. Guðrún og Ástþór eign-
uðust fimm börn, þau eru: 1)
1987, unnusta hans er Kamilla
Dögg Guðmundsdóttir, c) Kon-
ráð, f. 1992 og d) Kolbeinn, f.
1994. 4) Hulda, f. 15. september
1964, gift Aðalsteini Guðmanns-
syni, börn þeirra eru: a) Hákon,
f. 1991, b) Ævar, f. 1995 og c)
Haukur, f. 2001. 5) Runólfur Þór
f. 1. mars 1978, kvæntur Heið-
rúnu Ólöfu Jónsdóttur, börn
þeirra eru: a) Ástþór Ingi, f.
2002 og b) Kristján Daði, f.
2005.
Guðrún ólst upp í foreldra-
húsum og gekk í skóla í Hvera-
gerði. Hún vann við bú foreldra
sinna á sumrin og í Vinnufata-
gerðinni í Reykjavík á veturna.
Hún fór í Húsmæðraskóla í
Reykjavík 1957. Guðrún og Ást-
þór hófu búskap í Laufási, æsku-
heimili Ástþórs, í Vestmanna-
eyjum en fluttu til Reykjavíkur
1964. Þar bjuggu þau í Gnoð-
arvogi en síðan í Þúfuseli. Síð-
ustu 18 árin vann hún við að-
hlynningu aldaðra, fyrst í
Seljahlíð og síðar í Furugerði,
ásamt því að vera dagmamma
barnabarna og barnabarnabarna
sinna. Félagsstörfum sinnti Guð-
rún af alúð, sat í stjórn Kven-
félags Seljasóknar og Bjarkanna
kynningarklúbbi, þar sem hún
var ein af stofnendum.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Hallgrímskirkju föstudaginn 4.
maí kl. 15.
Hildur, f. 31. maí
1959, gift Jóhanni
Ólafi Jónssyni, börn
þeirra eru: a)
Guðný Debora f.
1990 og b) Markús
Már f. 1992, börn
Hildar frá fyrra
hjónabandi eru: c)
Erla Sylvía f. 1978 í
sambúð með Jonat-
hani Gerlach Ped-
ersen sonur þeirra
er Guðjón Ingi Ger-
lach, f. 2004 og d)
Elva Guðrún, f.
1981, í sambúð með Magnúsi
Heiðari Magnússyni, sonur hans
er Magnús Hrannar, f. 1999. 2)
Guðmundur Már, f. 19. október
1961, börn hans eru: a) Ástþór
Reynir, f. 1978, kvæntur Ásrúnu
Ósk Bragadóttur, börn þeirra
eru: Guðmundur Bragi, f. 2002,
og Katrín Ósk, f. 2005, b) Ásdís
Rut, f. 1989, unnusti hennar er
Hilmar Þór Guðmundsson og c)
Gísli Már, f. 1994. 3) Hlín f. 30.
nóvember 1962, gift Hrafnkeli
Marinóssyni, börn þeirra eru: a)
Kolbrún, f. 1983, b) Kjartan, f.
Elsku amma
Okkur strákana langar að skrifa
nokkur orð til þín. Að skrifa minn-
ingargrein um þig er eins og að
skrifa ævisögu okkar strákanna. Við
höfum þekkt þig síðan við munum
eftir okkur. Þú hefur alltaf verið til
staðar til að hjálpa okkur þegar við
þurftum á hjálp þinni að halda. Það
er sárt að þú sért ekki lengur hér, en
í hjarta okkar ertu alltaf hjá okkur.
Þúfusel hefur verið eins og heimili
fyrir okkur alla. Að koma aftur þang-
að verður aldrei eins en minningin
um þig mun alltaf hlýja okkur þó þú
sért ekki lengur þar. Við eigum eftir
að sakna þess að eyða ekki fleiri
stundum með þér. Sérstaklega mun-
um við sakna ferðanna í sumarbú-
staðinn, að fá heimabakaðar flatkök-
ur og volga kryddköku með mjólk.
Allt þetta hefur hjálpað okkur að
halda vinskap okkar á milli í gegnum
tíðina.
Þín ástkæru barnabörn,
Hákon, Markús Már, Konráð,
Kolbeinn, Gísli Már og Ævar.
Elsku amma.
Mikið ofboðslega er erfitt að
hugsa til þess að þú sért farin frá
okkur. Við vissum að þessi dagur
myndi koma en við vissum ekki að
hann kæmi svo fljótt, vissum ekki að
þetta yrði svona erfitt og sárt. Þegar
við hugsum til baka þá er enn erfitt
að skilja hvernig þessi sjúkdómur
virkar og af hverju hann tók þig frá
okkur, en svona er lífið óútreiknan-
legt, við verðum að halda áfram og
þú að fylgjast með okkur eins og þú
hefur ávallt gert. Fyrir ári síðan
varst þú flottasta, fjörugasta og dug-
legasta 70 ára kona sem við þekkt-
um. Þú varst alltaf með fullt hús af
fólki, Þúfuselið var eins og sam-
komuhús, þar sem ætíð var fjör og
gaman. Þú reyndir að halda þínu
striki eftir að þú veiktist en krabba-
meinið náði taki á þér og í fyrsta
skipti þurftir þú að treysta á hjálp
annarra, áður hafði öll fjölskyldan
treyst á þína hjálp.
Þegar við látum hugann reika og
hugsum til baka þá eru ófáar minn-
ingarnar sem við eigum úr Þúfusel-
inu. Þegar maður kíkti í heimsókn þá
var sama hversu stutt maður ætlaði
að stoppa hjá ykkur afa, þú varst
ekki lengi að skella hálfum ísskápn-
um á borðið, setja á þig svuntuna og
kveikja á hrærivélinni. Áður en mað-
ur vissi af var ilmandi jólakakan
komin á borðið og stoppið sem átti að
verða stutt ílengdist um nokkrar
ánægjulegar klukkustundir. Þú
varst þekkt innan fjölskyldunnar
sem mikill safnari og það mátti yf-
irleitt ekki henda neinu, sama
hversu gamalt og slitið það var. Okk-
ur er minnisstætt eitt skiptið þegar
taka átti til í geymslunni og fara með
gamalt dót á haugana. Ekki varð
mikið úr þeirri ferð þar sem þú sást
iðulega verðmæti í hverjum hlut og
úr varð endurröðun á „drasli“ í stað
tiltektar. Annað sem ekki fór fram
hjá neinum er hve dugleg þú varst að
passa barnabörnin þín og barna-
barnabörn. Þú varst svokölluð „já-
manneskja“ – sagðir iðulega já við
öllu og vildir allt fyrir alla gera. Þú
vildir alltaf hafa mikið af fólki í
kringum ykkur afa og vildir til dæm-
is ekki heyra á það minnst að selja
stóra húsið ykkar því þú varst svo
hrædd um að gestagangurinn myndi
minnka í kjölfarið. Þó oft hafi verið
mikið fjör í Þúfuselinu var mjög gott
að kíkja í rólegt kvöldkaffi og spjalla
við ykkur afa, þar sem þú sast í sæt-
inu þínu og heklaðir dúllur í frægu
teppin þín sem þú síðan gafst áfram
til barna og barnabarna. Við lítum
allar á Þúfuselið sem okkar annað
heimili enda höfum við allar verið
búsettar þar á einhverjum tíma-
punkti. Það mun ekki breytast þrátt
fyrir að þú sért farin en það verður
erfitt að venjast þeirri tilhugsun að
þú sért ekki lengur á meðal vor.
Með þessum orðum viljum við
kveðja þig, elsku amma. Guð varð-
veiti þig að eilífu.
Þínar dótturdætur,
Erla Sylvía, Elva Guðrún,
Guðný Debora og fjöl-
skyldur.
Elsku besta Amma.
Þegar við hugsum tilbaka, hversu
gott var að kíkja uppí Þúfu og fá sér
heita jólaköku og mjólk sem var allt-
af til á borðinu hjá henni ömmu okk-
ar. Amma sem var alltaf jafn góð við
okkur og manni leið alltaf svo vel í
návist hennar. Erfitt að hugsa til
þess að þú hafir orðið svona veik, því
við vorum alveg viss um það að þú
myndir vera hjá okkur mikið lengur,
þú varst alltaf jafn hress og kát, al-
veg sama hvað bjátaði á. En þín
verður sárt saknað, elsku amma,
vegna þinnar lífsgleði og allra þeirra
minninga sem þú hefur gefið okkur í
gegnum tíðina.
Hvíldu í friði, elsku amma
Þín barnabörn,
Kolbrún og Kjartan.
Elsku amma okkar. Eftir langa
baráttu ertu nú farin á betri stað, þín
verður sárt saknað. En við höldum í
allar góðu minningarnar úr Þúfusel-
inu, Egilsstöðum og bústaðnum.
Amma Guðrún var fyrirmynd
allra sem stefna að því að vera
hjartagóðir og umhyggjusamir, tala
nú ekki um allan þann góða mat sem
þú hefur eldað ofan í okkur. Við
munum seint gleyma þeim ótal-
mörgu jólakökum og flatkökum sem
við höfum fengið frá þér. Þú kenndir
okkur ómeðvitað að það eru ekki
endilega stóru hlutirnir sem skipta
mestu máli, við munum til dæmis
alltaf minnast þess hvernig þú bjóst
um rúmið þegar við komum í pössun
og hvernig þú brettir uppá sængina
þannig að rúmið varð miklu hlýlegra.
Þökkum fyrir allar þær góðu
stundir sem þú hefur gefið okkur.
Við munum ávallt minnast þín sem
góðu ömmu okkar sem alltaf var
hægt að leita til. Sama hvað var að
eða hvert okkar þurfti passa, amma
var alltaf tilbúin.
Hvíldu í friði, elsku amma okkar,
þú átt alltaf þinn stað í hjörtum okk-
ar.
Ásdís Rut og Ástþór Reynir.
Hún tengdamóðir mín, Guðrún, er
nú látin og vil ég því minnast hennar
í örfáum orðum. Þó allir hefðu verið
undir þessa staðreynd búnir, vegna
veikinda hennar, þá er það einhvern
veginn þannig að þegar að stundinni
kemur þá er enginn tilbúinn.
Ég man ennþá þegar ég sá Guð-
rúnu fyrst, hvað hún var glæsileg og
glaðvær kona.
Guðrún var fædd og uppalin að
Egilsstöðum í Ölfusi. Æskuheimilið
var henni mjög kært, hún kom þar
mjög oft og þá sérstaklega á meðan
móðir hennar Markúsína bjó þar. Öll
börn Guðrúnar fóru til sumardvalar
að Egilsstöðum.
Guðrún byggði ásamt eiginmanni
sínum Ástþóri glæsilegt fjölskyldu-
heimili að Þúfuseli 2 í Reykjavík. Á
þessu hlýlega heimili var gott að
vera, mikil gleði ríkti þar og allir
voru velkomnir, hvort sem það var til
lengri eða styttri tíma. Guðrún lagði
metnað sinn í að hafa allan hópinn
hjá sér og að öllum liði vel. Sérstak-
lega voru henni jólin og áramótin
kær og þá var allur hópurinn hjá
henni.
Þau hjónin byggðu ásamt börnum
sínum sumarhús að Kiðjabergi og
fjölskyldan kom þar oft saman síð-
ustu árin. Barnabörnin dvöldu oft
með þeim hjónum þar á sumrin.
Guðrúnu var sérstaklega annt um
fjölskyldu sína og fór enginn var-
hluta af því. Síðustu æviár sín bjó
Markúsína móðir Guðrúnar á heimili
hennar. Oft voru þar einhver af
yngstu barnabörnunum hennar og
börn annarra ættingja á meðan þau
höfðu ekki aldur til að fara á leik-
skóla. Allir drengirnir mínir nutu
þessarar umhyggju hennar.
Ég og fjölskylda mín vorum þeirra
gæfu njótandi að búa aðeins í nokkur
hundruð metra fjarlægð frá heimilli
hennar. Söknuður okkar á eftir að
verða mikill.
Síðari ár starfaði Guðrún við
umönnunarstörf að Furugerði í
Reykjavík. Guðrún tók virkan þátt í
félagslífi. Hún ferðaðist mikið bæði
innanlands sem utanlands. Ég var
þess heiðurs njótandi að ferðast með
henni í nokkrum af þessum ferðum.
Elsku Guðrún, nú er komið að því
að kveðja, takk fyrir allar samveru-
stundirnar sem ég og fjölskylda mín
áttum með þér, þessar stundir skilja
eftir góðar minningar um þig og
nærveru þína.
Aðalsteinn Guðmannsson.
Mig langar til að minnast elsku-
legrar tengdamóður minnar með
nokkrum orðum. Ég hitti Guðrúnu
fyrst árið 1992 og þá var ég aðeins 14
ára gömul. Alveg frá fyrstu stundu
tók hún mér opnum örmum með
sinni glaðværð og hlýju og bauð mig
strax velkomna í fjölskylduna.
Nokkrum árum seinna þegar for-
eldrar mínir bjuggu í Svíþjóð, var
hún mér í raun sem móðir sem ég gat
alltaf leitað til, það var ómetanlegt.
Guðrún var einstök kona sem allir
geta tekið sér til fyrirmyndar. Hún
var með afskaplega góða nærveru og
manni leið alltaf vel í kringum hana.
Hún var með mikið jafnaðargeð og
ávalt glöð og kát. Guðrún gerði sjald-
an veður út af hlutunum og gat alltaf
séð björtu hliðarnar á lífinu. Þolin-
mæði hennar og yfirvegun var líka
ótrúleg. Hún naut þess að hafa
marga í kringum sig og þá sérstak-
lega barnabörnin og barnabarna-
börnin sem hún passaði ósjaldan og
var dagmamma þeirra flestra. Hún
eldaði og bakaði ofaní alla þá fjöl-
mörgu sem áttu leið um Þúfuselið og
sá til þess að enginn færi svangur
þaðan. Hún var alltaf boðin og búin
að aðstoða með pössun, eða hvað
sem var. Hún hugsaði iðulega fyrst
um aðra og hikaði ekki við að breyta
sínum plönum til að geta aðstoðað
eða létt undir með öðrum.
Þegar hún og Ástþór fóru í sum-
arbústaðinn um helgar og á sumrin
tóku þau mjög oft nokkur barnabörn
með sér, sem unnu sér vel í sveitinni.
Hún naut þess að ferðast og síð-
asta utanlandsferðin sem hún átti
var fyrir nákvæmlega ári síðan. Þá
komu þau hjónin í heimsókn til okk-
ar Runólfs í Kaupmannahöfn. Þar
áttum við ógleymanlegar stundir
saman í yndislegu veðri.
Stuttu seinna greindist hún með
krabbamein. Það kom okkur öllum í
opna skjöldu, enginn hafði búist við
þessu, þar sem Guðrún hafði alltaf
verið svo ótrúlega heilsuhraust og
ungleg. Það var afar erfitt fyrir okk-
ur Runólf að vera svona langt í burtu
á meðan hún var að berjast við þenn-
an illvíga sjúkdóm. Við hefðum svo
gjarnan viljað geta stutt hana betur
og verið meira á landinu. En Guðrún
tók sjúkdómnum með ótrúlegu
æðruleysi og kvartaði aldrei.
Guðrúnar á eftir að verða sárt
saknað en við minnumst hennar með
miklu þakklæti fyrir allt það sem
hún gerði fyrir okkur og mun hún
ávalt eiga stórt pláss í hjörtum okkar
allra. Blessuð sé minning hennar.
Heiðrún Ólöf.
Elsku tengdamamma. Þegar ég
sest niður og byrja að skrifa til þín er
svo ótrúlega margt sem mig langar
að skrifa um en kem því engan veg-
inn fyrir á einu blaði. Það er svo
óraunverulegt að þú skulir vera farin
eins hress og þú varst. Alltaf hugs-
aðir þú um að öllum liði sem best og
gleymdir iðulega sjálfri þér. Þegar
þú kvaddir okkur að kvöldi síðasta
laugardags var okkur efst í huga að
væri bara hægt að vekja þig og vor-
um viss um að þú hefðir byrjað á því
að segja „hvaða vesen er þetta, eruð
þið öll hérna vegna mín“. En stað-
reyndin er sú að þú ert farin við eig-
um þig bara í minningunni og sú
minning er góð. Með okkur tókst
gott samband þegar ég var að fagna
fæðingu Kollu, dóttur okkar Hlínar,
smávaltur á fótunum um miðja nótt!
þegar við í sameiningu vöskuðum
upp allt sparistellið þitt án þess að á
það kæmi rispa. Barnabörnunum og
barnabarnabörnunum hefur fjölgað
og ég held að það sé eins og að reyna
að telja stjörnurnar að hafa tölu á
þeim skiptum sem þú hefur passað
þau, alltaf tími og aldrei sagt nei.
Ótal skipti tekið þau með í bústaðinn
Laufás í Kiðabergi og jafnvel í
marga daga. Það var alveg sama
hvert var verið að fara, vinnuferðir,
veiðitúra eða skemmtiferðir, alltaf
varst þú tilbúin með nesti og þar var
að finna bestu jólakökur í heimi sem
enginn gat bakað betur en þú. Þegar
þú fórst að vinna fyrir nokkrum ár-
um fyrir utan heimilið kom það fyrir
að þú varst ekki með okkur á gaml-
árskvöld vegna vakta. Þá fann mað-
ur hvað vantaði þegar þú varst ekki
og alltaf tilhlökkun krakkanna, hve-
nær kemur amma? Samheldni fjöl-
skyldunnar er mikil og átt þú stóran
þátt í þeirri samheldni, Þúfuselið
alltaf galopið öllum, sama á hverju
stóð. Eitt sinn fórum við Guðmundur
Már í Þórsmörk ásamt sameiginleg-
um vini, þetta var 2. janúar í miklu
frosti. Þú hafðir ekki áhyggjur af
ferðalagi okkar heldur varst þú mest
miður þín yfir sviðahausum sem þú
hafðir fundið til fyrir okkur og við
gleymt á tröppunum. Við vorum
reyndar með slatta af brauði sem þú
hafðir smurt og dugði sá skammtur
alveg. Prjóna sokka og hekla teppi
þar voru barnabörnin efst í huga þér,
að þeim yrði aldrei kalt, ekki veit ég
hvað þú er búin að gera við margar
vinnubuxur af mér og strákunum en
þær eru þó nokkrar. Til dæmis
kenndir þú strákunum mínum að
reima skó án þess að losa slaufuna.
Allt eru þetta smáatriði sem skipta
kannski ekki máli en eru okkur samt
dýrmæt þegar maður horfir til baka
og veit að margt af þessu kemur
aldrei aftur. Þú átt svo mikinn þátt í
hvernig líf fjölskyldunnar hefur
þróast, eitthvað sem fáir tóku eftir
en þú hafðir þitt fram, ekkert fór
fram hjá þér en þú varst samt aldrei
að trana þér neitt fram. Elsku Guð-
rún, nú hefur þú lagt frá þér prjón-
ana en lætur okkur um minninguna
um dásamlega mömmu,tengda-
mömmu, ömmu og langömmu.
Hrafnkell.
Nú þegar vorið fyllir loftið og við
sjáum líf kvikna hvert sem litið er
hefur ástkær systir og frænka yfir-
gefið þessa jarðvist. Hún kvaddi á
friðsælan og kyrrlátan hátt og var að
leiðarlokum þakklát fyrir það sem
lífið hafði gefið henni.
S.l. tíu mánuði barðist Guðrún af
einstöku æðruleysi við illvígan sjúk-
dóm sem um tíma leit út fyrir að hún
hefði sigrað en því miður varð hún að
lúta í lægra haldi fyrir honum að lok-
um. Okkur setur hljóð og það er sárt
að horfast í augu við það að Guðrún
sé farin.
Við höfum yljað okkur við minn-
ingarnar sem hafa komið fram ein af
annarri undanfarna daga. Við minn-
umst einstakrar gestrisni Guðrúnar
sem við fengum ósjaldan að njóta
hvort sem var í Gnoðarvoginum,
Þúfuselinu og eins í bústaðnum í
Kiðjabergi. Hvenær sem komið var
til Guðrúnar var ævinlega slegið upp
veisluborði og voru það engin venju-
leg veisluborð því að baki þeirra var
kona með stórt hjarta sem var svo
umhugað um að hitta fólkið sitt, þar
deildi hún skoðunum sínum en hún
hafði sterka og ákveðna lífsýn en
ekki síst fannst henni mikilvægt að
gleðjast með ættingjum og vinum.
Guðrún var einstaklega frændrækin
og dugleg að kalla saman stórfjöl-
skylduna og notaði hún til þess hvert
tækifæri.
Með gjörðum sínum frekar en orð-
um tjáði hún okkur væntumþykju
sína. Hún bjó yfir dyggðum sem ekki
eru öllum gefnar og eru af sumum
taldar á undanhaldi í hröðu sam-
félagi nútímans, dugnaður og elja
einkenndu líf hennar svo og um-
hyggja fyrir sínum nánustu en fjöl-
skyldan var henni mikilvægust af
öllu. Hún ól ekki eingöngu upp sín
eigin börn heldur tók hún mikinn
þátt í uppeldi barnabarna sinna og
einnig lítilla frændsystkina á fyrstu
æviárum þeirra. „Dagömmu“-hlut-
verkinu sinnti hún eins og öllu því
sem hún tók sér fyrir hendur með
glæsibrag og full áhuga. Við erum
henni afar þakklát fyrir hlutdeild
hennar í lífi okkar barna.
Við minnumst fallegrar konu sem
hafði búið sér og fjölskyldu sinni
glæsilegt heimili og er óhætt að
segja að hver fermetri í stóra húsinu
hennar og Ástþórs hafi verið vel
nýttur.
Hugur okkar er þessa dagana hjá
Guðrún
Guðmundsdóttir