Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 41
Ástþóri, Hildi, Guðmundi, Hlín,
Huldu, Runólfi og fjölskyldum
þeirra. Þið eruð rík því þið eigið
minningar um einstaka konu og góða
fyrirmynd sem bar velferð ykkar
ávallt fyrir brjósti, eins má hún vera
stolt af ykkur því saman myndið þið
samstilltan og glæsilegan hóp sem
hefur launað henni ríkulega með því
að standa þétt við hana í veikindum
hennar.
Það er komið að kveðjustund, við
lútum höfði og í hljóði heitum við því
að heiðra minningu Guðrúnar jafn-
vel og hún heiðraði minningu horf-
inna ættingja.
Jónína Guðmundsdóttir og
fjölskylda.
Fimmtán ára gömul var ég svo
heppin að fá að kynnast Guðrúnu.
Skömmu seinna lést móðir mín og
þá strax fann ég að það var gott að
eiga hana að.
Ég fann strax að undir hennar
verndarvæng yrði allt í lagi.
Eitt sinn kom út bókin Móðir,
Kona, Meyja. Þessi þrjú orð myndu
aldrei duga til að lýsa Guðrúnu og
hvernig hún verndaði fólkið sitt.
Alltaf var hún reiðubúinn að taka
einn ungann í viðbót og alltaf var
bíllinn fylltur af barnabörnum þegar
haldið var í bústaðinn. Ég man eftir
því þegar minn yngsti var nokkra
mánaða gamall, þá hringdi Guðrún
til mín og svona bara að spjalla. Við
vorum búnar að spjalla svolitla stund
þegar hún heyrir í þeim litla eitt-
hvert skæl, og segir þá: „Þetta er í
fyrsta sinn sem ég heyri barnið
skæla, ætlar þú ekkert að láta mig
fara að passa hann.“
Ég hafði kannski ekkert verið að
hugsa út í það en fann þarna að
henni fannst hún ekki vera farin að
kynnast honum. Jæja en það rættist
heldur úr því. Gísli Már minn á sínar
yndislegu minningar um ömmu sína
og allar þær stundir í Þúfu og í bú-
staðnum.
Elsku Guðrún; þakka þér fyrir allt
í gegnum tíðina. Alla þína góðvild og
alla þína hjartahlýju.
Elsku Ásþór, Hildur, Guðmundur,
Hlín, Hulda, Runólfur og ykkar fjöl-
skyldur. Megi allar góðar vættir
styrkja ykkur í þessum mikla missi.
Mér finnst þetta erindi úr texta
Davíðs Stefánssonar eiga vel við.
Ég finn það gegnum svefninn
að einhver læðist inn
með eldhúslampann sinn,
og veit að það er konan,
sem kyndir ofninn minn.
Sem út með ösku fer
og eld að spónum ber
og yljar upp hjá mér,
læðist út úr stofunni
og lokar á eftir sér.
Kristín.
Það var fyrir tæpum þrjátíu árum
að við kynntumst Guðrúnu en þá
hófst uppbygging Þ-seljanna í Selja-
hverfi. Hún var einstaklega ötul og
gefandi kona með hlýja og góða nær-
veru. Guðrún var ungleg í anda og
útliti. Sem dæmi um það er þegar
henni var á síðasta ári boðið að taka
þátt í rannsókn fyrir eldri borgara
og er hún mætti var hún spurð hvað
hún væri að gera þarna, hún væri of
ung fyrir þessa rannsókn. Því miður
kom í ljós í rannsókn þessari að Guð-
rún var komin með krabbamein sem
ekki reyndist hægt að komast fyrir.
Minningu okkar um Guðrúnu
fylgir hlýja, velvild og þakklæti fyrir
vináttu, gönguferðir og kaffispjall.
Guðrún vann við ýmis störf á lífs-
leiðinni en hún gaf sér einnig tíma til
að sinna ýmsum sjálfboðaliðsstörf-
um. Hún var með frá byrjun í Kven-
félagi Seljasóknar og á fyrstu árum
þess vann hún margvísleg sjálfboða-
liðsstörf fyrir það. Hún var einstak-
leg framtakssöm og dugleg við þau
verkefni sem kvenfélagið tók að sér
til fjáröflunar fyrir Seljakirkju.
Síðari árin vann Guðrún við
umönnunarstörf í Furugerði. Þar
naut sín vel hjartahlýja hennar og
góðmennska. Einnig nutu öll barna-
börn hennar og langömmubörn auk
fjarskyldari barna vel gæsku hennar
en hún vann við pössun þeirra árum
saman. Guðrún átti óvenju marga af-
komendur og lagði metnað sinn í að
halda utan um fjölskylduna.
Við samhryggjumst innilega Ást-
þóri og fjölskyldu. Þeirra missir er
mikill.
Minning hennar lifir.
Kristrún, Guðrún og Sigríður.
Í dag kveðjum við elskulega vin-
konu okkar, Guðrúnu.
Það eru nú liðin hátt í 20 ár síðan
að Guðrún stakk upp á því að við, 4
vinkonur, færum saman inn í Þórs-
mörk og dveldum þar í nokkra daga.
Þessi ferð var upphafið að mörgum
ferðum og göngutúrum okkar
„göngusystra“, en þetta fallega nafn
fengum við frá eiginmönnum okkar.
Við höfum ferðast víða saman bæði
innanlands og utan.
Minnisstætt er þegar Guðrún fór
með okkur í Ölfusið, æskuslóðir sín-
ar og gengum við þar um og frædd-
umst um hennar minningar þaðan.
Eitt sinn er við vorum á ferð gengum
við fram á 2 hrúta sem voru bjarg-
arlausir, fastir saman á hornunum,
þá var sveitakonan Guðrún fljót að
átta sig, tók stjórnina og við losuðum
hrútana og voru þeir frelsinu fegnir.
Við sem eigum því láni að fagna að
eiga að vinum Guðrúnu og Ástþór,
njótum einstakrar gestrisni á þeirra
fagra heimili. Þar er samheldni fjöl-
skyldunnar í fyrirrúmi og barna-
börnin alltaf velkomin til ömmu og
afa.
Guðrún var alltaf róleg og yfirveg-
uð en samt föst fyrir og skörungs-
húsmóðir. Traustur vinur og ávallt
reiðubúin að hjálpa.
Undanfarin ár hefur glæsilegt
sumarhús fjölskyldunnar risið í
Kiðjabergi. Þar er sami góði andinn
og heima.
Fjölskylda Guðrúnar hefur annast
hana af mikilli ástúð í veikindum
hennar, við göngusystur og makar
okkar sendum þeim öllum innilegar
samúðarkveðjur í þeirra mikla missi.
Hennar er sárt saknað.
Kvöldstjarnan skín inn um gluggann
minn glatt.
Gamlar minningar ljóma.
Fiðrildin svífa í kvöldsins kyrrð,
eða kúra á milli blóma.
(Elín Eiríksdóttir frá Ökrum)
Eyrún, Margrét og
Ingibjörg Þóra.
Það er undarleg tilfinning sem um
okkur fer þegar við setjumst niður til
að minnast Guðrúnar vinkonu okkar.
Það eru nálægt fimmtíu ár síðan leið-
ir okkar lágu fyrst saman og þau
kynni leiddu til vináttu sem haldist
hefur allar götur síðan. Minningarn-
ar hrannast upp og það er af svo
mörgu að taka, það var oft glatt á
hjalla í ferðum vestur á Hraunflöt
eða austur að Apavatni, þá voru
margar ferðir farnar inn á hálendi
landsins eins og í Arnarfell hið
mikla, Nýjadal eða Lakagíga svo
eitthvað sé nefnt, að ógleymdum
ferðum okkar erlendis eins og að Bó-
denvatni, til Tyrklands, Kúbu eða
Krítar og fleiri staða. Ekki má
gleyma ánægjulegum samveru-
stundum í sumarbústað fjölskyld-
unnar, stað sem hún naut þess að
dvelja á og vera úti í náttúrunni og
þar hafði hún búið fjölskyldunni fal-
legan og notalegan samastað. Þessi
upptalning er aðeins lítið brot af
þeim tíma sem við höfum átt saman
og oft var hún og maður hennar Ást-
þór í fararbroddi í þessum ferðum.
Það var mannmargt á hennar stóra
og fallega heimili og þangað var gott
að koma og allir velkomnir og fórn-
fúsari kona en Guðrún var er vand-
fundin, hún hafði alltaf nægan tíma
og alltaf var nóg pláss fyrir gesti og
ekki síður fyrir börnin, barnabörnin
og barnabarnabörnin. Það eru for-
réttindi að hafa fengið að vera sam-
ferða konu eins og Guðrún var, og
eru okkur efst í huga þakkir fyrir
samfylgdina.
„Þó í okkar feðra fold falli allt sem
lifir, enginn getur mokað mold minn-
ingarnar yfir.“
Við og nánustu ferðafélagar Guð-
rúnar biðjum góðan Guð að blessa
minningu hennar og vottum Ástþóri,
Hildi, Guðmundi, Hlín, Huldu, Run-
ólfi og fjölskyldum þeirra okkar inni-
legustu samúð.
Lilja og Klemenz.
✝ Hermann Lund-holm fæddist í
smábænum Spring-
forbi á Sjálandi 3.
ágúst 1917. Hann
lést á Vífilsstöðum
föstudaginn 27. apr-
íl síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Isidor Henrik Lund-
holm garð-
yrkjumaður og
Gerda Muller. Syst-
ur Hermanns voru
Esther Lundholm
hjúkrunarkona og
hálfsystir Maggi Andersen, báðar
látnar.
Hermann kvæntist Guðrúnu
Huldu snyrtifræðingi frá Kirkju-
læk í Fljótshlíð, þau slitu sam-
vistum. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Jónsson, bóndi í Háa-
múla í Fljótshlíð, og Guðrún
Jónsdóttir. Börn Hermanns og
Guðrúnar Huldu eru: 1) Sig-
urbjörg, maki Þórir Ólafsson.
Þau eiga þrjú börn, átta barna-
börn og tvö barna-
barnabörn. 2) Ísi-
dór, maki Elísabet
Guðmundsdóttir.
Þau eiga fjóra syni
og fimm barnabörn.
3) Steinn Guðmann,
maki Erla Möller.
Var kvæntur Þór-
unni Grétarsdóttur.
Þau eiga tvo syni
og dóttur, f. 9. apríl
1979, d. 3. maí
1980.
Hermann fluttist
til Íslands 1938 eftir
að hafa lokið námi í Garðyrkju-
skólanum í Beder á Jótlandi.
Hann hóf störf að Reykjahlíð í
Mosfellssveit. Frá 1958 til 1989
var garðyrkjuráðunautur Kópa-
vogs. Í 30 ár var hann einnig
hringjari í Kópavogskirkju. Her-
mann hefur alla tíð starfað við
garðyrkju.
Hermann verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Nú verða sunnudagarnir ekki
eins. Afi er farinn. Fyrir okkur eru
kirkjuklukkurnar og sunnudags-
maturinn hjá mömmu merki um
góðar stundir með Hermann afa.
Öll munum við eftir góðum stund-
um með afa á sunnudögum hvort
sem það var að ráða gátur, vinna í
garðinum eða þýða fyrir okkur
dönsk Andrés-blöð. Jólin verða
heldur ekki eins. Þegar við vorum
börn biðum við spennt eftir honum
úr messu á aðfangadag því að
jólahátin byrjaði ekki fyrr en hann
kom. Þegar við urðum eldri þá
fengum við alltaf krans frá afa fyrir
aðventuna og ekki var kominn rétt-
ur jólaandi í húsin okkar fyrr en
aðventukransarnir og hurðarkrans-
arnir hans væru komnir. Aldrei
heyrðum við Hermann afa kvarta
og aldrei hlífði hann sér í garða-
vinnunni. Hann var einn af ljúfustu
og duglegustu mönnum sem við höf-
um kynnst.
Afi var hamingjusamastur þegar
hann var í garðinum sínum og var
að sinna blómunum, hvort sem það
var að snyrta, gróðursetja eða
klippa. Hann var ótrúlega fróður
um allt sem tilheyrði náttúrunni. Og
oft fengum við fróðleiksmola frá
honum varðandi það sem tengdist
náttúrunni og það sem í henni bjó.
Það var alltaf ánægður afi sem kom
inn eftir að hann var búinn vera úti
að hugsa um blómin og trén. Við er-
um þess fullviss að Hermann afi er
hamingjusamur núna og án allra
verkja. Hans fyrsta verk verður
örugglega að hugsa um blóm drott-
ins og sinna lífsins gróðri.
Hvíldu í friði, elsku afi, og megi
guðs englar vera með þér.
Ágústa, Silva og Ólafur.
Það var alltaf einhver virðuleiki
yfir honum. Hvort sem hann, mið-
aldra og hokinn, gekk eftir mold-
artroðningum Kópavogs, eða gamall
og hokinn eftir steinilögðum götum
þess sama bæjar. Allar götur frá
því ég man eftir mér hefur Her-
mann Lundholm verið hluti um-
hverfisins. Sem barn vissi ég eins
og flest börn bæjarins að hann var
danskur að uppruna og garðyrkju-
maður. Meir vissi ég ekki. Síðar bar
ég og kona mín gæfu til að kynnast
honum, kynnast skemmtilegum og
fróðum ferðafélaga, kynnast brenn-
andi áhuga hans á íslenskri náttúru
og sögu, viskubrunni um íslensk ör-
nefni, manni sem elskaði blóm. Þeg-
ar blóm voru annars vegar var Her-
mann ekki aðeins viskubrunnur,
hann var með einhverjum hætti í
senn yfirvegaður og athugull rann-
sakandi, en um leið ástríðufullur
eldhugi. Það kom fyrir að við spurð-
um hann um nafn á plöntu sem við
þóttumst kunna að lýsa skamm-
laust. Ef tókst að staðsetja hana
innan bæjarmarkanna gátum við
verið nokkuð viss um að Hermann
vissi deili á henni og gæti rakið ætt-
ir hennar, hvort sem var á íslensku,
dönsku, latínu eða esperantó. Ef
hana var hins vegar ekki að finna í
bænum og ekki hjá einhverjum af
fjölmörgum vinum hans í hópi garð-
ræktenda, gat orðið nokkur bið.
Það var einmitt á slíkum stund-
um, þegar Hermann sat djúpt
hugsi, horfði kannski ofan gullið í
koníaksglas og leitaði að rétta blóm-
inu, að við skynjuðum nærveru auð-
legðar og hamingju. Auðlegð og
hamingja okkar Þóru var að þekkja
Hermann Lundholm, hans að
þekkja blómin og okkar allra að
sitja saman í þögn og njóta koníaks.
Á slíkum stundum sáum við gjarnan
í huga Hermann Lundholm við
brún nýs dags, gangandi um garð-
inn sinn og njóta þess lífs sem nýr
dagur var að gefa lit. Þessi ástríku
tengsl hans við flóru landsins og
kanski allra landa, urðu til þess að
með árunum kom hann sér upp
miklu plöntusafni við heimili sitt.
Við Kópavosgsbúar erum stoltir af
okkar Gerðarsafni og höfum ástæðu
til. Við gætum orðið enn stoltari ef
við gæfum þjóðinni hlut í þeim auði
sem Hermann Lundholm eftirlét
okkur og kæmum upp plöntusafni
tileinkuðu þessum ástkæra braut-
ryðjenda. Þá ætti Kópavogur söfn
um tvö meginsvið listarinnar, listar
guðs og manna.
Við sendum ættingjum og vinum
Hermanns
samúðarkveðjur.
Þóra B. Björnsdóttir og
Þorleifur Friðriksson.
Allt fram streymir endalaust,
ár og dagar líða.
(Kristján Jónsson)
Tíminn – það er fugl sem flýgur hratt.
(Höf. ók.)
Skáldin hafa ort svo margt og
snjallt um tímann, en við óskáldleg-
ir tökum varla eftir því að hann líði.
Nú er meira en hálf öld síðan
fundum okkar Hermanns Lund-
holm bar fyrst saman og nærfellt
tuttugu ár frá því að við nokkur fé-
lagssystkini fögnuðum með honum
sjötugsafmæli hans á hótelherbergi
í Varsjá. Það var notaleg stund.
Við vorum í Varsjá, ásamt sex
þúsund öðrum gestum, til að fagna
öðru afmæli: Hundrað ára afmæli
esperanto-tungunnar.
Við Hermann vorum nokkuð oft
samferðamenn í bókstaflegum
skilningi, oftast til að sækja þing
Alþjóðlega esperanto-sambandsins
og taka þátt í ferðum í sambandi við
þau. Hermann var mjög víðförull
maður og lá leið hans til ýmissa
landa Suður-Ameríku, Kína, Kúbu
og margra Evrópulanda. Það var
alltaf indælt að ferðast með honum,
þó sér í lagi þar sem garðar og önn-
ur gróðursvæði glöddu augað. Hann
var ljúfur fræðari og fullyrti aldrei
meira en hann hafði efni á.
Hermann hóf nám í esperanto
tvítugur að aldri í heimalandi sínu,
Danmörku. Það nám hefur staðið
með einhverjum hætti síðan. Hann
var virkur félagi í íslensku esper-
anto-hreyfingunni, stuðlaði meðal
annars dyggilega að því, að hreyf-
ingin eignaðist eigið húsnæði og
sótti reglulega fundi Esperantista-
félagsins Auroro í Reykjavík.
Við Lovísa kona mín þökkum
samfylgdina og undir það taka
áreiðanlega allir félagar okkar.
Hallgrímur Sæmundsson.
Hermann Lundholm var einn
þeirra manna sem eru hvers manns
hugljúfi og vilja greiða götu þeirra
sem til þeirra leita. Aðalævistarf
Hermanns var að vera garðyrkju-
stjóri Kópavogsbæjar og þeim
störfum helgaði hann alla sína
krafta og lagði grunninn að þeim
mikla blóma sem í dag prýðir
Kópavogsbæ. Við sem lengi höfum
þekkt Hermann vitum vel hversu
bóngóður hann var og margir
Kópavogsbúar eiga honum góða
ráðgjöf að þakka. Kynni mín af
Hermanni hófust 1974 er ég varð
varabæjarfulltrúi í Kópavogi og síð-
ar sem bæjarfulltrúi átti ég mjög
góð samskipti við hann sem starfs-
mann bæjarins. Hermann var einn
af stofnendum Skógræktarfélags
Kópavogs og bar alltaf mikinn hlý-
hug til félagsins. Þær voru margar
stundirnar sem hann lagði lið í
Svörtuskógum og upp á Fossá á
fyrstu árum félagsins Að auki sat
hann í stjórn og síðar varastjórn fé-
lagins um árabil eða þar til heilsan
leyfði ekki meir á síðasta aðalfundi
félagsins í marsmánuði sl. En Her-
mann lét þetta ekki nægja, því á
hverjum jólafundi félagsins kom
hann færandi hendi með þurrsk-
reytingar svo allir sem á fundinn
mættu færu heim með jólagjöf frá
félaginu Þessar skreytingar gerði
hann sjálfur með ýmsum jurtum og
greinum m.a úr sínum eigin garði
við Hlíðarveginn sem var til mikils
sóma fyrir hann og bæjarfélagið.
Þegar Skógræktarfélag Kópa-
vogs hélt aðalfund Skógræktar-
félags Íslands fyrir þremur árum
var Hermann gerður að heiðurs-
félaga Skógræktarfélags Íslands og
þannig sýndi félagið honum þakk-
lætisvott fyrir vel unnin störf í
þágu Skógræktarfélagsins um ára-
bil
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka Hermanni fyrir allt sem
hann hefur gert fyrir Skógrækt-
arfélag Kópavogs og okkur Kópa-
vogsbúa í gegnum árin. F.h Skóg-
ræktarfélagsins votta ég börnum
hans og fjölskyldum þeirra samúð á
þessari kveðjustund og veit að góð-
ur guð mun geyma minninguna um
Hermann. Megi hann hvíla í friði.
F.h. Skógræktarfélags Kópa-
vogs,
Bragi Michaelsson formaður
Mig langar í örfáum orðum að
minnast okkar mæta félaga Her-
manns Lundholm. Hann var einn af
stofnfélögum Dalíuklúbbsins sem
er 40 ára á þessu ári. Hann tók
mikinn þátt í starfi klúbbsins alla
tíð. Þær eru ófáar plönturnar frá
honum í Heiðmerkurreit klúbbsins
og á blómaskiptafundum í gegnum
árin. Á haustblómafundum mætti
hann alltaf með stóran og fallegan
blómvönd úr eigin garði. Fyrir að-
eins tveimur árum tók hann á móti
okkur klúbbfélögunum í garði sín-
um kominn hátt á níræðisaldur.
Fyrir það erum við þakklát nú.
Hermann lifir áfram með okkur,
ekki bara sem minning heldur hluti
af honum er við lítum allar plönt-
urnar í görðum okkar sem frá hon-
um eru komnar og gleðja augað á
hverju vori.
Hans verður sárlega saknað af
öllu því ræktunarflóki sem hefur
notið þess að kynnast honum og
garðinum hans að Hlíðarvegi 45 í
Kópavogi. Einstakt ljúfmenni og
fræðimaður hefur kvatt eftir langt
og farsælt starf.
Aðstandendum öllum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd Dalíuklúbbsins,
María Hákonardóttir.
Hermann Lundholm
Fleiri minningargreinar um Her-
mann Lundholm bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.