Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 48
48 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ IngibjörgLovísa Sæunn
Jónsdóttir fæddist í
Reykjavík 4. nóv-
ember 1966. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Borgarspít-
alans 24. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar eru Mar-
grét Sigurpáls-
dóttir frá Stein-
dyrum í Svarfaðar-
dal f. 5.2. 1925 og
Jón Sæmundsson, f.
í Hlíðarhúsum á
Siglufirði 3.6. 1923, d. 17.7. 2005.
Ingibjörg var yngst sex systkina.
Hin eru: Jón Veigar Þórðarson,
f. 6.12. 1947, maki Ragnhildur
Þórðardóttir og eiga þau þrjú
börn og tvö barnabörn. Jóhanna
María Ingvadóttir, f. 17.9. 1954,
maki Smári Karlsson og eiga
þau tvo syni og tvö barnabörn.
Linda Líf Ingvadóttir, f. 28.12.
1957, maki Guð-
mundur Helgason
og eiga þau fjögut
börn og fimm
barnabörn. Auður
Rós Ingvadóttir, f.
24.1. 1959, d. 2.5.
1999, lét eftir sig
eiginmann og einn
son. Sigurbjörg
Katrín Ingvadóttir,
f. 19.2. 1960, d. 5.9.
1978.
Ingibjörg stund-
aði sína skólagöngu
í Safamýraskóla og
var á dagheimilinu Lyngási.
Ingibjörg ólst upp í foreldra-
húsum til 24 ára aldurs og þá
flutti hún að fjölskylduheimilinu
Grundarlandi 17. Ingibjörg
stundaði vinnu á Bjarkarási frá
árinu 1984 til hinsta dags.
Útför Ingibjargar verður gerð
frá Grensáskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
(Hallgrímur Pétursson.)
Með þessum fagra sálmi kveð ég
þig, elsku Ingibjörg mín, og þakka
þér fyrir allar þær stundir sem við
erum búnar að vera saman frá því
ég fékk þig í fangið nýfædda fyrir
40 árum. Síðan hefur margt á daga
okkar drifið sem of langt yrði að
telja hér upp en ég geymi í minn-
ingu minni.
Eftir að þú varst orðin fullorðin
og fluttist að heiman komst þú
reglulega í heimsókn til mín og
varst hjá mér um skemmri eða
lengri tíma. Nú síðast um páskana
vorum við saman í Ljósheimunum
og sá ég ekkert eftir mér að dekra
við þig og allt varð að vera í réttri
röð, kaffið tilbúið, morgunblaðið á
borðinu, smá snyrtistund og að
morgundekrinu loknu var svo sest
niður og horft á Stellu í orlofi og
fleiri góðar myndir. Eftir páskana
fórstu svo heim í Grundó og ég
hringdi svo í þig föstudagskvöldið
20. apríl og þá varst þú glöð og kát
að halda saumaklúbb og allt var í
stakasta lagi. Ekki óraði mig fyrir
því að þetta var okkar síðasta sam-
tal. Um helgina veiktist þú og á
þriðjudeginum varstu farin. Mikið
mun ég sakna þín, elsku vinan mín.
Ástarkveðja,
Mamma.
Vinátta
dýrmæt sem gull.
Þú átt hana
og gefur í senn.
Vinátta
einstök sem demantur.
Endist um aldur
og ævi.
Vinátta
sterk sem stál.
Þú getur ávallt leitað hennar
hjá sönnum vini.
Vinátta
verðmæti, ekki í krónum talin.
Þú hvorki kaupir hana
né selur.
Vinátta
kærleikurinn í vinamynd.
Þakkaðu guði fyrir þá bestu gjöf
sem þú færð og gefur.
Elsku systir og mágkona. Við
þökkum þér þær góðu stundir er
við áttum saman. Minning þín lifir í
huga okkar og hjarta.
Hvíl í friði, elsku vina.
Jóhanna María og Smári.
Elsku frænka mín, minningarnar
um þig eru svo bjartar og skemmti-
legar. Ég man svo vel eftir því þeg-
ar ég, þú og afi vorum alltaf að
bralla eitthvað saman, bíltúrarnir
og ekki má gleyma þegar við gátum
endalaust horft á „fastir liðir eins
og venjulega“. Afi og amma dekr-
uðu við okkur þegar ég fékk að
gista í Ásgarðinum. Fannst svo
mikið sport að kíkja í heimsókn til
þín á sambýlið Grundarland 17 þeg-
ar ég var yngri en svo þegar maður
eldist þá verður víst svo mikið að
gera hjá manni að maður hefur
varla tíma fyrir sjálfan sig. Þú tókst
alltaf svo vel á móti manni og stutt í
húmorinn, iðin við að kitla okkur
frændsystkinin. En ég er svo glöð
að við fjölskyldan erum búin að
geta hist svo oft síðast liðið ár. 40
ára afmælið þitt var haldið með
pomp og prakt og svo komstu til
mín og Simma í brúðkaupið hinn 17.
mars síðastliðinn og það var svo
gaman að sjá hvað þú geislaðir af
gleði og varst svo fín og sæt enda
alltaf svo vel til fara eins og ný-
klippt úr tískublaði. Þú vildir alltaf
hafa á hreinu að allir pössuðu vel
hver upp á annan, Simmi passar
mig, ég passa Aron Blæ og ég skal
passa mömmu og ömmu fyrir þig.
Okkur frændsystkinum þótti afar
vænt um þig, Ingibjörg mín. Megi
Guð og englarnir vera hjá þér.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Kveðja
Sigurbjörg (Didda frænka).
Elsku Ingibjörg vinkona okkar í
Grundarlandi 17 er látin.
Við kveðjum þig með söknuði, þú
varst einstakur vinur og barst vel-
ferð okkar allra fyrir brjósti.
Við vorum svo lánsöm að njóta
samvista við þig.
Þú sagðir oft: Pabbi minn á mig,
mamma mín á mig og Guðný mín á
mig. Þú varst mikill gleðigjafi og
komst okkur alltaf á óvart, um
hæfni, getu, sjálfstæði, og húmor.
Við missum öll mikinn vin. Þú varst
drottningin okkar. Þú sýndir öllum
mikinn áhuga og fylgdist vel með.
Ef það byrjaði t.d. nýr starfsmaður
í Bjarkarási, fengum við í Grundó
fréttirnar fljótt,
allt um viðkomandi, hvort hann
ætti mann, börn, bíl, dýr og fleira.
Þú varst fréttakonan okkar, með
allt á hreinu.
Það var nóg að spyrja þig, klukk-
an hvað á ég að mæta í vinnuna, eða
hver væri að vinna í kvöld.
Föstudagskvöldið 20.4. 2007
varst þú saumaklúbb í Grundó. Og
það var umræðuefnið þessa vikuna.
Að baka og hringja út í vinkon-
urnar og líka að fara til tannlæknis.
Guðný þín hjálpaði þér.
Á mánudag varst þú komin með
háan hita og fylgdi Kolla þér upp á
spítala.
Þú sagðir „sofa eina nótt á spít-
alanum og ekki meir“. Og þú stóðst
heldur betur við það, um kvöldið
varst þú komin á gjörgæslu, daginn
eftir dáin.
Þú varst ekki að tvínóna við hlut-
ina þegar þú tókst þig til. Þegar þú
varst á spítalanum mikið veik, var
alltaf verið að sprauta þig. Þú sagð-
ir við lækninn og bentir á eyrun:
stinga hér, ég vil fá göt í eyrun eins
og Nanna.
Ég gat þá ekki annað en brosað
að „minni“.
Þú varst þyrst og bauð ég þér
upp á kók. Nei takk, sagðir þú og
baðst um kaffi. Þú varst svo mikil
kaffikona.
Minningarnar um þig eru
skemmtilegar og dýrmætar .
Við þekktum þitt göngulag, þú
áttir það til að koma fram á morgn-
ana þrammandi, leggja hendur á
öxlina á okkur og bjóða okkur góð-
an daginn með kossi.
Þú varst alltaf tilbúin að hjálpa
til. Aðstoðaðir Nönnu þegar hún
missti eitthvað niður. Fórst í
göngutúra með Ásdísi. Kallaðir
Snorra manninn þinn og færðir
honum kaffi. Og Halla færðir þú
lestrarefni .
Við fórum með þér í febrúar til
Kanarí. Áttum þar yndislega tíma.
Þú með þína fallegu rauðu tösku á
hjólum og passaðir vel upp á hana.
Naust þín í sólinni á kaffihúsum, í
gönguferðum og auðvitað þurftirðu
að punta þig fyrir kvöldin áður en
farið var út að borða. Veðráttan átti
svo vel við þig og allir fínu staðirnir.
Ekki sakaði ef pitsa var á matseðl-
inum. Sérhver stund með þér var
gæðastund. Ákveðin að fara aftur
næstu jól.
Í nóvember á síðasta ári varst þú
fertug og hélst upp á það með stórri
veislu. Við vorum svo stolt af þér.
Þú varst svo fín og naust þín svo
vel. Það var eins og þú hefðir ekki
gert annað um ævina en að halda
veislur og taka á móti gestum.
Þín er sárt saknað, umhyggju-
semi þinnar og gæsku, sem þú varst
svo rík af og við svo lánsöm að
njóta.
Við þökkum þér fyrir samfylgd-
ina, elsku vinkona.
Nú ert þú komin í himnaríki. Ein-
hvern tímann seinna sjáumst við og
þá eigum við von á góðu faðmlagi
og kossi frá þér. Þú ert örugglega
búin að finna hann Jón pabba þinn
og við verðum víst að skila þér.
Hann á þig núna, Guð veri með þér.
Þökkum þér fyrir samfylgdina.
Vinir í Grundarlandi 17.
Kveðja frá Bjarkarási
Í dag kveðjum við kæra sam-
starfs- og vinkonu til margra ára.
Ingibjörg vann í Bjarkarási í 23 ár
og í dag telst það mjög langur
starfsaldur hjá sama fyrirtæki.
Hún var mjög vinnusöm og líkaði
ekki ef lítið var um verkefni. Einnig
var hún mjög nákvæm í vinnu-
brögðum og skilaði sínu verki vel
unnu. Ingibjörg var afar félagsleg
og lét sér annt um vini sína. Hún
fylgdist vel með fjölskylduhögum
þeirra, hvað allir fjölskyldumeðlim-
irnir hétu og gerðu í lífinu. Hún var
ein af þessum eftirminnilegu kon-
um sem gefa lífinu lit og ljóma og er
því óhætt að segja að stórt skarð
hafi verið höggvið í starfsmanna-
hópinn hér. Við erum þakklát fyrir
að hafa fengið að eiga langt og far-
sælt samstarf með Ingibjörgu.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Við vottum móður hennar og
systkinum, ásamt öllum í Grund-
arlandi 17 samúð okkar.
Valgerður Unnarsdóttir,
Þórhildur Garðarsdóttir.
Að heilsast og kveðjast er lífsins
saga.
Ingibjörg Lovísa sem við kveðj-
um í dag var félagi í leiklistar-
klúbbnum Perlufestinni. Í lok hvers
fundar kvaddi hún með orðunum
„Sjáumst á þriðjudaginn“. Hún var
virkur félagi, tjáði sig í pontu og lét
sig ekki vanta í leikhúsferðir. Alltaf
fallega klædd og stundum með hatt.
Glaðværð og góðvild einkenndi
Ingibjörgu Lovísu og návist hennar
var hlý og góð. Hún var ljós yfirlit-
um og lagleg. Hún var einstaklega
hugsunarsöm og lét sér annt um
vini sína.
Hún var barngóð og spurði oft
um þau börn, sem hún kynntist í
gegnum Perlufestina. Þótt börnin
yxu úr grasi voru þau í hennar huga
alltaf sömu börnin og áður.
Að leiðarlokum þökkum við Ingi-
björgu Lovísu góð kynni. Það er
erfitt að kveðja og vita að við
sjáumst ekki á þriðjudaginn. En
minningin um góða og saklausa
stúlku lifir með okkur. Við beygjum
okkur fyrir lögmálinu.
Við sendum aðstandendum og
öllum í Grundarlandi samúðar-
kveðjur,
Sigríður Eyþórsdóttir og
Perlufestarfélagar.
Kær vinkona mín, Ingibjörg L.S.
Jónsdóttir, er fallin frá aðeins 40
ára gömul, svo ung og svo óvænt.
Mig langar að minnast hennar með
örfáum orðum.
Þegar ég byrjaði að vinna í Lyng-
ási árið 1978 var þar ung dama 12
ára gömul með sítt ljós hár og var
hún kölluð Abba. Við kynntumst
svo betur þegar hún kom á tán-
ingastofuna á Lyngási, en þar átt-
um við margar góðar stundir saman
við leik og störf. Fórum m.a.í ferð-
lög og sumardvöl í Ölver 2 sumur.
Þegar unglingsárunum lauk byrjaði
Abba að vinna á hæfingarstöðinni
Bjarkarási, en samband okkar hélst
þó leiðir skildu. Bauð Abba mér og
dóttur minni Bergdísi í afmælið sitt
í mörg ár. Við þau tímamót að fara
að vinna á Bjarkarási ákvað Abba
að hætta að nota gælunafnið sitt og
hét nú Ingibjörg og fékk ég bágt
fyrir ef mér varð á að kalla hana
Öbbu. Þannig var hún staðföst í
ákvörðunum sínum og enginn
komst upp með neitt múður. 24 ára
gömul flutti Ingibjörg úr foreldra-
húsum á fjölskylduheimilið Grund-
arlandi 17. Þangað var gott að
koma í heimsókn, gestrisni í háveg-
um höfð og alltaf kaffi á könnunni.
Sl. haust hélt Ingibjörg stórveislu í
tilefni af 40 ára afmælinu sínu. Það
var frábær dagur þar sem hún var í
faðmi fjölskyldu og vina. Það er
gott að eiga minningar um þennan
dag.
Þér kæra sendir kveðju
með kvöldstjörnunni blá.
Það hjarta sem þú átt
en sem er svo langt þér frá,
Þar mætast okkar augu
Þótt ei oftar sjáumst hér
Ó, Guð minn ávallt gæti þín.
Ég gleymi aldrei þér.
(W.Th. Söderberg)
Elsku Margrét mín og aðrir ætt-
ingjar, ég votta ykkur mín dýpstu
samúð svo og öllum í Grundarlandi
17.
Helga Hjörleifsdóttir.
Við kveðjum þig, Ingibjörg, með
miklum söknuði. Þú varst hrifin svo
fljótt í burtu frá okkur.
Ingibjörg var alltaf svo hress,
brosmild og blíð. Megi allir góðir
englar veita okkur styrk í sorginni.
Minning hennar geymist í hjörtum
okkur.
Guð geymi þig.
Þín minning öllu skærar skín þó skilji
leið um sinn.
Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin
brjótast inn.
Við biðjum Guð að gæta þín og greiða
veginn þinn.
(G.Ö.)
Við viljum votta Margréti, systk-
inum og öðrum ættingjum okkar
innilegustu samúð. Megi Guð vera
með ykkur.
Linda Björk og Axel Fannar.
Ingibjörg Lovísa
Sæunn Jónsdóttir
Elsku frænka
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Megi Guð og englarnir
vera hjá þér. Þínir frænd-
ur:
Helgi Ævar og
Trausti Marel.
Ingibjörg var dugleg í
leikfimi. Við vorum stund-
um saman í rútunum og í
Hinu húsinu. Við vorum
líka saman að biðja bænir
og syngja Ó, Jesú bróðir
besti, í kirkjunni hjá Guð-
nýju. Við unnum saman og
sátum saman í kaffinu.
Ég sendi fjölskyldu Ingi-
bjargar og öllum í Grund-
arlandi samúðarkveðjur.
Birna Rós Snorradóttir.
HINSTA KVEÐJA
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓHANNA AÐALSTEINSDÓTTIR
frá Vaðbrekku,
Lindasíðu 4, Akureyri,
áður til heimilis á Ásgarðsvegi 15,
Húsavík,
sem lést fimmtudaginn 26. apríl, verður jarðsungin
frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 5. maí kl. 14.30.
Aðalsteinn Helgason, Ágústa Þorsteinsdóttir,
Kristjana Helgadóttir, Arnar Björnsson,
Bjarni Hafþór Helgason, Margrét Þóroddsdóttir,
Helgi Helgason, Anna Guðrún Garðarsdóttir,
Ingibjörg Helgadóttir, Halldór Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg systir mín,
ILSE HÄSLER ANDERSON,
North Branford,
Connecticut,
andaðist á hjúkrunarheimili í Connecticut mánudaginn 23. apríl.
Útförin hefur farið fram ytra.
Guðrún Häsler Jónsson,
systkini og aðrir vandamenn.