Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 54
54 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Lög eða skynsemi?
VIÐ sem erum í hjólastólum erum
venjulegir Íslendingar. Við viljum að
tekið sé mark á okkur, við borgum
skatta, eigum okkar
rétt og höfum okkar
skyldur.
En til að okkur
séu tryggð borg-
araleg réttindi þarf
sérstök lög um okk-
ur í öllu sambandi.
Ef viðhorf almenn-
ings væri með okkur þá væri þessi
laga-„frumskógur“ í formi laga-
„runna“. Þá mundi engum detta í
hug að opna þjónustu, ætlaða al-
menningi og staðsetja hana á 3. hæð
í lyftulausu húsi. Ef „allur“ almenn-
ingur væri hafður í huga, en ekki
bara sumir, þá væri aðgengi tryggt
fyrir alla og þætti sjálfsagt.
Bílaleigur eru dæmi um fyrirtæki
sem bjóða þjónustu fyrir suma.
„Nei, því miður eigum við enga bíla
fyrir fólk í hjólastólum“ er svarið
þegar hringt er í þær! Nema í dag.
Þá hefur ein bílaleiga sýnt þann
kjark og það þor að bjóða innlendum
og erlendum ferðamönnum bíla með
búnaði fyrir hjólastólafólk. Hertz
heitir þessi leiga sem hefur starfs-
menn og eigendur með þá framtíð-
arsýn að ekki skuli mismuna fólki
sem bundið er hjólastól. Mín von er
að almenningur láti heyra í sér ef að-
gengi er ábótavant en beini líka sín-
um viðskiptum til þeirra sem gera
vel. Viðhorfið hjá Hertz er að mínu
skapi. Þangað mun ég beina við-
skiptum ef þess er nokkur kostur.
Ég skora á alla sem veita þjónustu
til almennings að líta í kringum sig
þegar mætt er í vinnu næst. Kemst
hjólastóll t.d. að inngangi þjónust-
unnar? Oft vantar auman fláa á
gangstéttina. Hvernig opnast dyrn-
ar? Hve breiðar eru þær? Er þrösk-
uldur sem enginn á hjólastól kemst
um? Hvernig er rýmið inni? Allt eru
þetta atriði sem koma ófötluðum vel
að sé í lagi en er okkur í hjólastóla-
genginu alger nauðsyn.
Guðjón Sigurðsson,
formaður MND-félagsins.
Soffía er týnd
LITLA kisan okkar
Soffía týndist í Foss-
voginum síðasta
laugardagsmorgun.
Hún er svört og hvít
og ekki fullvaxin (6
mánaða). Hún er lík-
lega með hálsband
merkt með heimilisfangi, Brautar-
land 18. Ef þið finnið hana eða sjáið
til hennar þætti okkur vænt um að
vera látin vita í síma 5536864,
8629264 eða 6996874.
Sebastian er týndur
SEBASTIAN
er gulbrönd-
óttur með
rauða hálsól,
eyrnamerkt-
ur 05G115.
Hann sást seinast í Bryggjuhverfi
25. apríl. Þeir sem hafa séð hann vin-
samlegast hringið í síma 5523762
eða 8460426.
ÞAÐ eru fleiri en mannfólkið sem líta auglýsingaskilti áhugasömum aug-
um. Þessi litli ferfætlingur sat hugfanginn fyrir utan verslun við Laugaveg.
Morgunblaðið/Ásdís
Auglýsingar hrífa
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
TAH DAH! ÉG SÁ ÞETTA Í
MATREIÐSLUÞÆTTI!
ERTU VISS UM AÐ ÞETTA HAFI
EKKI VERIÐ HRYLLINGSMYND?
ÉG FÉKK
SKAMMIR
FYRIR AÐ
GLEYMA
SKURNINNI
AFTUR
HÚN VARÐ FÖL OG LAGÐI
HÖFUÐIÐ Á SÉR FRAM Á
BORÐIÐ... ÉG HELD AÐ HÚN
HAFI GRÁTIÐ ÖRLÍTIÐ
AUMINGJA FRÚ
RÓSA... VONANDI ER
ALLT Í LAGI MEÐ HANA
ÉG VISSI EKKI AÐ
KENNARAR VÆRU
SVONA VIÐKVÆMIR!
VIÐ HÖFUM
ÞAÐ BARA
NOKKUÐ GOTT
EF ÉG HUGSA
UM ÞAÐ
MIKIÐ AF KRÖKKUM
HAFA ÞAÐ TÖLUVERT
VERR HEIMA HJÁ SÉR
EN VIÐ GERUM
VIÐ
ÆTTUM
SAMT EKKI
AÐ FARA
HEIM
HVENÆR
HELDUR ÞÚ AÐ
ÞAU SJÁI
FRAMRÚÐUNA
Á BÍLNUM?
EFTIR FYRSTU
SNJÓKOMUNA Á
VETURNA...
FINNST MÉR
GAMAN
AÐ HORFA
Á HVÍTA
SNJÓBREIÐUNA!
EN EFTIR SMÁ
STUND LANGAR MIG AÐ
SJÁ HIMININN
ATLI,
ÞETTA
HLÝTUR AÐ
VERA VERK-
SMIÐJA
JÓLA-
SVEINSINS
AF HVERJU
SEGIR ÞÚ
ÞAÐ?
Ó...
ÞÚ VERÐUR
AÐ VERA
SVONA LÍTILL
TIL ÞESS AÐ
MEGA VINNA
HÉRNA
BÍDDU
NÚ VIÐ!
VIÐ ERUM AÐ
SPILA LED ZEPPELIN
LÖG! ÞÚ MÁTT EKKI
BREYTA NEINU!
ÉG GERÐI ÞAÐ
EKKI. ÉG SPILAÐI
LAGIÐ NÓTU
FYRIR NÓTU
ÉG VEIT, EN ÞÚ RAKST
ÚT ÚR ÞÉR TUNGUNA! JOHN
PAUL JONES RAK ALDREI ÚT
ÚR SÉR TUNGUNA
AÐDÁENDURNIR TAKA
EFTIR SVONA HLUTUM
ÉG ER
LOKSINS KOMINN
Á FLUGVÖLLINN!
HOLLYWOOD,
HÉR KEM...
ÉG...?
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is
Sími 567 7776 - Opið virka daga kl. 12-18, laugardaga kl. 11-15
LAGERÚTSALAN
í fullum gangi í Síðumúla 3-5
Mikill afsláttur