Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 56
Hann kom í skólann sér til
skemmtunar en börnin höfðu
ekki hugmynd um að þau væru í ná-
vist goðsagnar … 59
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
MARÍA Isabel Vargas Arbeláez
heitir kólumbísk myndlistarkona
sem sýnir málverk í Galleríi Tukt.
Titill sýningarinnar er „Hvað er
þetta?“, en það er spurning sem
María segist oft fá frá vinum sínum
þegar þeir virða fyrir sér verk henn-
ar.
María ákvað að vinna út frá
spurningunni með því að leyfa sýn-
ingargestum og vinum að skrifa á
blað við hvert verk hvað þeir sjái út
úr því og er túlkun manna vægast
sagt misjöfn. Menn sjá fugla ræða
saman, eggjarauður á símalínum,
„hljóð blóma“ og tölvur lifna við, allt
úr sama verkinu.
„Ef ég set titil á verkið er ég að-
eins að stjórna því hvað áhorfandinn
sér en með þessu móti held ég túlk-
uninn opinni og áhorfandinn getur
komið með sína sýn á verkið,“ segir
María um þessa aðferð.
Hún málar óhlutbundin akrýlverk
sem hún vinnur tilraunakennt. „Ég
helli málningu þunnt yfir strigann
og vinn svo út frá því sem við blasir
þegar málningin þornar,“ segir
María. Hin þornaða málning, fyrsti
bletturinn, geti t.d. litið út eins og
manneskja. Engin tvö málverk fara
því í sama farveg, ný form verða allt-
af til í hverju verki.
Litagleðin er mikil í verkum Mar-
íu og segist hún hneigjast til sterkari
lita. Hún segir litagleði ekki ein-
kenna kólumbíska list frekar en ann-
að. Ungir myndlistarmenn í Kól-
umbíu vinni mikið með stafræna
tækni, myndbönd og annað, og sæki
ekki mikið í að mála. Hún hafi hins
vegar kosið að gera það.
María er 23 ára og með BA-gráðu
í myndlist frá myndlistardeild Há-
skólans í Kólumbíu, Universidad
Nacional de Colombia. Hún kom
hingað til lands í september og fór
þá að vinna sjálfboðavinnu við að
tína gulrætur á landsbyggðinni. Nú
vinnur hún sjálfboðavinnu í Reykja-
vík, hjá Alþjóðlegum ungmenna-
skiptum, en ætlar að halda heim til
Kólumbíu aftur í haust.
Hvað varðar framhald á sýning-
arhaldi hér á landi segist María hafa
áhuga á að sýna í fleiri galleríum áð-
ur en hún heldur til heimalandsins.
Hún ætlar að halda áfram að mála
meðfram öðrum störfum. Myndlistin
færi ekki salt í grautinn.
Eggjarauður á símalínum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Listakonan María kom hingað til lands í september og fór þá að vinna
sjálfboðavinnu við að tína gulrætur á landsbyggðinni.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞETTA er vegamynd sem fjallar um albanskan
mótorhjólasendil í London sem fer til Afríku að
leita bróður síns sem týndist í Balkanskaga-
stríðinu,“ segir Páll Sigþór Pálsson leikari um ís-
lenska kvikmynd sem hann skrifaði handritið að.
Myndin gerist að stórum hluta í London en einn-
ig að miklu leyti í Suður-Evrópu og Vestur-
Afríku. Það er nýstofnað kvikmyndafyrirtæki,
Pálssons Productions, sem stendur að myndinni
en það skipar hópur leikara og kvikmyndagerð-
arfólks. Tökur hefjast í London í haust og halda
þær áfram sem leið og saga myndarinnar liggur
suður eftir Evrópu og til Afríku. Áætlað er að
tökum ljúki hér á landi næsta vor og búast má
við myndinni í bíóhús haustið 2008 ef allt gengur
að óskum. Myndin verður leikin á ensku og
verða bæði íslenskir og breskir leikarar í helstu
hlutverkum og má þar nefna Pál sjálfan sem fer
með hlutverk albanska mótorhjólasendilsins og
Caroline Dalton, eiginkonu hans, sem leikur
kærustu Albanans. Aðrir leikarar eru m.a Gott-
skálk Dagur Sigurðarson og Jörundur Ragn-
arsson. Stjórn kvikmyndatöku annast Björn
Helgason og leikstjóri er Haukur Valdimar Páls-
son bróðir Páls Sigþórs.
„Ég vann sjálfur sem hraðsendill á mót-
orhjólum í London þegar ég var nýútskrifaður
leikari og þá kviknaði hugmyndin að sögunni um
þennan Albana. Brúðkaupsferð okkar hjóna á
mótorhjólum frá Englandi til Rúmeníu kynti svo
enn betur undir hugmyndinni og þegar Haukur
bróðir útskrifaðist úr Kvikmyndaskólanum í
fyrra, ákváðum við að skella okkur út í þessa
kvikmyndagerð af fullum krafti. Við bræðurnir
höfum alltaf verið hrifnir af vegamyndum, og
verður þessi mynd blanda af ýmsum áhrifavöld-
um okkar, svona spennu-drama mynd, með smá
hasar en líka húmor,“ segir Páll en hann og Car-
oline munu ferðast alla vegalengdina í myndinni
á mótorhjólum og þeim fylgir jeppi með tökulið-
inu. Myndin endar í Gabon í Mið-Afríku og neitar
Páll að ljóstra upp um hvort Albaninn finni bróð-
ur sinn enda er sú leit spennan sem myndin
gengur út á.
„Umfang myndarinnar er nokkuð óljóst enn
og fjármögnun aðeins að hefjast en þeir sem að
verkefninu standa hafa trú á því og eru tilbúnir
að leggja sig fram við það,“ segir Páll að lokum.
Morgunblaðið/Ásdís
Pálssons Páll Sigþór, Caroline Dalton og Haukur Valdimar Pálsson ætla að ferðast frá London til Afríku og gera mynd um albanskan mótorhjólasendil.
Leitar bróður síns
Pálssons Productions hefur tökur í haust á íslenskri kvikmynd sem fjallar um
albanskan mótorhjólasendil sem ferðast frá London til Afríku á hjóli sínu
Föstudagur
<til fjár>
Café Oliver
DJ JBK
Prikið
Frank & Kristó
Players
Sálin hans Jóns míns
Hressó
Gotti & Eisi / DJ Maggi
Barinn
Ghozt & Brunhein / DJ Inpulse
12 Tónar
Hjaltalín
Vegamót
DJ Kári
Grand Rokk
Severed Crotch
Laugardagur
<til lukku>
Café Oliver
Addi trommari & DJ JBK
Prikið
DJ Kári
Players
Karma
Hressó
Flat Five / DJ Maggi
Barinn
Maggi Lego & Hólmar / DJ Bjarki
Vegamót
DJ Gorilla Funk
ÞETTA HELST UM HELGINA »
Hjaltalín Spilar í 12 Tónum kl. 17.