Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 64
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Sakfelling í Baugsmáli
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, og Tryggvi Jónsson, fyrrver-
andi aðstoðarforstjóri, voru dæmdir
í skilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gærdag. Af
átján ákæruliðum var tíu vísað frá
dómi, Jón Ásgeir var sakfelldur í
einum og Tryggvi fjórum. Saman
voru þeir sýknaðir í fjórum ákæru-
liðum og Jón Ásgeir einn í þremur til
viðbótar. »14–15, Miðopna
Krefjast afsagnar
Allt að hundrað þúsund manns
komu saman á mótmælafundi í Tel
Aviv í Ísrael í gær og kröfðust þess
að Ehud Olmert forsætisráðherra
segði af sér. »19
Gluggum bjargað
Tekist hefur að bjarga steindum
gluggum eftir Gerði Helgadóttur úr
kirkju sem fyrirhugað er að rífa í
Düsseldorf í Þýskalandi. Þeir verða
til sýnis í Gerðarsafni í Kópavogi
næstu daga. »2
Stjórnin heldur velli
Stjórnarflokkarnir halda meiri-
hluta sínum á þingi ef marka má
könnun Capacent Gallup sem gerð
var fyrir Morgunblaðið og Rík-
isútvarpið. »4
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Leðurjakk. og sólgleraugu
Staksteinar: Framhjá lögum?
Forystugrein: Grundvallaratriði
Baugsmáls
UMRÆÐAN»
Með eða á móti
Í lofti, legi og á láði
Betri samgöngur, bættur hagur
Gleymda umræðuefnið
Mitsubishi sýnir nýjan Evo X
Ónýtt mælaborð?
Armbandsúr fyrir bíladellufólk
Toyota stærst
BÍLAR»
4 ' #: $
/
+
#
;
! " '
3
3
3 3 3 3
3 3
3 3
3 3
3 3
3
3
3 3
3 - <
8 $
3
3 3 3 3 3 5=>>2?@
$AB?>@0;$CD05
<202525=>>2?@
5E0$< <?F02
0=?$< <?F02
$G0$< <?F02
$9@$$0" H?20<@
I2C20$<A IB0
$5?
B9?2
;B0;@$9+$@A2>2
Heitast 10° C | Kaldast 2° C
Vestan 10–15 m/s og
slydda NA-til. Vaxandi
austanátt og þykknar
upp. »10
Sigga Beinteins er
ekkert sérlega hrifin
af mörgum lögum í
Evróvisjón í ár og
telur Eirík því eiga
möguleika. »61
TÓNLIST»
Léleg
keppni?
KVIKMYNDIR»
Stórmyndin Spider Man
3 er frumsýnd í dag. »60
Góðir dómar um
Volta, nýjustu plötu
Bjarkar Guðmunds-
dóttur, halda áfram
að birtast í erlend-
um miðlum. »61
TÓNLIST»
Björk fær
góða dóma
FÓLK»
Páll Óskar er að gera
nýtt myndband. »57
FÓLK»
Justin Timberlake langar
að hætta í poppinu. »59
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Jón Ásgeir og Tryggvi dæmdir
2. Kastljós svarar Jónínu
3. Jón Ásgeir og Tryggvi sakfelldir
4. Slá féll á bíla á Miklubraut
Í GÆR var boðið til forsýningar á
Vatnasafni/Library of Water, verki
myndlistarkonunnar Roni Horn í
byggingu sem áður hýsti bókasafn
Stykkishólms.
Þar hefur verið sett upp skúlptúr-
innsetning í aðalsal byggingarinnar, 24
glersúlur með vatni úr jafnmörgum
jöklum landsins. Ljós frá gluggum í
salnum brotnar í súlunum sem end-
urvarpa því á gólfið en þar hafa lýsing-
arorð á ensku og íslensku verið greypt
í.
Hluti af verkinu er skrásetning á
viðtölum við Íslendinga þar sem þeir
ræða um veðrið en það verk er í stöð-
ugri þróun þar sem sífellt fleiri frá-
sagnir bætast við. Þá verður einnig í
Vatnasafni félagsmiðstöð, íbúð fyrir
gestarithöfund og athvarf fyrir efnileg-
ar, ungar skákkonur.
Breska listastofnunin Artangel fjár-
magnar verkefnið með stuðningi
menntamála- og samgönguráðuneyta
og Stykkishólmsbæjar. Artangel og
Roni Horn hafa bygginguna til umráða
næstu 25 árin.
Roni Horn er heimskunn myndlist-
arkona. Verk hennar hafa verið sýnd í
mörgum virtustu listasöfnum heims.
Horn hefur dvalið reglulega á Íslandi
seinustu 30 árin og hefur landið og
menning þess orðið henni mikill inn-
blástur og yrkisefni.
Vatnasafnið verður opnað fyrir al-
menningi á morgun. | 20
Vatnasafn Roni Horn forsýnt í Stykkishólmi í gær
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Vatnasafn Talið er að safnið geti orðið mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í Stykkishólmi.
Súlur með vatni úr 24 jöklum
„MÉR FINNST skemmtilegast að gera kúnstir og hoppa
í heilan hring í kollhnís. Þetta er eins og ganga á tram-
pólíni,“ segir Alex Þór Jónsson, áður en hann skoppar
fjaðurmagnaður eftir gangstéttinni á stökkskónum, fyr-
irbæri sem gengur undir heitinu „skyrunner“ vest-
anhafs. „Japanar hönnuðu þá og þetta hefur verið á
teikniborðinu í mörg ár en ekki orðið að veruleika fyrr
en nú.“
Að sögn Ólafs Óskars Ólafssonar, aðstoðarversl-
unarstjóra Intersport, þar sem Alex er lagerstarfsmaður,
var hann aðeins fimmtán mínútur á leiðinni frá Bryggju-
hverfinu í Reykjavík og niður í miðbæ.
Alex segist aðspurður vera frumkvöðull í kynningu
þessarar nýju tækni hér á landi, hann hafi stuðlað að því
að föðurbróðir sinn flytti stökkskóna inn eftir að hafa
áður prófað þá í Bandaríkjunum.
Ólafur Óskar er bjartsýnn á að skórnir muni slá í
gegn.
„Þetta byrjaði í Bandaríkjunum og er alveg á blúss-
andi siglingu þar núna,“ segir hann. „Þetta er nýjung og
allt annað en línuskautarnir. Hægt er að stökkva allt að
tvo metra. Vanur maður, eins og Alex, getur farið yfir
bíl á þessu. Hann hoppar yfir bíl.“
„Eins og að
ganga á
trampólíni“
Morgunblaðið/RAX
ÍSLENSK erfða-
greining hefur
fundið erfða-
breytileika sem
eykur verulega
líkur á hjarta-
áfalli. Niðurstöð-
urnar voru birtar
á vef vísinda-
tímaritsins
Science í gær-
dag.
Það sem rennir frekari stoðum
undir uppgötvun ÍE er að annar
hópur vísindamanna, úr háskólum í
Evrópu og Bandaríkjunum, birti
nánast sömu niðurstöður úr sam-
bærilegri rannsókn í sama tímariti.
Er þó um algjöra tilviljun að ræða.
Um helmingur fólks af evrópsk-
um uppruna er með breytileikann
og um 20% með tvö eintök, eitt frá
hvoru foreldri. Þeir sem hafa tvö
eintök eru í um 60% meiri hættu á
að fá hjartaáfall en þeir sem ekki
hafa slíkt eintak. | 4
Eykur veru-
lega líkur á
hjartaáfalli
Kári Stefánsson