Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
www.uu.is
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4
108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000
FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
á mann m.v. tvo í studio á Helios 18. ágúst
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, gisting í sjö nætur
og íslensk fararstjórn.
Á Krít skín sólin flesta daga ársins og hægur andvari frá hafi gerir loftslagið
eitt hið besta í Evrópu. Stórbrotin náttúrufegurð og einstök menningarsaga
eyjunnar blasir við hvarvetna. Gist er á úrvals hótelum í bæjunum Chania
og Rethymnon og boðið er upp á fjölbreyttar skoðunarferðir. Komdu til
Krítar og drekktu í þig menninguna.
55.039 kr.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
HLJÓMSVEITN Cannibal Corpse
hefur leikið dauðarokk í næstum
20 ár og ætlar að halda tvenna tón-
leika á NASA um næstu helgi.
Í samtali við Morgunblaðið
greinir bassaleikarinn Alex
Webster frá því að þeir fimmmenn-
ingar hafi ennþá jafn gaman af
rokkinu.
„Persónulega lagði ég ríka
áherslu á að við myndum halda
okkur við það sem við mótuðum
okkur strax í upphafi,“ segir
Webster jafnframt og telur hljóm-
sveitina hafa verið heppna að hafa
verið vinsæla svona lengi, þrátt
fyrir að vinsældir dauðarokks
sveiflist upp og niður.
Fyrri tónleikar sveitarinnar fara
fram næstkomandi laugardag og
þá sjá Mínus og Changer um upp-
hitun. 20 ára aldurstakmark er á
tónleikana. Sunnudagskvöldið 1.
júlí eru það svo Forgarður helvítis,
Momentum og Severed Crotch sem
hita upp á tónleikum sem leyfðir
eru öllum aldurshópum. | 64
Ómeng-
að dauða-
rokk
Cannibal Corpse
heldur tvenna tón-
leika hér á landi
Síðhærðir Cannibal Corpse.
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
JÖKLAMÆRIN svokallaða, orr-
ustuflugvél úr seinni heimsstyrjöld-
inni sem bjargað var úr Grænlands-
jökli árið 1992, er væntanleg til
Íslands á fimmtudaginn. Íslenskt
hugvit átti stóran þátt í björguninni
en þeir Íslendingar sem komu að
verkinu áttu ekki von á að vélin
myndi fljúga á ný.
Jöklamærin er af gerðinni Lock-
heed P-38F og tilheyrði hinni svoköll-
uðu „Týndu flugsveit“ sem nauðlenti
á Grænlandsjökli árið 1942. Í sveit-
inni voru 6 vélar sömu gerðar og
Jöklamærin en einnig tvær sprengju-
vélar af gerðinni B-17. Vélarnar voru
á leið til Bretlands frá Bandaríkj-
unum en urðu að nauðlenda á jökl-
inum vegna eldsneytisskorts. Með tíð
og tíma grófust vélarnar síðan ofan í
jökulinn þaðan sem ekkert spurðist
til þeirra þar til íslenskum jökla-
sérfræðingum tókst að finna þær árið
1983 þar sem þær lágu undir 90
metra þykkri íshellu.
Arngrímur Hermannsson er einn
þeirra sem unnu að björgun vél-
arinnar og segir hann að bandarískir
leitarmenn hafi verið búnir að leita
töluvert lengi áður en Íslendingarnir
buðu fram krafta sína til verksins.
Árið 1992 var síðan ákveðið að ná
einni vélinni upp úr jöklinum og segir
Arngrímur að þá hafi íslensk hug-
mynd verið notuð til að bræða gat
niður að vélinni. „Við notuðum heitt
vatn til að mynda gat alla leið niður
sem var u.þ.b. 40 tomma breitt. Síðan
var vélin bútuð niður og hífð upp í
pörtum.“
Vélin hefur verið endurbyggð og er
nú ein fárra sinnar gerðar í heiminum
og ætla menn nú að ljúka flugferðinni
sem lagt var í fyrir 65 árum. Arn-
grímur segir að þótt vélin hafi varð-
veist vel undir jöklinum hafi hann
ekki grunað á sínum tíma að hún gæti
flogið aftur. „Við sáum samt að
tækjabúnaður vélarinnar hafði varð-
veist ótrúlega vel. Mótorarnir voru í
lagi og vélbyssurnar virkuðu eftir að
við höfðum dregið þær upp.“
Lýkur fluginu sem hófst fyrir 65 árum
Reuters
Flýgur enn Jöklamærin lagði af stað í fyrradag frá Teterboro í Bandaríkj-
unum en einungis tvær vélar sömu tegundar eru í flughæfu ástandi.
Jöklamærin lá undir jökli í 50 ár en
lagði af stað til Bretlands í fyrradag
♦♦♦
TVEIR farþegar bifreiðarinnar,
sem skall á húsvegg á gatnamótum
Mýrargötu og Geirsgötu aðfaranótt
föstudags, liggja enn alvarlega
slasaðir á gjörgæsludeild. Að sögn
læknis á deildinni var einn hinna
slösuðu settur í öndunarvél, en
hann er nú kominn úr henni. Sá
þriðji sem slasaðist við áreksturinn
hefur verið útskrifaður af gjör-
gæsludeild.
Tveir enn
þungt haldnir
GUNNAR Þorláksson tekur hér fyrsta kast sum-
arsins í Grímsá í Borgarfirði, í Laxfoss seinni-
partinn á föstudag. Jón Þór Júlíusson, leigutaki
árinnar, segir honum til, en laxar voru að renna
sér upp í hylinn. Það var hins vegar Jón Þór sem
veiddi fyrsta laxinn í ánni, seint á föstudags-
kvöldið, 72 cm langa hrygnu, í veiðistað með það
óvenjulega nafn Viðbjóður.
Veiði hefur hafist í hverri ánni á fætur annarri
síðustu daga en víðast munu fáir fiskar mættir.
Pétur Pétursson leigutaki veiddi fyrsta laxinn
í Vatnsdalsá, 12 punda hrygnu í Hnausastreng.
Tveir veiddust á fyrstu vaktinni í Miðfjarðará, sá
fyrsti í Laxá í Aðaldal náðist á annarri vaktinni
og tveimur var landað í Stóru-Laxá.
Morgunblaðið/Einar Falur
Kastað fyrir laxinn í Grímsá
ICELANDAIR kynnti í gær ný far-
gjöld í áætlunarflugi sínu og er upp-
bygging fargjaldanna breytt.
Eitt af því sem breytist er að nú
verður hægt að kaupa farmiða aðra
leiðina á hagstæðu verði, að sögn
Gunnars Más Sigurfinnssonar,
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Icelandair. Annar flötur á
þeirri breytingu er sá að nú verður
mögulegt að kaupa mismunandi
þjónustu á ferðum sínum, t.d. er
hægt að kaupa aðra leiðina á tilboðs-
verði, en hina leiðina á viðskiptafar-
rými. Það er útgangspunktur nýja
fargjaldakerfisins að þeir sem bóka
með góðum fyrirvara fá hagstæðasta
verðið.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, segir breytinguna vera lið í
stærra umbreytingarferli sem nú
stendur yfir. Hann segir að hluti
þeirra breytinga muni birtast í vetur
þegar öllum innviðum flugflota fyr-
irtækisins verði breytt. Þá verða sett
upp ný sæti þar sem verður afþrey-
ingar- og skemmtikerfi í sætisbök-
um fyrir alla farþega.
Í ár fagnar Icelandair 70 ára af-
mæli sínu. Á þessum tímamótum er
boðið upp á langumfangsmestu flug-
áætlun í sögu fyrirtækisins, en flogið
er til 25 áfangastaða í reglulegu
áætlunarflugi. Vélar félagsins fara
um 160 ferðir á viku frá Keflavík í
sumar, eða um þrjá tugi ferða á degi
hverjum.
Í tilefni af breytingunum á far-
gjaldakerfinu býður félagið flugfar-
miða til London, Kaupmannahafnar,
Óslóar, Stokkhólms, Helsinki og
Bergen á tilboðsverði.
Nýtt fargjalda-
kerfi Icelandair
Breytingunum ætlað að auka sveigjan-
leika og gera kerfið gegnsærra