Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hringdu í 530 2400 og kynntu þér málið!
www.oryggi.is
Prófaðu Heimaöryggi
í tvo mánuði í sumar
– ókeypis!
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna.
Tilboðið gildir til 15. júlí og er í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins
þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu.
SKILYRÐI fyrir framleiðslu endur-
nýjanlegrar orku á Norðurlöndum
batna væntanlega eftir því sem lofts-
lag á jörðinni hlýnar. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu, Impacts of
Climate Change on Renewable
Energy Sources, sem Norræna ráð-
herranefndin lét gera. Í henni eru
áhrif þess metin á orkubúskap ef
hitastig á Norðurlöndum hækkar að
jafnaði um þrjár gráður, úrkoma
eykst um tíu prósent og yfirborð
sjávar hækkar um fjörutíu sentí-
metra fram til ársins 2100. Rekstur
vatnsaflsvirkjana verður auðveldari
því með mildari vetrum verður vatns-
flæðið jafnara. Jafnframt er gert ráð
fyrir vexti í framleiðslu lífræns elds-
neytis því að skógar muni vaxa hrað-
ar eftir því sem hitastig hækkar, þá
sérstaklega á nyrstu svæðum.
Samkvæmt rannsókninni verða
áhrifin af hlýnun jarðar sama og eng-
in á vindorkuver en óljóst er hvernig
skilyrði til virkjunar sólarorku breyt-
ast. Þau gætu versnað eftir því sem
skýjahulan þéttist.
Ráðherranefndin hefur frá árinu
1999 rekið sérstaka stofnun, Nor-
rænar orkurannsóknir, sem staðsett
er í Ósló og leggja Norðurlandaþjóð-
irnar samtals um 315 milljónir króna
til rekstursins á ári. Markmið hennar
er að vinna að sameiginlegum hags-
munum Norðurlandanna á sviði
orkumála, sérstaklega með því að
styðja við hverskonar rannsóknar-
og þróunarverkefni. Stofnunin
hyggst á næstu árum einbeita sér að
verkefnum á sviði endurnýjanlegrar
orku, orkusparnaðar og þróun vetn-
issamfélags.
Virkjunar-
skilyrði
batna
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að karlmaður, sem ákærður hefur
verið fyrir að nauðga ungri konu á
salerni hótels í Reykjavík, sæti
áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar
til dómur fellur í máli hans, þó ekki
lengur en til 1. ágúst.
Í gæsluvarðhaldi frá 19. mars
Ríkissaksóknari höfðaði mál gegn
manninum um síðustu mánaðamót
og hefur aðalmeðferð í málinu farið
fram í héraðsdómi.
Maðurinn hefur sætt gæsluvarð-
haldi frá 19. mars, fyrst á grundvelli
rannsóknarhagsmuna en síðan á
grundvelli almannahagsmuna.
Gæsluvarðhald
framlengt
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
MINJASAFN Reykjavíkur opnar í
dag fræðslustofu um viðgerð og
endurgerð eldri húsa. Verkefnið er
unnið í samvinnu við Húsafriðunar-
nefnd ríkisins og IÐUN- fræðsluset-
ur. Fræðslumiðstöðin er staðsett í
Kjöthúsinu, en það er annað tveggja
svokallaðra Vopnafjarðarhúsa á Ár-
bæjarsafni.
Fræðslustofan er framhald af
sýningu sem var sett upp á Ár-
bæjarsafni á síðasta ári og ber nafn-
ið „Saga byggingatækni í Reykjavík
frá 1840-1940“. Þetta var samvinnu-
verkefni Árbæjarsafns og Mennta-
félags byggingamanna. Nú hefur
Húsafriðunarnefnd ríkisins komið
til liðs við verkefnið og Menntafé-
lagið heitir í dag IÐUN-fræðsluset-
ur.
„Þetta er hugsað sem vinnuað-
staða fyrir fólk sem vill afla sér
þekkingar um viðgerð á gömlum
húsum,“ segir Dagný Guðmunds-
dóttir, sem unnið hefur að verkefn-
inu ásamt Jon Nordsteien arkitekt.
„Þarna verður bókasafn með alls
kyns bókum, ritum, ljósmyndabók-
um, námsbókum, bæklingum og öllu
mögulegu sem við finnum sem teng-
ist eldri húsum.
Við höfum rætt við mörg fyrir-
tæki sem eru að flytja inn efni sem
eru notuð í þessi gömlu hús og þá er
ég að tala um timburhús og allt yfir
í funkishúsin. Við höfum síðan valið
byggingahluti sem við sýnum
þarna. Fyrirtækin hafa gefið þetta,
en um leið eru þau að kynna sína
vöru.“
Auk bóksafnsins og bygginga-
hlutanna verða á sýningunni, lita-
prufur, textaskýringar á veggjum,
tölva þar sem bent er á gagnlegar
heimasíður og fleira. Dagný sagði
að lögð væri áhersla á að búa til
vinnuaðstöðu fyrir fólk sem vildi
gefa sér tíma til að kynna sér við-
gerðir á eldri húsum. Þessi aðstaða
væri fyrir venjulegt fólk, fagmenn,
arkitekta og þá sem vinna að skipu-
lagi. Aðstaðan yrði opin yfir vetr-
artímann eftir að hefðbundnu sum-
arstarfi safnsins lýkur. Haldið yrði
áfram að bæta og þróa þessa vinnu-
aðstöðu.
Dagný sagðist hafa áhuga á að
iðnskólarnir nýttu sér þessa aðstöðu
með því að senda nemendur til að
vinna verkefni í fræðslumiðstöðinni.
Þarna yrðu einnig haldin námskeið
um gömul hús sem hafa verið sam-
vinnuverkefni Húsafriðunarnefnd-
ar og iðnaðarmanna.
Ekki sama hvernig
hlutirnir eru gerðir
Dagný tók fram að fræðslumið-
stöðin væri ekki eingöngu hugsuð
fyrir þá sem væru að gera upp göm-
ul timburhús heldur ekki síður eldri
hús, timbur- og steinhús, sem byggð
voru t.d. á árunum 1940-1950.
Dagný sagðist hafa fundið fyrir
miklum áhuga allra þeirra sem leit-
að hefði verið til með að styðja
verkefnið. Sérstaklega væru
iðnaðarmannafélögin áhugasöm og
hefðu stutt það með vinnu og fjár-
munum.
„Það er mikill áhugi á viðhaldi
eldri húsa. Mér finnst ég líka finna
fyrir aukinni faglegri hugsun hjá
fólki. Fólk er að átta sig á að fagleg
þekking er nauðsynleg og að það er
ekki sama hvernig hlutirnir eru
gerðir. Það er að verða liðin tíð að
fólk hugsi þegar það er með gamalt
hús í höndunum að það sé nóg að
gera það bara sætt. Fólk er að átta
sig á að viðgerðin snýst um miklu
meira og er í reynd sérstakt fag.“
Fræðslumiðstöðin verður opnuð í
dag, sunnudag, kl. 14.
„Það er ekki nóg
að húsið sé sætt“
Morgunblaðið/Sverrir
Kjöthúsið Dagný Guðmundsdóttir hefur unnið að því að koma fræðslu-
miðstöðinni á fót. Hún verður staðsett í Kjöthúsinu á Árbæjarsafni.
Minjasafn Reykja-
víkur opnar
fræðslustofu um
viðgerð og endur-
gerð eldri húsa
BRESKA ríkisútvarpið, BBC, sendi
út í síðustu viku útvarpsþátt um
jarðhita. Þátturinn var hluti af röð-
inni One Planet, eða Ein Jörð, og var
að miklu leyti tekinn upp á Íslandi.
Í þættinum var Hellisheiðar-
virkjun sótt heim og rætt var við
Grím Björnsson, jarðeðlisfræðing
hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Í þættinum var einnig rætt við
Jefferson Tester, vísindamann við
MIT. Fullyrt var að Íslendingar
hefðu fyrir fáum áratugum verið í
sömu sporum og aðrir jarðarbúar og
unnið orku með brennslu jarðefnis-
eldsneytis. Þeir hefðu hins vegar
ákveðið að snúa sér að jarðhitanum
og öfluðu sér nú nánast allrar raf-
orku og orku til húshitunar með um-
hverfisvænum hætti.
Tester sótti Orkuveituna heim nú
í vor og viðraði þar hugmyndir sínar
um möguleika á raforkuframleiðslu
úr jarðhita í Bandaríkjunum. Fram
kom í þættinum að þarlend stjórn-
völd hefðu skorið niður fjárveitingu
til jarðhitarannsókna, þrátt fyrir að
æ fleiri geri sér grein fyrir yfirburð-
um jarðhitans.
Umfjöllun um kynngi-
kraft jarðhitans á BBC
Morgunblaðið/RAX
Ólgandi kraftur Á Íslandi svellur jarðhitinn rétt við yfirborðið, en það er
ekki alls staðar svo. Í Bandaríkjunum þyrfti að bora djúpt eftir orkunni.
♦♦♦
MIKIL hætta
getur skapast
noti fólk gastæki
sem hafa orðið
fyrir hnjaski, en
þá er hætta á að
þau starfi ekki
rétt. Þetta segir
Kristinn Tómas-
son, yfirlæknir
Vinnueftirlitsins.
Vinnueftirlitið
bendir á að á hverju ári komi upp
nokkur tilvik þar sem gastæki valda
tjóni eða skapa verulega hættu. Al-
varleg slys hafi orðið, m.a. á þessu
ári.
Mikilvægt að meðhöndla rétt
Kristinn segir að fólk þurfi að
huga sérstaklega að tengibúnaði
sem gastækjunum fylgir og að hann
sé rétt notaður. „Við erum að setja
þetta fram núna í júnímánuði vegna
þess að þetta er sá tími sem þessi
tæki eru í hvað mestri notkun. Bæði
meðal almennings og ekki síður
þeirra sem eru í alls konar starf-
semi,“ segir Kristinn.
Hann segir að séu gastæki sem
orðið hafa fyrir hnjaski notuð geti
skapast hætta, ýmist vegna gasleka
eða vegna ófullkomins bruna sem
hefur í för með sér að mikið magn
kolsýrlings fer út í andrúmsloftið.
Mikilvægt sé að gastæki séu með-
höndluð með réttum og viðeigandi
hætti og að tengibúnaður við þau,
t.d. þrýstijafnarar, sé af réttri gerð
og rétt stilltur.
Má aðeins nota í vel
loftræstu rými
Vinnueftirlitið bendir á að vakni
grunur um að gastæki hafi orðið fyr-
ir hnjaski eða rangur tengibúnaður
hafi verið notaður við það beri að
varast notkun. Nauðsynlegt sé að
skoða tækið sérstaklega í framhaldi
af slíku. Jafnframt bendir Vinnueft-
irlitið á að öll gastæki og búnaður
sem þeim tengist, sem tekinn er í
notkun hér á landi, skuli vera með
CE-merki og skuli fylgja þeim leið-
beiningar á íslensku.
Búnað sem brenni gasi skuli ein-
ungis nota í vel loftræstu rými og
aldrei nota í lokuðu rými, líkt og í
tjaldi, tjaldvagni, húsbíl eða jafnvel
húsi eða herbergi þar sem uppsöfn-
un gastegunda geti átt sér stað. Við
brunann myndast kolmónoxíð sem
er lyktarlaus loftegund og getur
valdið bráðri eitrun og bana ef hún
fer upp fyrir ákveðinn styrk.
Gastæki
geta skap-
að mikla
hættu
Kristinn
Tómasson