Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 21

Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 21
arlega stóru flugskýli úr áli og kost- aði rúmlega sjö og hálfan milljarð ís- lenskra króna. Feiknamikil, hvít klukka efst á skýlinu blasir fyrst við gestum. Þeir sem eru svo heppnir að koma á heila tímanum geta barið skáldið augum þegar það, glaðbeitt og glæst, skýst út úr klukkunni sitj- andi á nokkurs konar kláfi. Lýsingar Charles Dickens á Lundúnum, sem er sögusvið margra bóka hans, eru býsna magnaðar og eflaust eftirminnilegar þeim sem lásu bækurnar í æsku. Samúðin með veslings munaðarleysingjanum Oli- ver Twist, sem þar þurfti að þræla og lifa innan um þjófa, glæpalýð og alls lags hyski, lætur til að mynda engan undir tólf ára ósnortinn. Og þá renna mörgum til rifja örlög götustúlkunnar Nancy, góðmennska hennar og göfuglyndi þegar á reyndi. Afturgöngur og feitar rottur Þessar og aðrar persónur Dickens ganga vitaskuld aftur í Dickens World. Sérstaklega mun vera erfitt að hrista af sér vofu nirfilsins Skröggs í Draugahúsinu, en í greni óþokkans Fagins geta börnin leikið sér óáreitt. Á vefnum dickensland.co.uk segir að garðurinn gefi trúverðuga og raunsanna mynd af sögusviðinu í verkum Charles Dickens og þeim heimi, sem hann lifði og hrærðist í. Meiningin sé að bjóða upp á nýja og skemmtilega leið til að njóta arf- leifðar skáldsins og jafnframt auka skilning á þeim aðstæðum, sem fólk á Englandi bjó við á fyrri hluta nítjándu aldar. Slíkt felur m.a. í sér „Great Expectations-siglingu á dökkri, og slímugri „Thames-ánni“ þar sem bústnar rotturnar svamla og annar óþverri flýtur um. Í fjarska glittir í tötralegan dreng á árbakkanum að kasta af sér vatni, en rotturnar og drengurinn eru ágæt dæmi um þær sjónhverfingar og tæknibrellur sem ráða ríkjum í þessum nýja heimi Dickens. Það er ekki fyrir hugleysingja að bregða sér aftur til fortíðar Lund- únaborgar; fara til dæmis inn í skólahúsið og standa augliti til aug- litis við skólastjórann skelfilega, Whackford Sqeers úr Nicholas Nic- kelby og þurfa að svara spurningum hans umyrðalaust, ella lenda í „tossahorninu“. Leikhús með sætum fyrir 250 manns bjóða allan daginn upp á í bland vélbrúðusýningu og lifandi leikhús um kvöldmatarleytið. Ekki þótti forráðamönnum vænlegt að hvergi væru merki um nútímann og því eru í Dickens World bæði veit- ingahús og minjagripaverslun, Old Curiosity Shop, eða Gamla for- vitnilega búðin, sem svo nefnist eftir einni bóka Dickens. Ekki er ólíklegt að Nell litla sé þar innanbúðar að skoða varninginn; bolla, lyklakippur, boli, bækur, DVD-diska o.fl. Maður fólksins Í fyrrnefndu Culture er látið að því liggja að breska bókmennta- elítan fitji upp á nefið og þyki Dic- kens lítill sómi sýndur með skemmtigarði af þessu tagi. Bók- menntagagnrýnandi blaðsins bendir hins vegar á að engu skipti þótt menningarvitum þyki tiltækið smánarlegt. Þá væri líkt á komið, segir hann, því samtímamenning- arvitum Dickens hafi ekki þótt mik- ið til sagna hans eða hans sjálfs koma í lifanda lífi. Kevin Christie og Claire Tomalin, ævisöguritara eiginkonu Dickens, ber saman um að skáldinu hefði örugglega verið skemmt og sjálfsagt hefði hann notað hvert tækifæri til að troða upp, enda hafi hann verið maður fólksins, hinn fullkomni skemmtanastjóri, sem gerði sér grein fyrir að „… people mutht be amuthed, thomehow, they can’t be alwayth a working, nor yet they can’t be alwayth a lerning …,“ (það verður einhvern veginn að skemmta fólkinu, það getur ekki alltaf verið að vinna eða læra) eins og hann læt- ur hinn smámælta herra Sleary segja í Hard Times, sem kom út árið 1854. Í HNOTSKURN » Charles John Huffam Dickens, f. 7.febrúar 1812, d. 9. júní 1870. » Bjó í Chatham í Kent frá 5 til 10ára þegar fjölskyldan fluttist til London. » Tólf ára þurfti Dickens að vinnatíu tíma á dag í skósvertuverk- smiðju. » Sagan af David Copperfield er aðmiklu leyti talin byggjast á ævi höfundar. » Árið 1834 varð Dickens blaðamaður hjá Morning Chronicle. » Dickens kvæntist Catherine Thompson Hogarth, dóttur ritstjóraEvening Chronicle, árið 1837 og eignuðust þau tíu börn. » Fyrsta skáldsagan, The Pickwick Papers, kom út 1836, og er,ásamt Great Expectations (Glæstar vonir), David Copperfield, Oliver Twist, Christmas Carol (Jólasaga) og Nicholas Nickleby, meðal þekktustu skáldsagna hans. » Flestar sögurnar eru hörð ádeila á fátækt, kúgun og stéttaskipt-ingu á Viktoríutímabilinu og einkennast af samúð með lítilmagn- anum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 21 Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja. Firma Consulting leggur áherslu á persónulega og faglega þjónustu með áherslu á gæði, trúnað og traust í vinnubrögðum sínum. Firma Consulting veitir m.a. eftirtalda þjónustu: • Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja á Íslandi. • Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja erlendis í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki á því sviði. • Aðstoð við sameiningu fyrirtækja. • Aðstoð við verðmat á fyrirtækjum. • Aðstoð við gerð kaupsamninga. • Rekstrarráðgjöf. Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík, GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665, Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is Magnús Hreggviðsson viðskipta- fræðingur og löggiltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga reynslu af endur- skoðunarstörfum, sem rekstrar- ráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgefandi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smárahvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum fyrirtækjum. Magnús er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting. (magnus@firmaconsulting.is) Við finnum kaupendur og seljendur að fyrirtækjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.