Morgunblaðið - 24.06.2007, Side 27
Við fjölskyldan leigðum okk-ur hús í Palm Springs ádögunum. Sá bær erkannski þekktastur fyrir
að hafa verið leikvangur Holly-
woodstjarnanna hér á árum áður.
Frá 1930 og fram til 1970 áttu
margir frægir einstaklingar hús í
Palm Springs: Elvis Presley, Bob
Hope, Howard Huges, Lucille Ball og
Greta Garbo, svo einhverjir séu
nefndir.
Palm Springs er sannkölluð vin í
eyðimörkinni því þegar þangað er ek-
ið birtist bærinn allt í einu iðgrænn í
annars eyðilegum sandinum –
pálmatré og fallegir garðar hvert sem
litið er.
Bærinn er um 110 mílur austur af
Los Angeles, nánar tiltekið í
Cochella-dalnum. Allt um kring
standa fallegir fjallgarðar og hið tign-
arlega fjall San Jacinto trónir þar
fremst meðal jafningja.
Í dag er Palm Springs hálfgerð
sumarleyfisborg allt árið um kring
enda veðurfarið með eindæmum gott.
Við áttum þarna frábæra daga í
steikjandi hita og sólskini. Á þessum
árstíma er hitinn reyndar óbærilegur
yfir hádaginn en þá var fjölskyldan
dugleg við að leggja sig, föndra og
lesa í loftkældu húsinu.
Miðdóttirin, sem hefur að und-
anförnu notað áhersluforskeytið
,,hval“ við öll möguleg tækifæri, lýsti
veðurfarinu ágætlega: ,,Mamma, það
er hvalheitt úti!“
Og þegar pabbi hennar gleymdi
sér í sólinni sagði hún við hann:
,,Pabbi, þú ert orðinn hvalrauður!“
Hún varð líka ,,hvalreið“ í ferðinni
en það er nú önnur saga.
Á heimleiðinni urðum við fyrir því
óhappi að það hvellsprakk hjá okkur.
Dekkið bókstaflega tættist í sundur
og voru því góð ráð dýr.
Úti fyrir 46 stiga hiti og við stödd á
miðri hraðbraut. Ungbarnið varð æft
af bræði og eldri dæturnar orðnar al-
veg ,,hvalpirraðar“.
Við náðum að koma okkur út í veg-
kant í æðandi umferðinni og bóndinn
og tengdapabbi stukku út til að skipta
um dekk.
Bíllinn var að vonum drekkhlaðinn
enda sjö manna fjölskylda á ferð og
þegar skottið var opnað hrundi far-
angurinn niður. Bleyjupakki, töskur
og barnavagn. Æ, þið kannist við
þetta.
Epli nokkurt, sem af einhverjum
ástæðum varðaði farangursstæðuna,
rúllaði út á miðja akrein og minnstu
munaði að afi yrði fyrir vöruflutn-
ingabíl.
Þegar hér var komið sögu starði
tengdamamma í gaupnir sér skelf-
ingu lostin.
Það gekk nú heldur brösuglega að
skipta um dekk því varadekkið
reyndist vera ,,aumingi“ eins og
tengdapabbi tók til orða og því ljóst
að við yrðum að komast á verkstæði
til að fá almennilegt dekk.
Ég hef alltaf haft karlmenn
grunaða um að hafa lúmskt gaman af
því að skipta um dekk og ákvað því að
gera örstutta samanburðarrannsókn.
Ég spurði þá hvort væri nú
skemmtilegra að skipta um dekk í 10
stiga frosti eða ríflega fjörutíu stiga
hita og þeir svöruðu báðir að bragði
heldur stuttaralega: ,,Betra í frosti.“
Þeir feðgar bogruðu þarna við bíl-
inn góða stund og það bogaði af þeim
svitinn.
Til að svala þorstanum greip afi
vatnsflösku aftan úr bílnum og tók
sér vænan gúlsopa.
Hann var nú fljótur að spýta því út
úr sér því það reyndist vera hinn dí-
sæti líkjör Amaretto. Amaretto nota
ég stundum í feiknagóðan eftirrétt
sem ég laga þegar vel liggur á mér.
Við hröktumst áfram á ,,aumingj-
anum“ á bílaverkstæði í nálægum
smábæ.
Bærinn heitir Redlands og máttum
við dúsa þar í einn og hálfan tíma
meðan nýju dekki var komið undir
kaggann. Redlands virtist vera hálf-
gerður draugabær, kannski sökum
þess að það var miður dagur og flestir
kannski innandyra vegna kæfandi
hitans.
Við plöntuðum okkur niður á
skyndibitastað því ekki var öðru til að
dreifa og sátum þar heldur fýld.
Starfsstúlkan sem afgreiddi þar virt-
ist ekki hafa séð nokkurn mann í fleiri
daga og varð hálfhvumsa að vera búin
að fá viðskiptavini. Það leið því tölu-
verður tími frá því að við komum inn og
þar til að hún kom og sinnti okkur.
Innan skamms sátu allir þegjandi
og borðuðu hamborgara.
Rúmum klukkutíma síðar var bíll-
inn loks tilbúinn og við lögðum í hann
að nýju.
Skapið var nú að skána í mann-
skapnum enda allir mettir og fegnir
að vera lausir úr smábæjarprísund-
inni.
Af óvæntum drykkjuskap afa er
það helst að segja að honum varð nú
ekki meint af.
Hann mátti þó sitja undir því að
vera kallaður Afi Amaretto það sem
eftir lifði ferðarinnar sem og þola
háðsglósur um það hvort runnið væri
af honum.
Við bentum honum ennfremur á að
meðferðarstofnun Betty Ford væri
ekki langt undan ef hann vildi leita
sér hjálpar við nýtilkominni drykkju-
sýki sinni.
Það kemur ekki annað til greina en
að eftirrétturinn góði mun hér eftir
heita ,,Afi Amaretto“ og verður hægt
að sækja uppskriftina á blogginu
mínu innan tíðar.
Gleðilegt sumar!
Sumargleðin!
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 27
Síðumúla 3, sími 553 7355
Sumaropnun: Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Frábært úrval af undirfötum
Aubade - Lejaby - Lepel - Pastunette
Playtex - Wonderbra
Spennandi sumarföt
Hörfatnaður - Mussur - Mittisslæður
Kjólar - Pils - Bolir
Frábært úrval af sundfötum
Bikinísett - Tankinísett - Sundbolir