Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 27
Við fjölskyldan leigðum okk-ur hús í Palm Springs ádögunum. Sá bær erkannski þekktastur fyrir að hafa verið leikvangur Holly- woodstjarnanna hér á árum áður. Frá 1930 og fram til 1970 áttu margir frægir einstaklingar hús í Palm Springs: Elvis Presley, Bob Hope, Howard Huges, Lucille Ball og Greta Garbo, svo einhverjir séu nefndir. Palm Springs er sannkölluð vin í eyðimörkinni því þegar þangað er ek- ið birtist bærinn allt í einu iðgrænn í annars eyðilegum sandinum – pálmatré og fallegir garðar hvert sem litið er. Bærinn er um 110 mílur austur af Los Angeles, nánar tiltekið í Cochella-dalnum. Allt um kring standa fallegir fjallgarðar og hið tign- arlega fjall San Jacinto trónir þar fremst meðal jafningja. Í dag er Palm Springs hálfgerð sumarleyfisborg allt árið um kring enda veðurfarið með eindæmum gott. Við áttum þarna frábæra daga í steikjandi hita og sólskini. Á þessum árstíma er hitinn reyndar óbærilegur yfir hádaginn en þá var fjölskyldan dugleg við að leggja sig, föndra og lesa í loftkældu húsinu. Miðdóttirin, sem hefur að und- anförnu notað áhersluforskeytið ,,hval“ við öll möguleg tækifæri, lýsti veðurfarinu ágætlega: ,,Mamma, það er hvalheitt úti!“ Og þegar pabbi hennar gleymdi sér í sólinni sagði hún við hann: ,,Pabbi, þú ert orðinn hvalrauður!“ Hún varð líka ,,hvalreið“ í ferðinni en það er nú önnur saga. Á heimleiðinni urðum við fyrir því óhappi að það hvellsprakk hjá okkur. Dekkið bókstaflega tættist í sundur og voru því góð ráð dýr. Úti fyrir 46 stiga hiti og við stödd á miðri hraðbraut. Ungbarnið varð æft af bræði og eldri dæturnar orðnar al- veg ,,hvalpirraðar“. Við náðum að koma okkur út í veg- kant í æðandi umferðinni og bóndinn og tengdapabbi stukku út til að skipta um dekk. Bíllinn var að vonum drekkhlaðinn enda sjö manna fjölskylda á ferð og þegar skottið var opnað hrundi far- angurinn niður. Bleyjupakki, töskur og barnavagn. Æ, þið kannist við þetta. Epli nokkurt, sem af einhverjum ástæðum varðaði farangursstæðuna, rúllaði út á miðja akrein og minnstu munaði að afi yrði fyrir vöruflutn- ingabíl. Þegar hér var komið sögu starði tengdamamma í gaupnir sér skelf- ingu lostin. Það gekk nú heldur brösuglega að skipta um dekk því varadekkið reyndist vera ,,aumingi“ eins og tengdapabbi tók til orða og því ljóst að við yrðum að komast á verkstæði til að fá almennilegt dekk. Ég hef alltaf haft karlmenn grunaða um að hafa lúmskt gaman af því að skipta um dekk og ákvað því að gera örstutta samanburðarrannsókn. Ég spurði þá hvort væri nú skemmtilegra að skipta um dekk í 10 stiga frosti eða ríflega fjörutíu stiga hita og þeir svöruðu báðir að bragði heldur stuttaralega: ,,Betra í frosti.“ Þeir feðgar bogruðu þarna við bíl- inn góða stund og það bogaði af þeim svitinn. Til að svala þorstanum greip afi vatnsflösku aftan úr bílnum og tók sér vænan gúlsopa. Hann var nú fljótur að spýta því út úr sér því það reyndist vera hinn dí- sæti líkjör Amaretto. Amaretto nota ég stundum í feiknagóðan eftirrétt sem ég laga þegar vel liggur á mér. Við hröktumst áfram á ,,aumingj- anum“ á bílaverkstæði í nálægum smábæ. Bærinn heitir Redlands og máttum við dúsa þar í einn og hálfan tíma meðan nýju dekki var komið undir kaggann. Redlands virtist vera hálf- gerður draugabær, kannski sökum þess að það var miður dagur og flestir kannski innandyra vegna kæfandi hitans. Við plöntuðum okkur niður á skyndibitastað því ekki var öðru til að dreifa og sátum þar heldur fýld. Starfsstúlkan sem afgreiddi þar virt- ist ekki hafa séð nokkurn mann í fleiri daga og varð hálfhvumsa að vera búin að fá viðskiptavini. Það leið því tölu- verður tími frá því að við komum inn og þar til að hún kom og sinnti okkur. Innan skamms sátu allir þegjandi og borðuðu hamborgara. Rúmum klukkutíma síðar var bíll- inn loks tilbúinn og við lögðum í hann að nýju. Skapið var nú að skána í mann- skapnum enda allir mettir og fegnir að vera lausir úr smábæjarprísund- inni. Af óvæntum drykkjuskap afa er það helst að segja að honum varð nú ekki meint af. Hann mátti þó sitja undir því að vera kallaður Afi Amaretto það sem eftir lifði ferðarinnar sem og þola háðsglósur um það hvort runnið væri af honum. Við bentum honum ennfremur á að meðferðarstofnun Betty Ford væri ekki langt undan ef hann vildi leita sér hjálpar við nýtilkominni drykkju- sýki sinni. Það kemur ekki annað til greina en að eftirrétturinn góði mun hér eftir heita ,,Afi Amaretto“ og verður hægt að sækja uppskriftina á blogginu mínu innan tíðar. Gleðilegt sumar! Sumargleðin! Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hugsað upphátt MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 27 Síðumúla 3, sími 553 7355 Sumaropnun: Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15. Frábært úrval af undirfötum Aubade - Lejaby - Lepel - Pastunette Playtex - Wonderbra Spennandi sumarföt Hörfatnaður - Mussur - Mittisslæður Kjólar - Pils - Bolir Frábært úrval af sundfötum Bikinísett - Tankinísett - Sundbolir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.