Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 36

Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ 26. júní 1977: „Niðurstaða kjaradeilunnar varð sú, að hið pólitíska samsæri, sem foringjar stjórnarandstöð- unnar reyndu að efna til gegn ríkisstjórninni fór út um þúfur. Viljann skorti ekki hjá leiðtogum stjórn- arandstöðunnar, en þeir fengu ekki til liðs við sig þá sem máli skiptu og áhrif höfðu. Þess vegna hafa for- ingjar Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins verið framlágir undanfarnar vikur, eftir að þeim var orðið ljóst, að áform þeirra mundu fara út um þúfur. Málgögn þeirra, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn, hafa verið eins og vængstýfðir fuglar. Þessi blöð hafa ekkert haft að segja þann tíma, sem kjara- deilan hefur staðið yfir, til- burðir þeirra til þess að veita þessum pólitísku áformum stuðning hafa verið vanmáttúgir og veikburða.“ 28. júní 1987: „Á liðnu ári vóru lagðir um 280 km af bundnu slitlagi á þjóð- vegakerfið. Á síðastliðnum fjórum árum hafa verið lagð- ir 200 km slitlags að með- altali á ári. Bundið slitlag var komið á 1420 km áður en framkvæmdir líðandi sumars hófust, það er á um 45% af hringveginum og á 64% af leiðinni Reykjavík- Akureyri. Árlegur akstur okkar, sem áætlaður er um 580 milljónir kílómetrar, er að sex tíundu hlutum á bundnu slitlagi í dag. Það hefur því miðað vel til réttr- ar áttar. Vegirnir eru í vissum skilningi slagæðakerfi lands- ins. Þeir þjóna atvinnulífi landsmanna. Um þá fer hrá- efni á vinnslustað og full- unnin vara á markað. Þeir þjóna ekki síður félagslegum og menningarlegum þáttum í samskiptum landsmanna.“ . . . . . . . . . . 29. júní 1997: „Við sölu ís- lenzkra sjávarafurða höfum við lagt áherzlu á, að fisk- urinn sé veiddur á fiski- miðum við Ísland, þar sem mengun sé nánast óþekkt fyrirbæri og að neytandinn geti treyst því, að hann sé að kaupa vöru, sem sé hrein náttúruafurð, veidd og unnin í hreinu, mengunarlausu um- hverfi. Við kynningu á Íslandi, sem ákjósanlegum áfangastað fyrir erlenda ferðamenn höf- um við lagt áherzlu á sömu þætti, náttúru landsins, feg- urð þess, hreinleika, tært og heilsusamlegt andrúmsloft. Það þarf enga sérfræðinga til þess að átta sig á því að geymsla kjarnavopna í næsta nágrenni við okkur mundi gjörsamlega koll- varpa þessari ímynd Íslands og útflutningsafurða okkar.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. LAUNAMUNUR KARLA OG KVENNA Það er í raun óskiljanlegt að ennskuli standa yfir umræður umlaunamun á milli karla og kvenna. Ekki er vitað til að neinir að- ilar í samfélagi okkar berjist fyrir því að slíkur launamunur sé til staðar. Ekki er annað vitað en atvinnurek- endur séu almennt þeirrar skoðunar að fylgja eigi ákvæðum jafnréttislaga um sömu laun fyrir sömu vinnu. Engu að síður sýnir ný könnun Hagfræðistofnunar, Samtaka at- vinnulífsins og Par-X viðskiptaráð- gjafar IBM að óútskýrður launamun- ur karla og kvenna sé 10%. Hvað getur valdið? Þessar umræður hafa staðið ára- tugum saman. Og á þeim tíma hefur áreiðanlega eitthvað þokast í rétta átt. En í hvaða undirdjúpum undir- meðvitundar þeirra sem á hverjum tíma taka ákvarðanir um laun ein- staklinga á grundvelli gildandi kjara- samninga verður þessi launamunur til? Ekki er hann innbyggður í kjara- samningana. Og ekki byggist hann á lögum. Þessi launamunur getur ekki orðið til nema á hverjum vinnustað fyrir sig í einstökum ákvörðunum um kaup og kjör. Hvað gerist þar og af hverju? Í samtali við Morgunblaðið í gær segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, af þessu tilefni: „Við þurfum að fara yfir þetta af mikilli alvöru við samningaborðið, skoða hvað er til ráða og slá á þá strengi sem mönnum sýnast líkleg- astir til að þoka þessum málum áfram.“ Forseti ASÍ bætir því við að við- semjendur verkalýðshreyfingarinnar hafi áreiðanlega fullan vilja til þess að ná þessum markmiðum. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra segir í samtali við Morgunblaðið í gær: „Ég fagna innilega þessum um- mælum forseta ASÍ og tel að hann komist þarna að kjarna málsins; kyn- bundnum launamun verður ekki náð niður nema við samningaborðið.“ Í þessu máli er sú staða uppi að telja verður víst að nánast allir þjóð- félagsþegnar séu sammála um að karlar og konur eigi að hafa sömu laun fyrir sömu vinnu. Vinnuveitend- ur og verkalýðshreyfing eru sammála um þetta. Lögin í landinu segja að þannig skuli þetta vera. Við þessar aðstæður ætti ekki að vera erfitt að ná settum markmiðum en engu að síður virðist það vera erf- itt. Einhvern tíma munu menn horfa til baka og velta fyrir sér jafnréttisum- ræðum okkar tíma með sama hætti og við horfum til baka til þeirra tíma, þegar karlar einir höfðu atkvæðis- rétt. Í jafnréttismálum almennt á það sama við og um launamál karla og kvenna sérstaklega að allir eru sam- mála um að jafnrétti eigi að ríkja á milli karla og kvenna. Það eru engin þjóðfélagsöfl á ferð sem berjast gegn þeim sjónarmiðum. En samt sem áð- ur eiga þau erfitt uppdráttar. Væntanlega mun hin nýja skýrsla verða til þess að beina athyglinni enn einu sinni að þessu máli. Og líklegt má telja í ljósi ummæla forseta ASÍ að þau verði til umræðu í næstu kjarasamningum. Hitt sýnist augljóst að þau þurfi að koma til skoðunar á hverjum vinnu- stað fyrir sig vegna þess að þar verð- ur þessi launamunur til. Gera má ráð fyrir að mörg fyrir- tæki hafi látið kanna þessi mál sér- staklega hjá sér og komizt að þeirri niðurstöðu að þar sé ekki að finna kynbundinn launamun. En kannski þarf að skoða þessi mál einu sinni enn og sjá hvort einhvers staðar er að finna einhverjar vísbendingar um kynbundinn launamun sem ekki hef- ur komið fram við fyrri skoðanir. Það er engin afsökun fyrir kynbundnum launamun. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ M eirihluta lýðveldistímans byggðist utanríkisstefna Ís- lands á nokkrum meginatrið- um: nánu pólitísku samstarfi við önnur Norðurlönd, aðild Íslands að Atlantshafsbanda- laginu og varnarsamningnum við Bandaríkin og dvöl bandarísks varnarliðs hér á grundvelli hans. Náið pólitískt samstarf við önnur Norðurlönd byggðist og byggist á sameiginlegri sögu og menningarlegri arfleifð. Ísland gerðist einn af stofnaðilum Atlantshafsbandalagsins á þeim tíma, þegar ríki Vestur-Evrópu brugðust við til varnar gegn framsókn Sovétríkjanna á meginlandi Evr- ópu. Í legu landsins fólst hernaðarleg þýðing á tímum, þegar sovézkar herflugvélar voru á ferð beggja vegna Íslands og sovézkir kafbátar voru umsvifamiklir á Norður-Atlantshafi. Með dvöl bandaríska varnarliðsins var annars vegar öryggi Íslands tryggt á viðsjárverðum tíma og hins vegar gerði dvöl bandaríska varnarliðsins hér aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins kleift að fylgjast með umsvifum Sovétríkjanna á haf- svæðinu á milli Íslands, Noregs og Skotlands. Áþekk eftirlitsstarfsemi og stunduð var héðan fór einnig fram frá Noregi og herstöðvum á Bret- landseyjum. Eftir lok kalda stríðsins komust Bandaríkja- menn smátt og smátt að þeirri niðurstöðu að þeir þyrftu ekki á aðstöðu að halda hér. Sjónarmið þeirra endurspegluðust að verulegu leyti í viðhorf- um annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Þessir aðilar horfðu á málið út frá sínum hags- munum. Hinn þáttur málsins, þ.e. öryggi Íslands, hlaut hins vegar að vera efst á baugi hjá íslenzkum stjórnvöldum. Af þessum mismunandi sjónarmið- um leiddi nokkrar sviptingar á milli íslenzkra og bandarískra stjórnvalda. Enn þann dag í dag eru rússneskar herflugvélar á ferð á svæðinu í ná- munda við Ísland, þótt ekki sé í sama mæli og áð- ur. Nú líta hins vegar hvorki Bandaríkin né önnur ríki Atlantshafsbandalagsins á Rússland sem óvin, þótt mörgum hugnist ekki sú pólitík, sem Pútín, Rússlandsforseti rekur á heimaslóðum. Með endanlegri brottför bandaríska varnarliðs- ins frá Íslandi sl. haust urðu þáttaskil í utanrík- ismálum okkar Íslendinga. Þá skapaðist tómarúm, sem nauðsynlegt var að fylla nánast þegar í stað. Þáverandi ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði það með skjótum hætti. Í fyrsta lagi með samningum við Bandaríkin um að varnarsamningurinn sem slíkur yrði áfram í gildi, þótt skiptar skoðanir geti verið um það hvaða þýðingu það hafi. Í öðru lagi með samningum við Norðmenn og Dani um ákveðna eftirlitsstarfsemi á Norður-Atlantshafi og samstarf í þeim efnum og á öðrum sviðum ör- yggismála. Í þriðja lagi með því að taka upp við- ræður við Breta og Þjóðverja um samstarf við þær þjóðir á þessu sviði sem ekki hafa verið leiddar til lykta. Með þessum samningum og viðræðum var fyllt upp í það tómarúm, sem skapaðist í öryggismálum okkar Íslendinga að svo miklu leyti sem það var hægt. Jafnframt vísaði Björn Bjarnason dóms- málaráðherra veginn í öryggismálum okkar að öðru leyti með merkri og stefnumarkandi ræðu sem hann flutti sl. vor á fundi Samtaka um vest- ræna samvinnu. Það er því ekki hægt að segja að íslenzk stjórn- völd hafi setið aðgerðarlaus hjá eftir brottför Bandaríkjamanna heldur brugðizt við á þann veg sem hægt var. Þessi breytta staða í öryggismálum okkar Ís- lendinga mun leiða til þess, eins og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir utanríkisráðherra benti á fyrir nokkrum dögum, að í fyrsta sinn hljótum við Ís- lendingar að leggja fram fé til að tryggja eigið ör- yggi á fjárlögum næsta árs. Á þessari stundu ligg- ur ekkert fyrir um hversu mikið fé það verður. Ólafur Þ. Stephensen, hinn nýi ritstjóri Blaðsins og áður aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, fjallaði um þessa hlið málsins í blaði sínu í gær, föstudag, og sagði m.a.: „Útgjöld til varnarmála eru stór fjárlagaliður í öllum vestrænum ríkjum. Í öðrum ríkjum Atlants- hafsbandalagsins er miðað við að 2% af landsfram- leiðslu renni til landvarna. Ef Ísland legði álíka mikið til sinna varna, hefðu framlög til þeirra í fyrra numið um 22 milljörðum króna. Jafnvel þótt miðað sé við þau NATO-ríki önnur, sem verja minnstu fé til eigin varna, ættu varnarmálaútgjöld á Íslandi að vera um 17 milljarðar króna. Þá fyrst myndi nú líklega einhverjum hnykkja við.“ Um þessi útgjöld verða vafalaust miklar um- ræður við gerð fjárlaga síðar á þessu ári. Þó verð- ur að telja líklegt að málefnaleg samstaða verði á milli núverandi stjórnarflokka og Framsóknar- flokksins um þau málefni, sem mundi þá endur- spegla að verulegu leyti samstöðu lýðræðisaflanna um varnarmál á tímum kalda stríðsins, þótt innan- landspólitík hafi leitt Framsóknarflokkinn og að sumu leyti Alþýðuflokkinn á villigötur á ákveðnum tímabilum. Morgunblaðið hefur alla tíð verið þeirrar skoð- unar að við Íslendingar ættum að leggja meira fé til okkar eigin öryggis en við hneigðumst til að gera á sínum tíma. Morgunblaðið barðist gegn hinni svonefndu aronsku þegar hún skaut upp kollinum að ráði fyrir aldarfjórðungi en kjarni hennar var sá að við ættum að hafa eins mikla pen- inga út úr Bandaríkjamönnum og kostur væri vegna veru þeirra hér. Þegar í ljós kom að Íslenzk- ir aðalverktakar og áður Sameinaðir verktakar höfðu hagnazt um mikla fjármuni vegna fram- kvæmda á Keflavíkurflugvelli gagnrýndi Morgun- blaðið þá gróðasöfnun harðlega. En hún hafði leitt til þess að á Bandaríkjaþingi var litið á Ísland sem einhvers konar okurbúlu. Aðildin að NATÓ þá og nú E ins og fram hefur komið gerðumst við Íslendingar stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu á árinu 1949. Um þá ákvörðun urðu mikl- ar pólitískar sviptingar hér á Ís- landi og atlaga var gerð að Al- þingi 30. marz það ár eins og frægt er orðið. Atlantshafsbandalagið var stofnað eftir að Rauði her Sovétríkjanna hafði lagt undir sig hvert landið á fætur öðru í Austur-Evrópu. Þá var auðvitað spurningin sú, hvaða erindi þjóð, sem hafði yfir engum her að ráða ætti í bandalag, sem byggðist á hernaðarsamvinnu. Svarið við þeirri spurningu var, að hernaðarleg þýðing Íslands á þeim tíma væri svo mikil að sú staða væri í raun og veru að- gangseyrir okkar að bandalaginu. Ísland hafði hernaðarlega þýðingu bæði fyrir aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og Sovétrík- in. Fræg urðu þau ummæli Leníns að Ísland væri eins og skammbyssa, sem hægt væri að beina í tvær áttir. Í ljósi þess að Ísland hafði hernaðar- lega þýðingu fyrir Sovétríkin skipti máli að koma í veg fyrir að þessa litla lands og fámennu þjóðar biðu sömu örlög og ríkjanna í austurhluta Evrópu. Þess vegna skipti aðildin að Atlantshafsbandalag- inu máli fyrir Íslendinga sjálfa. Í áratugi byggðist aðild okkar að bandalaginu á þessari hernaðarlegu þýðingu landsins og fram á annað var ekki farið af hálfu Atlantshafsbandalagsins en að aðstaðan hér væri til staðar. Þessi aðstaða var svo þýðingarmikil, að í öllum þorskastríðum okkar við Breta blönduðu fram- kvæmdastjórar Atlantshafsbandalagsins sér í málið og samstarf þeirra og Hvíta hússins í Wash- ington tryggði okkur jafnan sigur að lokum. En nú eru breyttir tímar. Lega landsins hefur ekki sömu hernaðarlegu þýðinguna og áður. Það dugar ekki lengur að benda á að Ísland hafi slíka þýðingu fyrir önnur aðildarríki bandalagsins. Önnur aðildarríki bandalagsins spyrja hvert fram- lag okkar sé. Og allt í einu stöndum við frammi fyrir því að svara þeirri spurningu. Um þessa spurningu hafa ekki farið fram neinar umræður að ráði hér heima fyrir. Þótt íslenzk stjórnvöld hafi á undanförnum árum gert ákveðnar ráðstafanir til þess að bregðast við kröf- um annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hafa stjórnmálamenn ekki lagt þetta mál fyrir þjóðina á þann veg að upplýstar umræður gætu farið fram um það. Þær umræður verða að fara fram og eiga að fara fram í lýðræðisríki. Stjórn- málamennirnir geta ekki farið með þetta mál á þann veg að öðrum landsmönnum komi það ekki við. Viðleitni íslenzkra stjórnvalda til þess að mæta auknum kröfum innan Atlantshafsbandalagsins um framlag af hálfu Íslendinga til jafns við aðra til sameiginlegra varna og aðgerða bandalagsins hafa m.a. komið fram í þeim verkefnum sem við tókum að okkur á Kabúl-flugvelli í Afganistan á sínum tíma. Þá kom m.a. í ljós að þeir Íslendingar sem sendir eru til slíkra starfa búa ekki yfir þeim aga sem nauðsynlegur er í slíkum störfum. At- burðirnir í Kjúklingastræti í Kabúl á sínum tíma þegar 12 ára gömul stúlka frá Afganistan beið bana svo og rúmlega tvítug bandarísk kona vegna teppakaupa Íslendinga voru hneyksli, sem aldrei hefur verið rætt út um hér. Hafa Íslendingar borgað fjölskyldum þessara tveggja einstaklinga bætur? Ferð íslenzkra jeppasveita til Afganistan fyrir nokkrum misserum sem m.a. var rökstudd með því hvað við Íslendingar værum færir í að breyta jeppum og útbúa þá fyrir akstur við erfið skilyrði fékk skjótan endi í norðurhluta landsins. Í tölvu- bréfum sem meðlimir jeppasveitanna sendu starfsbræðrum sínum hér heima kom í ljós að vopnabúnaður þeirra var mun meiri en sagt hafði verið frá hér og aðstæður þeirra allt aðrar. Geir H. Haarde, þáverandi utanríkisráðherra, tók þá Laugardagur 23. júní Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.