Morgunblaðið - 24.06.2007, Page 47
aðist milli dimmra veggja. Aðstand-
endur, læknar og hjúkrunarfólk
stóðu iðulega úrræða- og ráðalausir
gagnvart þessum óvænta sjúkdómi
sem skyndilega lét á sér kræla, hjá
einstaklingum sem einskis áttu sér
ills von.
Enda þótt lækning í dag sé ekki
vandalaus hefur þekking manna sí-
fellt aukist og lyfjaiðnaðurinn hefur
fundið ný lyf sem slá á einkennin og
gera líðan flestra sem þjást vegna
þessa sjúkdóms mun þolanlegri. Er
þá boðlegt að nota lengur klof-
anafnið
Í dag þykir það oft góð andlitslyft-
ing og bætt ímynd fyrir félag að
skipta um nafn.
Oft tilheyrir gamla nafnið liðnum
tíma, annarri stefnu og viðhorfum.
Því skyldi ekki sama gilda um sjúk-
dóminn sem nefndur hefur verið
geðklofi á íslensku.
Heitið boðrof segir hins vegar lít-
ið, en er þó viðfelldnar en klof-
anafnið, ef lýsing á sjúkdómi á að
vera í nafni. Gott heiti má þó finna ef
gott fólk leitar í nafnakistunni sinni.
Berklar eru gott dæmi um vel
heppnað heiti á lungasjúkdómi. Það
var óttablandinn tónn í því nafni
þegar lækningameðul voru ófull-
komin. Nafn eins og lungnaklofi
hefði varla átt upp á pallborðið. Ein-
föld og stutt nöfn eru oft best. G13
eða G11 væru táknræn fyrir nú-
tímann, en ótal önnur góð nöfn væri
vert er að fá upp á yfirborðið.
Æskilegt væri ef Geðhjálp gæti
gengist fyrir nafnbreytingum og
leikmenn sem og þeir sem starfa við
heilbrigðismál gætu fylgt því eftir í
blöðum eða á opinberum vettvangi.
Grasrótarhreyfingin veit oft best
hvar skórinn kreppir. Nýtt nafn
myndi og auka aðkomu aðstandenda
og stuðningshópa sem stutt gætu við
endurhæfingu. Undirritaður hefur
borið þessa hugmynd undir fé-
lagssamtökin Geðhjálp og eru þau
reiðubúin að taka við athugasemd-
um, viðhorfum og hugmyndum þar
að lútandi á netfangið ged-
hjalp@gedhjalp.is
Breytum nafni á sjúkdómi nú á
100 ára afmæli Kleppsspítalans.
Ungt fólk sem á eftir að fá þennan
sjúkdóm á allt betra skilið en gamla
nafnið. Sjúkdómurinn gerir ekki boð
á undan sér og enginn veit hvar
hann ber niður næst
Höfundur er framkvæmdastjóri.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 47
Traustur aðili hefur falið Eignamiðluninni að leita eftir góðu
1300 til 2000 fm skrifstofuhúsæði undir eigin starfsemi á
góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Æskilegt er
að skrifstofur séu sem mest á einni hæð og að húsnæðinu
fylgi góðar geymslur og bílastæði. Afhending má vera 2008
eða 2009. Helst er leitað eftir eign til kaups en leiga kemur
til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir og Hákon
á skrifstofu Eignamiðlunarinnar.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Stangarhyl 5, sími 567 0765
Ítarlegar upplýsingar um
eignirnar á www.motas.is
Skipalón 22-26 á Hvaleyrarholti
2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir
á frábærum stað.
www.motas.is
Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
T
3
56
41
0
1/
07
Söluaðili:
> Glæsilegar íbúðir, fyrir 50 ára og eldri, í Hafnarfirði
Hvaleyrarholti
Sölusýning í dag
kl. 14:00 – 16:00
Skipalón
• Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu.
Ótrúlegt útsýni.
• Stórar stofur. Tvö baðherbergi, baðherbergi
inn af hjónaherbergi.
• Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og
uppþvottavél fylgja.
• Granít á borðum og sólbekkjum.
• Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu
íbúðunum.
• 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og
minniháttar tilefni).
• Þvottastæði í bílageymslu.
• Golfvöllur í göngufæri.
Verðdæmi:
• 2ja herb. m/ bílskýli
19.000.000 kr.
• 3ja herb. m/ bílskýli
26.000.000 kr.
• 4ra herb. m/ bílskýli
30.500.000 kr.
ATVINNUHÚSALÓÐ-AUÐVELD KAUP
Lóð til sölu : við Heiðargerði , rétt austan við Selfoss.
Stærð 5.921m² skv. FMR. Búið er að jarðvegsskipta og
leyfi liggur fyrir til að hefja byggingu 1225 m² húss sem
búið er að teikna. Nýtingarleyfi er þó meira ef vill.
Vinsamlega hafið samband í sala@firmus.is eða 694 3401
smáauglýsingar
mbl.is
Fréttir
í tölvu-
pósti