Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sölusýning í dag kl. 14.00 - 15.00
530 1800
Sælureitur í sveit - Stórkostlegt útsýni
Mjög vandað 102 fm 4ra herbergja heilsárshús á steyptum grunni. 6.700 fm kjarri
vaxin eignarlóð til móts við Kerið. 140 fm verönd í kringum húsið. Húsið er tilbúið
til afhendingar strax. Möguleiki á að taka íbúð upp í kaupverð. Einnig til sölu við
Dvergahraun tvær lóðir 10.800 fm og 11.700 sem liggja saman að skógræktar-
landi. Tilboð óskast.
Dvergahraun 18 - Miðengi - Grímsnesi
Akstursleið:
Fyrsta beygja til vinstri eftir að komið er framhjá Kerinu í Grímsnesi merkt
Miðengi – Ekið þaðan eftir merkjum Draumahúsa.
Upplýsingar gefur Ólafur í síma 824 6703.
Sumarhús Húsfelli
Kiðárbotnar 50
Elsa Björg
Þórólfsdóttir
Viðskiptastjóri
elsa@domus.is
s. 664 6013/440 6013
Mjög fallegt og vel viðhaldið 43,8 fm. sumarhús í Húsafelli. Húsið skiptist í forstofu, tvö
svefnherbergi, stofu, eldhús sem er opið inn í stofu og baðherbergi. Nýr og fallegur 120
fm pallur. Húsið stendur á 1ha leigulóð með fallegum og miklum gróðri. Vel staðsettur
bústaður í Húsafelli sem býður upp á alls konar afþreyingu t.d. golfvöll, hestaleigu,
sundlaug, verslun og fallegar gönguleiðir. Verð 10 millj.
Vinsamlegast hafið samband við eigandann í síma 843-0856 sem tekur á móti
gestum sunnudaginn 24. júní milli kl. 12 og 15.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14:00-16:00
DREKAVELLIR 24a, 3. HÆÐ
Í einkasölu falleg og björt, 92,5 fm, 3ja herb. íbúð á 3. hæð (efstu) í ný-
byggðu, fallegu fjölbýli. Húsið er steypt og klætt að utan með málmi.
Anddyri með skáp. Eldhús opið í stofu, falleg innrétting úr birki með
stáltækjum, þvottahús inn af eldhúsi. Stór og björt stofa/borðstofa,
útgengt á stórar svalir til suðurs, fallegt útsýni. Tvö góð herbergi, ann-
að með skáp. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturtuklefi.
Geymsla innan íbúðar. Á baði og þvottaherbergi eru flísar, önnur gólf
með parketi. Sameign er öll til fyrirmyndar. Falleg lóð með leiktækjum
fyrir börnin. Stutt er í skóla, verslanir og alla aðra þjónustu. Verð 22,2
millj.
Verið velkomin í dag milli 14:00 og 16:00
Atli tekur á móti gestum
Traust þjónusta í 30 ár
OPIÐ HÚS, BAUGAKÓR 19 – 23 ÍBÚÐ 0101
SUNNUDAGINN 24. JÚNÍ
BAUGAKÓR - MEÐ BÍLSKÝLI
Vorum að fá í sölu glæsilega
4ra herb. endaíbúð við Bauga-
kór í Kópavogi. Íbúðin er 132
fm og er fullbúin með eikar-
parketi á öllum gólfum nema á
forstofu, baði og þvottahúsi,
þar eru flísar. Íbúðin er með fal-
legum, ljósum eikarinnrétting-
um og er tilbúin til afhending-
ar við kaupsamning. Sérmerkt
stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Verð 34,5 millj.
Davíð sýnir íbúðina í dag, sunnudaginn 24. júní, milli kl. 15 og 16.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
URRIÐAKVÍSL - FALLEGT ÚTSÝNI
Vorum að fá í einkasölu fallegt og vel viðhaldið 185 fm ein-
býlishús ásamt 31 fm bílskúr eða samtals 215 fm. Húsið er
hæð og ris og eru 6 herbergi, eldhús með nýjum efri skáp-
um og tækjum, þvottahús, baðherbergi ásamt stofu og
borðstofu með útg. út á stóra timburverönd með heitum
potti. Glæsilegur garður með fjölbreyttum gróðri. Hiti í bíla-
plani og stéttum fyrir framan hús. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu GIMLI. Verð 71,9 millj.
Traust þjónusta í 30 ár
Borgartúni 29, 105 Rvk.
Sími 510 3800 • husavik.net
Reynir Björnsson lögg. fasteignasali
Fallegt og frábærlega staðsett 223,4 fm steinhús sem skiptist í tvær samþykktar
íbúðir með sameiginlegum inngangi. Annars vegar er um að ræða 5 herbergja
94,9 fm hæð og ris sem skiptist í tvær stofur, rúmgott eldhús, þrjú svefnherbergi
og rúmgott baðherbergi með þakglugga. Íbúðin er með svölum til suðurs og
hurðum í gömlum stíl og fallegri gluggasetning. Verð 27,9 millj. Hins vegar er
um að ræða 5 herbergja 128,5 fm íbúð á tveimur hæðum sem skiptist í tvær
stofur, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Frá íbúðinni er gengið út í
sameiginlegan hellulagðan og skjólgóðan garð til suðurs. Verð 32 millj.
Nánari upplýsingar veita Reynir Björnsson hjá Húsavík fasteignasölu
og Einar Guðmundsson hjá Heimili fasteignasölu.
Síðumúla 13, 108 Rvk.
Sími 530 6500 • heimili.is
Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson
og Bogi Pétursson, löggiltir fasteignasalar.
Hallveigarstígur 4 - tvær íbúðir
GAGNRÝNENDUM kvótakerf-
isins hefur bæst nýr og öflugur liðs-
maður. Sá heitir Sturla Böðvarsson
og er forseti alþingis og fyrrverandi
samgönguráðherra. Þetta er mikið
fagnaðarefni, ekki síst vegna þess, að
Samfylkingin hefur að verulegu leyti
brugðist í baráttunni gegn kvótakerf-
inu undanfarin misseri. Fyrir kosn-
ingarnar 2003 barðist Samfylkingin
af miklum þrótti gegn hinu rangláta
kvótakerfi og setti fram skýrar hug-
myndir um það hvernig ætti að vinda
ofan af því. En fyrir kosningarnar
núna minntust frambjóðendur Sam-
fylkingarinnar varla á kvótakerfið og
lítið sem ekkert er að finna um það í
stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar.
Olli það mér miklum vonbrigðum að
ekki skyldu vera ákvæði í stjórn-
arsáttmálanum um endurskoðun
kvótakerfisins. Hið eina sem þar var
að finna var að athuga ætti hver áhrif
kerfisins hefðu verið á byggðir lands-
ins. Það þarf ekki að athuga það. Það
liggur fyrir t.d. á Flateyri og vítt og
breitt um byggðir landsins. Þar er
sem sviðin jörð eftir afleiðingar
kvótakerfisins. Stór útgerðarfyr-
irtæki hafa keypt upp fiskiskipin
ásamt kvóta í smærri byggðum um
allt land og farið síðan á brott með
kvótann og skilið byggðirnar eftir
kvótalausar. Það var ekki ætlunin
þegar kvótakerfið var sett á fót, að
þetta yrðu afleiðingar kerfisins. Þess
vegna þarf að endurskoða kerfið eða
lögleiða nýtt. Sturla Böðvarsson hef-
ur hér lög að mæla.
Samfylkingin lagði mikla áherslu á
það fyrir kosningar, að ójöfnuður
hefði aukist mikið í þjóðfélaginu m.a.
vegna tilkomu kvótakerfisins. Sam-
fylkingin kvaðst vilja leiðrétta þenn-
an ójöfnuð. Það er unnt að gera með
aðgerðum í skattmálum, málefnum
almannatrygginga og með leiðrétt-
ingu á kvótakerfinu. Ákvæði eru í
stjórnarsáttmálanum um leiðrétt-
ingar í skattmálum og á almanna-
tryggingum en ekki varðandi kvóta-
kerfið. Það eru mikil vonbrigði. En
kvótamálinu verður ekki sópað undir
teppið. Ef ríkisstjórnin ætlar ekki að
leiðrétta þetta rangláta kerfi mun
þjóðin taka til sinna ráða. Ræða
Sturlu Böðvarssonar er til marks um
það að í öllum flokkum sjá menn
ranglæti þessa kerfis og menn sjá
einnig nú, að kerfið hefur ekki dugað
til þess að vernda þorskstofninn. Haf-
rannsóknastofnun leggur nú til að
veiðarnar verði skornar niður um
þriðjung á næsta fiskveiðiári og að-
eins verði leyft að veiða 130 þúsund
tonn í þorskígildum. Tillaga Hafró
leiðir í ljós, að ástand fiskistofnanna
er mjög slæmt eftir að kvótakerfið
hefur verið við lýði um langt skeið.
Kerfinu hefur mistekist að vernda
fiskistofnana. Kerfinu hefur mistekist
ætlunarverk sitt en það hefur innleitt
mikið ranglæti í íslenskt samfélag,
fært mikil auðæfi á fárra hendur og
„lögleitt“ stórfellt brask með veiði-
heimildir, sem verður að stöðva.
Ástandið á Flateyri og raunar í
Vestmannaeyjum líka hefur opnað
augu marga fyrir því að þetta kvóta-
kerfi getur ekki gengið lengur. Því
verður að gerbreyta eða afnema það
á vissum aðlögunartíma. Þó rík-
isstjórnin sjái þetta ekki þá sér allur
almenningur það. Ég segir eins og
Sturla Böðvarsson: Það verður að
stokka fiskveiðistjórnarkerfið upp ef
byggðir landsins eiga ekki að hrynja.
Kvótamálinu verður
ekki sópað undir teppið
Björgvin Guðmundsson skrifar
um kvótakerfið
» Ástandið á Flateyriog raunar í Vest-
mannaeyjum líka hefur
opnað augu margra fyr-
ir því, að þetta kvóta-
kerfi getur ekki gengið
lengur.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.