Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 52

Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA E inu sinni var drottn- ing. Í garði hennar mátti finna skraut- leg blóm á öllum tíma árs. Þau voru frá öllum löndum í heimi, en henni þótti vænst um rósir. Hún átti líka fjölbreyttastar tegundir af þeim, frá villtu rós- inni, með ilmandi, grænu blöð- unum, til hinna dásamlegu Pro- vence-rósa. Þær spruttu upp með torfgörðum, vöfðu sig í kringum stoðir og glugga, inn um göngin, og upp með loftinu í öllum söl- unum. Rósirnar vóru með alls- konar lögun, lit og ilm. En samt átti áhyggja og sorg heima í þessum sölum. Drottn- ingin var veik, og læknarnir sögðu hún hlyti að deyja. „Það er aðeins eitt, sem getur hjálpað henni,“ sagði hinn vitrasti læknir. „Komið með þá inndæl- ustu rós, sem heimurinn á, þá, sem táknar hinn skærasta og hreinasta kærleika. Ef þeirri rós er brugðið fyrir augu hennar, áð- ur hún lokar þeim, þá mun hún ekki deyja.“ Þá komu ungir og gamlir úr öll- um áttum með rósir, þær inndæl- ustu, sem til voru í hverjum garði. En þær voru ekki hinar réttu. Rósin átti að koma úr garði kær- leikans, en hver rósin úr þeim garði var það, sem táknaði hinn æðsta og hreinasta kærleika? Skáldin kváðu um hina inndæl- ustu rós í heimi, og hvert gaf sinni rós nafn. Boð voru send til hvers manns, í hvaða kringumstæðum sem hann var, og til hvers einasta hjarta, sem barðist í kærleika. Þá sagði hinn vitri maður: „Enginn hefur enn nefnt nafn blómsins né þann stað, er það blómstrar í allri sinni dýrð. Það eru ekki rósir af gröf Rómeós og Júlíu, eða af gröf Valborgar, þó þær verði ætíð ilmandi í ljóðum. Það eru ekki rósir, sem sprungu út af blóðblettuðum spjótum Vin- kelreds, né úr blóði því, er rennur úr hjartasári hetjunnar, sem deyr fyrir hið helga málefni föð- urlandsins. Þó er enginn dauði ljúfari en sá, og engin rós rauðari en blóðið, sem þá rennur. Ekki er það heldur hið töfrandi blóm vís- indanna, sem mennirnir helga marga svefnlausa nótt, og mikið af lífi sínu.„ Þá kom glöð móðir að rúmi drottningarinnar með fallega barnið sitt og sagði: „Eg veit, hvar hún blómgast, eg veit, hvar inndælustu rósina í heimi er að finna! Rósin, sem táknar hinn æðsta og hreinasta kærleika, blómgast á rjóðu kinnunum á barninu mínu ljúfa, þegar það andar vært í svefni, opnar augun og brosir til mín í allri sinni elsku. „Inndæl er þessi rós, en til er önnur enn fegri,“ sagði læknirinn. Þá sagði ein kona: „Miklu hreinni og indælli rós er til; hana hef eg séð á kinnum drottning- arinnar. Hún hafði tekið af sér gullkórónuna og gekk um gólf, langa og raunalega nótt, með barnið sitt veikt í fanginu. Hún kyssti það, grét og bað fyrir því eins og góð móðir biður á sinni angistarstundu.“ „Heilög og undrunarleg er hin hvíta rós sorgarinnar, en ekki er það hún, sem hér á við,“ sagði vitringurinn. „Nei, hina inndælustu rós í heimi sá ég við altari drottins,“ sagði hinn góði gamli biskup. „Eg sá hana skína eins og engils ásjóna hefði birzt mér. Ungling- arnir nutu hinnar helgu kvöld- máltíðar „hins nýja sáttmála,“ og rauðar og hvítar rósir blómguðust á kinnum þeirra. Þar stóð ung stúlka; hún leit upp til himins með öllum hreinleik og elsku sinnar ungu sálar. Það var rós hins æðsta og hreinasta kærleika.“ „Blessuð veri hún,“ sagði hinn vitri maður; en engin ykkar hefur enn nefnt þá inndælustu rós í heimi.“ Þá kom inn í herbergið barn, litli sonurinn drottningarinnar. Tárin stóðu í augum hans og glitr- uðu sem perlur á kinnum hans; hann var með opna bók, stóra í flauelsbandi með silfurspennum. „Mamma! Mamma!“ hrópaði litli drengurinn. „Heyrðu bara, hvað eg hef lesið!“ Og barnið settist niður við rúm- ið og fór að lesa í bókinni um hann, sem leið kvalir og dauða á krossinum til að frelsa mennina, og líka þá, sem ekki voru enn fæddir. Meiri elsku hefur enginn til. Þá breiddist rósbleikur blær um kinnar drottningarinnar; augu hennar tindruðu, því hún sá, að út af blöðum bókarinnar blómgaðist inndælasta rósin í heimi, sú rós, er spratt upp af blóði Jesú Krists, sem út hellt var á krossinum. „Ó, eg sé hana,“ sagði drottn- ingin og hver, sem lítur þessa inn- dælustu rós á jarðríki, mun aldrei deyja. Rósin sigurdur.aegisson@kirkjan.is Tími blómanna flestra er í algleymingi um þess- ar mundir, á hátíð Jóhannesar skírara, Jóns- messunni. Sigurður Ægisson rakst á í blaði frá 1903 eftirfarandi sögu eftir H. C. Andersen sem hæfir deginum, um indælustu rósina í gjörv- öllum heiminum. Ljósmynd/Sigurður Ægisson MINNINGAR ✝ Systir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HERDÍS HELGADÓTTIR, Tómasarhaga 55, áður Eyjabakka 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 26. júní kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Geðhjálp njóta þess. Skúli Helgason, Hrafn Helgi Styrkársson, Sveinbjörn Styrkársson, Willy Johannes, Auður Styrkársdóttir, Svanur Kristjánsson, Snorri Styrkársson, Kristrún Ragnarsdóttir, Unnur Styrkársdóttir, Sveinn Bragason, Herdís Styrkársdóttir, Jón Ágúst Reynisson og barnabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, STELLA ÁRNADÓTTIR, Miðtúni 7, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 19. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 25. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Böðvar Jónsson. ✝ Jón LevíBjarnason fæddist á Uppsölum í Vestur-Húna- vatnssýslu 27. maí 1929. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut föstu- daginn 1. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Margrét Ingibjörg Sigfús- dóttir kennari, f. 29. september 1891, og Bjarni Björnsson bóndi, f. 21. febrúar 1890. Systkini Jóns eru Sigfús for- stjóri, f. 4. maí 1913, d. 19. sept- ember 1967, Ragnheiður Ingi- björg húsmóðir, f. 26. júní 1917, d. 7. desember 1985, Ásgerður Guð- finna húsmóðir, f. 1. janúar 1920, d. 3. október 1985, Björn bóndi, f. 3. júní 1921, d. 13. maí 1997, El- ínborg Jóhanna húsmóðir, f. 27. desember 1925, Svavar Bragi raf- virkjameistari, f. 25. nóvember 1931, og Ólöf húsmóðir, f. 30. júní 1934. Jón kvæntist árið 1958 Stein- unni Þuríði Hansen sölufulltrúa, f. á Siglufirði 9. september 1933, 2005. 4) Margrét, lögfræðingur og sérkennslufræðingur, f. 28. sept- ember 1959, var gift Auðuni Svav- ari Sigurðssyni lækni. Sonur þeirra er Jón Auðun Auðunarson, f. 26. mars 1983. Eiginmaður Mar- grétar er Gregg Ward fram- kvæmdastjóri. Börn þeirra eru Emily Anne, f. 14. október 1995, og Michael Patrik, f. 20. desember 1996. 5) Björn, grafískur hönn- uður, f. 12. apríl 1965. Dóttir hans og Ástu Björnsdóttur grunnskóla- kennara er Margrét Birna, f. 18. október 1986. Kona Björns er Anna Karen Jörgensdóttir, graf- ískur hönnuður. Börn þeirra eru Bjarni, f. 8. nóvember 2000, og Sólveig, f. 15. maí 2005. Að fullnaðarprófi loknu gekk Jón í Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði 1945 til 1947, í Sam- vinnuskólann 1947 til 1949 og lauk þaðan samvinnuskólaprófi. Hann stundaði búfræðinám í Sví- þjóð 1952 til 1953. Jón var versl- unarstjóri hjá Heklu hf. um ára- bil. Hann stofnaði síðar og rak eigin matvöruverslun og fast- eignasölu í nokkur ár. Þá stund- aði hann leigubifreiðaakstur og útgerð leigubifreiða í um ald- arfjórðung, auk bygginga- starfsemi. Útför Jóns var gerð frá Graf- arvogskirkju 12. júní. dóttur hjónanna Margrétar Finn- björnsdóttur hús- móður og Rudolfs Theil Hansen klæð- skerameistara. Þau slitu samvistir árið 2000. Börn þeirra eru: 1) Tómas skurð- læknir, f. 10. júní 1952, kvæntur Haf- dísi Aradóttur hjúkr- unarfræðingi. Börn þeirra eru: Ægir, f. 20. júní 1981, Anna, f. 17. febrúar 1983, og Steinunn, f. 16. nóvember 1986. 2) Svavar Bragi framhalds- skólakennari, f. 3. febrúar 1957, kvæntur Imeldu M. Jónsson grunnskólakennara. Dætur þeirra eru Elísabet Margrét, f. 21. janúar 1998, og Anna Margrét, f. 5. mars 2006. 3) Bjarni dósent, f. 29. júní 1958, var kvæntur Björgu Ólafs- dóttur grunnskólakennara. Dætur þeirra eru Ólöf, f. 10. júní 1982, Steinunn Þuríður, f. 10. júlí 1986, og Margrét, f. 2. janúar 1990. Son- ur Bjarna og Sesselíu Kristínar Sigurðardóttur ráðningarfulltrúa er Hjalti Björn, f. 12. nóvember Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtu m okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. /// Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skín inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar, pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Kveðja, börnin. Hann afi Dvergó lést 1. júní síð- astliðinn á Landspítalanum við Hringbraut. Við Magga systir vor- um hjá honum þegar hann fór. Það gerðist ótrúlega hratt, allt í einu var hann ekki lengur hjá okkur, það varð breyting á andrúmsloft- inu inni í herberginu, allt varð ró- legra. Hann sagði mér frá draumi ekki alls fyrir löngu: Hann var komin heim í sveitina í gamla bæinn og gekk inn á svefnloftið. Þar voru saman komin móðir hans og faðir og þau systkini hans sem höfðu látist á undan honum. Mamma hans sagði við hann brosandi: „Ertu nú kominn Jón minn, við höfum verið að bíða eftir þér.“ Ég sagði viðstöddum frá draumnum á spítalanum stuttu áð- ur en hann lést og ég vona að hann hafi heyrt mig segja frá honum og að hann sé kominn heim. Hann kallaði okkur söstrene og við kölluðum hann afa í Dvergó því hann átti lengi heima í Dverg- hömrum. Við munum ekki eftir honum öðruvísi en í skyrtu og með bindi. Sama hvað hann var að gera, sitja í eldhúsinu með sígó í annarri og kaffibolla í hinni, keyra bílinn eða standa í einhverskonar fram- kvæmdum. Hann var alltaf mjög snyrtilegur til fara. Rakaði sig á hverjum degi og fór í hausbað. Hann afi reykti mjög mikið, okk- ur fannst viðeigandi að stórreyk- ingamaðurinn hefði valið 1. júní til að kveðja, daginn sem reykinga- bannið gekk í gildi. Afi var leigubílstjóri lengi vel, hann var alltaf til í að skutla okkur og rataði um allt. Það eru margar minningar tengdar afa Dvergó og bílnum hans. Þegar við vorum litl- ar var baksýnisspegillinn mynda- vél og hann sagði okkur að brosa svo hann gæti tekið mynd. Hann sagði líka að bílinn rataði um allt og að hann þyrfti bara að segja honum hvert hann ætti að fara. Ég bjó hjá ömmu og afa í Dvergó fyrsta árið mitt í FB. Afi vakti mig á morgnana, var þá bú- inn að hita vatn í kakó og setja brauð í ristavélina svo ég gæti smurt gullostinum og sultu sem hann passaði að væru til, síðan keyrði hann mig úr Grafarvoginum upp í Breiðholtið í skólann. Hann Jón Leví Bjarnason ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, HULDA KRISTJANA LEIFSDÓTTIR, Giljaseli 11, Reykjavík, er lést þann 17. júní, verður jarðsungin frá Selja- kirkju, þriðjudaginn 26. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð hjúkrunarþjónustu Karitas í síma 551 5606 á milli kl. 9 og 10. Stefán Jón Sigurðsson, Steinunn Bóel Stefánsdóttir, Leifur Geir Stefánsson, Steinunn Jónína Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.