Morgunblaðið - 09.08.2007, Side 45

Morgunblaðið - 09.08.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 45 STYTTIST nú óðum í að bíógrúsk- arar og aðrir áhugasamir geti vaðið í hið kræsilega kvikmyndahlaðborð Bíódaga Græna ljóssins. Sýningar á síðustu fimm kvikmyndum hátíð- arinnar hafa nú verið staðfestar, en samtals verða átján myndir sýndar. Hinar síðustu til þess að bætast í hópinn eru eftirfarandi verk: Goya’s Ghost Nýjasta þrekvirki sjenísins Milos Forman (Man on the Moon, The People Vs. Larry Flint, Amadeus). Fjallar um skrautlega ævi spænska listmálarans Francisco Goya. Na- talie Portman og Stellan Skarsgard eru í aðalhlutverkum. Hallam Foe Leikstýrt af Young Adam. Jamie Bell (Billy Elliot) þykir fara á kost- um í gefandi og bráðskemmtilegri þroskasögu. Myndin hlaut Silf- urbjörninn í Berlín fyrr á árinu. Cocaine Cowboys Þessi heimildarmynd þykir hreint þrælmögnuð. Hún segir sögu eiturlyfjadreifingar í Miami Banda- ríkjanna á 9. áratugnum, en þá grasseraði spilling á strætum borg- arinnar, morð voru daglegt brauð og peningaþvætti tíðkaðist. Að sögn þykir grimmd og óvægni mynda á borð við hina rómuðu Scarface frá 1983 blikna í samanburði við Kók- aínkúreka, enda hér talað við raun- verulega glæpamenn sem stóðu fyr- ir hinni ógnvekjandi starfsemi. Og þeir skafa hvorki utan af hlutunum né sykurhúða frásagnirnar. Going to Pieces: The Rise and Fall of the Slasher Film Á fyrstu fimm mínútum þessarar heimildarmyndar getur að líta stungur, afhöfðun, leigumorð og kyrkingu; myndin segir enda sögu hinna svokölluðu „slasher“- eða „slátrara“-mynda, uppgang þeirra og fall, og áhrif á samfélagið. Þessi er ekki fyrir viðkvæmar sálir. Shortbus Þessi mynd þykir opinská, ögr- andi og beinskeytt. Hún fjallar um fáeina New York-búa sem leggjast í rannsóknir á eigin kynferði og til- veru í frægum neðanjarðarklúbbi. Þykir ekki henta viðkvæmum. Frekari upplýsingar um myndir hátíðarinnar, tilboð og sýning- artíma má nálgast á heimasíðu Græna ljóssins, www.graenaljos- id.is. Dagskrá Bíódaganna ljós Draugur Goya Myndin fjallar um skrautlega ævi spænska listmálarans Francisco Goya. Meðal leikarar eru Natalie Portman og Stellan Skarsgaard. STÆRSTA MYND SUMARSINS THE TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára NANCY DREW kl. 8 - 10 B.i. 7 ára HARRY POTTER 5 kl. 5 B.i. 10 ára / AKUREYRI THE TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára NANCY DREW kl. 10 B.i. 7 ára THE SIMPSONS kl. 6 - 8 LEYFÐ / KEFLAVÍK FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS 48.000 GESTIR SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI eeee FGG - Fréttablaðið eeee ÓHT - Rás2 eeee Morgunblaðið 47.000 GESTIR HLJÓÐ OG MYND THE TRANSFORMERS kl. 6:45 - 9:20 B.i. 10 ára THE SIMPSONS kl. 7 - 9 LEYFÐ / SELFOSSI NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HLJÓÐ OG MYND WWW.SAMBIO.IS Skartgripir Fjallkonunnar í Reynomatic. Myndlistarsýning Reynis Þorgrímssonar í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal. Opið til 12. ágúst. BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin HBO hefur keypt heimildarmynd- ina Sand and Sorrow, eða Sandur og sorg, sem segir af þjóðarmorð- inu í Darfúr-héraði í Súdan, sem hófst árið 2003. Stöðin ætlar að frumsýna myndina í desember á þessu ári. Sögumaður myndarinnar er Hollywood-leikarinn George Cloo- ney, sem hefur verið ötull bar- áttumaður fyrir því að alþjóða- samfélagið grípi til aðgerða og stöðvi frekari morð og ofbeldisverk í héraðinu. Paul Freed- man, höfundur myndarinnar, segir ástandið í Darfúr að miklu leyti afkiptaleysi alþjóðaamfélags- ins að kenna. Vernda þurfi milljónir manna fyrir ríkisstjórn landsins og vígasveitum hennar. Í myndinni eru m.a. sýndar fjölda- grafir í Darfur og flóttamannabúð- ir við landamæri Súdan og Tsjad, rætt við leiðtoga uppreisnarmanna, bandaríska þingmenn o.fl. Sandur og sorg George Clooney

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.