Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu hafði afskipti af um 100 einstaklingum
víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í fyrrinótt.
Fíkniefnalögreglumenn nutu liðsinnis sérsveitar-
manna og lögðu þeir hald á nokkurt magn af am-
fetamíni, kókaíni, hassi og e-töflum í neyslu-
skömmtum. Sex voru handteknir grunaðir um
vörslu og neyslu fíkniefna. Í tengslum við málin
var lagt hald á tvo stóra hnífa, en samkvæmt
vopnalögum er bannað að hafa bitvopn í vörslum
sínum ef blaðið er lengra en 12 sentimetrar.
„Þessar aðgerðir eru liður í áætlunum embætt-
isins um að gera miðbæinn að friðsælli og örugg-
ari stað. Lögreglumenn úr fíkniefnadeildinni eru
að vinna eftir ákveðnu skipulagi og fyrstu aðgerð-
inni var hleypt af stokkunum aðfaranótt laug-
ardags,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Að hans sögn mun deildin standa fyrir
sérstöku fíkniefnaeftirliti þar til málin eru komin í
ásættanlegan farveg að mati deildarinnar.
14 kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt
Annar liður í aðgerðum lögreglu varðandi
bætta ásýnd miðbæjarins lýtur að brotum á lög-
reglusamþykkt Reykjavíkur. Í fyrrinótt voru 14
kærðir fyrir brot á samþykktinni, en þeir höfðu
verið staðnir að verki við að kasta af sér vatni á al-
mannafæri, brjóta glerflöskur og fleira í þeim
dúr. 10 gengust við sektargerð á lögreglustöð en
þeir sem það gerðu ekki voru yfirheyrðir af lög-
reglu og sleppt að því loknu. Þá lagði lögreglan,
líkt og um liðna helgi, mikla áherslu á sýnileika og
viðveru í miðbænum og segir Karl Steinar að þeir
sem leggi leið sína um miðborgina verði varir við
sýnilegri og vonandi virkari löggæslu en verið
hefur.
En hvernig skyldu viðbrögð almennings hafa
verið við átakinu? „Maður hefur heyrt það hjá
lögreglumönnum að viðbrögðin hafi verið mjög já-
kvæð. Fólk gefur sig á tal við þá, þakkar þeim fyr-
ir og hvetur þá til dáða. Við áttum satt að segja
frekar von á því að við fengjum athugasemdir í
hina áttina, en ég held að fólk sé einfaldlega orðið
langþreytt á þeirri hegðun sem viðgengst í bæn-
um um helgar og virðist því tilbúið að styðja við
bakið á lögreglunni þegar hún ákveður að taka til
hendinni,“ segir Karl Steinar að lokum.
Lögreglan gefur ekkert
eftir í miðbæjareftirlitinu
Afskipti höfð af 100 manns í tengslum við fíkniefnaeftirlit og sex handteknir
ÖKUMAÐUR og farþegi fólksbif-
reiðar sluppu með skrámur eftir að
bifreiðinni hafði verið ekið á stein-
steyptan vegstólpa við Vogaafleggj-
ara og út af veginum. Lögreglu barst
tilkynning um útafaksturinn á fimmta
tímanum aðfaranótt laugardags og
var tvímenningunum ekið á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðin
er talsvert skemmd eftir óhappið.
Lítið var um útköll hjá lögreglunni
á Suðurnesjum þessa næturvaktina,
en þeim mun meira bar á frumkvæð-
isvinnu lögreglumanna. Þannig var
einn ökumaður tekinn fyrir að aka
bifreið undir áhrifum áfengis og fjórir
fyrir að aka of hratt. 34 ökumenn
voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunn-
ar þar sem þeir fylgdu ekki fyrirmæl-
um reglugerðar um gerð og búnað
ökutækja. Flestir voru þeir á ein-
eygðum ökutækjum og áminnti lög-
regla hlutaðeigandi. Þá var ökumaður
stöðvaður á Mánagötu í Grindavík en
sá ók á öfugum vegarhelmingi með
þokuljósin tendruð, auk þess sem
hann var ekki með ökuskírteinið með-
ferðis.
Útafakstur
og eineygð-
ar bifreiðar
LÍTIÐ en óvenjusnöggt hlaup varð í
Múlakvísl sl fimmtudag. Oddur Sig-
urðsson, jarðfræðingur hjá vatna-
mælingum Orkustofnunar, sagði í
samtali við fréttavef Morgunblaðs-
ins að hann hefði flogið yfir svæðið á
föstudaginn og séð að tvö minni lón
við Huldufjöll hefðu tæmst. „Hlaupið
var ekki stórt en það var sérkenni-
legt í laginu eins og það kemur fram
á línuritum,“ sagði Oddur. Hann
bætti því við að leiðni í vatninu hefði
ekki aukist. „Ef leiðni eykst í vatninu
er það merki um að það stafi af jarð-
hita,“ sagði hann.
Oddur sagði að áður en hann flaug
yfir svæðið hefði verið talið líklegast
að flóðið væri framrás lóns sem hefði
verið stíflað af jökli og sloppið út.
„Í austanverðum Mýrdalsjökli er
mesti skriðjökullinn, Kötlujökull, og
í honum eru fjöll sem heita Huldu-
fjöll. Þar stíflar jökullinn nokkur lítil
lón og ég sá úr flugvélinni að að
minnsta kosti tvö þeirra hafa tæmst
nýlega,“ sagði Oddur og bætti við að
allar líkur bentu til að þar væri skýr-
ing hlaupsins komin.
Snöggt
hlaup í
Múlakvísl
HALDIÐ hefur verið upp á sextíu ára afmæli Selfossbæjar nú um helgina og
hefur mikið verið um dýrðir í bænum. Afmælishátíðin var sett á föstudags-
kvöld í miðbæ Selfoss þar sem fyrirhugaður bæjargarður verður samkvæmt
nýju miðbæjarskipulagi. Farið var í skrúðgöngu og um kvöldið var
skemmtidagskrá á Hótel Selfossi. Í gær var opnuð ljósmyndasýning meðal
annars en hátíðahöldunum lýkur í dag, sunnudag.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sextíu ára afmælishátíð Selfoss
♦♦♦
„ÞAÐ má segja að þessi fundur
hafi verið upptakturinn að und-
irbúningi fyrir næstu samnings-
gerð,“ segir Aðalheiður Stein-
grímsdóttir, formaður Félags
framhaldsskólakennara. Formenn
kennarafélaga í framhaldsskólum
landsins mæltu sér mót á föstu-
dag og ræddu kjaramál og önnur
viðamikil mál daglangt. „Það er að
koma fram ákveðin launaþróun í
framhaldsskólum sem menn eru
ekki sáttir við. Við höfum í raun
miklar áhyggjur af þróuninni,“
segir Aðalheiður. Hún segir að
þegar framhaldsskólakennarar
hafi samið við ríkið snemma árs
2005 hafi rík áhersla verið lögð á
að laun kennara þróuðust í takt
við viðmiðunarstéttir, þ.e. aðra há-
skólamenntaða ríkisstarfsmenn,
sérstaklega innan Bandalags há-
skólamanna (BHM). „Það er auð-
séð að sú hefur ekki orðið raunin,
það er bara allt önnur dínamík í
launum þessara hópa innan BHM
en hjá framhaldsskólakennurum.“
Rík hagræðingarkrafa leiðir
til verri starfskjara kennara
Að sögn Aðalheiðar hafa fram-
haldsskólar búið við mikla hag-
ræðingarkröfu undanfarin ár. Nú
sé svo komið að mörgum, þar á
meðal skólastjórnendum á fram-
haldsskólastigi, finnist kominn
tími til að staldra við. „Þessi
þröngi stakkur sem skólunum hef-
ur verið skorinn veldur minni
þjónustu við nemendum og þverr-
andi þjónusta við nemendur hefur
áhrif á þau starfskjör sem kenn-
arar búa við,“ segir Aðalheiður.
Margir kennarar kvarti yfir allt of
stórum námshópum og því að pen-
ingaleg sjónarmið fremur en fag-
leg ráði því hversu fjölmennir hóp-
arnir verða.
„Það verður að segjast eins og
er að það er ekki fýsilegur kostur
fyrir nýútskrifaðan kennara, sem
hefur þriggja, fjögurra eða þaðan
af lengri háskólamenntun að baki,
að fara í kennslu. Launin sem
bjóðast í þessum geira atvinnulífs-
ins standa ekki undir nafni miðað
við það sem maður sér þegar mað-
ur horfir í kringum sig. Á þessu
þarf að gera verulega bragarbót,“
segir Aðalheiður.
Kjarasamningur framhalds-
skólakennara og ríkissjóðs rennur
út hinn 30. apríl á næsta ári.
„Höfum miklar áhyggjur af þróuninni“
Innsti kjarni Félags framhaldsskólakennara fundaði um
kjaramál og fleira fyrir helgi Samningar losna í apríl
Morgunblaðið/Frikki
Óánægjuraddir Formaður Félags framhaldsskólakennara telur stéttina
hafa orðið eftir í launaþróun sé miðað við aðrar stéttir innan BHM.