Morgunblaðið - 16.09.2007, Side 4
4 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍBÚAR á Seltjarnarnesi hafa nú
frelsi til að velja grunnskóla fyrir
börn sín óháð lögheimili en bæj-
arstjórn Seltjarnarness hefur sam-
þykkt tillögu meirihlutans sem
heimilar foreldrum að sækja um
skólavist í grunnskólum utan lög-
heimilissveitarfélags.
Bjóða meira val
Með samþykktinni er verið að
gera breytingu á 10 ára gamalli
samþykkt þar sem börnum sem
bjuggu á Seltjarnarnesi var skylt
að stunda skóla í lögheimilissveit-
arfélagi nema veigamikil rök
styddu annað. Skv. upplýsingum
Seltjarnarnesbæjar var eldri tillag-
an barn síns tíma er sveitarfélögin
höfðu nýlega tekið við rekstri
grunnskóla og voru enn að móta
starfsrammann. Með þessu sé tek-
ið skref í átt til bættrar þjónustu
með að bjóða upp á meira val og
sveigjanleika til að mæta þörfum
einstaklinga. Enn fremur er opn-
aður möguleiki á að sækja um
námsvist fyrir börn í fimm ára
deildum í grunnskólum sem upp á
það bjóða.
Aukið val-
frelsi í skóla-
málum á Sel-
tjarnarnesi
JÓHANNA
Sigurðardóttir
félagsmálaráð-
herra hefur
hafið undirbún-
ing að flutningi
málefna aldr-
aðra og al-
mannatrygg-
inga frá
heilbrigðismála-
ráðuneyti til fé-
lagsmálaráðuneytis. Málaflokkur-
inn flyst milli ráðuneyta nú um
áramót.
Tillögur verði gerðar
fyrir 1. desember
Endurskoðun laga um al-
mannatryggingar er eitt af fyrstu
skrefunum sem stigin verða. „Það
er mjög stórt mál í stjórnarsátt-
málanum sem við erum að hrinda
af stað. Ég fæ ekki þetta verkefni
til mín fyrr en um áramótin,“ segir
Jóhanna, „en við teljum mikilvægt
að hefja undirbúning breytinga á
almannatryggingalöggjöfinni sem
er tvíþætt, í fyrsta lagi að horfa til
fyrstu aðgerða, sérstaklega er
varðar lífeyrisþega. Ég hef kallað
eftir tilnefningum í þennan hóp og
óskað eftir fyrstu tillögum frá
honum fyrir 1. desember næst-
komandi.“ Ráðgjafahópur hags-
munaaðila hefur einnig verið sett-
ur á fót til að starfa samhliða
hópnum.
Að sögn Jóhönnu verður það
langtímaverkefni að einfalda líf-
eyriskerfi almannatrygginga og
skoða samspil þess og lífeyrissjóð-
anna og atvinnutekna. Jóhanna
hefur kallað eftir að tillögur hóps-
ins verði tilbúnar þar að lútandi 1.
nóvember 2008.
Langtímaverkefni að
einfalda lífeyriskerfið
Lög um almannatryggingar endurskoðuð
Jóhanna
Sigurðardóttir
RÉTTAÐ var í Hrunarétt og Skaftholtsrétt á
föstudag. Í báðum réttunum koma á milli 2.500
og 3.000 fjár af fjalli, en það er þó aðeins hluti af
þeim fjölda sem rekinn var til fjalls á áttunda
áratugnum þegar mest lét.
Leitir taka um fimm til sjö daga og skimast er
eftir fé allt upp undir Hofsjökul. Fjallmenn lentu
í afleitu veðri í ár; ausandi rigning og þoka ollu
töfum, auk þess sem slæm færð varð til þess að
fætur nokkurra hesta sködduðust. Fjalldrottning
Gnúpverja, Lilja Loftsdóttir, sagði að þakka
mætti fyrir að allir fjallmenn hefðu komist heilir
til byggða.
Réttardagur er mikill hátíðisdagur í hverri
sveit, frábrugðinn öðrum dögum ársins. Ungir og
aldnir koma í réttirnar og leiða saman hesta sína.
Í lok réttanna er venjan að taka lagið, enda
margir búnir að bergja af bikar um daginn.
Auk sjaldséðra ættingja og burtfluttra sveit-
unga létu margir góðir gestir sjá sig í réttunum á
föstudag. Meðal þeirra var sendiherra Kína á Ís-
landi, Zhang Keyuan.
Réttardagurinn er enn mikill gleðidagur í sérhverri sveit
Sauðpeningur Þröng var á þingi í Hrunarétt. Erfitt var að koma fénu í réttir í ár; afleitt veður og slæm færð settu strik í reikninginn.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Kampakátir F.v. Sigurður Ingi Jóhannsson, oddviti Hrunamanna, Árni Mathiesen fjármálaráðherra,
Baldvin Jónsson markaðsstjóri og Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.
Réttað í Hrepparéttum
Reifur Zhang Keyuan sendiherra var
galvaskur og virtist kunna réttu tökin.
MIKIL þörf er á
heildarendur-
skoðun almanna-
trygginga að
mati Karls
Steinars Guðna-
sonar, fráfarandi
forstjóra Trygg-
ingastofnunar
ríksisins.
„Við slíka end-
urskoðun verður
að hafa það að leiðarljósi að al-
mannatryggingar eru mannrétt-
indi. Þess verður og að gæta að
nútíma almannatryggingar eiga
að sinna þörfum einstaklinga og
hópa sem eru í brýnni þörf. Ekki
aðeins á sviði lífeyristrygginga
heldur og vegna fötlunar, líkams-
skaða og erfiðra sjúkdóma,“ segir
meðal annars í grein eftir hann
sem birt er á heimasíðu stofn-
unarinnar, tr.is.
Kerfið er flókið og ekki
auðhlaupið að einfalda það
Karl Steinar gerir að umtals-
efni kröfur sem uppi hafi verið
um að einfalda almannatrygg-
ingakerfið og segir að það sé ekki
auðhlaupið að því að einfalda það.
Kerfið sé flókið vegna þess að
það feli í sér margbreytilegar
lausnir. Það þurfi að koma til
móts við þarfir einstaklinganna
og hætt sé við að einföld ósveigj-
anleg kerfi komi sumum hópum
betur en öðrum.
Í seinni tíð hafi vaxandi áhersla
verið lögð á einstaklingsmiðaðar
lausnir og sveigjanleika. „Þar er
nú unnið út frá þeirri grunnreglu
að mæta hverjum einstaklingi þar
sem hann er staddur. Það kallar
svo aftur á sveigjanlegar, fjöl-
breyttar og þar með flóknar
lausnir. Almannatryggingakerfið,
eins og það er núna, er flókið
vegna þess að það felur í sér
margbreytileg úrræði. Eitt af
mikilvægustu markmiðum þess er
að rétta hlut þeirra verst stöddu.
Það er ekki víst að hagsmunum
þeirra sé best borgið með því að
einfalda kerfið,“ segir Karl Stein-
ar Guðnason í grein sinni á vef-
síðu TR.
Þörf er á
heildarend-
urskoðun
Karl Steinar
Guðnason
♦♦♦