Morgunblaðið - 16.09.2007, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ian Buruma.
George W. Bush Bandaríkja-forseti er almennt ekkiþekktur fyrir traustaþekkingu á sögunni. Það
hefur þó ekki aftrað honum frá því að
nota söguna til að réttlæta stefnu
sína. Í nýlegri ræðu fyrir uppgjafar-
hermenn í Kansas City varði hann
markmið sitt um að „halda settri
stefnu“ í Írak með því að benda á af-
leiðingarnar af því að Bandaríkja-
menn drógu sig út úr stríðinu í Víet-
nam. Hann nefndi einnig hernám
Japans eftir 1945 og Kóreustríðið
sem dæmi um árangur Bandaríkja-
manna í að færa Asíu frelsi og um leið
heiminum.
Sagnfræðingar, demókratar og
aðrir gagnrýnendur Bush voru fljótir
að hafna ræðu hans og þá sérstaklega
vísuninni til Víetnams, sem var sögð
óheiðarleg og ónákvæm og helgast af
sérplægni.
Afleiðingar brotthvarfs
Þó hafði Bush, aldrei þessu vant,
tekist að finna sagnfræðilega samlík-
ingu, sem var rétt. Auðvitað var Víet-
nam-stríðið í nánast öllu tilliti frá-
brugðið stríðinu í Írak. Ho Chi Minh
var ekki Saddam Hussein. Í Víetnam
réðust Bandaríkjamenn ekki inn í
land, heldur komu til varnar spilltum,
einráðum bandamanni gegn ágengri
kommúnistastjórn. En það sem Bush
sagði í raun var að brotthvarfi Banda-
ríkjanna frá Indókína hefði fylgt blóð-
bað í Kambódíu og grimmileg kúgun í
Víetnam. Hann gaf í skyn að brott-
hvarf frá Írak myndi leiða til sam-
bærilegra blóðsúthellinga eða verri.
Það er nánast örugglega rétt. Hins
vegar hefðu hvorki fjöldamorðin í
Suðaustur-Asíu né hin mögulegu
fjöldamorð í Írak átt sér stað án
glundroðans, sem leiddi af íhlutun
Bandaríkjamanna, en það lét B́ush
ósagt.
En hvað um fullyrðingarnar um ár-
angur í Asíu; í Japan, Kóreu og á öðr-
um stöðum undir verndarvæng
Bandaríkjamanna? Gat Bush með
réttu státað af hlutverki Bandaríkj-
anna í að veita þessum ríkjum frelsi?
Eins og hann sagði þegar hann ávarp-
aði uppgjafarhermennina í Kansas:
„Mun þessi kynslóð Bandaríkja-
manna standast freistingu undan-
haldsins og munum við gera það sama
í Mið-Austurlöndum og uppgjafar-
hermennirnir í þessu herbergi gerðu í
Asíu?“
Hvað nákvæmlega gerðu Banda-
ríkjamenn í Asíu? Fyrstu ár her-
námsins í Japan voru vissulega
undraverður tími fyrir lýðræðið. Í
stað þess að hjálpa Japönum af gamla
skólanum að endurreisa alræðiskerf-
ið aðstoðaði stjórn Douglas MacArt-
hurs hershöfðingja frjálslynda Jap-
ana við að endurreisa og bæta þær
lýðræðislegu stofnanir, sem til voru
fyrir stríðið.
Stéttarfélög fengu meira vald.
Konur fengu atkvæðisrétt. Borgara-
leg réttindi voru efld.
Japanskeisara var steypt af hálf-
guðlegum stalli sínum. Japanar sjálf-
ir eiga að miklu leyti heiðurinn af
þessu með vinstri-sinnuðum hug-
sjónamönnum í stjórn MacArthurs
sem mótuðust af „New Deal“-stefnu
Roosevelts.
Þegar Kína féll hins vegar í hendur
kommúnista Maós og Norður-Kórea
fékk stuðning Kínverja og Sovét-
manna til að ráðast inn í Suður-Kóreu
var snarlega bundinn endi á lýðræð-
islegar hugsjónir. Í Japan var fyrr-
verandi stríðsglæpamönnum sleppt
úr fangelsi, „rauðliðar“ voru hreins-
aðir í burt og hægri sinnaðar stjórnir
undir forustu þessara sömu fyrrver-
andi stríðsglæpamanna fengu ákafan
stuðning Bandaríkjamanna. Í stað
þess að hlúa að lýðræðinu var það af-
skræmt með virkum stuðningi
Bandaríkjamanna til að tryggja að
hægri menn héldu völdum og vinstri
mönnum væri haldið í skefjum.
Suður-Kóreumenn geta vissulega
þakkað Bandaríkjamönnum margt.
Án íhlutunar Sameinuðu þjóðanna í
Kóreu-stríðið undir forustu Banda-
ríkjamanna hefði hinn mikli leiðtogi
Kim Il Sung náð völdum í suðrinu og
núverandi frelsi og velmegun hefði
aldrei getað orðið.
En lýðræðið í Suður-Kóreu var
ekki gjöf Bandaríkjamanna, né
hvöttu þeir alltaf til þess. Frá seinni
hluta fimmta áratugarins til seinni
hluta þess níunda spiluðu Banda-
ríkjamenn með og lögðu jafn vel lið
Bush og sagnfræðin
Reuters
Lærdómur sögunnar George W. Bush forseti ávarpaði uppgjafahermenn í Kansas og vísaði til þáttar þeirra í uppbyggingu Asíu eftir seinna stríð.
ALÞJÓÐAMÁL»
George Bush hefur verið gagnrýndur fyrir samanburð á stríðinu í Írak og Víetnam-stríðinu Þótt
stríðin hafi nánast í öllu tilliti verið frábrugðin var samlíking forsetans aldrei þessu vant rétt
Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson
audur@jonsdottir og totil@totil.com
Þ
arna sat hann. Með eina
tönn og kaskeitið
skakkt á hausnum eins
og rappari. Ellilífeyr-
isþeginn Angel Ruiz
glotti þar sem hann húkti uppi við
barinn með rauðan, torkennilegan
drykk á milli skjálfandi handa.
Þórarni Leifssyni datt í hug að
Angel hefði villst inn á elpais.com
og lesið frétt um argentínsku feg-
urðardrottninguna Nicole Neu-
mann. Hún hafði ætlað að aðstoða
dýraverndunarhóp við að mót-
mæla loðdýradrápi með því að
baða sig nakin í tómatsósu úti á
götu en þegar þúsundir manna
mættu einungis til að horfa á
þrýstinn líkama hennar sá hún sér
þann kost vænstan að hlaupa í
burtu. Í kjölfarið trylltust argent-
ínskir fjölmiðlar af losta og blogg-
arar í Buenos Aires fullyrtu að
þeir myndu búa til loðfeld úr bor-
der-collie-hundi aumingja Nicole
ef hún hundskaðist ekki strax úr
fötunum.
Var Angel Ruiz að skemmta sér
yfir þessari frétt? Varla. Hann var
ekki með Netið og aldrei sást
hann með dagblað. Yfir kaffibolla
spurði Þórarinn hvað kætti hann.
Angel lék á als oddi þegar hann
svaraði: Jordi, sonur minn, er bú-
inn að vera hjá mér síðan í fyrra-
dag. Þú hefur séð hann, ég kynnti
ykkur hérna um daginn. Reyndar
hef ég eiginlega ekkert haft af
honum að segja í sjö ár.
Jæja já. Býr hann erlendis?
Hann býr nú bara rétt fyrir ut-
an miðbæinn. Konan bannaði hon-
um alltaf að koma til mín, sjáðu
til. Þú veist. Vinna, skíta, sofa.
Vinna, skíta, sofa. En núna eru
þau skilin, sagði Angel sigri hrós-
andi og fékk sér sopa af tor-
kennilega drykknum.
Frábært, sagði Þórarinn eftir
dálitla umhugsun. Ég samgleðst
þér innilega.
Á leiðinni upp í íbúðina sína
varð Þórarni hugsað til sambands
fullorðinna einstæðinga við for-
eldra sína. Rússneski fjöldamorð-
inginn, sem var nýlega ákærður
fyrir dráp á 49 manneskjum, hafði
búið hjá mömmu sinni alla tíð.
Honum þótti vænt um húsdýr og
mömmu sína en á kvöldin drap
hann ógæfufólk í almenningsgarði
með hamri. Það var haft eftir
morðingjanum að ætlunin hefði
verið að slá heimsmet í morðum
og drepa eina manneskju fyrir
hvern reit á skákborði. Hann var
næstum því búinn að ná markmið-
inu þegar lögreglan fann síma-
númerið hans hjá síðasta fórn-
arlambinu sem jafnframt var
vinnufélagi hans, samkvæmt ít-
arlegri umfjöllun um málið sem
Þórarinn hafði fundið á news-
.bbc.co.uk fyrr um morguninn.
Hvað morðingjasvipur er þetta
á þér? spurði Auður þegar hann
kom inn.
Ég er bara hugsi. Angel ná-
granni var niðri.
Nú, var hann ekki kátur?
Þórarinn sagði henni frá end-
urheimtum syni Angels en lyfti
brúnum þegar hún spurði af
hverju eiginkonan kærði sig ekki
um samskipti þeirra feðga. Það
fórst fyrir að íhuga spurninguna
Manntafl
FÖST Í FRÉTTANETI » Blaðamenn Elpais.comhundskamma nú Lúis leið-inlega, landsliðsþjálfara
Spánar, og segja erfitt að
trúa þessari slælegu
frammistöðu á móti Ís-
lendingum sem séu lít-
ilsigldir í fótbolta.