Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 19
gerræðislegum and-kommúnistum, sem hrifsuðu og tryggðu sér völd með blóðugum valdaránum og kúgun and- ófs. Það sama átti við á Filippseyjum, Taívan, Indónesíu og í Taílandi – og Mið-Austurlöndum þar sem lýðræði hefur enn ekki náð fótfestu. Meðan á kalda stríðinu stóð studdi Banda- ríkjastjórn ávallt herforingjastjórnir og einræðisherra í nafni baráttunnar gegn kommúnisma – allt var leyfilegt til að halda vinstri mönnum niðri, jafn vel þeim, sem einfaldlega hefðu verið taldir frjálslyndir í vestrænum lýð- ræðisríkjum. Hverjum var frelsið að þakka? Það er rétt að lífið undir hægri harðstjórum í Asíu var þegar á allt er litið betri kostur en lífið undir Maó, Pol Pot, Kim Il Sung eða jafnvel Ho Chi Minh. En að segja að borgarar undir stjórn Park Chung Hee, Ferd- inand Marcos eða Suharto hershöfð- ingja hafi verið „frjálsir“ er ógeðfellt. Sú ánægjulega staðreynd að Kóreu- menn, Filippseyingar, Taílendingar og Taívanar urðu á endanum frjálsir, eða í það minnsta frjálsari, er ekki svo mikið Bandaríkjamönnum að þakka eins og það er fólkinu, sem barðist sjálft fyrir frelsi sínu. Það var ekki fyrr en seint á níunda áratugnum þegar kommúnistaríkin hrundu hvert af öðru að Bandaríkja- menn studdu stjórnmálamenn og mótmælendur, sem börðust fyrir lýð- ræði, í Seoul, Taípei eða Manila. En lýðræðishetjurnar voru frá Asíu, ekki Bandaríkjunum. Bush getur með réttu haldið því fram að íbúar Mið-Austurlanda vilji vera jafn velmegandi og frjálsir og Suður-Kóreumenn, en hugmynd hans um að stríðið í Írak sé einfald- lega framhald á stefnu Bandaríkja- manna í Írak gæti ekki verið vitlaus- ari. Í Asíu líkt og í Mið-Austurlöndum var stefna Bandaríkjanna að styðja við einræðisherra gegn kommúnisma þar til þeirra eigin þjóð steypti þeim. Stefna Bandaríkjamanna í Mið-Aust- urlöndum nú er skeytingarlaus og róttæk: þeir ráðast inn í land, eyði- leggja stofnanir þess og gera ráð fyrir að frelsið spretti upp úr stjórn- leysinu, sem af hlýst. Að rugla saman þessum ólíku stefnum og láta eins og þær séu ein og hin sama er ekki bara rangt heldur hættulegt og veldur þeim okkar, sem enn telja að Bandaríkin séu afl til góðs, miklum vonbrigðum. Höfundur er prófessor í lýðræði, mannréttindum og blaðamennsku við Bard College. Nýjasta bók hans heitir Murder in Amsterdam: The Death of Theo Van Gogh and the Limits of To- lerance. ©Project Syndicate. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 19 því hlátrasköll bárust af efri hæð- inni þar sem feðgarnir voru auð- heyrilega að taka til hádegismat- inn. Aldeilis gaman hjá þeim, sagði Auður. Ætli þeir séu að fara að horfa á leik? Þórarinn hristi höfuðið. Þeir fengu sig víst fullsadda af fótbolta eftir að Spánn mætti Íslendingum um daginn í leik sem endaði með jafntefli. Blaðamenn Elpais.com hundskamma nú Lúis leiðinlega, landsliðsþjálfara Spánar, og segja erfitt að trúa þessari slælegu frammistöðu á móti Íslendingum sem séu lítilsigldir í fótbolta. Lúis reynir ekki einu sinni að klóra í bakkann heldur viðurkennir að spænska liðið leiki engar kúnstir þessa dagana. Þegar feðgarnir á efri hæðinni og hjónin á neðri hæðinni höfðu snætt hádegismat færðist ró yfir húsið. Þórarinn settist við tölvuna og sá að Auður hafði pantað kvik- myndina Sjöunda innsiglið eftir Ingmar Bergman. Myndin fjallar um riddara sem teflir við dauðann um líf sitt á tímum plágunnar miklu. Brosandi velti hann fyrir sér hvort feðgarnir sætu nú sam- an að tafli en skugga brá yfir and- litið þegar honum varð aftur hugs- að til þess að rússneski morðinginn hafði verið góður við mömmu sína. Kannski höfðu þau teflt saman. Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona. »Þetta eru öflugustu mótvæg-isaðgerir sem nokkur rík- isstjórn hefur gengið til vegna erfiðleika í atvinnulífi lands- manna. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra er kynntar voru þær aðgerðir sem ríkis- stjórnin hyggst grípa til í því skyni að lina höggið sem fylgir niðurskurði þorskkvóta. »Við getum ýmislegt lært afþeim en þeir geta líka lært af okkur. Geir H. Haarde forsætisráðherra í opin- berri heimsókn á Írlandi um aukið samstarf Íslendinga og þarlendra. »Ég held að það sé mikilvægtfyrir samfélagið og atvinnu- lífið að rýmka um fyrir erlendar fjárfestingar. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem hyggst skipa nefnd til að endurskoða reglur um fjárfestingar útlendinga á Ís- landi. Viðskiptaráðherra telur vel koma til greina að rýmka heimildir um fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum. » Íslendingar standa nú frammifyrir einstöku tækifæri til að nýta sér það sem gert hefur verið heima og flytja það út. Ólafur Jóhann Ólafsson, framkvæmda- stjóri og rithöfundur, um fyrirhuguð kaup hans og breska fjárfestingabankans Gold- man Sachs í orkufyrirtækinu Geysir Green Energy. » Staðan væri hreint og beintskelfileg ef ekki kæmi til er- lent vinnuafl. Sigríður Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóra á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi, um viðvarandi manneklu þar síðustu 2-3 árin. »Þetta eru tölur sem maðurstaldrar við. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu, um mikinn fjölda skotvopna sem hald hefur verið lagt á síðustu mánuðina. Það sem af er árinu hefur hald verið lagt á tæp- lega 70 skotvopn í aðgerðum lögreglunnar og er það meiri fjöldi en allt árið í fyrra. »Ótímabær heimkvaðning her-liðs okkar myndi líklega hafa hrikalegar afleiðingar. David Petraeus, yfirmaður herfla Banda- ríkjamanna í Írak. Ummæli vikunnar Ali Khameini, erkiklerkur í Íran, hélt um byssuhlaup þegar hann for- dæmdi Bush Bandarı́kjafoseta í ræðu í Teheran á föstudag og líkti honum við Hitler. Reuters 09.00 09.45 09.45 1 0 . 1 5 10.45 1 1 . 0 0 1 1 . 3 0 12.00 13.30 13.30 14.00 14.30 14.50 15.20 15.50 09.00 09.00 09.30 10.00 10.20 10.50 1 1 . 2 0 DAGSKRÁ Fimmtudagur 27. september 2007 Setning Fyrsti hluti – Alþjóðleg réttarvernd Fundarstjóri: Andrea Coomber, yfirlögfræðingur hjá Interights, Bretlandi. Gerard Quinn, prófessor við Háskólann í Galway, Írlandi. Michael Stein, prófessor við Harvard-háskóla og William & Mary háskóla, Bandaríkjunum. Kaffihlé Ida Elisabeth Koch, Ph.D., sérfræðingur hjá Mannréttindaskrifstofunni, Danmörku. Patricia Bregman, mannréttindalögmaður og ráðgjafi, Kanada. Umræður Annar hluti – Svæðisbundin réttarvernd Fundarstjóri: Anna Lawson, lektor við Háskólann í Leeds, Bretlandi. Lisa Waddington, prófessor við Háskólann í Maastricht, Hollandi. Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og prófessor við Háskólann í Reykjavík. Kaffihlé Colm O’Cinneide, meðlimur í sérfræðinganefnd Félagsmálasáttmála Evrópu og lektor við Háskólann í London, Bretlandi. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík. Umræður Föstudagur 28. september 2007 Þriðji hluti – Landsréttur Fundarstjóri: Rune Halvorsen, Ph.D., sérfræðingur hjá NOVA rannsóknamiðstöð, Noregi. Holger Kallehauge, meðlimur í nefnd um gerð samnings SÞ um mannréttindi fólks með fatlanir og fyrrum landsréttardómari, Danmörku. Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík. Kaffihlé Brynhildur Flóvenz, formaður stjórnar Mannréttindaskrifstofu Íslands og lektor við Háskóla Íslands. Rannveig Traustadóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Umræður Samningur Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi fólks með fatlanir er fyrsti alþjóðlegi mannréttindasáttmáli 21. aldarinnar. Fjöldi þekktra fyrirlesara fjallar um nýjar áherslur í mannréttindavernd á nýrri öld. Ráðstefnan er skipulögð í samvinnu lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Öryrkja- bandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálpar. Ráðstefnan heyrir undir Evrópuár jafnra tækifæra 2007. Ráðstefnan fer fram á ensku. Alþjóðleg ráðstefna um mannréttindi fólks með fatlanir: The Human Rights of Persons with Disabilities – from Social Policy to Equal Rights 27.—28. september 2007 STYRKTARAÐILAR: Ráðstefnan er haldin í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2 og er öllum opin. Skráning fer fram á vefsíðu ráðstefnunnar, www.disabilityrights.is Þátttökugjald er 5.000 krónur. Félagsmálaráðuneytið MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA ÍSLANDS ICELANDIC HUMAN RIGHTS CENTRE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.