Morgunblaðið - 16.09.2007, Síða 31
og Tana í Finnlandi. Í kaflanum um
Kanada eru meðal annarra árnar
Grand Cascapedia og Restigouche; á
Írlandi er komið við í Bann, Blackwa-
ter, Boyne, Foyle og Moy; og þá er
fjallað um tvö vatnasvæði í Frakk-
landi og á Spáni. Loks er fjallað um
sex ár á Kólaskaga í Rússlandi, þar á
meðal Ponoi og Yokanga.
Öll vinnsla bókarinnar er til mik-
illar fyrirmyndar og hér gefst veiði-
mönnum tækifæri til að fræðast um
og upplifa ár – og veiði – á ólíkum
svæðum beggja vegna Atlantshafs-
ins. Fólk getur setið heima í skamm-
deginu og veitt í huganum um leið og
lesið er og rýnt í fallegar myndir
Ashtons.
bók
Ljósmynd/R.Randolph Ashton
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 31
Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • Sími 525 2000 • Fax 525 2020 • valitor@valitor.is • www.valitor.is
Greiðslumiðlun hf. verður
VALITOR hf.
Þjónusta við korthafa óbreytt
Engin breyting verður á þjónustu gagnvart korthöfum VISA
hér á landi á þessum tímamótum. VALITOR miðlar sem fyrr
greiðslum milli söluaðila, korthafa, banka og sparisjóða.
Á Íslandi eru bankar og sparisjóðir útgefendur greiðslukorta.
VALITOR kemur að vinnslu og sérhæfðri þjónustu við þá á
sviði kortaumsýslu og er jafnframt samningsaðili við kaupmenn
sem færsluhirðir.
Metnaður á góðum grunni
Hlutverk VALITOR er að láta viðskipatvinum í té framúrskarandi
lausnir og þjónustu á sviði greiðslumiðlunar og stuðla þannig
að árangursríkum viðskiptaháttum í samfélaginu. Besti
mælikvarðinn á hvernig til tekst verður ánægja viðskiptavina.
Nafni Greiðslumiðlunar - VISA Íslands hefur verið breytt í VALITOR. Ástæðan er
aukin breidd í þjónustu hérlendis og vaxandi starfsemi erlendis, en fyrirtækið hefur
nú þegar hluta tekna sinna af þjónustu við erlenda aðila, einkum vegna netverslunar.
E
F
L
IR
- A
L
M
A
N
N
A
T
E
N
G
S
L
Ekki fundust heimildir um örlög
fyrirtækja þeirra hjóna, en hvað
sem þeim leið stóð Roddick frammi
fyrir því að skapa sér og dætrum
sínum lífsviðurværi 1976 á meðan
bóndi hennar, mikill ævintýramaður
á yngri árum, ferðaðist í tvö ár um á
hestbaki frá Buenos Aires til New
York.
Roddick hefur látið í það skína að
stofnun Body Shop hafi ekki orðið
sökum neyðar, nakinnar konu og
spunavélar. Hún sagði að auk alls
þess sem hún lærði um náttúru og
nýtni á ferðalögum sínum á fram-
andi slóðum hafi sér orðið hugsað til
útsjónarsemi móður sinnar á stríðs-
árunum. „Hvers vegna að fleygja
ílátum ef hægt er að fylla þau aft-
ur?“ og „af hverju að kaupa meira
af einhverju en maður þarf að
nota?“ voru spurningar sem hún
velti fyrir sér og hafði að leiðarljósi
á meðan hún þróaði hugmyndina
um Body Shop.
Snyrtivörur í
þvagsýnaflöskum
Áður en eiginmaðurinn lagði upp
í langferðina hafði hann, fyrir hönd
konu sinnar, samið um fjögur þús-
und punda bankalán. Það dugði til
að hún gat framleitt um fimmtán
tegundir bað- og húðsnyrtivara, að-
allega unnar úr náttúruefnum, sem
hún hafði uppgötvað á ferðalögum
sínum. Þessu pakkaði hún snyrti-
lega í endurnýtanlegar þvagsýna-
flöskur úr plasti og þá var ekkert að
vanbúnaði að opna fyrstu búðina.
Dökkgræni liturinn, sem varð hluti
af ímynd Body Shop, var upp-
haflega ekki hugsaður sem tákn
umhverfisverndarsjónarmiða, held-
ur þakti dökkgræn málning einfald-
lega best rakablettina í nýja versl-
unarhúsnæðinu. Þá viðurkenndi
Roddick seinna að endurnýting um-
búðanna hefði að hluta til verið í
sparnaðarskyni.
Viðtökur neytenda voru meiri en
hana hafði órað fyrir. Ekki liðu
nema sex mánuðir þar til hún sá sér
þann kost vænstan að sækja aftur
um lán og opna aðra verslun. Svo
koll af kolli, núna eru 2.045 Body
Shop-verslanir um allan heim, þar
sem boðið er upp á 300 vöruteg-
undir.
Þegar Gordon Roddick kom aftur
í fjölskyldufaðminn voru við-
skiptaumsvif frúarinnar þegar orðin
ævintýraleg. Hann tók fjármálin í
sínar hendur og líka í stjórnartaum-
ana. „Ímynd stöðugleika fyrirtæk-
isins,“ sagði Roddick einhverju sinni
um mann sinn. Upp frá því unnu
þau hjónin saman að vexti Body
Shop. Hann hefur ætíð stutt konu
sína í baráttumálum og herferðum
ýmiss konar í þágu góðs málstaðar,
sem hún annaðhvort lagði lið eða
efndi til.
Með valdið í vasanum
Anita Roddick var fjarri því að
vera dæmigerð kaupsýslukona. Hún
notaði vörumerki sitt óspart til að
stuðla að félagslegum og umhverf-
islegum umbótum heima og heiman
og lét ekkert tækifæri ónotað til
þess að benda neytendum á að þeir
hefðu valdið í vasa sínum. Til dæmis
með því að sniðganga vörur sem
stórfyrirtæki notuðu börn til að
framleiða í þróunarlöndunum og
vörur sem voru framleiddar eftir til-
raunir á dýrum.
Hún þótti fylgin sér og lét ým-
islegt flakka sem ekki féll í kramið
hjá öllum. Snyrtivöruiðnaðurinn
nötraði árið 2000 þegar hún bar upp
á hann lygar og hélt því blákalt
fram að konur ættu frekar að eyða
peningum í gott rauðvín en svoköll-
uð hrukkukrem, sem ekkert gagn
gerðu. Gott rakakrem sagði hún
duga.
Af þeim umhverfis- og góðgerð-
arsamtökum sem Roddick lagði lið
má nefna Greenpeace, Amnesty Int-
ernational og The Big Issue, sem
gefur út samnefnt blað og heim-
ilislausir um allan heim selja til að
framfleyta sér. Árið 1990 stofnaði
hún COTE, Children On The Edge
(Börn á jaðrinum), hjálparsamtök
fyrir illa stödd börn í Austur-
Evrópu og Asíu. Eftir að hún
greindist með lifrarbólgu C stofnaði
hún The Hepatitis C-sjóðinn, með
það að markmiði að auka þekkingu
á sjúkdómnum.
Í mars 2006 seldu Roddick-hjónin
franska snyrtivörurisanum L’O-
réal fyrirtækið fyrir 652 milljónir
punda (um 85 milljarða ísl. kr.) í
beinhörðum peningum. Þar af fengu
þau 130 milljónir í sinn hlut, eða
rúmlega 17 milljarða ísl. kr. Salan
olli deilum því dýravinir grunuðu
L’Oréal um að nota dýr í tilrauna-
skyni. Roddick játaði nýlega að hún
hefði vissulega tekið áhættu, enda
hefði hún misst alla stjórn ef kaup-
endurnir hefðu raunverulega viljað
eyðileggja Body Shop. Bless-
unarlega hefði sú ekki verið raunin.
Rétt fyrir andlátið var hún spurð
hvað orðið hefði um allar millj-
ónirnar. Hún svaraði því til að hún
skemmti sér við að gefa þrjár millj-
ónir á ári til mannúðarmála og fleiri
góðra mála.
„Ég vil ekki deyja rík,“ sagði hún
árið 2005. „Græðgi er verst af öllu,
samansafn peninga. Ég skil ekki
hvers vegna ofurríkt fólk er ekki
gjafmildara,“ bætti hún við.
Góð hugmynd gerði Anitu Rod-
dick að brautryðjanda á grænni
grein. Núna, þremur áratugum eftir
að hún opnaði litlu búðina í Brig-
hton, keppast stór sem smá fyr-
irtæki við að grænka orðspor sitt.