Morgunblaðið - 24.11.2007, Side 20
20 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í DAG kl. 14 verður sýning
Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur
opnuð í Suðsuðvestur.
Sýningin samanstendur af
hljóðverki og teikningum.
Teikningarnar eru unnar með
ólíkum efnum og aðferðum, ým-
ist á pappír eða þá að þær eru
skornar út beint á vegg. Guðný
Rósa hefur verið búsett í Belgíu
frá árinu 1994 og tekið þátt í
sýningum þar og víðar í Evr-
ópu. Hún starfar með www.koraalberg.be í Ant-
werpen og www.galerie-conrads.de í Düsseldorf.
Guðný sýndi síðast hér heima árið 2006 í Skaft-
felli. Sýningin mun standa til 31. desember.
Myndlist
Guðný Rósa opnar í
galleríi Suðsuðvestur
Verk eftir
Guðnýju Rósu.
ÞRIÐJA stofuspjall vetrarins
fer fram á Gljúfrasteini kl. 16 á
morgun, sunnudag. Að þessu
sinni verður skáldsagan Sjálf-
stætt fólk í öndvegi. Snorri
Þórisson kvikmyndagerðar-
maður kemur í heimsókn og
ræðir um kvikmynd sem stend-
ur til að vinna upp úr bókinni.
Snorri á kvikmyndaréttinn að
Sjálfstæðu fólki og hefur hand-
ritshöfundurinn Ruth Prawer
Jhabvala þegar skrifað handrit eftir bókinni.
Það má búast við fjörugum umræðum um
skáldverkið, Bjart í Sumarhúsum og íslenskar
kvikmyndir á morgun. Aðgangur er ókeypis.
Bókmenntir
Sjálfstætt fólk á
Gljúfrasteini
Halldór
Laxness
ÞÓR Sigmundsson og Pjetur
Stefánsson opna sýningu í
Grafíksafni Íslands kl. 16 í dag.
„Þetta er góð sýning sem lætur
lítið fyrir sér fara í taóískri ró
og stillingu, en tekur á
ákveðnum grundvallarspurn-
ingum lífsins, bæði með afger-
andi og óræðum hætti,“ segir
Pjetur um sýninguna. Á sýn-
ingunni sýnir hann grafískt
verk sem nefnist Í leit að
saumnál í hlöðu ríka mannsins, en Þór sýnir högg-
myndaverk. Sýningin stendur til 2. desember og
er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 14 til 18.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Myndlist
Þór og Pjetur sýna
í Grafíksafninu
Pjetur
Stefánsson
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
„VIÐ erum búin að vera að smíða bíl
með torfþaki og eldflaug og alla
þessa hluti sem Sigrún hefur búið til
í sögunum. Það er svo gaman að sjá
þetta svona í alvörunni,“ segir Una
Stígsdóttir sem er ásamt Anik Todd
sýningarstjóri Allt í plati í Gerðu-
bergi. Þar hafa þau endurskapað
ævintýraveröldina sem birtist í
barnabókum Sigrúnar Eldjárn og
ætla að opna hana fyrir gestum
klukkan fjögur í dag. Fyrir opnunina
stendur Gerðuberg fyrir ritþingi um
verk Sigrúnar og hefst það klukkan
hálf tvö.
Stjarna sýningarinnar er Mál-
fríður, enda hefur Sigrún skrifað
fjölmargar bækur um ævintýri
hennar og Kuggs. „Við ákváðum að
hafa þetta eins og að koma heim til
Málfríðar og mömmu hennar. Bíll-
inn þeirra stendur fyrir utan og svo
notum við leikmuni til þess að bæta
við og sýna hvernig gæti verið heima
hjá þeim. Í bakgarðinum bjuggum
við til svolítið sveitaævintýri og þar
vex blómkálið hennar Málfríðar.“
Markmiðið í upphafi var að búa til
myndlistasýningu sem bæri svolít-
inn keim af leikhúsi. Una segir að
það hafi ráðið ferðinni við val á þeim
sögum Sigrúnar sem gerð eru skil á
sýningunni. Þar er af mörgu af taka
því hún hefur myndskreytt barna-
bækur í 30 ár. „Þetta er sambland af
mörgum bókum, þetta snýst ekki
bara um Málfríði, heldur líka fleiri
persónur,“ segir Una. „Mér fannst
til dæmis Afi drullumallar skemmti-
legasta bókin og á sýningunni er
portrett af honum upp á vegg hjá
Málfríði.“
Alin upp á Þjóðminjasafninu
Málfríður er með skotthúfu eins
og svo margar konur í verkum Sig-
rúnar, sem margar eru klæddar í
þjóðbúninga. Sigrún segir þær eiga
uppruna í æsku hennar. „Þá voru
ennþá til kellingar svona klæddar.
Ég er nú þar að auki alin upp á Þjóð-
minjasafninu fyrstu fjórtán ár ævi
minnar, sem var mjög sérstakt. Þar
voru gjarnan eldri konur sem sáu
um gæsluna í safninu og margar
þeirra voru á peysufötum eða upp-
hlut. Nú er þetta horfið, nema sem
eitthvað hobbí.“
Hún myndskreytti sína fyrstu
barnabók á meðan hún var enn í
námi í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Nokkrum árum síðar, árið
1980, skrifaði hún sína fyrstu bók,
Allt í plati. Hún segir persónur bók-
anna ekki tengjast beinlínis, heldur
skiptast í nokkra hópa. Málfríður og
hennar fólk er henni kærast. „Ég
hef verið að fást við þau meirihlut-
ann af mínum ferli. Sýningin er mest
unnin uppúr þeim sögum.“
Sigrún kom sjálf ekki nálægt gerð
sýningarinnar, heldur vildi hún láta
koma sér á óvart. „Ég hitti þau í
byrjun þegar þau voru búin að taka
þetta að sér og þá voru þau komin
með ýmsar hugmyndir og þegar orð-
ið ljóst að þetta yrði engin venjuleg
sýning með myndum á veggjum. Ég
heyrði á þeim að þau voru á svo
skemmtilegu róli og ég ákvað bara
að láta þau um þetta. Mér fannst það
eiginlega meira spennandi.“
Bíll með torfþaki og blóm-
kálshausar í garði Málfríðar
Torfþak Málfríður keyrir um á bíl með torfþaki og hefur lagt honum fyrir
utan sýninguna. Inni eru fleiri forvitnilegir gripir úr hennar eigu.
FYRSTI upp-
tökustjóri Doc-
tor Who og
fyrsti kvenkyns
upptökustjórinn
hjá BBC, Verity
Lambert, er lát-
in, 71 árs að
aldri. Hún var
einnig yngsta
persónan til að
stjórna sjónvarpsþætti hjá BBC
þegar Doctor Who hóf göngu sína
árið 1963, en hún yfirgaf þáttinn
eftir tvær seríur, árið 1965.
Lambert stjórnaði auk þess
þáttum eins og Minder, Quater-
mass, Rumpole of the Bailey og
Jonathan Creek. Árið 1985 stofn-
aði Lambert sitt eigið framleiðslu-
fyrirtæki, Cinema Verity, sem fór
út í að gera þættina May to Dec-
ember og sápuóperuna Eldorado.
Ekki er langt síðan hún lauk við
þáttaseríu fyrir BBC, One’s Love
Soup.
Áætlað var að afhenta Lambert
verðlaun fyrir ævistarf sitt á há-
tíð tileinkaðri konum í kvikmynd-
um og sjónvarpi í næsta mánuði.
Fyrst til að
stjórna
Doctor Who
Verity Lambert er
látin, 71 árs að aldri
Verity Lambert
MORGUNBLAÐIÐ óskaði í tilefni
af Degi íslenskrar tungu eftir ný-
yrðum ýmiss konar yfir erlend orð
sem enn hafa ekki verið íslenskuð.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa
og hér má sjá nokkrar tillögur:
Hörður Jónasson stingur upp á
orðinu tónjarl í stað japanska orðs-
ins „karaoke“. Einnig stingur hann
upp á nafnorðinu ritl í stað
„bloggs“ og ritlari í stað „blogg-
ara“ og svo sögninni að ritla.
Blogggreinar yrðu í því sambandi
ritlur.
Sigríður Ólafsdóttir leggur til
sögnina að glugga í stað að „go-
ogle-a“ sbr. að glugga í texta. Hvað
bloggið varðar stingur hún upp á
sögninni að spjallrita í stað „að
blogga“ og vonframi fyrir enska
nafnorðið „wannabe“. Dæmi: Hún
er vonframa söngstjarna
Guðfinna Guðnadóttir stingur
upp á sögninni að ugla í stað að „go-
ogle-a“. Það væri hægt að ugla
þetta eða hitt. Í stað „grandp-
arents“ leggur hún til forforeldrar.
Að ugla þetta
og hitt
STOFNUN um almannaheill tekur
til starfa klukkan fjögur í dag þeg-
ar frú Vigdís Finnbogadóttir opnar
aðsetur hennar í Nýlistasafninu.
Það eru myndlistakonurnar Olga
Bergmann og Valgerður Guðlaugs-
dóttir sem eru í forsvari fyrir stofn-
unina, sem þær segja að sé í raun-
inni bara útibú frá höfuðstöðvunum
í Svíþjóð. „Undir hattinum al-
mannaheill er ýmislegt sem lýtur
að fegurð, framförum, sálfræði,
ættspeki og fleiru. Við störfum í sjö
deildum þar sem fara fram rann-
sóknir á ýmsum málum. Svo erum
við hér með fallegan garð fyrir fólk
að njóta sín í,“ segir Olga. „Það eru
náttúrlega margar stofnanir sem
vinna að almannaheill, en hjá okkur
er þetta svona þverfaglegt. Við inn-
limum allt og erum búnar að inn-
lima Nýlistasafnið inn í stofnunina.“
Forstöðukonurnar tvær segja að
stofnunin eigi að gegna hlutverki
heilsulindar fyrir sál og líkama og
jafnframt að vekja spurningar um
hvað fólki sé fyrir bestu og í hvers
verkahring það sé að beina almenn-
ingi inn á réttar brautir. „Eitt
verkefnið fjallar meðal annars um
tengsl við frægt fólk og annað um
útlitsumbreytingar. Því er haldið
fram að manni líði betur ef maður
lítur út á ákveðinn hátt og hagi sér
á ákveðinn hátt. Það er spurning
hvort það sé endilega hundrað pró-
sent rétt.“
Stofnun um almannaheill hefur starfsemi í dag
Fegurð og framfarir í Nýló
Forstöðukonur Þær Olga og Valgerður taka til starfa í dag
♦♦♦
FIÐLAN verður grand-
skoðuð frá öllum sjón-
arhornum á Degi hljóðfær-
isins í Gerðubergi á morg-
un. Þar koma fiðluleikarar,
fiðlusmiðir, fiðlusafnarar og
fiðlunemar og kynna hljóð-
færið. Dagskráin hefst klukkan
hálf tvö.
Félag íslenskra tónlist-
armanna skipuleggur
Dag hljóðfærisins í sam-
starfi við Gerðuberg og
Margrét Bóasdóttir for-
maður félagsins verður
kynnir á hátíðinni. Hún
segir þetta næstsíðasta
Dag hljóðfærisins. „Það
má segja að þetta
magnist stig af stigi,
því nú er það fiðlan og
á næsta ári verður það
röddin og þar með ljúk-
um við þessu verkefni. Þá
Dagur fiðlunnar
verðum við búin að vera í
þessu samstarfi í tíu ár.“
Fiðlan kemur við sögu í
flestum tegundum tónlistar,
allt frá tangó að sveitatónlist
og öll þekktustu tónskáld sög-
unnar hafa samið verk fyrir
þetta vinsæla hljóðfæri. Fjöl-
breytnin verður í fyr-
irrúmi í Gerðubergi á
morgun, bæði hvað
varðar efnisval og
hljóðfæraleikara. Korn-
ungir Suzuki-nemar
hefja dagskrána, frum-
kvöðlar á sviði fiðlu-
tónlistar verða heiðr-
aðir og færustu hljóð-
færaleikarar
Sinfóníuhljómsveit-
arinnar koma fram.
Nánari upplýsingar
um dagskrá má finna á
www.gerduberg.is
Fiðlusérfræðingar úr öllum áttum
kynna hljóðfærið á Degi hljóðfærisins
FJÖLDI listamanna tekur þátt í
Þetta vilja börnin sjá! sem er árleg
sýning á myndskreytingum úr
barnabókum. Sýningin verður opn-
uð á sama tíma og sýning á verkum
Sigrúnar Eldjárn, svo listelsk börn
hafa af nógu að taka í Gerðubergi á
næstunni.
Í byrjun næsta mánaðar verða
síðan veitt verðlaun fyrir bestu
myndskreytinguna. Þau eru kennd
við Dimmalimm, litlu prinsessuna
hans Muggs. Þetta er í sjötta sinn
sem verðlaunin eru veitt og hafa
Brian Pilkington og Áslaug Jóns-
dóttir meðal annarra hlotið þau á
síðustu árum.
Þetta vilja
börnin sjá!
Morgunblaðið/Kristinn