Morgunblaðið - 24.11.2007, Qupperneq 30
innlit
30 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hugmyndin að heimsókn-inni kviknaði þegar Sol-veiga Urboniene, sembúið hefur á Íslandi í sex
ár, skrifaði grein í Morgunblaðið.
Hún talaði um fordómana gagnvart
Litháum og sagði: Ég er frá Lithá-
en. Já, Litháen! Landinu þaðan sem
eiturlyfin koma, landinu þaðan sem
þjófarnir koma, landinu sem hefur
slæm meðmæli frá Íslandi. Ég stel
ekki og ég sel ekki eiturlyf en samt
verð ég að hlusta á fordóma um mig,
landa mína og landið mitt. Af
hverju?
Frænka Solveigu heimsótt
Listakonan Sonata Orde er
frænka Solveigu og býr í Ukmerge.
Þangað heimsótti ég hana fyrir til-
stilli Solveigu og vinkonan, Jurgita
Putiene almannatengill, sem býr og
starfar í Vilníus, ók mér. Jurgita og
Sonata vissu ástæðuna fyrir heim-
sókninni og þeim var síður en svo
skemmt enda báðar stoltar af landi
og þjóð. Þær taka undir orð Solveigu
sem segir: Ég get ekki borið ábyrgð
á öllum.
Ukmerge er 30.000 manna bær
klukkutíma akstur frá Vilníus. Jur-
gita fræddi mig á leiðinni um land og
þjóð. Ég spurði hver væru laun
kennara í Litháen og hún sagði að
grunnskólakennari fengi sem svarar
52.000 kr. á mánuði en háskólakenn-
ari helmingi meira, um 104.000 kr.
„Hins vegar getur þurft að greiða
málara tvöföld háskólakennaralaun.
Þeir eru orðnir svo fáir hér, flestir
fluttir til annarra landa. Þeir sem
eftir eru setja upp himinháar upp-
hæðir fyrir vinnu sína. Fjöldi fólks
með góða menntun er flutt úr landi,
fólk sem við þurfum á að halda hér
heima.“
Aðspurð um húsnæðismálin sagð-
ist hún hafa keypt u.þ.b. 50 fm íbúð
fyrir þremur árum á 2,6 milljónir.
Hún hefði nú þrefaldast í verði. Mik-
ið hefði verið byggt í Vilnius að und-
anförnu en nýjustu byggingarnar
væru margar hverjar illa byggðar.
„Það er því betra að kaupa eldra
húsnæði en alveg nýtt.“
Listakonan í Ukmerge
Sonata býr á efstu hæð í fimm
hæða blokk með manni sínum Sau-
lius, sem er framkvæmdastjóri bif-
reiðaverkstæðis, og syninum Saidis.
Ekki er mikið í stigauppganginn
borið, steinsteyptir stigar án dúks
eða teppa. Íbúðin hennar Sonötu er
svo sannarlega falleg og stenst fylli-
lega samanburð við íslensk heimili
og ber merki þess að þarna býr lista-
kona.
Uppdekkað borð beið gesta með
ríkulegu góðgæti, tertu og diskum
hlöðnum snittum. Ekki var við ann-
að komandi en að rauðvíni væri hellt
í glös og síðan var borið fram kaffi.
Við ræðum veitingarnar og heyrum
að terta kallast torta í Litháen. So-
nata segir okkur að hún kunni eitt
íslenskt orð, kaka, en það hefur hún
lært af frændfólki sínu sem býr á Ís-
landi.
Þær Jurgita og Sonata eru 28 ára
gamlar og hafa verið vinkonur frá
barnæsku og vinskapurinn haldist
þótt Jurgita sé flutt til Vilnius. So-
nata og fjölskyldan er tiltölulega ný-
flutt; íbúðin er þrjú svefnherbergi,
stofa og eldhús út frá henni. Eldhús-
innréttingin er falleg og gaselda-
vélin og ofninn úr burstuðu stáli. So-
nata hefur látið útbúa sérstakar
höldur á fjórar skúffur, í formi gaff-
als, hnífs, matskeiðar og teskeiðar.
Þetta er góð hugmynd sem gagnast
vel því maðurinn hennar, eins og
flestir karlmenn, veit aldrei hvar á
að láta eða finna hnífapörin. Nú er
engin leið að villast á skúffum.
Afinn var listamaður
Allt frá barnæsku ólst Sonata upp
í návist listaverka. Afi hennar var
mikill listamaður og amman hafði
mjög gaman af blómum og bjó
margt fallegt til úr þeim. Sjálf fór
Sonata að mála strax á unga aldri.
Nú málar hún verk sem hún byggir
að hluta til á litháskum hefðum og
jafnvel þjóðsögum. Hún er líka mikil
textílkona og sýnir okkur textíl-
myndverk og mottur og stóra trefla
sem hún er að prjóna. Að auki hefur
hún gert mikið af því að hanna tösk-
ur og svo aukahluti, nælur, sem
gaman er að nota í jakkann, á tref-
ilinn, í húfuna eða jafnvel á skóna.
Jurgita segir að þessar nælur séu
svo eftirsóttar að Sonata hafi ekki
undan að búa þær til. Þær eru úr
silki og skreyttar með náttúru-
steinum, perlum og Swarovski-
steinum.
Sonurinn Saidis er sjö ára, ný-
byrjaður í fyrsta bekk í barnaskól-
anum. Hann sýnir okkur stoltur
hvítu rottuna sem hann fékk nýverið
í afmælisgjöf. Þegar hrollur fer um
gestina eru þær stöllur fljótar að
sannfæra okkur um að þetta sé ekki
Vilja ekki yfirgefa Litháen
Undarlegar hugrenningar eiga til að koma upp í huga okkar þegar við heyrum talað um Eystrasaltslöndin, kannski sér í lagi
Litháen. Fríða Björnsdóttir greip því tækifærið þegar hún átti leið til þessa ágæta lands og heimsótti og tók tali tvær ungar lit-
háskar stúlkur sem eru stoltar af landi og þjóð og dreymir ekki um að flytjast til Íslands!
Morgunblaðið/Fríða Björnsdóttir
Vinkonur Jurgita og Sonata hafa verið vinkonur frá því þær voru litlar.Tréð Það er eins og greinin sé raunverulega þarna í horninu.
Hrollvekjandi Saidis með rottuna
Skauta sem er tilraunarotta.
Vínrautt í fyrirrúmi Bútasaumsteppi og á veggnum er yfirdekkt plata sem
bíður þess að listakonan máli á hana mynd.
Þjóðleg list Myndirnar málar Sonata á plötur er ramminn hluti verksins.
Konumyndin er af þjóðsagnapersónunni Egle, drottningu snákanna.