Morgunblaðið - 24.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 321. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
OPINN FYRIR ÖLLU
BEHOLD ER FYRSTA OPINBERA PLATAN
HANS OG ÖNNUR Í BÍGERÐ Á NÝJU ÁRI >> 60
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
RÚMLEGA 660 fólksbílar eru nú skráðir á
hverja 1.000 íbúa á Íslandi. Árið 2001 var
þetta hlutfall 352 bílar á hverja 1.000 íbúa.
Á þessu tímabili hefur skráðum fólksbílum
fjölgað um tæplega 47 þúsund eða tæp
30%. Á sama tíma fjölgaði íbúum landsins
eingöngu um tæp 9,8%.
Sé horft eingöngu til höfuðborgarsvæð-
isins eru þar nú skráðir 750 fólksbílar á
hverja þúsund íbúa en árið 2001 var hlut-
fallið 568 bílar á hverja 1.000 íbúa. Á þessu
tímabili hefur fólksbílum, skráðum á svæð-
inu, fjölgað um rúmlega 45 þúsund, eða um
45%. Á sama tíma fjölgaði íbúum á svæð-
inu um 9,9%. Þess ber þó að geta að í
skráningartölum Umferðarstofu eru bif-
reiðar skráðar eftir eigendum en ekki um-
ráðamönnum. Fjármögnunarfyrirtæki,
sem flest eru í Reykjavík, eru skráð eig-
endur bifreiða sem teknar eru á rekstrar-
eða einkaleigu sem og keyptar með bíla-
samningi. Því eru bílar sem fólk á lands-
byggðinni kaupir með fyrrgreindum hætti
stundum skráðir á höfuðborgarsvæðið.
Unnið er nú að því hjá Umferðarstofu að
flokka bifreiðar eftir búsetu umráðamanna
þeirra.
Jeppunum fjölgað verulega
Það sem af er þessu ári hafa 14.650 nýir
fólksbílar verið skráðir á landinu, þar af
tæplega 3.400 af tegundinni Toyota, 240
BMW og 147 Lexus-bílar svo dæmi séu
tekin.
Jeppar eru ekki sérstaklega skráðir hjá
Umferðarstofu en séu tekin dæmi af al-
gengri jeppategund er augljóst að ný-
skráning hefur margfaldast frá árinu 2001.
Á því ári voru t.d. nýskráðir Toyota Land
Cruiser 349 talsins eða tæplega einn á dag
en í fyrra voru þeir 987 eða tæplega þrír á
dag. Á tímabilinu þrefaldaðist fjöldi ný-
skráðra jeppa af þessari tegund eða um
nær 183%.
Fækkun hefur almennt orðið í nýskrán-
ingum ökutækja á landsvísu það sem af er
ári miðað við sama tímabil í fyrra. Í ár hafa
þegar verið nýskráð 23.813 ökutæki miðað
við um 24.500 ökutæki á sama tíma á síð-
asta ári. Þetta er 3,5% fækkun milli ára.
Eigendaskipti eru hins vegar mun meiri
það sem af er ári en síðasta ár. Í fyrra voru
skráð eigendaskipti 74.785 ökutækja frá 1.
janúar til 28. september en á sama tímabili
í ár eru skráð eigendaskipti á 79.136 öku-
tækjum. Þetta er 5,8% hækkun á milli ára.
Bílar: 30%
Fólk: 9,8%
Nýskráningum bifreiða
fækkar frá fyrra ári
Morgunblaðið/Ómar
Jeppar Á hverjum degi í fyrra voru skráð-
ir tæplega 3 nýir Land Cruiser hér á landi.
JÓLASTEMNINGIN er allsráðandi í miðbæ
Hafnarfjarðar um þessar mundir en í dag
verður Jólaþorpið opnað og verður opið allar
helgar fram að aðfangadegi. Þorpið saman-
stendur af tuttugu söluhúsum þar sem kaup-
menn bjóða upp á ýmsar vörur.
Leikskólabörnin í bænum létu ekki sitt eftir
liggja þegar kom að skreytingum en í hádeg-
inu í gær mættu um átta hundruð börn með
skraut sem þau höfðu sjálf búið til. Skreyttu
þau þorpið hátt og lágt og fengu að launum
kakó og kleinu í boði bæjarstjórans.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bjuggu sjálf til skrautið
Átta hundruð leikskólabörn skreyttu Jólaþorpið í Hafnarfirði
ÁRIÐ 1980 voru heildaratvinnu-
tekjur kvenna 46,6% af heildarat-
vinnutekjum karla. Tæpum þremur
áratugum síðar, eða árið 2006, var
hlutfallið komið upp í 61,3%. Haldi
bilið áfram að minnka með sama
hraða og verið hefur má gera ráð
fyrir því að heildaratvinnutekjur
karla og kvenna verði jafnar á Ís-
landi árið 2072.
Þetta er meðal frumniðurstaðna
rannsóknar á tekjumun karla og
kvenna sem Ingólfur V. Gíslason,
sviðsstjóri rannsóknasviðs Jafnrétt-
isstofu, stýrir.
Töluverður tekju-
munur eftir landshlutum
Að sögn Ingólfs er munurinn á
heildaratvinnutekjum þó nokkur
eftir landshlutum. Þannig voru kon-
ur í póstnúmeri 101 Reykjavík árið
2006 með 70% af heildaratvinnu-
tekjum karla og konur í 105
Reykjavík með 72% af tekjum
karla. Á sama tíma voru konur í
Vestmannaeyjum aðeins með 47%
af tekjum karla, konur á Reyðar-
firði með 50% af tekjum karla og
konur á Akureyri með 60% af
tekjum karla. | 6
Munurinn
minni í höf-
uðborginni
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
SKULDATRYGGINGAÁLAG á
skuldabréf Kaupþings er of hátt
að mati greiningardeildar fjár-
festingarbankans Merrill Lynch,
en bankinn gaf nýlega út nýja
skýrslu þar sem m.a. er fjallað um
tryggingaálag á skuldabréfum ís-
lenska bankans.
Segir í skýrslunni að eignasafn
og lausafjárstaða Kaupþings séu
ekki til þess fallin að valda fjár-
festum áhyggjum. Líkur á stór-
felldri rýrnun eigin fjár Kaup-
þings séu litlar og sömuleiðis sé
bankinn vel staddur hvað varðar
lausafé.
Að vísu telji Merrill Lynch að
kaup Kaupþings á hollenska bank-
anum NIBC hafi ekki verið til hins
besta, og að endurskipulagning á
rekstri hollenska bankans sé
nauðsynleg. Þá gerir greiningar-
deildin ekki ráð fyrir frábæru ári
hjá Kaupþingi árið 2008. Hins
vegar sé tryggingaálag upp á 3,40
prósentustig eða meira of hátt
miðað við það sem áður hefur ver-
ið nefnt og mælir bankinn ekki
með því að fjárfestar skortselji
skuldabréf Kaupþings, þ.e. mælir
gegn því að fjárfestar veðji á frek-
ari hækkun álagsins. Hins vegar
vill Merill Lynch sjá til hvernig
mál þróast með NIBC áður en
bankinn geti mælt með fjárfest-
ingu í skuldabréfum Kaupþings.
Álagið sígur niður á við
Á fimmtudag var tryggingaálag
á skuldabréf íslensku bankanna í
hámarki. Var álagið 3,6 prósentu-
stig fyrir Kaupþing, 2,55 pró-
sentustig fyrir Glitni og 1,95 pró-
sentustig fyrir Landsbankann. Þá
hafði tryggingaálagið á skulda-
bréf íslenska ríkisins hækkað mik-
ið á nokkrum dögum, farið úr
0,41% 16. nóvember í 0,76% á
fimmtudaginn. Í gær lækkaði hins
vegar álagið á bréf Kaupþings,
Landsbanka og íslenska ríkisins,
en álag á skuldabréf Glitnis hélt
áfram að hækka. | 16
Tryggingaálagið of
hátt hjá Kaupþingi
Merrill Lynch mælir gegn skortsölu á bréfum Kaupþings
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í HNOTSKURN
» Tryggingaálag á skulda-bréf endurspeglar mat
markaða á því hversu líklegt
sé að útgefandinn geti ekki
staðið við skuldbindingar
sínar.
» Því hærra sem álagið erþví áhættusamari fjár-
festing eru skuldabréfin
talin vera.
Leikhúsin í landinu
Góða skemmtun!
>> 56