Morgunblaðið - 24.11.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
Leikhópurinn Margar þekktar persónur úr leikbókmenntum barna koma
fyrir í leikritinu „Allt í plati“ sem sýnt er í Frumleikhúsinu í Keflavík.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | „Starfið hefur að
eflst mjög og hefur sennilega aldrei
verið betra en nú. Það kemur inn
margt nýtt fólk í bland við það
eldra,“ segir Guðný Kristjánsdóttir,
talsmaður Leikfélags Keflavíkur og
leikhússtjóri í Frumleikhúsinu.
Leikfélagið fagnar á þessu ári 40 ára
afmæli með tveimur afmælissýning-
um auk þess sem liðin eru tíu ár frá
því félagið eignaðist leikhús.
Sýningar á seinna afmælisverkinu
standa nú yfir og lýkur um helgina, í
bili að minnsta kosti. Það er barna-
og fjölskylduleikritið Allt í plati eftir
Þröst Guðbjartsson sem jafnframt
leikstýrir. Það byggist á persónum
úr þekktum barnaleikritum eftir
Astrid Lindgren og Thorbjörn Egn-
er, svo sem Dýrunum í Hálsaskógi,
Kardimommubænum, Línu Lang-
sokki og Karíusi og Baktusi. Verkinu
hefur verið vel tekið og það verið
sýnt fyrir fullu húsi þrjár helgar. Nú
um helgina verður það sýnt á laug-
ardag og sunnudag, klukkan 16 báða
dagana. Eftir það verður sýningum
hætt, í bili að minnsta kosti.
Smitandi baktería
Guðný segir slæmt að þurfa að
hætta sýningum þegar vel gengur en
taka verði tillit til leikendanna. Í
leikarahópnum eru margir grunn-
skóla- og framhaldsskólanemendur
og nú eru próf framundan í Fjöl-
brautaskólanum. Svo segir Guðný að
mikið álag hafi verið á leikhópnum í
langan tíma og nauðsynlegt að
hægja á. Það sé aldrei að vita hvort
hægt sé að taka þráðinn upp aftur.
Leikfélag Keflavíkur er eitt öflug-
asta áhugaleikfélag landsins. Starfið
hefur verið gott í mörg ár og að því
stendur öflugur hópur. Margir
landsþekktir leikarar hafa tekið þar
sín fyrstu skref á leiklistarbrautinni.
Þeir sem einu sinni ánetjast leik-
listinni eiga varla afturkvæmt og
fjölskyldan smitast gjarnan. Þannig
er það með Guðnýju og fjölskyldu
hennar. Hún byrjaði að leika sextán
ára og hefur starfað með leikfélaginu
síðan. Hún lék síðast í revíunni síð-
astliðið vor en tók sér frí frá leiknum
að þessu sinni en er framkvæmda-
stjóri sýningarinnar. Í staðinn leikur
fimmtán ára dóttir hennar, Kristín
Rán, eitt aðalhlutverkið og eigin-
maðurinn, Júlíus Freyr Guðmunds-
son, sér um tónlistina eins og stund-
um áður. Sonur þeirra, Rúnar
Júlíusson sem er fjögurra ára, mætir
á allar sýningar en miðbarnið,
Brynja Ýr, tekur þátt í leikriti í
Myllubakkaskóla.
Starfið hjá leikfélaginu
hefur aldrei verið betra
Í HNOTSKURN
»Leikfélag Keflavíkur varstofnað 1967 í kjölfar sýn-
ingar á leikriti Einars H.
Kvaran, Syndir annarra, sem
Ævar R. Kvaran leikstýrði.
»Sagan er lengri því haust-ið 1961 komu nokkrir
áhugamenn úr Keflavík og
Njarðvík saman og stofnuðu
með sér leikfélagið Stakk og
sýndu Ólympíuhlauparann.
»Eftir nokkurt hlé er afturefnt til leiksýninga vet-
urinn 1965. Fljótlega sögðu
flestir Njarðvíkingar sig úr fé-
laginu og stofnuðu Njarðvík-
urleikhúsið. Keflvíkingar
héldu áfram og stofnuðu LK.
Reykjanesbær | Félag eldri borgara
í Reykjanesbæ (FEB) fær afnot af fé-
lags- og þjónustumiðstöðinni við
Nesvelli. Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, kynnti í gær fyrir
stjórn félagsins nýjan þjónustusamn-
ing um afnot af aðstöðunni. Síðdegis
var þjónusta á Nesvöllum kynnt
frekar á almennum kynningarfundi.
Öll þjónusta Reykjanesbæjar við
aldraða, svo sem félagsstarf, dag-
vist, mötuneyti og félagsleg heima-
þjónusta, mun flytjast á Nesvelli.
Þeir munu leysa af hólmi húsnæði á
ýmsum stöðum í bæjarfélaginu, svo
sem Selið, Hvamm, Smiðjuna og
dagdvöl aldraðra. Tómstundaað-
staða eldri borgara verður þá komin
á einn stað og í tengsl við fjölbreytta
þjónustu sem þar verður, svo sem
öryggisíbúðir, mötuneyti, hjúkr-
unarheimili, hárgreiðslustofur,
snyrtistofur og fleira. Jafnframt er
gert ráð fyrir því að öll starfsemi Fé-
lags eldri borgara verði þar.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi verkefnisins í samvinnu við Fé-
lag eldri borgara frá árinu 2005.
Hefur verið leitað til fyrirmynda er-
lendis og sérfræðinga jafnt innan-
lands sem utan um bestu leiðir. Til-
gangurinn er, eftir því sem fram
kemur í kynningu Reykjanesbæjar,
að veita bæjarbúum bestu mögu-
leika á að njóta lífsins á efri árum.
Nú liggur fyrir niðurstaða úr
þessari samvinnu sem felst í því að
verið er að byggja upp byggða-
kjarna með 2500 fermetra þjónustu-
miðstöð og útivistarsvæði, ásamt ör-
yggisíbúðum, hjúkrunaríbúðum,
sérbýlum og fjölbýlum á svæðinu við
Njarðarbraut á milli Stapans og
Samkaups.
Reykjanesbær mun leigja um tvo
þriðju af húsnæði þjónustumiðstöðv-
arinnar, en Nesvellir munu annast
útleigu á þriðjungi hennar til ann-
arra þjónustuaðila sem vilja nýta sér
aðstöðu til að veita þjónustu til bæj-
arbúa. Nesvellir munu auk þess sjá
um stjórnun aðstöðunnar, samræm-
ingu og rekstur sameignar. Í þjón-
ustumiðstöðinni er stefnt að því að
skapa viðmót og menningu sem gef-
ur öllum bæjarbúaum ástæðu til að
taka þátt í að gera þetta að miðstöð
sem tengir saman kynslóðir.
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Ný aðstaða Stjórn Félags eldri borgara skoðar aðstöðuna á Nesvöllum
ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar.
Öll þjónustan verð-
ur á Nesvöllum
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Einingaverksmiðjan
ehf. fær úthlutaða um 10 hektara
lóð í Þorlákshöfn og þar verður
byggð verksmiðja fyrir starfsem-
ina. Samningur milli Sveitarfé-
lagsins Ölfuss og Einingaverk-
smiðjunnar felur þetta í sér en
hann var undirritaður í gær.
Einingaverksmiðjan ehf. er til
húsa að Breiðhöfða 10 í Reykjavík
og er leiðandi í framleiðslu for-
steyptra eininga. Starfsemi fyr-
irtækisins hefur vaxið mjög hratt
undanfarin ár og er smæð núver-
andi athafnasvæðis farin að há
starfseminni. Þegar Einingaverk-
smiðjan ehf. verður kominn í fulla
starfsemi munu um 70 til 100
manns starfa þar.
Hluti fluttur út
Áætlanir gera ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í janúar 2008 og
áætluð verklok eru í lok sama árs.
Ennfremur felur samningurinn í
sér að Einingaverksmiðjan fær út-
hlutaðar allt að 40 lóðum undir
einbýlishús, raðhús og parhús sem
fyrirtækið mun reisa á næstu fjór-
um árum. Auk þess fær fyrirtækið
vilyrði fyrir 20 lóðum til viðbótar
undir íbúðarhús sem það hefur
eitt ár til að taka endanlega
ákvörðun um byggingu á.
Ólafur Áki Ragnarsson bæj-
arstjóri sagði að fyrirhuguð verk-
smiðja kæmi til með að rísa stutt
norðan við byggðina og nálægðin
við höfnina væri vissulega kostur
því hluti framleiðslunnar færi til
útflutnings. „Ég óttast ekkert að
það komi niður á öðrum, hvorki
einstaklingum né verktökum þó
Einingaverksmiðjan fái þessar lóð-
ir, við eigum nægt landsvæði og ef
það kemur til með að vanta lóðir
er fljótgert að ganga frá þeim, við
látum ekki standa upp á okkur
með að það vanti lóðir. Það er
gaman að segja frá því að þegar
er verksmiðjan með verkefni hér,
þeir steypa allar einingar í vatns-
verksmiðjuna að Hlíðarenda,“
sagði Ólafur Áki.
Fáum gott landrými
Sigurbjörn Óli Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Einingaverksmiðj-
unnar, sagði að það væri aðallega
skortur á landrými sem gerði það
að verkum að verksmiðjan væri
flutt um set. „Í Þorlákshöfn fáum
við yfirdrifið landrými og okkur
hefur verið einstaklega vel tekið
af heimamönnum. Starfsemin hef-
ur vaxið hratt á síðustu árum og
nú starfa nú hjá okkur um 100
manns. Útflutningur á vissum
vörum er allt að 25% af fram-
leiðslunni þannig að nálægðin við
höfnina er kostur. Þótt við fáum í
þessum samningum úthlutað lóð-
um erum við ekki að fara út í hús-
byggingar almennt heldur er þetta
hugsað fyrir starfsfólk fyrirtæk-
isins. Verksmiðjan í Þorlákshöfn
verður vonandi tilbúin í lok næsta
árs en starfsemin á Breið-
höfðanum mun ekki stöðvast fyrr
en hægt verður að hefja starfsemi
í Þorlákshöfn. Ekki verður notast
við gömlu tækin, allt verður nýtt
og fullkomnara og miðað við að
auka starfsemina,“ sagði Sig-
urbjörn.
Allt að 100 ný störf verða til
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Í höfn Þorvaldur Gissurarson, stjórnarformaður Einingaverksmiðjunnar,
Sigurbjörn Óli Ágústsson framkvæmdastjóri og Ólafur Áki Ragnarsson
bæjarstjóri handsöluðu samninga. Fyrir aftan þá standa Björn Davíð Þor-
steinsson gæðastjóri og Jón Einarsson framleiðslustjóri fyrirtækisins.
Einingaverksmiðjan
flytur starfsemi sína
til Þorlákshafnar
Í HNOTSKURN
»Einingaverksmiðjan sérhæf-ir sig í framleiðslu for-
steyptra eininga til bygginga-
framkvæmda.
»Einingaverksmiðjan fram-leiðir meðal annars veggi,
burðarbita, plötur og sérsmíði á
borð við svalir, brýr, sökkla, rek-
staura, súlur og stúkur t.d. við
íþróttaleikvanga. Einingaverk-
smiðjan veitir einnig alla þjón-
ustu varðandi flutninga og upp-
setningu eininga, fyrir jafnt stór
sem smá verkefni.
Hveragerði | „Stefnumót við safneign
– listir, leikur og lærdómur“ er heiti
nýrrar sýningar í Listasafni Árnes-
inga sem opnar í dag, laugardag,
klukkan 15.
Á sýningunni eru valin verk úr eigu
safnsins, að mestu leyti úr gjöf Bjarn-
veigar Bjarnadóttur og sona hennar.
Flest verkin eru unnin á fyrri hluta og
um miðbik síðustu aldar og eru höf-
undar þeirra þrjátíu talsins.
Gestum er boðið að njóta verkanna
en jafnframt er þeim boðið að mála –
taka sér liti í hönd og gera tilraunir á
pappír. Næstu tvo sunnudaga verður
myndmenntakennari til staðar í safn-
inu frá kl. 14 til 16 og leiðbeinir þeim
sem þess óska.
Safnið er opið fimmtudaga til
sunnudaga kl. 12-18.
Stefnumót
við safneign
í listasafni
Selfoss | Garðyrkjufélag Árnes-
inga stendur fyrir hugmyndavöku í
Tíbrá á Selfossi næstkomandi
þriðjudagskvöld kl. 20 til 22. Leið-
beint verður um gerð greinakransa
og ýmissa skreytinga sem hægt er
að vinna úr efni sem til fellur í
garðinum.
Leiðbeinandi verður Hafsteinn
Hafliðason sem einnig svarar
spurningum og gefur ráð um eitt
og annað sem gæta þarf að í garð-
inum núna. Boðið verður upp á
kaffi og piparkökur.
Hugmyndavaka
haldin í Tíbrá
♦♦♦
ÁRBORGARSVÆÐIÐ