Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 43

Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 43 MIKLAR breytingar hafa orðið í leikskólastarfi undanfarin 15 ár. Lík- lega hafa hvorki kennarar, foreldrar né rekstraraðilar áttað sig á hversu gífurleg breytingin er. Á þessu tíma- bili hefur vistunartími barna breyst. Áður voru flest börn í leikskóla í fjóra tíma á dag fyrir hádegi eða eftir hádegi og nokkur voru allan daginn. Nú er tíðin önnur. Næst- um því hvert einasta barn á aldrinum tveggja til sex ára er í átta til níu stundir í leikskóla dag hvern. Það væri spennandi rannsóknarefni að skoða áhrif þess á börn að dvelja svo langan tíma í skóla frá unga aldri. Rými á hvert barn Þó svo að þessi rannsókn sé ekki til, þá er það sláandi hvað umtal um álag og veikindi í leikskólum hefur aukist mikið undanfarin ár, sér- staklega eftir að reglum og við- miðum um rými á hvert barn var breytt. Leikskólakennarar sem hafa unn- ið í þessu starfi lengi, finna mjög fyr- ir þessari breytingu og einnig þeirri breytingu sem hefur orðið á börnum. Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er fyrir barn að geta myndað geð- tengsl við fáa fyrstu mánuðina og ár- in, en þetta er mikið grundvall- aratriði fyrir allan þroska barns og ekki verða geðtengsl keypt í búð. Þó svo að það sé ekki einföld lausn á þessu vandamáli, þá er ég þess full- viss að ein af þessum lausnum getur verið fólgin í því að breyta þeim reglum og viðmiðum sem eru í gildi varðandi rými á hvert barn. Það þarf að hækka þetta viðmið, til að gera leikskólana umhverfisvænni, bæði fyrir kennara og börn. Sérkennslan hefur aukist Allar tölur benda til þess að sér- kennsla hafi aukist í leikskólum landsins á seinni árum. Vel er staðið að þeim málum hjá rekstar- aðilum og mikil þjón- usta í boði og er það vel. Það má hins vegar spyrja hvort það geti talist eðlilegt að svo mörg börn þurfi sér- staka talþjálfun, sér- staka meðferð vegna ofvirkni, athyglisbrests og fleira. Mörg börn af erlendum uppruna eru komin í leikskólana og er það vel, en það er líka ein viðbótin í leikskólastarfinu. Aukin vinna er hjá kennurum vegna málörðugleika foreldra og barna þeirra og oft skapast árekstur barna í milli vegna þess að málið er þeim fjötur um fót. Margir ófaglærðir Fjölgun leikskóla hefur orðið gríð- arleg síðustu 12 árin. Öll börn tveggja ára og jafnvel eins og hálfs- árs eru komin í leikskóla og flest all- an daginn. Þetta þýðir að fleiri störf hafa orðið til í leikskólunum. Ekki hefur tekist að mennta nærri nógu marga kennara til þess að halda í við þessa aukningu, þannig að hlutur faglærðra er nánast búinn að vera sá sami síðustu þrjátíu árin, þó að kenn- arabrautin á Akureyri og fjarnám í kennarafræðum hafi komið ný inn. Ófaglært starfsfólk er margt mjög góðir starfsmenn og vinnur geysi- lega gott starf, en of mikið er af fólki í starfi í leikskólunum sem ætlar að vinna þar stutt og er ekki komið til að vera og byggja upp metnaðarfullt uppeldisstarf og reyndar ekki hægt að ætlast til að það geri það. Mennt- unarþáttinn verður að laga. Sameiginlegt framtak Þjóðfélag okkar hefur breyst og við höfum sofið á verðinum. Börnin, okkar mesta verðmætið, hefur setið á hakanum. Við getum engum kennt um nema okkur sjálfum. Það er hins vegar skylda okkar allra sem vinnum að uppeldi og menntun barna að setj- ast niður og skoða stöðuna og gera áætlanir. Ef við ætlum að hafa það þannig áfram að nær allir foreldrar vinni í 100% starfi og eignist börn, þarf að vera til góður skóli fyrir þau, sem er þannig búinn að barnið fái notið sín í þroskandi umhverfi, þar sem áreiti eru í lágmarki. Sem dæmi má nefna að tveggja ára barn sem er á 20 barna deild og deilir auk þess sameiginlegu rými með öðrum 20 börnum, þarf dag hvern að umgang- ast 39 börn og átta til tíu fullorðna. Oft er sagt í hátíðarræðum að börnin séu það dýrmætasta sem við eigum og því er ég sammála. Við verðum því að huga að öllum þáttum sem að þeim snúa, bæði umhverfi, uppeldi og menntun. Þetta kostar mikla peninga og þá peninga verðum við að vera tilbúin að láta í þennan málaflokk. Miklar breytingar í leikskólastarfi Unnur Stefánsdóttir fjallar um breytingar í leikskólamálum » Börnin, okkar mestaverðmætið, hefur setið á hakanum. Við getum engum kennt um nema okkur sjálfum. Unnur Stefánsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri heilsustefnunnar hjá Skólum ehf. Húsið er vandað steinhús, kjallari og 3 hæðir ca. 1400 fm. Bílastæði fylgja, þar af hluta til í lokaðri bílageymslu. Lyfta er í húsinu. Þrír inngangar eru í húsið. Fjölförnustu gatnamót í Rvk. Mikið auglýsingagildi. Almenningssamgöngur hvergi betri. Húsið er laust nú þegar. Verðtilboð óskast. Upplýsingar veita Dan Wiium s. 896-4013 og Kristinn Ingi s. 893-1041. GRENSÁSVEGUR - HORNHÚS M bl .9 53 41 1 Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 2 og 3 hæð. Um er að ræða algerlega endurnýjað hús. Þriðja hæðin er nýbygging. Hæðirnar leigjast saman eða í sitt hvoru lagi. Frábær stað- setning og mikið auglýsinga- gildi. Langtímaleiga. Upplýsingar veita sölumenn Kjöreignar. jöreign ehf GRENSÁSVEGUR 11 - TIL LEIGU Spönginni 37 – 112 Reykjavík – www.fmg.is Sigrún Stella Einarsdóttir löggiltur fasteignasali Sigrún Stella Einarsdóttir lögg. fasteignasali GSM 824 0610 Karl Dúi Karlsson sölumaður GSM 898 6860Sími 575 8585 Falleg 166,4 fm, 4-5 herb. íbúð á 2 hæðum. Snyrtileg sameign. Hátt er til lofts í íbúðinni, gluggar stórir og er eign- in afar björt og vistleg. Hol með skápum, rúmgott eldhús með borðkrók, borðstofa og afar rúmgóð stofa. Vestursvalir. 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og sjón- varpshol. Gólfefni eru fallegar flísar, parket og dúkur. Á jarðhæð er sér geym- sla og sameiginl. hjóla- - og vagnageymsla. HAGSTÆÐ ÁHV. LÁN FYLGJA. V. 34,9 millj. 16 millj. kr. LSR lán með 4,15% föstum vöxtum. VEGHÚS - 4RA TIL 5 HERBERGJA GÓÐ LÁN FYLGJA Falleg 98,4 fm 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum í nágrenni við Spöngina og Borgarholtsskóla. Þrjú svefn- herbergi með góðum skápum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð. Suðursvalir. Glæsilegt útsýni er af svölunum yfir borg- ina. Einnig er glæsilegt útsýni af svalagangi, m.a. yfir Esjuna og Snæfellsjökulinn. Góð geymsla er á jarðhæð. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni. Áhvílandi 17 millj. LAUFRIMI - 4RA HERBERGJA MEÐ SÉRINNGANGI Glæsileg 2ja herb., 51,3 fm íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi í Grafarholti. Flísalagt and- dyri með fataskáp. Stofa og eldhús í opnu parketlögðu rými, aðskilið með lágum, létt- um vegg. Eldhús með fallegri innréttingu, vönduðum tækjum og borðkrók. Vestur- svalir. Svefnherb. parketlagt og með fata- skápum. Baðherb. flísalagt, með sturt- uklefa, veggh. salerni. Tengt fyrir þvottavél. V. 17,9 millj. Laus við kaupsamning ÞÓRÐARSVEIGUR - 2JA HERB. ÁHVÍLANDI LÁN 13,6 MILLJ. Á nýju ári leitum við meðal annars að eftirfarandi eignum fyrir ákveðna viðskiptavini okkar: HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR Í SÍMA 824-0610 OG 898-6860 OG FÁÐU AÐ SKOÐA OFANGREINDAR EIGNIR. Starfsfólk Fasteignamiðlunar Grafarvogs óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegs og farsæls komandi árs. Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða. Tveggja herbergja íbúð í Grafarvogi. Stór íbúð með góðu útsýni í Grafarvogi. Ósk um stórt eldhús og fjögur svefnherbergi. Stórt raðhús á svæði 109 Reykjavík. Ósk um þrjú til fjögur svefnherbergi og aukarými sem hentar til útleigu. Þessi aðili vill setja upp í kaupin, góða fjögurra herbergja íbúð með stæði í bílgeymslu í Seljahverfi. Er ekki einhver sem þarf að minnka við sig? Einbýli á einni hæð með stórum bílskúr í Mosfellsbæ. Ósk um að lóðin þarfnist ekki mikillar viðhaldsvinnu, má gjarnan vera vel hellulögð og með palli/pöllum. Atvinnuhúsnæði með þægilegri aðkomu fyrir mjög snyrtilega starfsemi. Ýmis staðsetning á höfuðbor- garsvæðinu kemur til greina. Stærð 140-200 fm. LA US

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.