Morgunblaðið - 30.12.2007, Qupperneq 56
… en vilja aðrar kon-
ur það sama og konan
hans? 58
»
reykjavíkreykjavík
ÞETTA er auglýsing fyrir Nike
með þeim Ronaldo og Rooney. Að
vísu mætti Rooney ekki á svæðið,
sem var svolítið fyndið,“ segir
Ágúst, en umrædd auglýsing var
tekin rétt fyrir utan Manchester í
nóvember.
„Hún snýst um hugmyndina um
mann á móti vél. Ronaldo er að hita
upp við kappakstursbraut, og þá
kemur Bugatti Veyron og leggur
við hliðina á honum. Þetta er bíll
sem kostar einhver milljón pund og
á að vera hraðskreiðasti bíll í heimi,
einhver 1000 hestöfl. Það er sem
sagt verið að segja að gripið í Nike
takkaskónum sé betra en í þessum
bíl,“ segir Ágúst, en í auglýsingunni
fer Ronaldo í kapp við bílinn, og
vinnur auðvitað. „Svo átti glugginn
á bílnum að opnast og þar átti Roo-
ney að vera, og þeir áttu svo að
hlæja. En menn eru stundum of
stórir og frægir, og þeir mæta bara
þegar þeir nenna að mæta,“ segir
Ágúst.
Ronaldinho með stjörnustæla
Aðspurður segir Ágúst ekkert
mál fyrir menn á borð við Wayne
Rooney að svíkja Nike með þessum
hætti. „Ef hann nennir ekki að
mæta verðum við bara að hitta hann
seinna, og við erum enn að bíða eftir
að ná degi með honum til að klára
auglýsinguna. Þá notum við bara
svona „green-screen“ til að koma
Ronaldo og Rooney saman. En
þetta er samt magnað, þeir fá ein-
hver milljón pund í laun, en svo
mæta þeir ekki,“ segir hann, og
bætir því við að engin formleg skýr-
ing hafi borist frá stjörnunni. „Ekki
beint, en okkur var sagt að hann
hefði verið úti að versla með kon-
unni,“ segir Ágúst og hlær. Ljóst er
að auglýsingin verður þó að klárast
fljótlega því hún verður sýnd út um
ÞÓTT KVIKMYNDATÖKUMAÐURINN ÁGÚST JAKOBSSON FÁIST AÐ MESTU VIÐ AUGLÝSINGAR UM ÞESSAR MUNDIR HEFUR HANN KOMIÐ VÍÐA VIÐ Á FERLINUM. HANN
HEFUR M.A. SKOTIÐ KVIKMYNDIR Á ÍSLANDI OG Í FINNLANDI, TÓNLISTARMYNDBÖND Í BANDARÍKJUNUM, OG NÚ SÍÐAST KNATTSPYRNUAUGLÝSINGAR Í BRETLANDI.
JÓHANN BJARNI KOLBEINSSON SPJALLAÐI VIÐ ÁGÚST UM NÝJASTA VERKEFNIÐ – AUGLÝSINGU MEÐ KNATTSPYRNUMÖNNUNUM RONALDO OG WAYNE ROONEY.
ÞEGAR ROONEY MÆTTI EKKI
Morgunblaðið/Ómar
Fjölbreytni „Ég held að þetta sé eðlileg þróun fyrir kvikmyndatökumann, að reyna fyrir sér í tónlistarmyndböndum, fara svo yfir í auglýsingar og svo í kvikmyndirnar,“ segir Ágúst.
Maðurinn og vélin Ronaldo á tökustað ásamt hinum rándýra Bugatti Veyron.