Morgunblaðið - 30.12.2007, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 63
Lýsa mætti því tiltæki aðleyfa mönnum að sækjasér skífuna og borga fyrirsem þeim sýndist sem svo
að Radiohead-menn hafi verið að
selja lekann, þ.e. í ljósi þess að allar
plötur leka út á Netið áður en þær
koma út á föstu formi sáu þeir fé-
lagar sjálfir um lekann og fengu
greitt fyrir. Það hefur reyndar ekki
enn komið í ljós hversu mikið fékkst
fyrir og ekki heldur hve margir
sóttu sér plötuna, en haft hefur verið
eftir þeim að þeir hafi haft umtals-
vert meira upp úr krafsinu en fyrir
alla stafræna dreifingu á verkum
sínum til þessa samanlagt.
Ekki má svo gleyma því að aug-
lýsingin sem sveitin fékk, og kostaði
hana ekki krónu, var meiri og magn-
aðri en dæmi eru um á síðasta ári;
súrefniskassar, simpansar og al-
menn hneykslismál blikna í sam-
anburði við fjölmiðlafárið í haust út
af In Rainbows.
Teflt á tvær hættur
Það er tvíbent þegar plötur leka
út á Netið; sumum hefur það reynst
mikið lán, aukið áhuga fyrir viðkom-
andi hljómsveit og jafnvel gert
heimsþekkta eða þar um bil, en einn-
ig eru til dæmi um hið gagnstæða,
þ.e. að stafræn dreifing á tónlist hafi
minnkað áhuga manna á að komast
yfir viðkomandi skífu. Þá raða gæðin
mestu, nema hvað; ef platan er góð
getur dreifing á Netinu aukið áhuga
manna á að komast yfir viðkomandi
skífu og um leið treyst sambandið á
milli aðdáenda og listamanna.
Í því ljósi má gera því skóna að In
Rainbows muni seljast vel, enda er
þar komin ein besta plata Radiohead
í langan tíma. Það vakti áhyggjur
manna hve sveitin var lengi að setja
skífuna saman, því upptökur hófust í
febrúar 2005, en allur ótti reyndist
ástæðulaus. Lögin á væntanlegri
skífu mátti líka heyra á tónleikaferð
Radiohead um heiminn á síðasta ári
og þá heyrðu menn að þau voru
harla góð.
Minna um tilraunir
Eins og getið hefur verið í fjölda
umsagna um In Rainbows er minna
um tilraunir á plötunni en á síðustu
breiðskífum, öllum plötum frá því
Kid A kom út segja margir, og má til
sanns vegar færa. Þrátt fyrir það er
tónlistin bæði nýstárleg og frumleg,
framsækin en minna um rafeinda-
hljóð og viðlíka en á síðustu skífum.
Tilgátur um ástæður stílbreyting-
arinnar eru margar, sumir gera því
skóna að sveitinni hafi verið svo létt
yfir að ráða sér sjálf, að vera ekki
lengur samningsbundin plötufyr-
irtæki, að menn hafi spilað af meiri
gleði en í mörg ár, aðrir að þeir fé-
lagar hafi verið komnir í blindgötu
með tilraunirnar og enn aðrir að nú
þegar Thom Yorke sé byrjaður að
gefa út plötur undir eigin nafni láti
hann félaga sína í friði í hljóðverinu
– sé ekki að troða upp á þá alls kyns
rafeindapípi. Hvað sem slíkum
vangaveltum líður má gera ráð fyrir
að þorri aðdáenda sveitarinnar taki
In Rainbows vel og öll umfjöllunin
sem skífan hefur fengið ætti líka að
vera þeim sem ekki þekkja sveitina
hvatning til að kynna sér málið.
Kýtt við EMI
EMI plötufyrirtækið var með Ra-
diohead á sínum snærum en nú ráða
þeir félagar sér sjálfir, því samning-
urinn er útrunninn. Þeir kusu að
semja við ýmis önnur fyrirtæki um
útgáfuna á In Rainbows á föstu
formi sem hefur væntanlega komið
illa við þá EMI-stjóra. EMI á þó enn
útgáfuréttinn á eldri Radiohead-
skífum og gaf út kassa með þeim öll-
um í byrjun desember; um líkt leyti
reyndar og Radiohead-menn gáfu út
kassa með In Rainbows á disk og
ýmislegu öðru efni. Hugsanlega hef-
ur það verið tilviljun að þetta skyldi
rekast svo saman, en þegar við bæt-
ist að EMI auglýsti safnkassann í
fyrstu undir yfirskriftinni „Rain-
bow“ og að hann kostar það sama og
In Rainbows-pakkinn kemur varla á
óvart að ýmsar samsæriskenningar
hafi komist á kreik. Það segir svo
sitt um samband plötufyrirtækis og
tónlistarmanna að fyrirtækið geti
gert annað eins, þ.e. gefið út plötur
án þess að listamaðurinn fái nokkru
um það ráðið.
Að þessu sögðu er kassinn sjálfur
fín eign, plöturnar sjö, Pablo Honey
(1993), The Bends (1995), OK
Computer (1997), Kid A (2000), Am-
nesiac (2001), I Might Be Wrong:
(tónleikaupptökur, 2001) og Hail To
The Thief (2003), allar fyrirtak, mis-
góðar þó, en einnig er hægt að kaupa
plöturnar sjö sem MP3 niðurhal og
til að kóróna allt saman er hægt að
kaupa safnið á sérhönnuðum USB-
lykli en á honum eru plöturnar allar
sem WAV-skrár, og þá í fullum
geisladisksgæðum.
Regnbogi á plast
Samhentir Félagarnir í Radiohead binda bagga sína ekki sömu hnútum og
samferðamennirnir, og njóta gríðarlegra vinsælda fyrir vikið.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Fátt vakti aðra eins at-
hygli á árinu og það at-
hæfi Radiohead að dreifa
nýrri breiðskífu sinni, In
Rainbows, á Netinu.
Ekki var þetta þó eig-
inleg útgáfa á skífunni
því In Rainbows kemur
út á disk á morgun.
popp
blús
sönglög
djass
Öðruvísi
tónlistarnám!
Nánari upplýsingar og skráning
www.tonheimar.is og í síma 846 8888
Innritun stendur yfir
Skemmtilegt og hagnýtt tónlistarnám sem
hentar fólki á öllum aldri, jafnt byrjendum sem
lengra komnum.
4 ára og eldri
Unglingar
Fullorðnir
Eldri borgarar
Dreymir þig um að geta spilað
uppáhaldslögin þín eftir eyranu?
Vorönn hefst 14. janúar
Tónlistarnám
Píanó
Harmónikka
Kassagítar
Rafgítar
Rafbassi
Tölvur og tónlist
fyrir þig!
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn