Morgunblaðið - 04.05.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 04.05.2008, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T N‡r sjúkrafljálfari Steffan Christensen sjúkrafljálfari B.Sc. kemur aftur til starfa. V ér lifum á erfiðum tímum, voru fleyg orð Steins Steinars, ekki endilega vegna þess að hann hafi sagt þau fyrstur manna. Miklu fremur vegna hins að þau fengu dýpri merkingu úr hans munni og settu umkvörtun landans um kjör sín í kímilegt ljós. En vitanlega eru ummælin klassísk og þörf áminning til ungu kynslóðarinnar eins og svo margt annað sem eftir Steini er haft. Og kannski rétt hjá honum líka, að „einn dag munu allar línur / enda í hnút“, en sá dagur er auðvitað víðs fjarri þeim sem nú lifa og lifa munu og afkomendum þeirra, sem þá verða uppi. Í þessu ljósi blasir við, að hver kynslóð verður að ráða fram úr sín- um erfiðleikum sjálf. Þegar við Ög- mundur Jónasson stigum okkar fyrstu pólitísku skref var verðbólgan að færast í aukana. Og upp úr 1980 stóð hann í fararbroddi ungs fólks, sem var að missa hús sín vegna víxl- hækkana kaupgjalds og verðlags. Fyrir komu mánuðir á valdaskeiði ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens sem verðbólgan fór upp í þriggja stafa tölu. Þessi reynsla greypti sig inn í huga forystufólks í stjórnmálum og verkalýðsbaráttu. Og undir lok áratugarins var svo komið, að aðilar vinnumarkaðarins ásamt bændum knúðu ríkisstjórn vinstri flokkanna til aðgerða, þjóðarsáttarsamninganna. Ella blasti við fjöldaatvinnuleysi og kaupmáttarhrun. Verðbólguhnykkurinn nú í mars og apríl hefur komið illa við alla. Menn vissu um launaskriðið og að krónan hafði lengi verið of hátt skráð en enginn átti von á þessari alþjóðlegu viðskiptakreppu, sem hlaut að bitna á okkur ekki síður en öðrum. Og nú ríður á að halda ró sinni. Sá tónn, sem verkalýðshreyfingin sló 1. maí gefur tilefni til bjartsýni. Sérstaklega merkilegar þóttu mér hugleiðingar og aðvörunarorð Ingibjargar R. Guð- mundsdóttur, varaforseta ASÍ, á Húsavík 1. maí. Ingibjörg var íhugul í ræðu sinni og mega forystumenn atvinnurekenda margt af hennar málafylgju læra. Sömuleiðis duldist ekki sáttatónninn í ræðu Ögmundar Jónassonar. Ný þjóðarsátt getur ekki haldið nema það sé ljós fram undan, ný at- vinnutækifæri og vissa fremur en von um velferð. Þessa dagana hef ég haft spurnir af ungu fólki, duglegu, fram- gjörnu og vel menntuðu, – hvítt um- slag hefur legið á borði þess fyrir mánaðamótin þar sem það er beðið að tæma skúffurnar og hverfa síðan á braut. Iðjuleysi á þessum forsendum getur aldrei snúist upp í hvíld eða notalega daga á sólarströndu af því að einstaklingur í blóma lífsins tekur á sig skuldbindingar sem hann þarf að standa við. Og til þess þarf hann tekjur og atvinnu. Brauðstritið verð- ur að síðustu blessun. Til allrar hamingju er Ísland gjöf- ult land og orkulindirnar gefa mikið af sér, – ef við kunnum að nota þær og fáum að nýta þær. Það er hálf öld síðan ég hóf þennan söng. Ég lærði hann af Einari Benediktssyni, sem söng hann hálfri öldu fyrr: Horfum heim til Héðinshöfða og til Húsavík- ur. Umhverfismat álsvers á Bakka PISTILL »Ný þjóðarsátt geturekki haldið nema það sé ljós fram undan, ný at- vinnutækifæri og vissa fremur en von um velferð Halldór Blöndal Nú ríður á að halda ró sinni liggur fyrir og umsvifin færa fólki við Skjálfanda og Eyjafjörð ný störf í stað vonleysis og deyfðar. „Vilji er allt sem þarf,“ sagði Magne Arge í sjónvarpinu um daginn, þegar hann ræddi sjálfstæði Færeyja og mögu- leika til sjálfsbjargar. Hann er kom- inn af Jóannesi Paturssyni á Kirkjubæ og mér fannst honum svipa til Einars og tek undir með þeim: reistu í verki viljans merki – vilji er allt sem þarf. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Halldór Blöndal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is BEINT flug Icelandair til Toronto í Kanada hófst sl. föstudag. Þegar vél Icelandair renndi að flugstöð borgarinnar fögnuðu heimamenn komu hennar með því að sprauta yfir hana vatnsbogum úr slökkvi- liðsbílum vallarins meðan hún ók að sínum rana. Í þessu fyrsta flugi voru auk almennra farþega, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra ásamt fylgdarliði, Ein- ar Benediktsson sendiherra og Björgólfur Jóhannsson stjórn- arformaður Icelandair Group. Í móttöku sem borgar- og ferða- málayfirvöld Toronto héldu í til- efni hins beina flugs komu m.a. Einar K. Guðfinnsson ráðherra og Markús Örn Antonsson sendiherra. Ávörp voru flutt og hinum ís- lensku gestum fagnað innilega. Icelandair er eina flugfélagið auk kanadískra og bandarískra flugfélaga sem fengið hefur óskil- yrt leyfi til flugs til og frá Kanada, fyrir utan skilyrði um að fljúga jafnframt til Halifax. Öðrum flug- félögum eru sett ýmis skilyrði sem varða val áfangastaða, tíðni flugs og fargjaldaverð. Þykir þetta mik- ill áfangi fyrir Icelandair og hefur tekið mjög langan tíma að koma því í framkvæmd. Björgólfur Jóhannsson sagðist í samtali við Morgunblaðið í Tor- onto vera afar ánægður með að Torontoflugið væri hafið og að það skipti miklu máli fyrir Icelandair að hafa náð þeim áfanga. Þrjú flug verða vikulega fram í lok maí, en þá verða þau fimm á viku út sumarið. Björgólfur segist vonast til að Íslendingar taki fluginu opnum örmum. Svo virðist raunar vera því bókanir í maí eru í samræmi við væntingar félagsins, eða rétt yfir fimm þúsund manns. Þá telur hann umtalsverð tækifæri liggja í flugi milli Evrópu og Kanada um Ísland. Flug Utanríkisráðherra var meðal farþega í fyrsta fluginu til Toronto. Þangað verða fimm flug á viku í sumar. Fagnað með vatnsbogum Beint flug Icelandair til Toronto hófst á föstudag BARNFÓSTRUMIÐLUN hefur nýverið hafið starfsemi sína hér á landi, fyrst sinnar tegundar. Um er að ræða netþjónustu, passar.is, en þar geta foreldrar fundið barnfóstrur til að gæta barna sinna á kvöldin og um helgar. Að baki miðluninni standa hjónin Telma Sigtryggs- dóttir og Kjartan Örn Sigurðsson. Þau segja svona þjónustu vera að finna í Bretlandi, þar sem þau bjuggu um sex ára skeið. Eftir að þau fluttu heim og fjöl- skyldan tók að stækka sáu þau að enga barnfóstru- miðlun var að finna hér á landi og datt þeim því í hug að koma einni slíkri á fót. Setja stífar kröfur Telma og Kjartan gerðu könnun meðal fólks á netinu og fundu fyrir miklum áhuga og jákvæði í garð slíkrar miðlunar. Eftir að heimasíðan varð tilbúin fyrir hálfum öðrum mánuði byrjaði Telma að ganga milli leikskóla og grunnskóla á Reykjavíkursvæðinu og á Akureyri til að kynna síðuna. Þar fékk hún mjög góðar viðtökur og hafa nú þegar margir leikskólakennarar skráð sig á síðuna, á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Ak- ureyri. Þá hafa námsmenn líka skráð sig reiðubúna til barnagæslu á síðuna. Þau skilyrði sem sett eru fyrir barnfóstrurnar eru að þær hafi reynslu í gæslu barna, séu orðnar 18 ára og með hreint sakavottorð, bílpróf og góð meðmæli. „Við gerum sömu kröfur og við sjálf gerum til barnfóstra sem við viljum að gæti okkar barna,“ segir Kjartan Örn en hann á þrjú börn á aldrinum 1-9 ára. Við undirbún- ing síðunnar hafi komið í ljós mikil þörf fyrir miðlun sem þessa á landinu. Fóstrur fundnar á netinu Miðlun Telma og Kjartan ásamt dóttur sinni Maríu Sól. EGILL Jóhanns- son, forstjóri Brimborgar, hef- ur ritað opið bréf til þeirra Hannes- ar G. Sigurðsson- ar, aðstoðarfram- kvæmdastjóra Samtaka atvinnu- lífsins, og Grétars Þorsteinssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, vegna þátttöku þeirra „í markaðs- herferð bílaumboðsins Heklu“ eins og Egill kemst að orði í bréfi sínu. Tilefni bréfs Egils er blaðamanna- fundur í Heklu 30. apríl síðastliðinn þar sem þeir Hannes og Grétar voru viðstaddir kynningu á verðlækkun bíla hjá Heklu um allt að 17% á sum- um bíltegundum en yfirleitt 9-11% verðlækkun. „Furðu sætir að virðulegir for- svarsmenn samtaka launþega og at- vinnulífs skuli við upphaf þessarar auglýsingaherferðar og með viðtöl- um við fjölmiðla styðja fyrirtæki eins og Heklu, sem hefur gengið á undan í verðhækkunum. Manni er hálf- brugðið því svo virðist sem þið hafið verið fengnir á blaðamannafundinn til þess eins að gera ótrúverðuga auglýsingaherferð trúverðuga,“ skrifar Egill m.a. og segir að þátt- taka forystumannanna sé hvorki þeim né samtökum þeirra til sóma. Gagnrýnir for- ystu SA og ASÍ Egill Jóhannsson „Manni er hálfbrugðið,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar ÞYRLA frá Þyrluþjónustunni nauð- lenti norðan við Kleifarvatn rétt fyrir hádegi í gær. Tveir voru um borð og sakaði þá ekki, að sögn flugrekstarstjóra fyrirtækisins. Lögregla höfuðborgarsvæðisins fór á staðinn og einnig var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vett- vang til að athuga aðstæður. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins var ekki bílfært á lendingarstað þyrlunnar. Þyrla nauð- lenti við Kleifarvatn KARLMAÐUR um þrítugt varhandtekinn á föstudag á Akureyr- arflugvelli eftir að fíkniefnaleit- arhundur lögreglunnar hafði gefið til kynna að hann væri með fíkni- efni í fórum sínum. Við frekari rannsókn kom í ljós að hann hafði tæplega 20 grömm af hvítum efnum innvortis. Var mað- urinn færður á lögreglustöðina þar sem mál hans var afgreitt og var hann síðan laus úr haldi lögreglu þá um kvöldið. Málið kom upp við hefðbundið eftirlit lögreglu. Tekinn með ætluð fíkniefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.