Morgunblaðið - 04.05.2008, Síða 19
sem Saudar geta ekki og munu ekki
sætta sig við.
Takist Írönum að verða kjarn-
orkuveldi myndi tilvistarótti Sauda
magnast til muna. Almennt myndi
gildi hefðbundins herafla í Mið-
Austurlöndum að miklu leyti glatast
og þá er svæðisbundið kjarnorku-
vopnakapphlaup óumflýjanlegt.
Þessari nýju stöðu fylgir hættan á
allsherjarupplausn hins bresk-
franska ríkjakerfis, sem hefur verið
við lýði í Mið-Austurlöndum. Þar er
Írak vitaskuld fyrst á dagskrá.
Hvort hægt sé að halda Írak sam-
an þrátt fyrir þjóðernislegan og
trúarlegan ágreining, þar sem att er
saman Kúrdum og aröbum annars
vegar og súnnítum og shítum hins
vegar, er ein af áleitnustu spurning-
unum í hinum nýju Mið-Austur-
löndum. Það gæti nefnilega reynst
erfitt að staðbinda upplausn Íraks og
hún gæti leitt allsherjar „balkaníser-
ingar“ svæðisins.
Önnur mikilvæg spurning er hvort
hið pólitíska íslam mun þokast í átt
að lýðræði og sættast við nútímann
eða sitja áfram fast í róttækni og for-
tíðarhyggju. Eins og stendur er víg-
línan í þessu stríði ekki í Mið-
Austurlöndum, heldur Tyrklandi, en
niðurstaðan mun engu að síður hafa
mun víðtækara vægi.
Tilurð hinna nýju Mið-Austur-
landa mun veita tækifæri til að koma
á skipan á svæðinu, sem endur-
speglar réttmæta hagsmuni allra
þeirra sem hlut eiga að máli, tryggja
örugg landamæri og gera að verkum
að gagnsæi og samstarf taki við af
áformum um yfirráð. Ef ekki, ef slíkt
tækifæri verður ekki gripið, munu
hin nýju Mið-Austurlönd verða mun
hættulegri en þau gömlu.
Höfundur var utanríkisráðherra og
varakanslari Þýskalands frá 1998 til
2005 og leiddi flokk Græningja í nærri
20 ár. © Project Syndicate/Institute
for Human Sciences, 2008.
www.project-syndicate.org
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 19
’Sterkur gjaldmiðill myndibreyta mörgu til hins betra en
það eru fjölmörg vandamál sem
evra og Evrópusambandsaðild
myndu ekki leysa við þessar að-
stæður. ‘Ingibjörg R. Guðmundsdóttir , varaforseti
Alþýðusambands Íslands, í ræðu á degi
verkalýðsins, 1. maí.
’Þetta er ánægjuleg nið-urstaða.‘Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra lýsti yfir ánægju með sam-
komulag um að horfið hefði verið frá því að
breyta vaktafyrirkomulagi skurð- og
svæfingarhjúkrunarfræðinga.
’Það var gengið að öllum okkarkröfum, þessu breytta vakta-
kerfi var fleygt út af borðinu.‘Elín Ýrr Halldórsdóttir , talsmaður skurð-
hjúkrunarfræðinga, lýsti yfir fulln-
aðarsigri í deilunni.
’Ég spyr, hvar er hin hagsýnahúsmóðir í Samfylkingunni?‘Álfheiður Ingadóttir í umræðum um fyr-
irspurn hennar til Geirs H. Haarde for-
sætisráðherra um leiguflug íslenskra
ráðamanna til Búkarest og kostnað við
slíkar ferðir. Geir sagði að það hefðu verið
mistök að greina ekki strax frá kostnaði
við ferðina.
’Þessi deila á milli Bjarna oghersins snerist ekki aðeins um
skipan mála á stríðsárunum
heldur um framtíðarhagsmuni
bæjarins.‘Dr. Þór Whitehead , prófessor í sagnfræði,
sagði við athöfn til heiðurs Bjarna Bene-
diktssyni að hann hefði í borgarstjóratíð
sinni lagst gegn því árið 1940 að Bretar
legðu flugvöll þar sem nú er Reykjavíkur-
flugvöllur bæði vegna öryggishagsmuna
og að hann stæði í vegi fyrir æskilegri þró-
un byggðar.
’En það er svo magnað að þaðskiptir engu máli hvað veðbank-
arnir segja, hvernig mynd-
bandið er eða hvað fólk úti í bæ
segir. Það eina sem skiptir máli
eru þessar þrjár mínútur sem
við erum á sviðinu. Það er stund
sannleikans. Framhaldið er svo í
Guðs höndum. ‘Páll Óskar Hjálmtýsson í viðtali um gengi
Íslands í söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva.
Ummæli vikunnar
Tölvuvæðing Amanda kveikir á glænýrri tölvu, sem hún fékk frá for-
eldrum sínum. Amanda býr í Havana á Kúbu þar sem tölvur voru í fyrsta
skipti seldar í verslunum á föstudag. Samkvæmt heimildum stóðu borg-
arbúar við búðarglugga og göptu. Sala tölvanna heyrir til umbóta, sem
Raul Castro forseti hefur boðað.
Reuters
júlí 1980. Móðir hans er læknir og
faðir hans framkvæmdastjóri sjúkra-
húss. Minnstu munaði raunar að Ga-
sol endaði á sama vinnustað en hann
lagði í einn vetur stund á nám í lækn-
isfræði við háskólann í Barcelona. En
hin eiginlega ástríða hans var körfu-
bolti og átján ára gamall ákvað hann
að freista gæfunnar á þeim vettvangi.
Raunar fetar hann þar líka í fótspor
foreldra sinna sem bæði léku körfu-
bolta í 2. deild á Spáni á sínum yngri
árum.
Sjálfur byrjaði Gasol að æfa sjö
ára gamall og lék stöðu bakvarðar
fyrstu sex árin. Þá blasti við að færa
hann nær körfunni vegna hæðar
hans. Hann gerðist atvinnumaður ár-
ið 1999 með heimaliði sínu,
Barcelona.
Dáðist að „draumaliðinu“
Áhugi Gasols á NBA kviknaði þeg-
ar hann fylgdist með „draumaliðinu“
svonefnda leika listir sínar á ólymp-
íuleikunum á Barcelona sumarið
1992. Eftir það stefndi hann skónum
leynt og ljóst vestur um haf. Honum
varð að ósk sinni þegar hann var val-
inn af Atlanta Hawks í nýliðavalinu
2001. Raunar tók Gasol aldrei til
starfa þar á bæ því hann var í kjölfar-
ið látinn fara til Memhis Grizzlies
(sem þá hét raunar Vancouver Grizz-
lies) í skiptum fyrir Shareef Abdur-
Rahim. Gasol fór strax á flug með
Grizzlies-liðinu og var valinn nýliði
ársins í NBA um vorið. Síðan hefur
hann eflst við hverja raun.
Gasol hefur líka átt velgengni að
fagna á vettvangi landsliðsins en fyr-
ir tveimur árum gerði hann sér lítið
fyrir og leiddi Spánverja til sinnar
fyrstu heimsmeistaratignar. Var
hann valinn maður mótsins enda þótt
hann missti af úrslitaleiknum gegn
Grikkjum eftir að hafa fótbrotnað í
sigri á Argentínu í undanúrslitum.
Úrslitaleikurinn var leikur hinna
sterku varna, Spánverjar unnu 70:47.
Nei, þetta eru ekki hálfleikstölur.
Gasol varð þriðji stigahæsti leik-
maður mótsins á eftir Kínverjanum
Yao Ming og Þjóðverjanum Dirk No-
witzki sem báðir hafa vitaskuld líka
gert garðinn frægan í NBA. Gasol
hefur raunar oft verið líkt við þann
síðarnefnda. Sigur Gasol-fjölskyld-
unnar var hálfu stærri á HM þar sem
Marc var líka í leikmannahópi Spán-
verja.
DAGSKRÁ
7:45 Skráning og morgunverður
8:20 Ávarp: Finnur Oddson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
8:30 Breytt fjölmiðlaumhverfi: Að tala einni röddu
Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla
8:40 Skiptir traust og trúverðugleiki fyrirtæki og þjóðir máli?
Jere Sullivan, aðstoðarforstjóri Edelman í Evrópu
9:10 Traust og trúverðugleiki á Íslandi – niðurstöður Capacent Gallup
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknastjóri Capacent Gallup
9:25 Pallborðsumræður:
Bjarni Ármannsson fjárfestir, Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður,
Haraldur Johannessen, ritstjóri Viðskiptablaðsins, Jónas Fr. Jónsson,
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital,
Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, og
Pétur Gunnarsson, ritstjóri Eyjunnar.
10:15 Fundarlok
Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson dagskrárgerðarmaður
AP almannatengsl, samstarfsaðili Edelman á Íslandi, standa að málþinginu í samvinnu við
Viðskiptaráð Íslands og Capacent Gallup. Málþingið er öllum opið en þátttökugjald er 8.900 kr.
Tilkynna þarf þátttöku á netfangið skraning@appr.is eða í síma 511 1230.
PO
RT
h
ön
nu
n
Mikilvægi trausts og trúverðugleika fyrirtækja og þjóða er
meginefni morgunverðarfundar sem haldinn verður á vegum
AP almannatengsla, Capacent Gallup og Viðskiptaráðs á Hilton
Reykjavík Nordica fimmtudaginn 8. maí.
Á fundinum verða kynntar niðurstöður alþjóðlegrar traustskönnunar almannatengslafyrirtækisins Edelman
auk sambærilegrar rannsóknar Capacent Gallup á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem traust
og trúverðugleiki eru könnuð á Íslandi með aðferðum Edelman.
Traustskönnunin, Edelman Trust Barometer, er gerð árlega í fjölmörgum löndum og mælir viðhorf
skilgreindra áhrifavalda til trausts og trúverðugleika fyrirtækja, stjórnvalda, fjölmiðla og félagasamtaka.
Jafnframt eru traust og trúverðugleiki fjölmiðla og annarra boðleiða mæld. Niðurstöðurnar eru jafnan
kynntar á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos og hafa vakið mikla athygli helstu viðskiptafjölmiðla heims.
Traust
á umbrotatímum