Morgunblaðið - 04.05.2008, Síða 32

Morgunblaðið - 04.05.2008, Síða 32
L auk síðasta pistli með því að herma af vær- ingjum í myndlistinni, og þótt þær séu ekk- ert einsdæmi í gömlu höfuðborginni okkar við Eyr- arsund hafa þær reynst af- drifaríkari en nokkru sinni fyrr. En umbyltingar eiga síður að koma ofan frá, vera miðstýrðar, um það er sagan til vitnis, og nær- tækast að vísa til hinna hatrömmu deilna eftir seinni heimsstyrjöld- ina, bæði á heimaslóðum og ytra. Að baki hvarfanna voru þá örfáir listhópar með nýjar hugmyndir í lúkunum svona líkt og eftir fyrri heimsstyrjöldina. Hér á landi ein- mitt sá sem kenndi sig við sept- ember, en á seinni tímum hafa það verið markaðsöflin, menning- arráðin, kennimeistararnir, og sýningarstjórarnir sem ráða ferð- inni víðast hvar. Þetta einungis staðreyndir og enginn hér endi- lega að meta hvort sé farsælla, en þó mætti ætla að minna og jafnara sé sem oftar réttari leiðin á hæð- ina. Gjörbreyttar aðstæður hafa skapað nýjar þarfir en ekki skal þar með sagt að einstaklingurinn sé fyrir bí, og hér má vísa til hve vegur miðstýrðra samyrkjubúa í austri sem allan vanda skyldi leysa varð rýr í tímans rás, orsak- aði hungursneyðir, óhamingju og dauða milljóna. Nei, frjór og hug- myndaríkur heili þarf jafnan að vera með í leiknum og hann má ekki hefta með valdboði. Þetta hefur verið borðleggjandi í myndlistinni, en eftir breytta og opnari sýningarstefnu stímir hinn menntaði almenningur aftur inn á söfn sem á undangengnum árum voru að heita má tóm og skulu hér einkum nefnd Tate Britain í Lond- on og Arken (Örkin) í Kaup- mannahöfn, viðamiklar sérsýn- ingar þó undanskildar. Og enn skal áréttað, að ytra er aðgangur vissulega ókeypis á safneignirnar sjálfar. Í Lundúnum, hins vegar tekið gjald inn á sérsýningar; 5-10 pund, nema í undantekning- artilfellum, þau reyndar sárafá. Upplýsingar um stórviðburði á vettvanginum eru yfirleitt lengur að berast hingað á útskerið og þær ekki alltaf kórréttar og á stundum sniðnar að þörf einsýnna skrásetjara. Þá iðulega teknar upp úr markaðsáróðri einstakra fram- kvæmda sem að sjálfsögðu spara ekki stóru orðin um eigin athafnir. Hér brennur á að hlutlægt mat sé lagt á slíkar framkvæmdir og meir sé hugað að þeim hliðum í fjöl- miðlum hér, með skilvirkni og gagnsæi að leiðarljósi. Hugsunarháttur ensku kennslu- konunnar sem nýlega var eindreg- ið að mótmæla því opinberlega, að fimm stundum af listfræðslu væri bætt við vikulega námsskrá fram- haldsskóla í Bretlandi alltof al- geng hér á landi. Líkast sem list- fræðsla sé ómerkari og til hliðar við „alvöru“ kennslugreinar. Fyrnst hefur yfir, að skapandi kenndir eru undirstaða framfara og síst ómerkari en landa- og stærðfræði svo eitthvað sé nefnt. Kenna fólki að hugsa en ekki með- taka einungis allt það af lítillæti og þrælslund sem að því er rétt, þetta heitir á skorinorðu máli að rífa kjaft við kennarana ef sann- færing og gild rök liggja máli til grundvallar. Í framhjáhlaupi er viðeigandi að vísa til fyrirlestrar rithöfundarins Péturs Gunnarssonar, haldins í boði Kennarasambandsins og Kennaraháskólans, hvar hann tók sjálfa vinnuna fyrir. Litið er nefni- lega fram hjá því að andleg og skapandi vinna er undirstaða framfara og þannig voru Forn- Grikkir andhverfir líkamlegri vinnu en þeim mun ræktarsamari við andleg átök. Í tímans rás skil- uðu þau mannkyninu mestu hæð- um í heimspeki, bókmenntum, stærðfræði og listum sem um get- ur og eru enn í dag burðarstoðir menningar okkar. Plútark (46-120 e.Kr.) hermir að Spartverjar létu þræla erja fyrir sig jörðina af því að þegnarnir vildu rækta sjálfa sig. Og eins og dugur og verklagni eru ásarnir í líkamlegri vinnu er frjó hugsun og virk heilastarfsemi það sem úrslitum ræður á vett- vangi andlegra átaka, hins vegar er ládeyða og iðjuleysi af hinu illa hvort tveggja líkamleg sem and- leg. Þá ber að nefna, að menn hafa sannað áþreifanlega að sjúkdómar tengjast heilahvelinu, sem er þó ekkert nýtt meður því að Hippo- krates, faðir læknavísindanna (460-377 f. Kr.), hélt því fram, að viðbættum áróðri fyrir hollum lifn- aðarháttum, sem nú nær 2500 ár- um seinna er mál málanna. Má endurtekið heimfæra þróunina til þess orðtækis, að menn hafi enn einu sinni fundið upp heita vatnið! Heilsuræktunarstöðvar rísa allt um kring, austan hafs sem vestan, um leið stímir fólk sem aldrei fyrr á listasöfn og stórsýningar og er hvoru tveggja af hinu farsæla fyr- ir lífsvélina, hins vegar af hinu neikvæða að einangra þessi fyr- irbæri mannlífsvettvangsins og telja öðru fullkomnara. Einsýni síst af hinu góða hvorki í líkams- rækt né listum, mannrækt og póli- tík, síst af öllu með valdboði. Hvað Kaupmannahöfn snertir hefur orðræðan verið mikil á und- anförnum áratugum og hnútukast- ið öllu beinskeyttara en hér tíðk- ast. Undanskilin eru árin eftir stríð og sennan um myndlist- arhúsið á Miklatúni sem fyrir rest var heitið í höfuðið á Kjarval, en ekki Listamannaskálanum gamla við hlið Alþingishússins sem bygg- ingin átti að koma í staðinn fyrir. Við Eyrarsund þora listamenn að taka til máls og segja skoðanir sínar opinberlega, jafnframt er bókaútgáfa um myndlistarmenn og myndlist almennt þar í miklum blóma. Listasöfn hafa mörg aukið rými sitt og ný söfn risið upp víða um Danmörku, hið síðasta er ný- bygging „Fuglsang Kunstmu- seum“, sem er listasafn Stór- straumsamts, við Skejten, á Lollandi. Þetta eitt af mörgum listasöfnum í Danmörku utan höf- uðborgarinnar sem þó búa yfir stórum meira veggrými en „mont- húsið“ á Fríkirkjuvegi hér í borg. Meira byggt yfir sýndarmennsku en gagnsæja kynningu íslenskrar myndlistar og hefur því fengið þessa niðurlægjandi og skondnu einkunn og nafnbót frá heims- þekktum útlendum myndlist- armönnum. Eitthvað erum við á eftir „kúgurum okkar“ í þessum málum að ekki sé betur litið í kringum sig á meginlandinu og á Englandi … Það er einmitt Lundúnir hvar ég var nýverið sem eru á dagskrá í seinna helmingi þessa pistils, og aðra eins örtröð á söfn í þeirri borg hef ég ekki upplifað og það á virkum dögum. Leið ekki nema tæpur hálfur mánuður frá Kaup- mannahafnardvölinni að ég var kominn til borgarinnar, vildi klára dæmið áður en miklar tarnir tækju við á heimaslóðum og allt fram á síðsumar. Mikilvægum sýn- ingum að ljúka og einkum vildi ég síst af öllu missa af stórsýningu á myndverkum Peters Doig á Tate Britain, sem lauk 27. apríl. Áhuga- sömum til huggunar mun hún verða opnuð aftur á Núlistasafninu í París 22. maí og mun standa þar til 14. september, og loks Schirn- safninu í Frankfurt am Main frá 9. september til 11. janúar 1909. Hinn 48 ára gamli Peter Doig er fæddur í Skotlandi en hefur lifað og starfað í Englandi og Kanada eða allt þar til hann fluttist til Breiddargráður hámenningar Spútnik í málaralistinni Eitt af nýrri málverkum Peters Doig: „Fígúrur í rauðum báti“, 2005-07, olía á líndúk, 250x200 cm. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson Tignarleg Hin heimsfræga og margverðlaunaða kvikmyndaleikkona Hillary Swank í fjaðurmögnuðu flugi. Frá sýningunni „Vanity Fair Portrait“ á Portrettsafninu, National Portrait Gallery í London. sjónspegill 32 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.