Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 33
Trinidad árið 2002. Myndverkin á Tate, mörg risastórir flekar, hefur hann flest málað þar í landi og er á nokkrum árum orðinn einn af spútnikum evrópskar myndlistar, um leið dýrasti núlifandi málari álfunnar við hlið Gerhards Rich- ters. Málverk hans „White Canoe“ frá 1991, olía á léreft, 229x358 cm 2001, var til að mynda slegin á 5,7 milljónir punda á síðasta ári eða 8,7 milljónir evra. Það undir- strikar frægð málarans að mynd- irnar á sýningunni koma margar hverjar frá helstu söfnum heims beggja vegna Atlantsála og nokkr- um Austurlöndum fjær, svo sem Japan og Ástralíu. Doig flúði undan áreiti listmark- aðsins til Trinidad, rólegri og sól- ríkari breiddargráða, hvar hann hafði áður dvalið í fimm ár í bernsku með foreldrum sínum. Hann var í hópi ungra breskra nú- listarmanna, sem komu af stað listasprengju á tíunda áratugnum en var þó heldur til hliðar við þá með sínum meintu íhaldssömu vinnubrögðum. Samt mátti greina að sitt hvað kraumaði í mynd- verkum hans sem reyndist er fram leið fyrirboði nýrrar kynslóðar sem sagt er að hafi rennt stoðum undir ódauðleika málverksins. Í Þýskalandi gegnir til að mynda Neo Rauch og hópurinn í kringum hann svipuðu hlutverki eins og ég hef áður hermt af, en þó um gjör- ólíka málara að ræða. Myndverk Doigs eru stundum hlaðin óhugnanlegum duldum sem skoðandinn skynjar frekar en að það blasi við, málarinn er þannig að tæpa á atburðum sem skara sálardjúpið. Hann tjáir eitthvað ógnþrungið á myndfletinum, innri spennu sem borin er uppi af ein- földum en fádæma „malerískum“ vinnubrögðum sem hreyfa við fólki. Algengt og sígilt myndefni á dúkum hans er einn eða fleiri menn í báti á ókennilegu fljóti, þetta endurtekur hann í ýmsum litbrigðum með rauða litinn sem tákn válegra atburða. Þá tekst honum að bregða upp áhrifaríkum skynrænum stemmum í dúkum sínum þar sem á rekast abstrakt og hlutlægir heimar. Alveg sláandi hvernig hann þræðir listasöguna án þess að um beinar stælingar sé að ræða, menn kenna enduróm jafnt frá Hopper hinum ameríska, Matisse og Daumier hinum frönsku, Munch hinum norska og mörgum fleirum Í meginatriðum notar málarinn ljósmyndir og póstkort sem hann rekst á, klippir til, eftirgerir og myndar áður en hann hefst handa. Er afar snjall að maður segi ekki slunginn í tæknibrögðum, þótt hann nýti færni sína einungis eftir þörfum til að magna upp viðfangsefnin. Árangurinn margræðar duldir sem gerandinn lætur skoðandann rýna í, greina og upplifa … FRAMHALD Ný söfn Fuglesang Kunstmuseum við Skejten á Lollandi er eitt dæmi þess hve Danir eru iðnir við að reisa listasöfn og styrkja ímynd sína sem þjóðar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 33 LISTIR Í NÝLEGRI grein sem lesa má á bloggi Þjóðleikhússins segir þjóð- leikhússtjóri: „Hvað þróun leiklist- arinnar varðar, þá finnst mér ein- sýnt að líta beri á þau atvinnuleikhús sem hér starfa sem einn vinnumarkað. Eðlilegt flæði á milli þeirra er allra hagur. „Að nota orðið „vinnumarkaður“ yfir íslensku atvinnuleikhúsin er alveg ný grein- ing á hlutverki leikhúsanna og stöðu þeirra listamanna sem þar vinna. En með þessari sýningu virðist þjóðleik- hússtjóri vilja víkka út „markaðinn“ enn frekar og gerir nú allhressilega útrás inn í í lönd áhugamennsk- unnar, framhaldsskólanna og sjón- varpsins. Áhugaleikfélögin voru lengi lífæð atvinnuleikhúsanna og vera kann að þessi nýja stefna, sem Borgarleikhúsið var reyndar fyrra til að taka upp, sé að hluta einhvers konar fortíðarþrá eftir tímum þegar hluti þjóðarinnar var sjálfur skap- andi á einn eða annan hátt og stór- leikarar leyndust í hverju plássi. Það er þó öllu líklegra að menn telji það góðan bisness í okkar syngjandi glaða heimi að fara í samkeppni við framhaldsskólana og sjónvarpið og seilist því eftir vinnuafli þaðan. Ég er líka enn að velta því fyrir mér hvernig Hallgrími Helgasyni tókst að skrifa svona rýran texta. Það er eins og hann og Björn Hlynur (Dub- beldusch – LA) hafi lent á sama leik- ritanámskeiðinu, þar sem vondur kennari hafi gefið þeim það verkefni að skrifa um ástina. Formið og fram- vindan hafi að vísu ekki orðið alveg sú sama hjá báðum, en annar hvor þeirra kíkt á hjá hinum þegar þurfti að fara að leysa flækjuna. Fyrst hélt ég reyndar að þetta yrði létt írónía um sameiningu bláu handarinnar og Blair-istanna en kemst helst að því að hér sé verið að hylla þá gömlu klisju, sem ég hef aldrei getað lært orðrétta: að menn séu heimskir sem ekki eru róttækir í æsku og íhalds- menn þegar þeir eldast. Þjóðleik- húsið heldur fast við þá stefnu sína að hafa leikhúsið fjölskylduvænt og stjórnun Þorvaldar Bjarna Þor- valdssonar á tónlistinni er vissulega ekki til vansa. Hún nýtur sín oftast, hvort sem er í diskó eða pönki en lag ljóta andarungans, það sem vísar í frægð Bjarkar sem sprettur upp úr pönkinu, fannst mér hins vegar slæmur misskilningur. En annars eru það fjölskyldu- og vinatengslin sem eru helsti ljóður sjálfrar sýning- arinnar. Af hverju til dæmis Gunn- ari Helgasyni leikstjóra, bróður höf- undarins, er ekki gert að æfa sig áfram á litlu sviðunum, eins og stelp- unum í vetur, er óskiljanlegt – eink- um þar sem hann kann svo miklu minna en þær. Frosti Friðriksson er, held ég, ekki tengdur neinum og gerir ágæta og leikvæna mynd en sjálfrar mín vegna vona ég að hann fari bráðum að hætta að nota brúna litinn og bresku gerviblómin sem birtust á Seltjarnarnesinu. Atvinnu- leikararnir leggja sig allir fram um að hleypa lífi í rýr hlutverk, syngja vel og gera oft kauðalegar, und- arlegar stöður og tengingar trúverð- ugar. Einkum var gaman að sjá ungu hæfileikaríku leikarana, þau Þóri Sæmundsson, Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur, Söru Marti Guðmunds- dóttur og Sigurð Hrannar Hjalta- son. Reyndar var Þórir sá eini sem leik- og dansstjórn virtist ekki hafa tekist á einhverjum tíma að telja trú um að hann væri ekki að leika á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fjar- stýringin bjargar manni löngum heima í stofu frá dýrkun samtímans á afþreyingu, kunnáttuleysi og „hressinu“ – og mikið skelfing lang- aði mig oft að vera með hana í far- teskinu á þessari sýningu. Nema þegar áhugaleikarinn Sverrir Þór Sverrisson birtist á sviðinu. Það er eitthvað við þann dreng sem fær mann til að trúa á lífið og hæfileika allra manna til listsköpunar. Hann ætti þó að hafa meiri metnað en Þjóðleikhúsið og afla sér frekari þekkingar. Hefði viljað vera með fjarstýringuna með mér LEIKLIST Þjóðleikhúsið Höfundur: Hallgrímur Helgason. Leik- stjóri: Gunnar Helgason. Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Leikmynd: Frosti Friðriksson. Búningar: Þórunn María Jónsdóttir. Dansar: Birna Björns- dóttir, Guðfinna Björnsdóttir. Lýsing: Lár- us Björnsson, Ólafur P. Georgsson. Leikarar: Axel Árnason, Ásgrímur Geir Logason, Baldur Trausti Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Lísa Gunn- arsdóttir, Esther Talía Casey, Ívar Helga- son, Kjartan Guðjónsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sara Marti Guðmunds- dóttir, Selma Björnsdóttir, Sigurður Hrannar Hjaltason, Sverrir Þór Sverr- isson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þorleifur Einarsson, Þórir Sæmundsson, Þröstur Leó Gunnarsson. Dansarar: Eva Dögg Ingimarsdóttir, Heiða Björk Ingimars- dóttir, María Leifsdóttir. Ástin er diskó, lífið er pönk María Kristjánsdóttir Morgunblaðið/Eggert Hress „Atvinnuleikararnir leggja sig allir fram við að hleypa lífi í rýr hlutverk.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.