Morgunblaðið - 04.05.2008, Side 34

Morgunblaðið - 04.05.2008, Side 34
34 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMSKIPTI HJÁ ÍHALDSFLOKKNUM Úrslitin í sveitarstjórnarkosn-ingunum á Bretlandi benda tilþess að þar séu að verða þáttaskil í stjórnmálum. Íhaldsflokk- urinn hafi náð sér á strik á nýjan leik og Verkamannaflokknum hafi fatast flugið. Verkamannaflokkurinn beið sinn mesta ósigur í 40 ár í kosning- unum og féllu vígi, sem flokkurinn hafði haldið áratugum saman. Úrslitin eru verulegt áfall fyrir Gordon Brown forsætisráðherra, sem nú leiddi flokk- inn í fyrsta skipti í kosningum, og velta menn því fyrir sér hvort hann sé hæfur til forustu í næstu kosningum, sem ekki verða haldnar síðar en 2010. Verkamannaflokkurinn missti 333 sveitarstjórnarsæti í kosningunum og Íhaldsflokkurinn bætti við sig 256 sætum. Íhaldsflokkurinn fékk 44% at- kvæða, en Verkamannaflokkurinn að- eins 24%, einu prósentustigi minna en Frjálslyndi flokkurinn. Mesta athygli vekur ósigur Verka- mannaflokksins í London. Þar felldi hinn litríki Boris Johnson Ken Liv- ingstone, sem setið hafði í stóli borg- arstjóra í tvö kjörtímabil. Johnson er þingmaður fyrir Íhaldsflokkinn og fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Spectator og dálkahöfundur hjá The Daily Telegraph. Hann þykir snjall og hinn mesti orðhákur, en hefur oft komið sér í vandræði með yfirlýsing- um sínum og meðal annars þurft að biðja heilu byggðarlögin afsökunar á ónærgætnum athugasemdum. Fyrir vikið hefur Livingstone ef til vill ekki tekið Johnson nógu alvarlega, en áskorandanum tókst að hemja sig í kosningabaráttunni, halda sig við mál- efnin og uppskera sigur. Verkamanna- flokkurinn hefur haft sterk ítök í London og dvínandi fylgi hans þar þykir bera þreytumerkjum stjórnar Browns vitni. Gordon Brown hefur átt erfitt upp- dráttar síðan Tony Blair vék úr emb- ætti forsætisráðherra og hann tók við. Úrslit kosninganna hafa meðal annars verið rakin til niðursveiflunnar í bresku efnahagslífi, en vandi Verka- mannaflokksins er djúpstæðari og Brown hefur ekki tekist að rétta kúrs- inn eftir brottför Blairs. Brown lýsti þegar yfir því að þetta væri skelfilegur ósigur en hét því að draga sinn lær- dóm af úrslitunum. „Mitt starf er að hlusta og leiða og það mun ég gera,“ hann. Spurningin er hins vegar hvort það er of seint. Íhaldsflokkurinn hefur samkvæmt skoðanakönnunum sótt verulega á undanfarin misseri. Hann hefur meira eða minna haft naumt for- skot á Verkamannaflokkinn í tvö ár, en ekki komist yfir 40% fylgi. Nú fékk flokkurinn 44% og vonast flokksmenn til að þessi fylgisaukning ráði úrslitum í gengi flokksins. Eyðimerkurganga Íhaldsflokksins hefur staðið yfir frá því að Tony Blair bar sigurorð af John Major í kosningunum fyrir 11 árum og um tíma virtist flokkurinn ætla að mála sig út í horn, með viðhorfum sem glöddu hörðustu stuðningsmennina, en fældu almenna kjósendur frá. Und- ir forustu David Cameron hafa orðið umskipti. Honum er hrósað fyrir að hafa gefið Íhaldsflokknum mannlega ásjónu. Innan flokksins hafa vaknað vonir um að úrslitin beri því ekki að- eins vitni að kjósendur hafi hafnað Verkamannaflokknum, heldur beri traust til Íhaldsflokksins. Það á kannski við á einhverjum svið- um, en ekki í efnahagsmálum. Gordon Brown var fjármálaráðherra á lengsta hagvaxtarskeiði Breta eftir seinni heimsstyrjöld. Engu að síður treysta aðeins 32% flokknum í efnahagsmál- um. Traust kjósenda á Íhaldsflokkn- um er litlu meira eða 36%. Margt getur gerst fram að næstu kosningum á Bretlandi og ekki loku skotið fyrir að Brown geti snúið við blaðinu. Þótt hitnað hafi undir honum verður að teljast líklegt að hann muni leiða flokkinn í næstu kosningum. Hann mun hins vegar eiga í vök að verjast gagnvart Cameron sem nú virðist hafa öll vopn á hendi sér. A ðalsteinn Jónsson útgerðarmaður á Eskifirði lézt í Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaupstað 30. apríl sl. áttatíu og sex ára að aldri. Aðal- steinn, betur þekktur sem Alli ríki, var einstakur maður, eins konar holdgervingur einkaframtaksins í sinni jákvæð- ustu mynd. Aðalsteinn átti fáa sína líka og segja má að hann hafi síðustu áratugi lífs síns verið lif- andi goðsögn. Það er sennilega ekki ofsögum sagt að segja að með Aðalsteini sé genginn mikill höfð- ingi af gamla skólanum, sem þó lifði og hrærðist í nútíð, ávallt með hagsmuni og framtíð síns byggð- arlags að leiðarljósi. Hann bar hag sinnar heimabyggðar fyrir brjósti og vildi veg Austfirðinga sem mestan og þá ekki síst Eskfirðinga. Sú lífsskoðun hans að styrkja og efla eigin heimabyggð með ráðum og dáð, litaði alla hans afstöðu til fjárfestinga og reksturs og Austfirðingar uppskáru ríkulega, vegna dirfsku Aðalsteins og virðingar hans og væntumþykju fyrir átthögunum. Aðalsteinn ólst upp á Eskifirði í sárri fátækt, næstyngstur sex systkina. Föður sinn, Jón Kjart- ansson, missti Aðalsteinn þegar hann var aðeins sex ára gamall. Aðalsteinn lýsti því í samtali hér í Morgun- blaðinu laust eftir að hann varð sjötugur, árið 1992, hvernig honum hlotnaðist viðurnefnið Alli ríki: „Já, þegar ég var að hefja söltun og útgerð hér kom eitt sinn blaðamaður frá Þjóðviljanum til að hafa við mig viðtal. Ég mátti ekkert vera að því að hafa við hann viðtal og því laug hann upp heilu viðtali, þar sem annarri hverri setningu lauk með: „sagði Alli ríki“. Það var bölvuð vitleysa þar sem ég átti ekki bót fyrir rassinn á mér á þessum tíma.“ Aðalsteinn byggði upp geysilega öflugt sjávar- útvegsfyrirtæki á Eskifirði. Oft þóttu ákvarðanir hans um nýjar fjárfestingar djarfar, jafnvel full- djarfar, eins og þegar hann ákvað að reisa rækju- verksmiðju þótt engin væri rækjan þegar ákvörð- unin var tekin. Það átti eftir að breytast. Sama máli gegndi með ákvarðanir Aðalsteins um fjár- festingar í loðnu- og síldarfrystingu. Það var stundum eins og Aðalsteinn sæi hluti sem aðrir sáu ekki og því ákvað hann svo oft fjárfestingar á réttum tíma, sem er jú eitt lykilatriðið í því að fjár- festing heppnist vel. Það var ekki nema sjálfsagður og eðlilegur þakklætisvottur af hálfu Eskifjarðar að gera Að- alstein Jónsson að heiðursborgara bæjarfélagsins. Honum þótti auðvitað vænt um þann þakklætis- og virðingarvott, þótt hann flíkaði ekki tilfinning- um sínum. Hann var ekki þeirrar gerðar að bera þær á torg. Undir hrjúfu yfirborðinu sló stórt og hlýtt hjarta. Það vissu þeir sem fengu að kynnast Alla ríka persónulega. Morgunblaðið þakkar Aðalsteini Jónssyni að leiðarlokum, fyrir vegferðina og ánægjuleg sam- skipti í alla staði. Fylgishrun Samfylkingar Í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem birt var fyrir helgi kom í ljós, að Samfylk- ingin hefur tapað miklu fylgi á sama tíma og fylgi Vinstri grænna eykst veru- lega. Þetta er forvitnileg niðurstaða. Það er auðvitað ljóst, að fylgi flokka í reglulegum könnunum sveiflast til eftir því hvaða málefni hafa verið til umræðu á könnunartíma- bilinu. Hvaða málefni hafa verið til umræðu að undanförnu? Mest hefur verið rætt um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru í því sam- bandi. Aðrir þættir efnahagsmála hafa einnig ver- ið á dagskrá svo og ferðalög og einkaþotuferðir ráðherra. Óeirðirnar við Rauðavatn vöktu spurn- ingar hjá mörgum um í hvaða átt samfélag okkar stefnir. Af þessum málum er ljóst, að umræður um Evr- ópusambandið og evruna hafa yfirgnæft önnur mál, bæði á opinberum vettvangi og manna á með- al. Eini flokkurinn, sem hefur tekið afdráttarlausa afstöðu með aðild að Evrópusambandinu og upp- töku evru, er Samfylkingin. Það er nánast ómögu- legt að komast að annarri niðurstöðu en að sú yf- irlýsta afstaða flokksins eigi hlut að máli í könnun Gallup. Manna á meðal hefur verið rætt um að fylgi við aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru hafi aukizt verulega vegna vandamála krón- unnar. Fyrst og fremst er þó ljóst að sá stuðn- ingur kemur frá Samtökum atvinnulífsins, Sam- tökum iðnaðarins og öðrum aðilum í viðskiptalífinu, svo sem forráðamönnum einstakra stórfyrirtækja. Þar er ekki um að ræða aðila sem þekktir hafa verið af stuðningi við Samfylkinguna og líklegt má telja, að þótt sá flokkur og fyrr- nefndir aðilar eigi málefnalega samleið í ESB- málum skili það sér ekki í pólitískum stuðningi við Samfylkinguna. Hins vegar er ljóst að megnið af fylgistapi Samfylkingar færist yfir á Vinstri græna. Hvaða skýring er á því? Það er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en þeirri að á milli Samfylkingar og Vinstri grænna fljóti stórir hóp- ar kjósenda fram og til baka og að þessir kjós- endahópar hafi færzt yfir á Vinstri græna í réttu hlutfalli við auknar umræður um aðild að Evrópu- sambandinu og upptöku evru og stuðning Sam- fylkingar við þá hugmynd. Þótt mikil ferðalög ráðamanna þjóðarinnar um heiminn og jafnvel í einkaþotum, sem hér hefur ekki tíðkazt hingað til meðal stjórnmálamanna, hafi verið til umfjöllunar er erfitt að trúa því, að umræður um þau mál hafi leitt til svo mikils fylg- istaps Samfylkingarinnar eins og um er að ræða. Ekki má gleyma því að fleiri ráðherrar en ráð- herrar Samfylkingar hafa verið á ferðalögum og í einkaþotum. Fylgi Sjálfstæðisflokksins stendur hins vegar í stað. Þótt almenningur hafi vaxandi áhyggjur af efnahagsástandinu er næsta ótrúlegt að þær áhyggjur komi bara niður á fylgi Samfylk- ingar en ekki Sjálfstæðisflokks. Þess vegna er líklegasta niðurstaðan sú, að með auknum umræðum af sinni hálfu um aðild að Evr- ópusambandinu og upptöku evru sé Samfylkingin að flæma stóra hópa af kjósendum yfir til Vinstri grænna. Gagnstætt því sem forystumenn Samfylkingar hafa haldið, að þeir mundu hagnast í kjósendafylgi á stuðningi við Evrópusambandið og upptöku evru, bendir því flest til að þeir séu að tapa fylgi vegna málsins, m.a. vegna þess að helztu áhuga- menn um málið eru stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokks og yfirgefa ekki þann flokk, þótt hann hafi ekki snúizt á sveif með þeim í málinu. Þeir sjálfstæðismenn sem hafa haft áhyggjur af stöðu flokksins vegna ESB-umræðna þurfa því að öllum líkindum ekki að hafa slíkar áhyggjur. ESB er ekki jafn kjósendavænt og hin pólitíska yfir- stétt í Samfylkingunni hefur haldið. Sjálfstæðisflokkurinn og ESB Þ etta er gagnlegt fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins að hafa í huga nú þegar þeir hljóta að taka upp umræður í sínum hópi um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til ESB. Af- staða Geirs H. Haarde forsætisráð- herra og formanns flokksins hefur verið skýr. Hann er andvígur aðild að ESB og upptöku evru og hefur ítrekað þá afstöðu aftur og aftur á und- anförnum vikum, m.a. á þeim tíma, sem umrædd könnun Gallup var gerð. Laugardagur 3. maí Reykjavíkur Tjaldar í fjöru. 7. maí 1978: „Á undanförnum árum hefur miklum fjármun- um verið varið til uppbygging- ar atvinnulífi víða um land. Ár- angur þess starfs má sjá í sjávarþorpum og kaupstöðum. Þessi uppbygging hefur bætt lífsafkomu fólks í dreifbýlinu. Jafnvægi í byggð landsins er gamalt slagorð, sem hefur þýðingu nú sem fyrr. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur nýlega samþykkt tillögur Birgis Ísl. Gunnarssonar, borg- arstjóra, í atvinnumálum. Til- lögur þessar miða að því að efla uppbyggingu atvinnulífs í höf- uðborginni. Í umræðum um þessar tillögur hafa borg- arstjóri og fleiri talsmenn meirihluta borgarstjórnar rétti- lega bent á, að jafnræði yrði að ríkja milli landshluta í aðgangi að lánfé til atvinnuuppbygg- ingar. Ekki verður við það un- að, að einstakir landshlutar eins og t.d. höfuðborgin og nágrenni hennar sitji ekki við sama borð og aðrir landshlutar að þessu leyti. Það er hins vegar stað- reynd, að slíkt mismunum hef- ur verið við lýði undanfarin ár.“ . . . . . . . . . . 8. maí 1988: „Stefnt er að því að þingstörfum ljúki nú innan fárra daga. Eins og alltaf er tekist á um mörg en misjafn- lega merkileg mál, sem snerta okkur hvert og eitt með misjöfnum hætti. Sum mál eru flutt ár eftir ár án þess að í þeim fáist nið- urstaða, tvö slík sýnast þó nær því að fá lokaafgreiðslu á þingi nú en oftast áður, það er bjórmálið og frumvarpið um viðisaukaskatt. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að taka þau til umræðu á þess- um vettvangi. Í þess stað skal staldrað við frumvarp, sem ekki hefur farið mikið fyrir en er þó flutt af forsetum þings- ins og ber yfirskriftina frum- varp til laga um breytingu á lögum nr. 12/1986 um Rík- isendurskoðun. Hefur frum- varpið ekki mætt mikilli and- stöðu í sölum Alþingis, virðast það helst vera þingmenn Borgaraflokksins sem beita sér gegn því. Frumvarpið er flutt þar sem í ljós hefur kom- ið „að skoðunarheimildir Rík- isendurskoðunar eru ekki eins óyggjandi og ætla mætti.“ . . . . . . . . . . 3. maí 1998: „Borgarfulltrúar og frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík hafa mikið til síns máls í gagnrýni sinni á fyrirhugaða ráðstöfun Geldinganess sem iðnaðar- og atvinnusvæðis að meginhluta til. Á blaðamannafundi sl. fimmtudag lýstu talsmenn D-listans þessu sem umhverf- isslysi.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.