Morgunblaðið - 04.05.2008, Page 37

Morgunblaðið - 04.05.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 37 ENGUM blandast hugur um að fangels- isvist hefur áhrif á fjölskyldur fanga. Foreldrar, makar og börn horfast í augu við nýjar aðstæður og vita oftast ekki hvernig skuli bera sig að. Margt sækir á huga aðstandenda fanga og þeir finna sig í fyrstu oft vanmáttuga andspænis fangelsiskerfinu og öllu sem því fylgir. Aðstandendur fanga hafa til- hneigingu til að hafa ekki hátt um þessa nýju reynslu sína. Þeir vita að fangelsisvist er opinber van- þóknun samfélagsins á þeirra nán- ustu vegna brota sem þeir fremja. Aðstandendur eru miður sín yfir því sem fjölskyldumeðlimir þeirra hafa gert á hlut annarra með brot- um sínum og vildu svo sannarlega biðja hlutaðeigandi afsökunar fyr- ir hönd þeirra. Vita hins vegar að það er ekki alltaf opin leið vegna þess hvers eðlis mál eru. Þarflaust er að taka fram að aðstandendur vonast til að fangavistin hafi sem minnst skaðleg áhrif á þeirra nán- ustu og þrá innilega að þeir snúi af braut sinnar villu og verði ham- ingjusamir og nýtir þegnar. Vilja rétta þeim hjálparhönd án þess þó að falla í gryfju meðvirkninnar. Þess vegna fagna aðstandendur hverju jákvæðu skrefi sem tekið er í fangelsismálum landsins eins og meðferðardeildinni á Litla- Hrauni, svo dæmi sé nefnt. Í flestum tilvikum hafa aðstand- endur mátt þola margt í sjúk- dómsgöngu sinna nánustu og glímu þeirra við illviðráðanlega fíkn. Stundum hafa þeir gersam- lega lokast af með vanda sinn og sinna og eiga í fá hús að venda með áhyggjur sínar og kvíða. Í öðrum tilvikum hafa afbrot þeirra komið aðstandendum í opna skjöldu og þeir ekki vitað sitt rjúkandi ráð. Fyllst sorg og van- líðan, sektarkennd og reiði. Aðstandendur öðlast einstaka reynslu sem þeir geta miðlað til annarra sem svipað er ástatt um. Vissulega er það neikvæð reynsla en vinna má úr henni og bæta með því andlega líðan. Í nokkur ár hefur hópur aðstandenda fanga hist reglulega og rætt saman. Rakið reynslu sína af fangavist sinna nánustu og styrkt hver ann- an. Það er samdóma álits þessa hóps að þetta hafi orðið öllum til góðs. Samtal þeirra sem þekkja til fangelsa frá bæjardyrum aðstand- enda hefur rofið einangrun fólks og opnað augu þess fyrir mik- ilvægi þess að segja hug sinn. Á fundum þessum hefur fólk talað opinskátt og án þess að skammast sín fyrir þau sem þeim þykir vænt um. Greint t.d. frá því hvernig þau hafa brugðist við gagnvart börn- um brotamanna sem dæmdir eru til fangavistar, hvað þau hafa sagt þeim og hvað ekki. Þau sem ný koma á fundi eru sum í fyrstu hik- andi eins og gengur en sjá fljótt að hér er kominn styrktarhópur sem hentar þeim. Hver hefur sína sögu að segja og hver getur kennt öðrum. Reynslan er sameiginleg – reynsla sem ekki hefur mátt hafa hátt um og hún því bæld niður – stundum með alvarlegum afleið- ingum. Félag aðstandenda fanga sem heitir Að- gát er öllum opið sem eiga einhvern nákom- inn í fangelsi. Fundir í félaginu eru haldnir fyrsta þriðjudags- kvöld hvers mánaðar í safnaðarheimili Frí- kirkjunnar við Lauf- ásveg í Reykjavík. Auk þess hefur félag- ið komið sér upp heimasíðu: adgat.net og þar má lesa sitt- hvað um félagið. Aðstandendur fanga eru hvattir til að notfæra sér þessa hjálparleið sem hefur reynst ákaflega vel og eflt með þeim bjartsýni og hugrekki. Aðstandendur fanga Hreinn S. Há- konarson skrifar um málefni að- standenda fanga » Fjallað er um mikil- vægi þess að að- standendur fanga ræði mál sín hispurslaust og komi saman í því skyni. Hreinn S. Hákonarson Höfundur er fangaprestur þjóðkirkj- unnar og formaður fangahjálparinnar Verndar Sandakur 1. hæð 2. hæð Sími 530 1500 | Suðurlandsbraut 52 | Guðrún Árnadóttir löggiltur fasteignasali | www.arnarnes.is Raðhúsin okkar leika aðalhlutverkið í Hæðinni, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Sérútbúnar íbúðir Glæsileg íbúð, fullbúin húsgögnum frá EGG og gólfefni frá Harðviðarvali. Sýningaríbúð Opið hús í Línakri í dag frá kl. 14–15 Hér er gott að búa Arnarneshæðin er einstaklega vel staðsett á eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæðinu. Hverfið er sólríkt og skjólsælt, með gullfallegt útsýni til allra átta. Stutt er í alla verslun og þjónustu, fjölmargir skólar eru í næsta nágrenni og ótal frábær íþrótta- og útivistarsvæði innan seilingar. Valdar eignir afhendast með eikarparketi, uppþvottavél, ísskáp, gardínum og ljósum. Hæðin Höfum verið beðnir að útvega u.þ.b. 250 – 300 fm eign á framangreindu svæði. Góðar greiðslur í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlis- eða raðhús í vesturborginni óskast M bl 9 92 80 6 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.