Morgunblaðið - 04.05.2008, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
Frá kr.
24.990 – báðar leiðir
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Takmarkaður sætafjöldi. Verð getur breyst án fyrirvara.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
3
3
0
8
Verðdæm
i – lægstu
verð*
9. maí
frá kr. 24.
990
21. maí
frá kr. 24.
990
28. maí
frá kr. 29.
990
4. og 11.
júní fr
á kr. 39.9
90
18. júní
frá kr. 34.
990
25. júní
frá kr. 29.
990
2. og 9. jú
lí frá
kr. 29.99
0
16. júlí
frá kr. 34.
990
* Lægstu
verð sem
í boði eru
á
viðkoman
di brottfö
r. Verð er
netverð
á mann. T
akmarkað
sætafram
boð
á þessu v
erði. Verð
getur bre
yst án
fyrirvara. N
ánar á ww
w.heimsfe
rdir.is.
Alicante
Bókaðu strax á www.heimsferdir.is
og tryggðu þér lægsta verðið!
Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante í vor, sumar
og haust eins og undanfarin 16 ár. Við bjóðum frábær
kjör og þjónustu á íslensku alla leið – fyrir þig!
Enn er tækifæri til að tryggja sér flugsæti til Alicante
með Heimsferðum á frábærum kjörum.
Nánar á www.heimsferdir.is.
á frábærum kjörum
Undanfarið hefur BjörkGuðmundsdóttir verið áferð um heiminn aðkynna síðustu breiðskífu
sína, Volta. Tónleikaferðin hefur
gengið bráðvel, aðsókn framúrskar-
andi og umsagnir mjög jákvæðar.
Platan hefur líka farið hátt á vin-
sældalista og víðast farið hærra en
aðrar plötur hennar. Þrátt fyrir það
hefur sala á henni ekki verið nema í
meðallagi víðast hvar og í raun langt
frá því sem maður myndi ætla af
listastöðu og umfjöllun.
Þetta er sá veruleiki sem tónlist-
armenn búa við orðið, ekki síst þeir
sem náð hafa hvað lengst. Aðallega
bitnar þetta þó á stórstjörnunum
vestan hafs og austan, millj-
arðamæringum á við Madonnu og
Paul McCartney, sem hafa farið
halloka á markaði og leita fyrir vikið
leiða til að tryggja hag sinn. Jað-
artónlistarmenn sem eru á mála hjá
stærri fyrirtækjum hafa ekki fundið
eins fyrir samdrætti nú, enda ekki
úr háum söðli að detta. Þeir njóta
þess og að alla jafna er stærra hlut-
fall af þeirra tekjum af tónleikahaldi
og þar hefur samdráttur verið
minni.
Nýjar leiðir
Stórstjörnurnar hafa sumar grip-
ið til nýstárlegra leiða til að vekja at-
hygli á verkum sínum og afla sér
tekna; Prince dreifði nýrri plötu
sinni, Planet Earth, í Bretlandi síð-
astliðið sumar með því að láta hana
fylgja dagblaði. Fyrir vikið náði
hann að dreifa plötunni í 2,6 millj-
ónum eintaka (síðasta plata hans þar
á undan, 3121, seldist í 80 þúsund
eintökum í Bretlandi og um 500.000
eintökum vestan hafs) og selja
120.000 tónleikamiða á tónleikaröð
sinni í O2 Arena í Lundúnum (21
tónleikar alls, samtals um 400.000
tónleikagestir).
Það þarf í sjálfu sér ekki að koma
á óvart að í mörgum tilfellum sé
meira uppúr tónleikahaldi að hafa en
plötuútgáfu og má rifja það upp er
Rolling Stones voru á mála hjá Virg-
in og sendu frá sér hverja breiðskíf-
una af annarri sem seldust dræmt,
svo ekki sé meira sagt. Sem tón-
leikasveit standa þó fáir Rolling-
unum á sporði og á þessum árum
höfðu þeir hitann úr hverjum met-
túrnum af öðrum, ævinlega uppselt
um allan heim og skipti engu hve
salirnir voru stórir.
Músík í kaffihúsum
Fleiri stórstjörnur hafa farið ný-
stárlegar leiðir til að ota sínum tota
og þannig er ekki langt síðan Paul
McCartney gerði samning við Star-
bucks-kaffihúsakeðjuna um útgáfu á
nýrri plötu, en Starbucks stofnaði
nýverið plötuútgáfu, Hear Music,
sem selja mun plötur í kaffihús-
unum. Áður hafði Starbucks samið
um einkasölu á Bob Dylan-plötunni
„Live at the Gaslight 1962“ og geng-
ið bráðvel, aukinheldur sem skífa
Ray Charles, „Genius Loves Comp-
any“, seldist í um 700.000 einstökum
í kaffihúsum Starbucks sem var um
fjórðungur af heildarsölu plötunnar.
(Starbucks ætlar ekki bara að semja
við gamla lúða því það hyggst einnig
kynna nýja tónlistarmenn undir
merkinu Hear Music Debut og byrj-
ar á hljómsveitinni Antigone Ris-
ing.)
Fleiri verslana- og veitinga-
húsakeðjur hafa fetað sömu slóð, til
að mynda Wal-Mart sem samdi við
Garth Brooks, en einnig hafa stjörn-
urnar samið við annarskonar fyr-
irtæki eins og sjá má á milljóna-
samningi Madonnu við tónleika-
haldarann Live Nation, en með
þeim samningi kynnti fyrirtækið
deild sem kallast Live Nation Art-
ists. Í framhaldi af því hafa fleiri
fylgt í kjölfarið, nú síðast írsku elli-
smellirnir í U2 sem sömdu til tólf
ára.
Vörumerkið „Madonna“
Samningur Madonnu við Live Na-
tion var merkilegur um margt, þar á
meðal það að samkvæmt honum á
Live Nation vörumerkið „Madonna“
næstu tíu árin og getur notað það til
að selja varning ýmiskonar, tónlist
mynddiska, og sjónvarpsefni svo fátt
eitt sé talið. Hún fær og nokkuð fyrir
sinn snúð; um níu milljarða króna.
Live Nation hefur haldið sig við
tónleikahald fram að þessu, en nú
bætist við ýmiskonar starfsemi.
Fyrirtækið, sem er stofnað út úr út-
varpsrisanum umdeilda Clear
Channel Communications, stendur
að tugþúsundum uppákoma á hverju
ári, aðallega tónleikum en líka leik-
sýningum og íþróttaviðburðum. Það
á um tvö hundruð tónleikasali, að-
allega í Bandaríkjunum en líka í
Evrópu, en hefur einnig einkasamn-
ing um tónleikabókanir í tugum tón-
leikastaða til viðbótar.
Það gefur augaleið að ekki eiga
allir kost á að semja við Live Nation
eða álíka fyrirtæki og eins að ekki
vilja stórverslanir og kaffihúsa-
keðjur semja nema við þá sem gefa
mesta hagnaðarvon. Miðlungs-
stjörnurnar sitja því uppi með plötu-
fyrirtækin eða eiga jafnvel engan að
en jaðarlistamennirnir una glaðir við
sitt. Því hefur verið spáð að netbylt-
ingin og frelsið sem hún hefur í för
með sér myndi fletja tónlistarmark-
aðinn út, þ.e. að sala verði jafnari,
risatopparnir hverfi, en sú þróun
sem hér hefur verið rakin bendir til
þess að enn eigi sviðið eftir að breyt-
ast og enginn veit hvernig umhorfs
verður í næsta þætti.
Hvert
ætlarðu?
Morgunblaðið/Ómar
Lítil sala Þó nýjasta breiðskífa Bjarkar hafi fengið framúrskarandi um-
sagnir og tónleikarnir góða aðsókn, þá er plötusalan undir væntingum.
Reuters
Sviðsmenn Rolling Stones hafa átt léleg sölutímabil en ekki átt í neinum
vandræðum með að fylla stærstu tónleikahús, og grætt heilmikið þar.
Reuters
Á sömu leið? Liðsmenn U2 sömdu við Live Nation líkt og Madonna. Kallar
þróun tónlistarmarkaðarins á nýja hugsun í markaðssetningu?
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Reuters
Seld Madonna samdi við tónleikahaldarann Live Nation sem nú á vöru-
merkið „Madonna“ næstu tíu árin eða svo. Hún fær formúgu fyrir.