Morgunblaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„VIÐ sjáum að við getum það sem við setjum okk-
ur,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Ís-
lands í ræðu sinni við brautskráningu kandídata í
Laugardalshöll í gær. Við útskriftina kynnti hún
ný áfangamarkmið í uppbyggingu skólans, en
stefnt verður að því á næstu fimm árum að byggja
upp 4-6 afburðasvið eða stofnanir sem hafi fulla
burði til þess að skara fram úr á alþjóðavísu.
„Ég tel að við eigum síðan að setja markið enn
hærra og að í tengslum við uppbyggingu afburða-
sviða eigi skólinn að leggja áherslu á að minnsta
kosti eitt þessara sviða eða stofnana verði í hópi 10
fremstu á sínu sviði í heiminum,“ sagði Kristín. Til
þess þyrfti þó að sækja mikinn
fjárhagslegan stuðning til al-
þjóðlegra styrktarsjóða og fyrir-
tækja.
Máli sínu til stuðnings reifaði
Kristín þann árangur sem þegar
hefur náðst eftir síðustu mark-
miðsáætlun skólans sem kynnt
var árið 2006. Meðal þeirra
markmiða var t.d. að tvöfalda
fjölda birtra greina um niður-
stöður vísindarannsókna í al-
þjóðlegum tímaritum, en þeim birtingum hefur nú
þegar fjölgað um 35%. Þá einsetti skólinn sér að
fjölga nýdoktorum í störfum á 5 árum, en þeim
hefur þegar fjölgað um 50% á tveimur árum.
Eins benti Kristín á að störfum í Fræðasetrum
Háskólans á landsbyggðinni hefur fjölgað um
60%, sértekjur skólans hafa aukist um 33% og vel
gengur að auka við fjölda útskrifaðra doktora. Að
sögn Kristínar tókst einnig að endurskoða stjórn-
kerfi og uppbyggingu skólans á undraskömmum
tíma, en nýtt skipulag mun taka gildi hinn 1. júlí
næstkomandi.
„Allt þetta eru mikilvægir áfangar í sókn skól-
ans í hóp fremstu háskóla,“ sagði Kristín, og nú
væri að því komið að setja ný áfangamarkmið sem
geri skólann betri á alla lund. Háskóla Íslands
bæri að taka þátt í að móta framtíð samfélagsins,
og uppbygging af því tagi sem nú er á prjónunum
væri mikilvægur þáttur í að hraða uppbyggingu
þekkingarsamfélags á Íslandi.
HÍ byggir upp 4-6 afburðasvið
Kristín Ingólfsdóttir útskrifaði 1.082 kandídata í stærstu brautskráningu í sögu
skólans í gær Stefnt að því að háskólinn nái alþjóðaforystu á sumum sviðum
Kristín
Ingólfsdóttir
Í HNOTSKURN
»Í gær var einnig stærstabrautskráning í sögu Há-
skólans í Reykjavík. 423 nem-
endur með 28 mismunandi
prófgráður útskrifuðust.
»Þá var brautskráð í síðastasinn frá Kennaraháskól-
anum, en hinn 1. júlí næstkom-
andi sameinast hann Háskóla
Íslands. Kandídatar voru 495,
þar af 87 úr meistaranámi.
»Frá Háskólanum á Akur-eyri útskrifuðust 328
kandídatar í gær.
MUN meira verður malbikað í borginni í sum-
ar en undanfarin ár að sögn Theodórs Guð-
finnssonar, deildarstjóra á framkvæmdasviði
Reykjavíkurborgar. Auknar fjárveitingar
gera nú mögulegt að fara betur inn í hverfin
en verið hefur en víða eru gamlar götur enn
á sínu fyrsta slitlagi og endurnýjunin því
brýn.
Hækkun olíuverðs mun draga töluvert úr
svigrúminu en gert er ráð fyrir að malbik-
unarvinnan verði a.m.k. 30% dýrari en í fyrra.
Fjórir verktakar vinna fyrir borgina í sum-
ar og má því gera ráð fyrir malbikunarvinnu
á mörgum stöðum í borginni í einu þegar vel
viðrar. Drafnarfell mun sjá um fræsingar
samkvæmt útboði og Bergsteinn, Loftorka og
Höfði um malbikun. Er vinnan nú komin á
fullt víða um borg. jmv@mbl.is
Morgunblaðið/Frikki
Fleiri götur fræstar í borginni í sumar
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HANNA Birna Kristjánsdóttir, nýr
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
vík og tilvonandi borgarstjóri, talaði
fyrir fullu húsi á opnum fundi í Val-
höll í gærmorgun. Hún þakkaði sýnt
traust og sagði höfuðverkefni að
styrkja á ný stöðu flokksins í borg-
inni, sem hefur verið í frjálsu falli.
„Nú verður vörn snúið í sókn,“ sagði
Hanna Birna og bætti við að hún
væri tilbúin til að axla þá ábyrgð sem
fylgir oddvitastöðunni.
„Allt frá því síðastliðið haust hafa
borgarbúar og landsmenn fylgst
með því hvernig flest lögmál stjórn-
málanna hafa á vettvangi borgar-
stjórnar verið brotin. Meirihlutar
hafa komið og farið. Stjórnmála-
menn hafa sömuleiðis komið og far-
ið. Umrótið hefur um flest minnt á
eitthvað allt annað en við erum vön
frá þeim vettvangi, að minnsta kosti
þegar Sjálfstæðisflokkurinn er við
völd,“ sagði Hanna Birna. Hún bar
ekki fram skýringu á umrótinu en
sagði skort á samráði, skort á upp-
lýsingum og of mikinn hraða ein-
kennandi fyrir atburðarásina. Af
henni þurfi að læra.
Sárast, sagði Hanna Birna, væri
fyrir borgarfulltrúa að finna traustið
þverra meðal stuðningsmanna
flokksins, en það hafi hún helst
merkt á niðurstöðum nýlegra skoð-
anakannana. „Þetta hefur reynst
okkur og sérstaklega mér og öllum
sem starfa í borgarstjórnarflokki
sjálfstæðismanna sárast að meðtaka.
Það er nefnilega ekkert mál að mæta
andstöðu og jafnvel andúð frá and-
stæðingum sínum. En þegar skila-
boð um vonbrigði og skort á trausti
berast frá eigin stuðningsfólki verð-
ur róðurinn bæði þungur og sár.“
Hanna Birna sagðist oft hafa verið
spurð að því í liðinni viku, hvort hún
hafi tekið rétta ákvörðun. Hún sagð-
ist hugsanlega taka áhættu en ekki
hafa efast um ákvörðunina eitt
augnablik. Áhættan væri þess virði.
„Nú verður vörn snúið í sókn“
Nýr oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík vonar að umrótstímar innan borgarstjórnar séu að baki
Hún segist reiðubúin að axla þá ábyrgð sem fylgir oddvitastöðunni og ætlar sér að endurvinna fylgi
„ÉG ER mjög þakklát fyrir það
hvernig [Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son] hefur haldið á þessu máli.
Margir hafa spurt mig hvort það sé
ekki snúið fyrir mig að taka við þar
sem hann er áfram í hópnum. Ég
segi afdráttarlaust nei,“ sagði
Hanna Birna. Hún lofaði störf Vil-
hjálms, sem átti ekki heiman-
gengt, og bað gesti um að klappa
fyrir honum.
Hanna Birna sagði Vilhjálm oft og
tíðum hafa hlotið ómaklega gagn-
rýni og það væri flokknum til
happs að halda starfskröftum
hans. „Mér finnst ótrúlega mikil-
vægt að hafa hann með okkur. Mér
finnst ótrúlega mikilvægt að hann
sé tilbúinn að vinna áfram með
þessum hópi. Ég er þakklát fyrir
það og hlakka til að vinna með
honum.“
Mikilvægt að Vilhjálmur haldi áfram
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu leitaði síðdegis í gær 11 ára
gamallar fatlaðrar stúlku. Stúlkan
fór að heiman frá sér í Hafnarfirði
um tólfleytið í gær. Litla stúlkan
var ófundin þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
Lögreglan notaði þyrlu við leit-
ina að stúlkunni, en leitað var í
hrauni, skammt frá heimili stúlk-
unnar. Einnig stóð til að spor-
hundar aðstoðuðu við leitina.
Leitað að
11 ára stúlku
TALSVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum aðfaranótt
laugardags. Þrisvar þurfti að hafa
afskipti af íbúum í heimahúsum
vegna ónæðis í tengslum við
skemmtanahald.
Þá var tvisvar tilkynnt um áflog í
Hafnargötu í Keflavík en þau leyst-
ust fljótlega upp.
Lögreglumenn stöðvuðu þrjá
ökumenn vegna umferðalagabrota.
Sá fyrsti ók á 99 km/klst. þar sem
hámarkshraði er 70 km/klst. á
Reykjanesbraut. Annar virti ekki
stöðvunarskyldu og sá þriðji var
grunaður um ölvun við akstur í
Grindavík.
Flogist á í
Hafnargötu
Morgunblaðið/Frikki
Oddvitinn Hanna Birna sagði mikilvægt að endurvinna traust flokksins.