Morgunblaðið - 15.06.2008, Page 11
Myndlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarskólann Do Re Mi. En
það er „akkilesarhæll“ starfseminnar hversu lítil íþróttahúsin í
skólunum eru og hversu þröngir skólarnir eru miðað við nem-
endafjölda. Aðstaðan er því „gjörnýtt“.
Gjáin sem Hringbrautin er
Til þess að ná til „afskiptra“ krakka í Vesturbænum þarf að
skoða svæðið með það í huga að skipuleggja leiðir fyrir foreldra
og börn á milli hverfa. „Það er ekki ein miðja í Vesturbænum
heldur tveir pólar, KR-svæðið og svæðið í kringum Hagatorg, og
það vantar almennilegar tengingar þar á milli,“ segir séra Örn
Bárður Jónsson.
„Það mætti til dæmis gera skýrari og afmarkaðri göngustíg og
hjólreiðastíg á milli þessara staða, til dæmis frá Neshaganum, yf-
ir Hofsvallagötu og beint inn á KR-svæðið. Svo er Skerjafjörður
eins og eyja, sem er fjarri okkur. Mér skilst að íbúar í Skerjafirði
skili sér síður í íþróttastarfið og við finnum það líka í barnastarf-
inu í krikjunni.“
Strætisvagnasamgöngur hafa dregist saman, að sögn Arnar
Bárðar, og hann veltir því upp hvort ekki megi koma upp „skutl-
bíl“ á milli helstu staða í hverfinu. „Auðvitað er best að efla hreyf-
ingu og hjólreiðamenningu og vera laus við stóra og þunga stræt-
isvagna. En mætti ekki taka í gagnið minni bíla, sem börn
hoppuðu upp í og færu á milli?“
Hann segir augljóst að tengingar vanti frá svæðinu sunnan
Hringbrautar við Vesturbæjarskóla og Landakotssvæðið. „Það
þurfa að vera mjög góðar tengingar yfir eða undir Hringbraut.
Það er búið að njörva okkur niður með þessari gjá sem Hring-
brautin er.“
Aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar
En jafnvel þótt samgönguleiðir væru fyrir hendi má efast um
getu KR til að mæta vaxandi eftirspurn vegna aðstöðuleysis. Og
almennt er kvartað undan fáum opnum svæðum fyrir íþróttir og
útivist í Vesturbænum. Þannig hafi Framnesvöllur nýst undir
íþróttir krakka og jafnvel knattspyrnuæfingar KR, en það svæði
hafi farið undir Vesturbæjarskóla. Lengi hafi staðið til að bæta
aðstöðu til leikja og íþrótta á skólalóðinni, en það hafi dregist. Að
sögn Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa og formanns ÍTR,
stendur reyndar til að byggja við skólann í sumar og ráðast í
breytingar á lóðinni.
Á Melavellinum var „risaflæmi“ undir íþróttir og tómstundir,
en þar stendur nú Þjóðarbókhlaðan. Háskólatúnið var forðum
notað undir æfingar og íþróttir, en þar eru bílastæði fyrir há-
skólanema og framtíðarbyggingarsvæði Háskóla Íslands. Þá var
Landakotstún notað fyrir æfingar og íþróttir, þar til svæðinu var
breytt í lystigarð.
Staðan er því sú að svæðum sem nýtast undir íþróttir og útivist
hefur fækkað mikið í Vesturbænum. Þó er enn völlur á Starhaga,
sem vilji stendur til að byggja upp. Það mál er hjá borgarverk-
fræðingi og lagt upp með að ráðast í uppbygginguna samhliða
lagningu hjólreiðastígs meðfram Ægisíðunni.
Foreldrar hafa kvartað undan „elítustefnu“ í yngri flokkum
KR, þrátt fyrir að hvergi í stefnunni sé að finna slíka forgangs-
röðun í yngri flokkunum. En Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýð-
heilsustöðvar, hefur bent á að skýringuna megi ef til vill finna í
aðstöðuleysi. Til þess að unnt sé að koma til móts við alla þurfi að-
staða að vera fyrir hendi.
Og dagskráin hefst snemma á vorin, því KR er með níu skráð-
ar íþróttagreinar, þannig að töluvert margir krakkar stunda
íþróttir á litlu svæði. „Við þurfum því að bæta aðstöðuna, enda
væri æskilegt að við næðum til enn fleiri krakka.“ Fótboltaæf-
ingar hjá KR fara fram um eftirmiðdaginn og er þeim að mestu
lokið kl. 17 um daginn, en krakkarnir koma sér þá sjálfir á æfing-
ar úr frístundaheimilunum. „Þau koma hér labbandi með
töskuna,“ segir Stefán Arnarson. „Einstaka foreldrar eru þannig
í stakk búnir að geta keyrt þau.“ Það leiðir því af sjálfu sér að
þátttaka krakka er dræmari, eftir því sem skólar eru fjær KR-
svæðinu.
Svo eykur það álagið á fjölskyldur að margir leikjanna í yngri
flokkum fara fram um eftirmiðdaginn þegar foreldrar eru flestir í
vinnu. „Það er raunar líka erfitt að fá starfsfólk á hefðbundnum
vinnutíma,“ segir Pétur. „KSÍ hefur haft samband við okkur og
kvartað undan því að erfitt sé að útvega dómara, því leikirnir
byrja það snemma dags.“
Skipulegar æfingar í hverfum
Í nýrri stefnu KR er lagt upp með að skilgreina KR-svæðið
sem allan Vesturbæinn. „Við viljum tengjast skólunum betur og
þeir eru allir af vilja gerðir,“ segir Pétur. „Við leggjum líka meiri
áherslu á leikskólana. Fjórir þeirra fengu aðstöðu í æfingasaln-
um okkar í vetur og þeim fjölgar enn næsta vetur. Þannig viljum
við tengjast þeim betur sem koma að uppeldi barna og unglinga í
Vesturbænum.“
Að auki er vilji til þess að koma upp sparkvöllum og körfu-
boltavöllum við skólana og á opnum svæðum í Vesturbænum með
áherslu á svæði, sem næst annars ekki til. Sú hugmynd hefur
fengið hljómgrunn hjá borgaryfirvöldum, hvað sem úr verður.
Stefnt er að því að KR verði með skipulegar æfingar úti í hverf-
unum fyrir yngstu krakkana, frá sex til níu ára aldurs. „Með því
ýtum við vonandi undir áhuga hjá krökkum, sem ella kynnu að
fara á mis við íþróttaiðkun,“ segir Pétur.
Til þess að mæta fjölþættum þörfum fjölskyldna í Vest-
urbænum hefur KR á teikniborðinu „stórhuga“ hugmynd um að
sameina krafta þeirra sem starfa með börnum og unglingum á
einum stað. „Okkar draumsýn og framtíðarstefna er sú að reisa
allsherjar menningar-, íþrótta- og þjónustumiðstöð undir sama
þaki,“ segir Pétur. „Ekkert hefur þó verið höggvið í stein varð-
andi útfærsluna og við leggjum mikið upp úr samráði við íbúana.“
Hugmyndin felst í því að byggja á KR-reitnum yfir allar hugs-
anlegar tómstundagreinar, frístundaheimilin hafi þar aðstöðu,
þar verði þjónustumiðstöð og heilsugæsla, auk þess sem KR
haldi þar úti íþróttastarfi. Á meðal þess sem félli undir tóm-
stundastarf væri dans-, leiklistar- og söngnám. Þá yrðu allar
tómstundir og íþróttir felldar inn í starf frístundaheimilanna,
þannig að börnin hefðu lokið æfingum þegar foreldrar sæktu þau
í lok vinnudags, eins og tíðkast í nágrannasveitarfélaginu Sel-
tjarnarnesi.
„Eins og stundataflan er núna er erfitt að koma því við að
krakkar stundi tómstundanám samhliða íþróttum, þó að rann-
sóknir sýni að börn hafi áhuga á slíkri fjölbreytni, en ef okkar
hugmyndir ganga eftir gætu krakkarnir mætt hingað með hverf-
isstrætó eða eftir öðrum leiðum og sinnt sínum tómstundum og
íþróttum. Og vinnudagur krakkanna væri búinn um fimmleytið.
Ekkert kemur í staðinn fyrir þann tíma sem foreldrar eyða með
börnunum sínum og það er synd að taka samverustundir fjöl-
skyldunnar í skutl og stress!“
Áætlanir gera ráð fyrir að ekki taki meira en átján mánuði til
tvö ár að byggja, en fyrst þarf hugmyndin að fara í gegnum laga-
legt ferli hjá Reykjavíkurborg, sem fylgir skipulagsbreytingum
af þessum toga. „Þá er þetta ekki í okkar höndum lengur.“
Og svo þarf auðvitað að fjármagna verkefnið. Pétur segir að
hönnunarferlið og athuganir séu ekki komnar nógu langt til að
hægt sé að kynna kostnaðaráætlun, en hægt sé að hafa til hlið-
sjónar hvað svipaðir vellir og byggingar kosti annars staðar á
Norðurlöndunum „og lauslegir útreikningar sýna að það sé allt
mjög viðráðanlegt“. KR mun fjármagna verkefnið að mestu leyti
sjálft, meðal annars með þjónustuíbúðum fyrir eldri borgara, þar
sem hægt væri að bjóða upp á sjúkraþjálfun og endurhæfingu á
sama stað, en leita eftir stuðningi frá Reykjavíkurborg þar sem
það á við.
Engin „kringla“
Til þess að hugmyndin verði að veruleika þarf að leggja hluta
af grassvæðinu undir byggingar, sem þýðir að KR-ingar munu
þurfa meira æfingasvæði annars staðar í Vesturbænum, til dæm-
is með því að bæta aðstöðuna við Starhaga og koma upp nýjum
grassvæðum. Gervigrasið yrði áfram við KR-völlinn og komið
yrði upp knatthúsi við hliðina á því, þó ekki í fullri stærð. Það
myndi bæta vetraraðstöðuna og gæti nýst fleiri íþróttum en fót-
boltanum. Kvartað er undan aðstöðuleysi fyrir íþróttaiðkun hjá
KR og segir sína sögu að meistaraflokkurinn æfir allan veturinn í
Egilshöll eða í Kópavogi.
Leikvangurinn verður síðan í miðju þjónusturýminu, þar sem
stefnt er að allt að fimm þúsund sæta stúku, en í dag tekur hún
1.415 manns í sæti, þó að þrjú til fimm þúsund manns mæti á
stærstu leikina á hverju sumri. „Þarna yrðu nokkrar flugur
slegnar í einu höggi, fyrst og fremst til að efla íþrótta- og tóm-
stundastarf meðal barna og unglinga í Vesturbænum,“ segir Pét-
ur. Lagt er upp með að hugsa „vinnudag“ krakkanna „öðruvísi“
og að allt starf yrði „heilsteyptara“.
Þá hefur verið velt upp ýmsum kostum varðandi þjónustu sem
í boði yrði, svo sem lögreglu, heilsugæslu, endurhæfingar- og lík-
amsræktarstöð. „Þess vegna ballett,“ segir Pétur brosandi. „Við
viljum endilega koma til móts við hugmyndir foreldra um hvað
þurfi að bæta, þannig að það verði heilsteypt þjónusta, fyrst og
fremst fyrir börn og unglinga, en einnig alla fjölskylduna. Við
hugsum þetta samt ekki sem einhverja kringlu eða risasteypu-
klump, heldur leggjum áherslu á mannlífið sem skapast og að
götumyndin verði falleg.“
Hann segir Vesturbæinn sunnan Hringbrautar skipulagðan
sem fjölskylduhverfi með iðandi mannlífi. „Það má segja að
mannlífið byrji við Háskóla Íslands, þar sem stúdentar labba á
milli húsa, það teygi sig yfir í Þjóðarbókhlöðuna. Svo tekur við
hringiðan í kringum Hótel Sögu og Háskólabíó, Melaskóla og
Hagaskóla. Og keðjan heldur áfram yfir í Melabúðina og Vest-
urbæjarlaugina, samhliða stígnum við Ægisíðuna. Síðan tekur
við Úlfarsfell og mannlífið eiginlega stöðvast við KR, þar sem
takmörkuð þjónusta utan íþróttastarfs er í boði á veturna. Það
þarf að bæta mannlífið hér og viðhalda keðjunni.“ | pebl@mbl.is
fótbolta fara saman
Morgunblaðið/G.Rúnar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 11