Morgunblaðið - 15.06.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 37
MARGT bendir til
að nú séu þáttaskil í
efnahagsmálum og við
atvinnuuppbyggingu í
samfélagi okkar.
Að við hættum að
naga í rót allar auðlind-
ir lands og sjávar og
einbeitum okkur að
menntun, hugviti og
grænni orku, eflum innviði sam-
félagsins, temprum sveiflur í hag-
kerfinu.
Stefna Samfylkingarinnar fyrir
síðustu kosningar í atvinnu- og efna-
hagsmálum hafði einmitt þessa
grunntóna. Að atvinnulífi og hag-
stjórn verði þannig háttað að ekki
þurfi að umgangast íslenska hag-
kerfið einsog fíkniefnasjúkling í
hvert sinn sem að kreppir. Að liðinn
væri tími svokallaðra innspýtinga í
formi stóriðjuframkvæmda. Að hætt
yrði að spilla náttúruverðmætum
sem aldrei verða aftur heimt.
Samfylkingin er nú í stjórn vegna
þess að fólki líkaði vel samhljóm-
urinn milli efnahags- og atvinnu-
stefnunnar, velferðarboðskapsins og
umhverfisstefnunnar um „Fagra Ís-
land“. Og vissulega lifum við á
áhugaverðum tímum: Á aðeins ári
hefur náðst talsverður árangur.
Þrátt fyrir kreppuna sem á herjar.
Öldudalir í efnahagsmálum eru
óhjákvæmilegir og geta verið hollir
– ef undirstöðurnar eru í lagi. Þá
verða menn að taka á, láta af hóglífi,
finna frjóar lausnir. Mikilvægast er
að herða hugann, safna liði og þræða
hjá vanabundna munstrinu.
Gamli stíllinn er lífseigur. Það er
auðveldast að láta vanann ráða þeg-
ar á bjátar – og hin fornfrægu
bandalög hagsmunanna birtast í
gamalkunnu háttalagi og gamaldags
orðfæri. Þetta sést vel í áformunum
um álver í Helguvík.
Þeim til framdráttar er sagt að nú
verði að keyra upp atvinnustigið –
með gömlu innspýtingunum. At-
vinnuástand er sannarlega tvísýnt á
næstunni. Flestir telja þó að fólk og
fyrirtæki þoli enn við þrátt fyrir
samdráttinn, og atvinnulausir á Út-
nesjum virðast síst vera úr þeim
hópum sem helst njóta vinnu við ál-
versframkvæmdir. Reyndar er þeg-
ar verið að vinna að uppbyggingu á
svæðinu af mikilli hugmyndaauðgi
með mennta-
framkvæmdum á Vell-
inum. Vonandi stendur
sá rekstur af sér ruðn-
ingsáhrif álversins?
Á tímum loftslagsvár
verður að sýna fyr-
irhyggju. Þeir sem vilja
álver þurfa að gera sér
grein fyrir því að
mengunarkvóti Íslend-
inga er á þrotum. Það
er einfalt reiknings-
dæmi að innan heim-
ilda fram til 2012 rúm-
ast aðeins eitt álver af meðalstærð.
Helguvík mundi ýta út öðrum ál-
versáformum – þar á meðal Bakka-
veri við Húsavík. Farið hefur fé
betra, segja sumir. Aðrir telja að ál-
ver væri skárra á landsbyggðinni en
suðvesturhorninu miðað við þörf fyr-
ir fjárfestingar og atvinnu. Hvað
gerist svo eftir 2012 veit enginn – en
sennilegast er að allar þjóðir verði
að menga minna.
Álverið í Helguvík þarf gríðarlega
orku. Þá sneyðist um orkuöflun fyrir
önnur hugsanleg iðjuver á þessu
svæði og austurum allt Suðurland.
Vel getur farið svo að vegna Helgu-
víkurálvers þurfi að gefast upp við
netþjónabú eða mengunarlítil
hreinkísilver. Er það í samræmi við
framtíðarhagsmuni Íslendinga?
Helguvík étur rafmagn – og ef
aðrir eiga líka að fá orku þarf að
virkja meira. Miklu meira. Svæðið
frá Reykjanesskaga austur að jökl-
um er samfelldur orkumarkaður og
ekki skynsamlegt að skoða hvert
dæmi í einangrun. Gangsetning ál-
vers á Útnesjum eykur til dæmis
þrýsting á að virkjanir komist í
gagnið við neðanverða Þjórsá. Vilja
það allir?
Álver í Helguvík vekur margar
spurningar – og tefur ljóslega þau
þáttaskil sem boðuð voru í upphafi
greinar. Þess vegna höfum við Sam-
fylkingarmenn og óflokksbundnir í
Græna netinu, umhverfissamtökum
jafnaðarmanna, varað við þessum
framkvæmdum og afleiðingum
þeirra. Við teljum að auk einstakra
áætlana og aðgerða hafi í kosn-
ingastefnu Samfylkingarinnar um
„Fagra Ísland“ og „nýja atvinnu-
lífið“ falist almenn en afar skýr fyr-
irheit um aðra kosti í atvinnumálum
en hingað til hafa heillað stjórnvöld
og um nýja tíma í umhverfismálum.
Við þessi fyrirheit á Samfylkingin að
standa og stuðla þannig að þeim um-
breytingum sem samfélag okkar á
skilið.
Við þurfum ekki gömul kreppuráð
heldur skýra framtíðarsýn.
Kreppulausnir eða
framtíðarsýn?
Mörður Árnason
skrifar um framtíð-
arsýn og efnahags-
horfur
» Atvinnulífi og hag-
stjórn á að hátta
þannig að ekki þurfi að
umgangast íslenska
hagkerfið eins og fíkni-
efnasjúkling í hvert sinn
sem að kreppir.
Mörður Árnason
Höfundur er formaður Græna nets-
ins, umhverfissamtaka í tengslum við
Samfylkinguna.
HVAMMSSKÓGUR SKORRADAL
DÖNSK NÚTÍMA HÖNNUN
Erum að reysa þessi sýningarhús að Hvammskógi 43 og Hvammskógi 13, húsin eru til sölu og verða tilbúin nú í sumar.
Söluaðili Þórhallur sími 896-8232. Sjá einnig: www.livora.is og www.gardatorg.is
Háteigsvegur 30 - 105 Reykjavík
Opið hús í dag kl. 14:30 - 15:00
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is
Glæsileg og mikið endurnýjuð 264,2
fm, 9 herbergja efri sérhæð ásamt bíl-
skúr á þessum eftirsótta stað mið-
svæðis í Reykjavík. Eignin skiptist í
hæð og ris. Gengið er úr sérinngangi
uppá hæðina sem skiptist í eldhús,
baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þrjár
stofur, geymslu og þvottahús. Í risi
eru þrjú svefnherbergi og snyrting.
Eignin er nútímalega innréttuð með
eikar plankaparketi og flottri lýsingu.
Stór lóð til suðurs. Laus strax.
Makaskipti á minni eign skoðuð.
Verð: 68 millj.
Sölumaður Stórborgar á staðnum.
Í einkasölu 250 fm einbýlishús á frá-
bærum stað. Innbyggður bílskúr.
Húsið er hannað af Einari Ólafssyni
arkitekt hjá Arkitekto.is og innan-
húsarkitektinum Hallgrími Friðgeirs-
syni hjá Glámu/Kím. Húsið er byggt
í hæsta gæðaflokki, allar innrétting-
ar sérsmíðaðar. Granít borðplötur.
Öll tæki frá Miele. Ljós hönnuð af Helga í Lúmex. Baðherbergin eru tvö
með glæsilegum innréttingum. Axor hreinlætistæki sem eru ítölsk hönnun.
Svefnherbergin eru 4 og öll vel rúmgóð. Þvottahús er með vandaðri inn-
réttingu og hannað með það í huga að vera með tæki í vinnuhæð. Eldhús-
ið er sérlega glæsilegt með eldaeyju. Lóðin er frágengin með hellulögðu
bílaplani og stéttum umhverfis húsið. Mjög stór timbuverönd úr harðvið
með steyptum skjólveggjum. Möguleg skipti á ódýrari eign. V. 98 m.
Nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason 896 5221.
Hvannakur
– glæsihús í Garðabæ
Akraland Garðabæ
- glæsilegar lóðir í skiptum
Í einkasölu 750 fm lóðir við Stórakur
(verð 23,9 millj.) og Sunnakur (verð 29
millj.) (neðsti botnlanginn). Til afhend.
strax. Möguleiki að taka bíl eða minni
eign upp í kaupverð.
Upplýsingar veitir Bárður 896 5221.
, ,í morgungjöf?